Morgunblaðið - 03.08.2012, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2012
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Ótrúleg sértilbo
ð fyrir
áskrifendur Mor
gunblaðsins
Takmarkaður fjöldi
sæta í boði!
Morgunblaðið, í samstarfi við Heimsferðir, býður áskrifendum sínum
frábær tilboð til Sevilla. Fjölbreytt gisting í boði á afar hagstæðum kjörum.
Um mjög takmarkaðan fjölda flugsæta er að ræða og gisting er einnig
takmörkuð. Hér gildir fyrstur kemur, fyrstur fær!
26. október
– 3 nætur
Verð frá 88.900 kr.
Sevilla
Þú bókar tilboðið á www.heimsferdir.is eða hjá ferðaráðgjöfum okkar í síma
595 1000. Ath. verð getur hækkað án fyrirvara!
Allir fastir áskrifendur Moggans eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum
og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í
boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn.
Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift eða í síma 569 1122
Verðdæmi Sevilla
Alm. verð Áskr. verð Þú sparar
Hotel Catalonia Giralda ****
3 í herbergi með morgunmat 106.900 88.900 18.000
2 í herbergi með morgunmat 109.500 91.900 17.600
1 í herbergi með morgunmat 128.600 106.900 21.700
Hotel Abba Triana ****+
2 í herbergi með morgunmat 111.500 94.900 16.600
1 í herbergi með morgunmat 126.500 109.900 16.600
Ótrúlegt verð!Þú getur sparað allt að
21.700 kr.á mann
26. október – verð frá 88.900 kr.
Engan sakaði þegar hvalaskoð-
unarbáturinn Haukur strandaði við
Lundey á Skjálfanda í gær, um 7
km norðan Húsavíkur. 32 farþegar
voru um borð og þrír í áhöfn.
Báturinn, sem er í eigu Norð-
ursiglingar, óskaði eftir aðstoð
Landhelgisgæslunnar klukkan
10:33. Voru nálæg skip og bátar
send á staðinn auk þess sem áhöfn
þyrlu var kölluð út.
Fyrsti báturinn kom á staðinn
klukkan 11:02. Klukkan 11:17 var
búið að ferja alla farþega frá borði
og um 10 mín. síðar losnaði bát-
urinn af strandstað og reyndist
óskemmdur.
Allir farþegarnir fóru í fjölda-
hjálparstöð á Húsavík þar sem fólk
frá Rauða krossi Íslands tók á móti
þeim.
„Báturinn fór upp á grynningar.
Skipstjórinn hefur ekki orðið var
við það hversu grunnt var,“ sagði
Þorsteinn Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Norðursiglingar við
mbl.is. „Það var aldrei nein hætta á
ferðum. Meirihluti fólksins um borð
í bátnum fór í siglingu með okkur
strax aftur.“
Hvalaskoðunarbátur
strandaði á Skjálfanda
Morgunblaðið/Hafþór
Á strandstað Hvalaskoðunarskipið Haukur, til vinstri á myndinni, á strandstað við Lundey í gær.
Íslenskur karl-
maður á þrítugs-
aldri var handtek-
inn á Keflavíkur-
flugvelli í síðustu
viku með tæplega
þúsund e-töflur í
fórum sínum.
Tollgæslan á vell-
inum stöðvaði
manninn við hefð-
bundið eftirlit en hann var að koma
frá Kaupmannahöfn.
Maðurinn var úrskurðaður í
tveggja vikna gæsluvarðhald, fleiri
hafa ekki verið handteknir vegna
málsins en rannsókn lögreglunnar á
Suðurnesjum er ekki lokið.
Töflurnar fundust í farangri
mannsins en hann hefur áður komið
við sögu lögreglu en þó ekki vegna
fíkniefnasmygls.
Maður tekinn með
1.000 e-pillur á
Keflavíkurflugvelli
Fíkniefni E-pillur.
Komið var í veg fyrir að 65 lítrar af
45% landa kæmust í umferð á
þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Land-
anum hafði verið komið til flutnings
hjá flutningafyrirtæki í Reykjavík,
en það var lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu sem fann landann í sam-
starfi við lögregluna á Selfossi.
Grunur beindist fljótt að til-
teknum einstaklingi á Selfossi. Þar
var gerð húsleit þar sem fundust
rúmir 58 lítrar til viðbótar auk
stera. Tveir menn voru handteknir
í tengslum við málið. Annar þeirra
viðurkenndi að eiga landann og að
hafa ætlað hann til sölu á þjóðhátíð.
Stöðvuðu 65 lítra af
landa á leið til Eyja
Þjóðhátíð Landi átti að fara til Eyja.
Konan sem slas-
aðist í bílveltu á
Steingrímsfjarð-
arheiði hefur ver-
ið útskrifuð af
gjörgæsludeild
Landspítalans en
hún hefur að und-
anförnu verið
undir eftirliti
lækna á deildinni.
Ferðafélaga
hennar, sem er karlmaður, er enn
haldið sofandi í öndunarvél. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lækni síð-
degis í gær er líðan hans stöðug.
Fólkið er á milli tvítugs og þrítugs
með ríkisfang í Kanada.
Þrennt var í bifreiðinni er hún valt
út af veginum. Ökumaður bifreið-
arinnar, íslenskur karlmaður sem
búsettur var á Ísafirði, lést í slysinu.
Er enn haldið sof-
andi í öndunarvél
Sjúkrahús Land-
spítalinn Fossvogi.