Morgunblaðið - 03.08.2012, Blaðsíða 16
Félagsheimili Festi er fornfrægur skemmtistaður og þar eru enn haldnar
veislur þótt fyrir löngu sé komið að lagfæringum.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Brak og jafnvel brestir virðast
komnir í meirihlutasamstarfið í bæj-
arstjórn Grindavíkur. Deilt er um
sölu á félagsheimilinu Festi.
Þrír bæjarfulltrúar Framsóknar-
flokksins og fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins mynduðu meirihluta eftir
síðustu bæjarstjórnarkosningar.
Vonir voru bundnar við að það yrði
styrkur meirihluti, eftir afar róstu-
sama tíð í bæjarmálunum í Grinda-
vík á síðasta kjörtímabili þar sem
mörgum sinnum var skipt um meiri-
hluta. Íbúarnir voru greinilega
þreyttir á þrefinu.
Í málefnasamningi lýstu bæjar-
fulltrúar meirihlutans því yfir að þeir
væru sammála um að byggja upp
Festi. Salurinn yrði gerður upp og
fundið út hvaða stofnanir og þjón-
usta ætti þar best heima og stjórn-
sýslan nefnd ásamt fleiru.
Breytt í gistihús
Ýmsir snúningar hafa verið teknir
á málinu á þeim tíma sem liðinn er. Á
síðasta bæjarstjórnarfundi var sam-
þykkt að selja hlutafélagið sem á
húsið til einkafyrirtækis sem hyggst
breyta því í gistiheimili. Hlutabréf
bæjarins voru seld á 400 þúsund en
kaupandinn greiðir auk þess 15 millj-
ónir af 25 milljóna uppsafnaðri skuld
félagsins við bæinn.
Felld var tillaga sjálfstæðismanna
um að leitað yrði álits íbúa. Á bak við
þá tillögu liggur væntanlega hug-
mynd um að salan á Festi legðist
almennt ekki vel í íbúana.
Samningur um söluna var sam-
þykktur með atkvæðum fulltrúa
framsóknarmanna og minnihlutans,
gegn atkvæði fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins. Í bókun er útskýrt hvers
vegna afstaða fulltrúanna hefur
breyst frá síðustu kosningum, meðal
annars að athugun á húsnæðisþörf
stofnana bæjarins sýni að óhentugt
sé að flytja þær í Festi. Festi hefur
þjónað sem aðalsamkomusalur bæj-
arbúa en um leið verið baggi á bæjar-
sjóði. Stóri salurinn verður ekki til
reiðu þegar húsinu verður breytt í
gistihús og þjónusturými. Þeir sem
samþykktu söluna leggja áherslu á
að byggja frekar upp á íþróttasvæð-
inu. Hugmyndir eru um að koma upp
félagsaðstöðu við íþróttamiðstöðina
og búnaði til að hægt sé að breyta
íþróttasalnum í veislusal á einfaldan
og fljótlegan hátt. Verulegur kostn-
aður er við þær framkvæmdir.
Enn er ekki komið í ljós hvernig
fulltrúar meirihlutaflokkanna vinna
úr ágreiningi sínum enda fór bæjar-
stjórnin í sumarfrí strax eftir fund-
inn. „Við erum ekki ánægðir með að
málið skuli keyrt í gegn en ætlum
ekki að láta það verða til að slíta
meirihlutanum,“ segir Guðmundur
L. Pálsson.
Bryndís Gunnlaugsdóttir, oddviti
framsóknarmanna og forseti bæjar-
stjórnar, segir að málið hafi verið
rætt í meirihlutanum áður en það var
afgreitt. Fulltrúarnir hafi verið sam-
mála um að vera ósammála um af-
greiðslu þess. „Við framsóknarmenn
fórum eftir þessu en bókanir fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins finnast okkur
ekki í takti við samkomulagið. Við
þurfum að ræða það í meiri-
hlutanum,“ segir Bryndís.
Brak og brestir
í meirihlutan-
um í Grindavík
Deilur um sölu á félagsheimilinu Festi
Festi
» Víkurbraut 58 ehf. hefur
verið eigandi félagsheimilisins
Festis. Grindavíkurbær á 80%
hlut á móti Kvenfélagi og Ung-
mennafélagi Grindavíkur.
» Kaupandinn er fasteigna-
félagið AFG ehf. sem hyggst
breyta húsinu í gisti- og þjón-
usturými. Jafnframt fær kaup-
andinn vilyrði fyrir lóð við
félagsheimilið.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2012
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
„Mér finnst þetta vera mjög í sam-
ræmi við það sem hann talaði um í
kosningabaráttunni. Sérstaklega síð-
ustu tvær vikurnar. Þá var hann far-
inn að tala um að hann vildi leggja sitt
af mörkum til að endurvinna traust á
Alþingi. Hann sagði að það væri mikið
álag á forsetaembættið þegar vantrú
væri á þingið og þegar mikill ágrein-
ingur væri í þjóðfélaginu um mikil-
væg mál,“ sagði dr. Stefanía Óskars-
dóttir, lektor í stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands, um ræðu Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta Íslands,
við innsetinguna í fyrradag. „Hann
talaði um á þeim tíma að hann vildi
leggja sitt af mörkum til að bæta
þarna úr og mér finnst hann vera að
undirstrika þetta og leggja áherslu á
að forðast mikinn ágreining. Mér
fannst að í rauninni væru það ráð til
stjórnarforystunnar að gæta að því að
ætla sér ekki of mikið í því að um-
breyta þjóðfélaginu,“ sagði Stefanía.
Í ræðu forseta var stjórnarskráin
tíðnefnd. Hann sagði hana tryggja al-
menningi aukið lýðræði og að frá
hruni hefði fólk fimm sinnum gengið
að kjörborðinu vegna hennar. Að
stjórnarskráin væri skýr, en einfalda
mætti orðalagið.
Stjórnarskráin rammi sem hélt
„Hún er rammi sem hélt þrátt fyrir
stéttaátök og kalda stríðið og veitti á
nýliðnum árum svigrúm til að mæta
kröfum mótmælenda og gera upp mál
með atkvæðagreiðslum þjóðarinnar,“
sagði forseti og að Íslendingar hefðu
borið gæfu til þess að breyta henni
alltaf í sem mestri sátt.
„Þar fer hann með rétt mál að mínu
viti. Hingað til hafa stjórnarskrár-
breytingar verið gerðar í samvinnu
flokkanna, sem kannski útskýrir
hvers vegna breytingar á stjórnar-
skránni hafa verið hægfara. Það hef-
ur verið litið til þess að það væri mik-
ilvægt að það væri góð samvinna á
milli flokka um slíka vinnu,“ sagði
Stefanía.
Segir engin ný tíð-
indi í ræðu forseta
Ræddi fyrst og fremst áherslumál kosningabaráttunnar
Morgunblaðið/Eggert
Sáttatónn Forseti Íslands horfir til ráðherra ríkisstjórnar og þingmanna þegar hann ræðir um þörf á meiri sátt.
Samkvæmt stjórnskipan lands-
ins vinnur forseti eið að stjórn-
arskránni við innsetningu í
hvert sinn, í tveimur eintökum, í
samræmi við 10. grein Stjórn-
arskrár Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson vann
slíkan eið í fimmta sinn í fyrra-
dag þegar innsetning hans í
embættið fór fram. Enginn í Ís-
landssögunni hefur unnið eið að
stjórnarskrá jafnoft.
Þingmenn vinna slíkan eið en
einungis í eitt skipti og er litið
svo á að hann gildi um aldur og
ævi þó svo að þingferill sé ekki
samfelldur. Allir eiðstafir for-
seta frá 1944 eru varðveittir á
Alþingi og á þjóðskjalasafninu.
Vann eið í
fimmta sinn
STJÓRNARSKRÁ ÍSLANDS
Við innsetningu forseta voru helstu embættismenn
landsins samankomnir. Sjá mátti að fjöldi þeirra hefur
verið sæmdur hinni íslensku fálkaorðu. Það vakti at-
hygli að einn æðsti embættismaður þjóðarinnar, for-
sætisráðherrann, bar ekki slíka orðu, en aðrir hand-
hafar forsetavalds báru stórriddarakross. Allir
núlifandi fyrrverandi forsætisráðherrar hafa verið
sæmdir fálkaorðunni. Morgunblaðið hefur áreiðanlegar
heimildir fyrir því að ástæðan fyrir orðuleysi forsætis-
ráðherra sé sú að hún hafi ekki viljað þiggja orðu og er
því eini handhafi forsetavalds sem ekki má bera slíka
orðu.
Forsætisráðherra ekki enn þegið fálkaorðu
Án orðu Jóhanna
Sigurðardóttir.