Morgunblaðið - 03.08.2012, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2012
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Unglingalandsmót UMFÍverður sett í 15. sinn ídag á Selfossi. Þarmunu um 2.000 ung-
menni á aldrinum 11-18 ára keppa í
frjálsum íþróttum, sundi, golfi og
körfubolta svo fátt eitt sé nefnt og
einnig verður skemmtidagskrá í
boði. Fjölskyldufólk er þegar farið
að tjalda á svæðinu en foreldrar og
systkini eru velkomin með þátttak-
endum.
Átak sem skilar miklu
„Það gengur vel þrátt fyrir
gríðarlega þátttöku sem við höfðum
svo sem séð fyrir þar sem þátttakan
í Borgarnesi var rétt um 1.700 og
hefur verið stígandi í þessu. Við
reiknuðum með um 2.000 þátttak-
endum í ár og það er að ganga eft-
ir,“ segir Ómar Bragi Stefánsson
landsfulltrúi. Fólk kemur víða að á
mótið, Austfirðingar koma til að
mynda með rétt um 100 keppendur
og Skagfirðingar rétt rúmlega 100.
Mótin hafa verið haldin á nokkrum
stöðum um landið og segir Ómar
Bragi það vera orðið eftirsókn-
Frábær ungmenni
full af hugmyndum
Unglingalandsmót
UMFÍ fer í ár fram á
Selfossi þar sem ung-
menni á aldrinum 11-18
ára reyna fyrir sér í ýms-
um íþróttagreinum.
Búist er við um 2.000
keppendum á mótið víðs
vegar að af landinu.
Ánægðir Þessir ungu knattspyrnumenn eiga framtíðina fyrir sér.
Tilþrif Leikmaður USVH verst andstæðingum sínum hér fimlega.
Til að hafa nú allt á hreinu um
helgina og fá góðar hugmyndir er
ágætt að kíkja á vefsíðuna inspired-
camping.com. Líkt og nafnið gefur til
kynna er þar að finna ýmislegt nyt-
samlegt og skemmtilegt er tengist
útilegunni. Veitir ekki af slíku nú þeg-
ar ein stærsta ferðahelgi ársins er
framundan og margir ætla að dvelja í
tjaldi. Í útilegunni er afar mikilvægt
að hafa með sér auðvelt nesti sem er
um leið næringarríkt. Á vefsíðunni er
meðal annars að finna góðar upp-
skriftir og lausnir á slíku. Einnig er að
finna þar tékklista yfir allt það sem
ekki má gleymast og ýmislegt annað.
Skemmtilega upp sett vefsíða með
ýmsu hefðbundnu og óvenjulegu sem
tengist útilegum.
Vefsíðan www.inspiredcamping.com
Morgunblaðið/Valdís Thor
Útilega Það getur verið gaman að taka til virkilega flott nesti fyrir helgina.
Góðar útileguhugmyndir
Nú þegar stærsta ferðahelgi ársins
brestur á er gott að skreppa í Blóð-
bankann og gefa blóð, því vöntun er á
nær öllum blóðflokkum. Sérstaklega
er þörf á O mínus, því það er neyðar-
blóð sem gengur í alla sem verða fyr-
ir blóðmissi. Það kostar ekkert að
gefa blóð en það getur bjargað
mannslífum. Það er góð tilfinning að
leggja eitthvað af mörkum með því
að láta taka úr sér lífsins vökvann
rauða og við erum fljót að endurnýja
blóðið sem við gefum. Blóðbankinn
er á Snorrabraut 60 og á heimasíðu
bankans má finna allar frekari upp-
lýsingar um blóðgjafir.
Endilega …
… gefið blóð fyrir helgina
Morgunblaðið/Ómar
Blóðgjöf Vöntun er nú á nær öllum blóðflokkum og fólk hvatt til að gefa blóð.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Vinalið Töluvert er um að vinir smali saman í lið og keppi þannig á mótinu.
Stemning Búist er við um 2.000 keppendum á mótið í ár en þeim fylgja gjarnan foreldrar og systkini.