SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Qupperneq 20

SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Qupperneq 20
20 15. júlí 2012 Búlgarska eftirlitið Guðrún, eða „Gunna frænka“ eins og Ægir hefur alltaf kallað hana, sá um að senda Ægi jóla- og afmælispakka til Búlgaríu frá því hann man eftir sér. „Ég var nú reynd- ar einfaldlega kallaður „Gunna“ í hverfinu mínu. Þegar sendingarnar komu tvisvar á ári frá Íslandi vissi allt hverfið hvað var að gerast.“ Guðrún Sverrisdóttir er viðstödd viðtalið sem blaðamaður á við Alexöndru og Ægi og lýsir því hvernig hún þurfti að haga þeim send- ingum til að þær kæmust til skila í gegnum búlgarska eftirlitið og ljóst er að það gat verið heljarinnar mál að koma einföldum barnagjöfum inn í landið. Í pökkunum ekki vita almennilega ástæðuna. „Það er sérstaklega mikill áhugi á þessu í Búlgaríu. Fólk lærir utanbókar þessi ljóð úr Konungsbók en Hávamálin sem ég gef út eru þau fyrstu sem eru þýdd beint úr íslensku en þau hafa verið til í þýðingum úr rússnesku og ensku til að mynda. Ég bar þýðinguna undir prófessora í Sofíu og ég fékk mjög jákvæð viðbrögð frá þeim prófessorum.“ Ægir ætlar sér líka að gefa út Völuspá en áður en við fjöllum nánar um bókmenntirnar, ástríðu Ægis fyrir Hávamálum og ljóðin hennar Alexöndru er ætlunin að spóla aðeins aftur, til þess tíma þegar eini snertiflötur Ægis við Ísland voru pakkasendingar frá „Gunnu frænku“. Fyrstu viðbrögðin voru þau að pabbi hennarhlyti að hafa mútað einhverjum,“ segir ÆgirEinarov Sverrisson um það þegar dóttir hans,Alexandra Sverrisson, vann aðalverðlaun í einni þekktustu keppni ungra ljóðskálda í Búlgaríu. Hún var aðeins 17 ára og búlgarski bókmenntaheimurinn spurði sig hvaðan þessi stúlka með þetta undarlega ætt- arnafn kæmi. Einhver hafði heyrt að hún ætti rætur að rekja til Írlands. En það var og, hennar rætur liggja til Ís- lands. Missti íslenskan föður Ægir Einarov Sverrisson er hálfíslenskur. Faðir Ægis var Einar Ragnar Sverrisson, sem lést sem ungur maður í bílslysi í Þýskalandi en hann var við nám þar ytra. Ægir var þá þriggja ára og leið hans lá til Búlgaríu þar sem móðir hans, Nevena Kalawranova, var búlgörsk. Foreldrar Ægis höfðu kynnst í námi í Þýskalandi en Ægir var aðeins þriggja ára þegar faðir hans lést í bílslys- inu. Það sem beið hans var því harður heimur í Búlgaríu, lokað land kommúnismans sem vaktaði hvert skref og hverja afmælispakkasendingu frá ættingjum á Íslandi. Ægir og Alexandra voru stödd á Íslandi fyrir nokkrum dögum og eyddu tíma með íslensku fjölskyldu sinni. Þeirra stoð og stytta, fyrr og nú, er föðursystir Ægis, Guðrún Sverrisdóttir. Guðrún og faðir Ægis eru börn Sverris heitins Kristjánssonar, hins kunna sagnfræðings og konu hans, Ernu Einarsdóttur. Sverrir var þjóð- þekktur fyrir fræðimennsku sína, tungumálasnilld og pennafimi. Pabbi Ægis talaði þá níu tungumál, meðal annars búlgörsku sem hann lærði eitt sumar úti á sjó. Það er ljóst að Ægir og Alexandra dóttir hans hafa fengið væna sneið af þessari köku í vöggugjöf. Búlgarar læra Hávamál utanbókar Ægir talar vandaða íslensku en hann kunni varla stakt orð í tungumálinu fyrr en eftir tvítugt. Þá hefur hann séð um ærin þýðingarverkefni úr íslensku á búlgörsku, meðal annars ritstýrt þýðingu á Svani Guðbergs Bergs- sonar í Búlgaríu og snarað íslenskum nútímaljóðum yfir á móðurmál sitt. Ljóðum eftir skáld á borð við Njörð P. Njarðvík og Matthías Johannessen. Hann hefur líka ráð- ist í að þýða Grámosinn glóir eftir Thor Vilhjálmsson. „Jú, það er erfitt verk en það var ekki þess vegna sem það hefur ekki klárast heldur einfaldlega skortur á fé og tíma til verksins. Hávamálin sem ég þýddi yfir á búlg- örsku hef ég nýlokið við að gefa út en ég hef kennt goða- fræði á hverju ári í Háskólanum í Sofíu.“ Ægir upplýsir blaðamann um þann mikla áhuga sem er í Búlgaríu á gömlum norrænum fræðum en heilu hóp- arnir hafa myndast sem félagsskapur í kringum þetta áhugamál sem hljómar svolítið sérstakt og Ægir segist Búlgarar læra Hávamál utanbókar Árið 1996 stóð Ægir Einarov Sverrisson í röð og beið eftir laununum sínum. „Peningarnir eru búnir,“ sagði gjaldkerinn þegar röðin kom að honum. Ægir ákvað á þessu augnabliki að hann myndi aldrei þiggja pening fyrir að kenna við Há- skólann í Sofíu – norræn fræði og íslensku. Saga Ægis er með ólíkindum. Dóttir hans, Alex- andra Sverrisson, hefur þá vakið mikla athygli í búlgarska bókmenntaheiminum. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Hávamál nýþýdd Ægir Einarov hefur nýlokið við að þýða Hávamál yfri á búlgörku. Morgunblaðið/Júlíus

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.