SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Side 42

SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Side 42
42 15. júlí 2012 Flest höfum einhvern tímanngefið loforð. Oftast reynist okk-ur auðvelt að standa við gefinloforð enda meðvituð um að ekki sé gott að lofa upp í ermina á sér. Stundum göngum við hins vegar á bak orða okkar. Fæstum þykir það ákjós- anlegt eða til eftirbreytni og oft reynum við að bæta fyrir svikin loforð. Loforð sem fólk gefur hvað öðru hafa sjaldan áhrif á aðra. Ef ég lofa þeim sem ég bý með til dæmis að fara út með ruslið alla næstu viku en stend svo ekki við það er ólíklegt að svikin hafi áhrif á fleiri en þann sem ég gaf loforðið og sjálfa mig. Ekki er ólíklegt að næst þegar ég gef við- komandi loforð efist hann um að ég muni standa við það að fenginni reynslu. Það að ég fari ekki út með ruslið hefur hins vegar ekki áhrif langt út fyrir heimili mitt. Stundum notum við loforð til að fá okkar fram. Hver hefur ekki heyrt eitt- hvað á þessa lund: „Ég lofa að hoppa ekki í rúminu ef ég má horfa á sjónvarpið“? Í slíkum tilvikum er líkast því að reynt sé „selja“ viðkomandi „vöru“. Í þessu til- felli væri það þá óbælt rúm sem við vild- um kaupa því verði sem „seljandinn“ setur upp. Loforð eins og þetta hafa hvorki mikil né hættuleg áhrif á sam- félagið. Áhrif loforða af þessu tagi geta hins vegar haft víðtækari áhrif. Það vita þeir best sem hafa það hlutverk að selja vörur. Loforð af þessu tagi eru, eins og lesendur vita, algeng í auglýsingum. Oft er þó farið í kringum loforðin því sjaldnast geta selj- endur staðið við þau. Það er til dæmis erfitt að tryggja góðan svefn þótt maður kaupi ákveðið rúm. Það sem auglýsendur gera er að reyna að selja neytendum þá hugmynd að þeir muni sofa betur ef þeir kaupi rúmið góða. Eflaust munu sumir sofa ágætlega í nýju rúmi en svo eru aðrir sem munu sofa jafnilla eða jafnvel verr en í gamla rúminu. Í þeim tilfellum verður sá hinn sami líklega fyrst og fremst að horfast í augu við sjálfan sig og bíta í það súra epli að hafa trúað því sem stóð í aug- lýsingunni. Um auglýsingar gilda þó ákveðin lög og reglur sem eiga að tak- marka nokkuð það sem auglýsendur geta sagt. Þeir sem bjóða sig fram til setu á al- þingi eru þekktir fyrir loforð rétt fyrir kosningar. Ólíkt loforðum sem fólk gefur hvað öðru geta kosningaloforð haft mikil áhrif á aðra en þá sem falla fyrir þeim. Þannig getum við hugsað okkur stjórn- málamann sem lofar hærri sköttum eftir kosningar. Líklegt er að margir muni ekki kjósa þann einstakling vegna þessa loforðs á meðan aðrir kjósa hann í trausti þess að hann standi við loforðið. Komist viðkomandi til valda og efni hann loforð sitt hefur það áhrif á miklu fleiri en þá sem kusu tiltekinn einstakling. Loforð um stórauknar framkvæmdir, niðurfell- ingu skulda og lægri skatta hafa líka áhrif langt út fyrir raðir þeirra sem trúa þess konar loforðum eða telja þau vera til bóta. Af þessum sökum er nauðsynlegt að þau sem hafa áhuga á þingstörfum hugsi sig tvisvar um áður en loforðunum er dælt yfir kjósendur. Kosningaloforð eru dýr orð og hafa áhrif á miklu fleiri en þá sem fyrir þeim falla. Dýr loforð ’ Stundum notum við loforð til að fá okkar fram. Hver hefur ekki heyrt eitthvað á þessa lund: „Ég lofa að hoppa ekki í rúminu ef ég má horfa á sjónvarpið“? Tungutak Halldóra Björt Ewen hew@mh.is El ín Es th er X-P Kjósið Pedró! Málið Þegar ég næ kjöri ætla ég að stytta vinnuvikuna í þrjá daga, lengja sumarið um fjóra mánuði, fjölga jólunum í þrenn á ári, leggja niður alla skatta, fækka alþingismönnum um 70, sendiráðum um 3.000 og íbúum í miðbæ Reykjavíkur um 15%. Flugvöllurinn verður fluttur úr Vatns- mýrinni og á Stokkseyri, atvinnuleysi mun minnka um 200%, meðalhiti hækka um 10° og á sama tíma munu jöklarnir hætta að minnka. Einnig mun ég tryggja öllum íbúum landsins gott tásunudd á hverju kvöldi, nema þeim sem eru ekki með tásur. Þeir fá Sinalco í staðinn. Að lokum ætla ég að setja Ríkisút- varpið á frjálsan markað, fella niður nefskatt og opinber framlög til stofn- unarinnar en á sama tíma tryggja að dagskráin verði fólki bjóðandi. Þór Whitehead Í grein í Sunnudagsmogganum 27.maí sl. („Treysti Jón ekki Jóni?“)fullyrti Jón Kristjánsson kaup-maður, að í bók- inni Sovét-Ísland óska- landið ályktaði ég ranglega að Jón Magn- ússon, forsætis- og dómsmálaráðherra, hefði ekki treyst Jóni Hermannssyni lög- reglustjóra til að útkljá svokallað drengsmál Ólafs Friðrikssonar 1921. Því hefði hann látið Jóhann P. Jónsson skipherra landhelgisgæslunnar taka við stjórn lögreglunnar í þessu átakamáli. Jón Kristjánsson segir að orð sjálfs Jóns Magnússonar á Alþingi 1925 hnekki þess- ari ályktun minni. Í henni felist „fullyrð- ing“, sem ekki hefði „sést áður í bókum og blaðagreinum um hvíta stríðið í nóv- ember 1921, og ekki heldur í Písl- arþönkum eða öðrum gamankveðskap“. Þessi staðhæfing Jóns Kristjánssonar nær engri átt. Í bók minni er skýrt vitnað til tveggja heimilda því til stuðnings að Jón Magnússon ráðherra hafi fyllst van- trausti á Jóni Hermannssyni lög- reglustjóra vegna framgöngu hans í drengsmálinu. Auk þess er slíkar fullyrð- ingar að finna í sömu umræðum á Alþingi og orð ráðherrans, sem Jón Kristjánsson vísar til og telur sanna óskorað traust hans á lögreglustjóranum, er hann vék til hliðar í málinu. Í bók minni er meðal annars stuðst við frásögn góðkunns lögregluþjóns um að Jón Hermannsson hafi verið tregur til að fylgja eftir ákvörðun Jóns Magnússonar ráðherra um að vísa drengnum Nathan Friedmann úr landi að ráðum lækna vegna skæðs augnsjúkdóms. Þá er það rakið, hvernig níu manna lögreglulið Reykjavíkur gerði tilraun til að ná Fried- mann úr höndum Ólafs Friðrikssonar, sem flutt hafði piltinn hingað til lands frá Sovét-Rússlandi, líklega einkum til að aðstoða sig við erindrekstur fyrir Al- þjóðasamband kommúnista í Moskvu. En Ólafur, einn helsti leiðtogi verkalýðs- hreyfingarinnar og kommúnista, réð yfir ofurefli liðs, sem hann notaði til að yf- irbuga lögregluna. Fullyrt er að bæjarbúar hafi þó almennt kennt lakri liðsstjórn Jóns Her- mannssonar um ófarir lögreglunnar fremur en mannfæð hennar. Í rétt- arhöldum, sem síðar fóru fram í málinu, komst foringi aðstoðarlögreglumanna, Axel Tulinius, til dæmis svo að orði í skýrslu: „Að mínu áliti voru kring- umstæðurnar ... þannig ... að lögreglan jafnvel án aðstoðar hefði átt að geta fram- kvæmt verk sitt.“ Lögfræðingur Ólafs Friðrikssonar tók undir þessi orð Axels og sagði að það hefði verið „sérstakt lán, að ekki hlutust slys af því, hve ráðþrota og skipulagslaus lögreglan var við þetta tækifæri“. Þótt sitthvað hafi verið hæft í þessari gagnrýni, var Jóni Hermannssyni vissu- lega vorkunn. Ómaklegt var að skella skuldinni á hann fyrir ofbeldi Ólafs og fé- laga. Þessi mæti og friðsami embætt- ismaður af gamla skólanum stóð skyndi- lega frammi fyrir skipulögðu ofbeldi af pólitískum toga. Honum var ætlað að ganga á hólm við ofurefli liðs undir for- ystu manns, sem nánustu félagar úr hópi kommúnista lýstu síðar sem ofbeldis- manni, veilum á geði. Orð og gjörðir Eftir ósigur lögreglunnar ákvað Jón Magnússon ráðherra að safna 400 manna liði henni til aðstoðar við að fylgja eftir brottvísun Nathans Friedmanns úr landi. En treysti ráðherrann sínum gamla sam- starfsmanni úr stjórnarráðinu, Jóni Her- mannssyni, til forystu í væntanlegum stórátökum við Ólaf? Heimildir hníga eindregið að því að svo hafi ekki verið, meðal annars þegar litið er til tregðu lög- reglustjórans við að fylgja málinu eftir á fyrri stigum auk niðurlægjandi ósigurs hans fyrir Ólafi. Þegar orð Jóns Magn- ússonar um málið á Alþingi röskum þremur árum síðar eru grannt skoðuð, sést líka að þau eru ekki sú sönnun um traust hans á lögreglustjóranum sem Jón Kristjánsson fullyrti í áðurnefndri grein sinni. Jón Magnússon sagðist hafa ,,kom- ist á þá skoðun síðan ... að ekki hafi átt að ganga frekar fram af hálfu lögreglunnar en gert var“ í átökunum við Ólaf „vegna þess, hve fámenn hún var“. Orðið síðan er hér lykilorðið. Í þessu orðalagi fólst í raun viðurkenning ráðherrans á því að hann hefði vantreyst lögreglustjóranum 1921. Ábyrgð á því að hann fól Jóhanni P. Jónssyni að taka við lögreglustjórn í drengsmálinu, vísaði hann hins vegar óbeint til aðstoðarlögreglumanna. Þeir hafi viljað hafa „sérstakan foringja“, en það hafi alls ekki stafað af vantrausti á Jóni Hermannssyni. Nú er traust heimild fyrir því, að ráð- herrann hafði áður en hann skipaði Jó- hann aðstoðarlögreglustjóra, fyrst leitað árangurslaust til tveggja löglærðra og ráðsettra embættismanna, sem ólíklegt var að liðsmenn aðstoðarlögreglunnar hefðu nokkru sinni kosið sér til forystu. Þetta bendir til þess að ráðherrann hafi sjálfur átt frumkvæði að því að víkja lög- reglustjóranum til hliðar í málinu. Ekki þarf þó að efast um vilja aðstoðarlög- reglumanna til að hafa „sérstakan for- ingja“, en fullyrða má að það hafi sann- arlega stafað af vantrausti á Jóni Hermannssyni. Ekki þarf annað en líta á fyrrnefndan vitnisburð Axels Tuliniusar, aðalliðsöfnunarmanns aðstoðarlögregl- unnar, til að sannfærast um fullkomið vantraust hans á liðsstjórn Jóns. Á meðan stuðningsmenn Ólafs Friðrikssonar yf- irbuguðu lögregluna, hafði Axel reynt Jón að því að láta liðsauka borgara undir sinni forystu sitja hjá og leysast því næst upp vegna skorts á fyrirmælum. Sigurbjörn Þorkelsson, einn aðalfyrirliði hægri manna í bænum, kveðst líka hafa talið Jón Hermannsson svo ófæran til forystu, að hann hafi neitað að ganga í aðstoð- arlögregluna undir forystu hans, ef til kæmi. Loks verður að benda á það að ráð- herrann gat að sjálfsögðu skipað sér- stakan foringja fyrir aðstoðarliðið og sett Hvers vegna treysti Jón ekki Jóni? Þór Whitehead Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.