SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Blaðsíða 37
15. júlí 2012 37
af fyrir sig. Gildir það meðal annars um
Suðurey þar sem búa um 5.000 manns.
Þar eru Vogur og Þvereyri fjölmennustu
byggðirnar. Á fyrrnefnda staðnum starfa
margir við t.d. laxeldi. Á Þvereyri snýst
hins vegar allt um sjávarútveginn, meðal
annars vinnslu á uppsjávarfiski í verk-
smiðju sem íslenskir iðnaðarmenn eru
þessa dagana að smíða og setja upp.
„Ég bind vonir við starfsemina á Þver-
eyri eins og alla aðra græðlinga í atvinnu-
lífinu hér. Allar leiðir hér á Suðurey eru
góðar og greiðfærar og auðvelt að sækja
vinnu milli staða,“ segir Arnfrid. Hún tel-
ur mikilvægt að byggð og mannlíf í eynni
nái viðspyrnu til vaxtar og sóknar. Sú
staðreynd sé sláandi að á uppvaxtarárum
sínum hafi verið um það bil 600 íbúar í
Sumba en þeir séu í dag um 240. Eitt sinn
hafi verið nærri 100 börn í grunnskól-
anum en séu nú aðeins sextán. Aðrar tölur
sem endurspegli hnignun byggðarinnar
séu á þessu róli.
Þjóðdansar og messa
Staðreyndasúpa með hagtölum segir harla
lítið þegar lýsa skal landi og þjóð. Vitur
maður sagt einhverju sinni að hagur og
staða samfélagsins endurspeglaðist stund-
um best í lífi æskunnar. Og það má sjá blik
í augum barnanna færeysku sem leika sér
áhyggjulítil í umhverfi sem lýtur um
margt eigin lögmálum. Suðurey er nefni-
lega býsna vel til þess fallin að þar sé hægt
að lifa glaðværu og notalegu lífi, eins og
hvarvetna þar sem skipulagshyggja og
reglustrikuhugsun eru ekki allsráðandi.
„Félagslífið hér er öflugt þrátt fyrir fá-
mennið. Yfir veturinn komum við saman
vikulega hér í Sumba á þjóðdansaæf-
ingum, hefðin fyrir slíku er óvíða jafn
sterk og hér í Suðurey. Svo eru spilakvöld
hér alltaf öðru hvoru og messa á hverjum
sunnudagsmorgni, segir Anrfrid um
helgihaldið í sóknarkirkjunni í Sumba –
þangað sem presturinn í Vogi kemur bara
einu sinni í mánuði. Trúaðir og kirkju-
ræknir þorspbúar láta sig slíkt þó einu
gilda; meðhjálparinn les bæn og guðspjall
dagsins og svo syngur hver með sínu lagi –
af innlifun með heitu hjarta. Þá nú er verið
að koma upp fugla- og byggðasafni í
Sumba og einhvern næstu daga opnar
kaupmaðurinn í Vogi útibú verslunar
sinnar í þorpinu. Kaupmaðurinn á höf-
uðbólinu gleymir ekki hjáleigunni.
Heimsendi við
þjóðbraut þvera
„Ég vil búa hérna. Þetta er minn staður.
En við Færeyingar þurfum að setja markið
hærra ætlum við virkilega að ná árangri.
Megum samt ekki gleyma rótum okkar og
menningu – eða einangra okkur,“ segir
Arnfrid hvar við sitjum á heimili hennar í
húsinu við ysta hafið. Við getum kallað
þetta Turninn á heimsenda, svo vitnað sé
til hinnar frægu bókar Williams Heinesen;
öndvegisskáldsins færeyska. Sá hafði
meiri áhrif á samtíð sína en flestir aðrir;
hugsaði stórt og hafði heiminn undir.
Og í raun og sann er Suðurey ekki af-
skekkt lengur og fjarlægðir afstæðar. Á
sjónvarpsskjánum í Sumba birtast okkur
fréttir frá öllum heimshornum (meðal
annars úrslit í forsetakosningum á Ís-
landi), í færeyska útvarpinu kynnir þul-
urinn Bítlalög og fréttamaðurinn góð-
kunni, Elis Paulsen spilar allskonar fínirí.
Á samskiptasíðum netsins er Arnfrid í
sambandi við fjölda fólks; í Færeyjum, á
Íslandi, í Danmörku og víðar. Og svo
sendir hún sínu fólki skilaboð á rafrænum
öldum út í nóttina sem breiðist yfir hlíðina
háu og þorpið – sem tækni nútímans hef-
ur fært í þjóðbraut þvera.
Sauðfjárbúskapur skiptir í Sumba. Faðir Arnfrid, Bjarni Vestergaard, og Sjurð sem er til
vinstri á myndinni eru bændur en voru árum saman á vertíð á Íslandi og eiga hér rætur.
„Færeyinga skortir kannski fyrst og fremst
sjálfstraust þannig að stærri skref í átt til
sjálfstæðis verði tekin,“ segir Arnfrid Ves-
tergaard Hentze. Hún býr í þorpinu Sumba,
sem er á fremstu tá Suðureyjar sem er
syðst Færeyja sem eru átján alls.
Suðuroy
Færeyjar
Sandvík
Hvalba
Trongisvágur
Froðba
Tvøroyri
Famjin
Porkeri
Vágur
Lopra
Sumba