Morgunblaðið - 03.08.2012, Síða 18
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fyrirsögnin í China Daily, málgagni
kínverska kommúnistaflokksins, um
kínverska athafnamanninn Huang
Nubo, gefur tóninn: „Rómantískur
athafnamaður sem elskar ljóðlist.“
Ávarpssetningarnar eru í sama
stíl. „Hann er fjallamaður og rithöf-
undur sem álítur þessa eiginleika
heppilega fyrir frumkvöðla. Eftir því
sem umdeild landakaup kínversks at-
hafnamanns á erlendri grundu fær-
ast nær því að vera frágengin er Hu-
ang Nubo, maðurinn á bak við þau,
aftur í sviðsljósinu,“ segir í greininni
sem birtist 12. júlí sl.
Grímsstaðamálið nánast í höfn
Nokkrum dögum síðar sagði Hall-
dór Jóhannsson, talsmaður Huangs, í
samtali við Morgunblaðið að leigan á
Grímsstöðum væri nánast í höfn, að-
eins „lokafrágangur“ væri eftir.
Sama viðhorf kemur fram í grein
China Daily en þar er haft eftir Hu-
ang að vonir hans standi til að byrjað
verði að taka á móti hótelgestum á
Grímsstöðum eftir fimm ár, eða um
sumarið 2017.
Kínverska málgagnið kallar til
nokkra viðmælendur til að lýsa ágæti
Huangs, þeirra á meðal Wei Xiaoan,
sérfræðing í hagfræði ferðaþjónustu
við stofnun á vegum kínverska
kommúnistaflokksins.
„Huang er sjaldgæf blanda af
skáldlegri rómantík og ágengni og
klókindum kaupmannsins,“ segir Wei
en stofnunin sem hann starfar hjá
heitir China Tourism Academy og er
á vegum kommúnistaflokksins.
Fagnaði áfangasigri í maí
Blaðamaður China Daily, Mei Jia,
tekur upp sama þráð er hann lýsir
Huang sem rómantískum manni sem
leyni ekki tilfinningum sínum. Gildi
þar einu hvort hann sé reiður vegna
þess að innanríkisráðuneytið, þ.e. Ög-
mundur Jónasson innanríkis-
ráðherra, hafi sett honum stólinn fyr-
ir dyrnar í fyrrahaust, eða fullur
sjálfstrausts og ánægju með nýjan
samning vegna Grímsstaða í maí.
Blaðamaðurinn hitti Huang að máli
á skrifstofu hans og hefur eftir hon-
um í óbeinni ræðu að sökum þess að á
Íslandi yrki jafnvel lögreglumenn og
fangar ljóð hafi hann sem skáld verið
fljótur að mynda tengsl við
Íslendinga.
Sem skáld hafi hann heillast af
„yfirþyrmandi náttúrufegurð“
Íslands. Sú skáldlega sýn hafi gert
honum kleift að sjá mikil tækifæri í
þorpinu Hongcun í Anhui-héraði þar
sem félagar hans litu aðeins auðn og
rústir. Þar sé nú rekin blómleg
ferðaþjónusta með góðum hagnaði.
Með verkefninu hafi heimamenn
getað brotist úr fátækt til bjargálna.
Sjálfur hafi Huang alist upp við
kröpp kjör þar sem hungur og mót-
streymi voru daglegt brauð. Hinn
ungi Huang hafi aðeins fundið frið
og sálarró í hlíðum fjallanna.
Bíður eftir góðu fréttunum
Þolinmæði hafi komið Huang til
góða í síðustu verkefnum. „Stundum
hafði ég ekkert annað að gera en að
bíða og ég beið þolinmóður. Síðan
komu góðu fréttirnar,“ hefur blaðið
eftir Huang.
China Daily segir einnig að þótt
Kristín Árnadóttir, sendiherra Ís-
lands í Kína, hafi lýst Huang sem
fjárfesti sem „eigi sér engan líka“ sé
orðrómur í Kína um að Huang sé að
færast mikið í fang án þess að hafa
fast land undir fótum. Til að grennsl-
ast fyrir um þetta ræðir China Daily
við Cheng Dong, sérfræðing hjá ótil-
greindu ráðgjafafyrirtæki í Peking,
sem spyr hvort auðjöfurinn sé að
„smyrja sig þunnt“ með því að dreifa
kröftunum á mörg verk í einu.
Spurður út í þetta kveðst Huang vita
hvað hann sé að gera.
Áformin á Grímsstöðum eru sett í
samhengi við áætlanir Huangs um
kaup á 60 ferkílómetrum lands í
Yunnan-héraði í Kína. Stendur hug-
ur hans til að reisa þar flugvöll og
golfvöll fyrir efnafólk en tegund af
tei, Pu’er-te, er kennd við staðinn.
Orðrétt segir um áformin í kín-
verska blaðinu í lauslegri þýðingu:
„Huang vonast til að hið mikla
sjóðstreymi sem Pu’er-verkefnið
muni skapa muni verða mikil lyfti-
stöng fyrir íslenska verkefnið. Hann
líti svo á að verkefnin tvö styðji við
hvort annað,“ segir í blaðinu en fram
kemur að hann leiti eftir öðrum fjár-
festum vegna Pu’er-verkefnisins.
Huang kveðst vera þolinmóður
þegar Grímsstaðir eru annars vegar:
„En ég mun bíða eftir fréttum frá Ís-
lendingunum. Ég hef heyrt að þeir
séu í alvöru að færa sönnur á að það
búi engir litlir álfar undir landinu
sem ég ætla að leigja,“ segir Huang í
samtali við China Daily.
Eru álfar á sveimi á Grímsstöðum?
Huang Nubo hafði spurnir af álfaleit
Íslendinga Áróðursherferð í Kína
Ljósmynd/Birkir Fanndal
Grímsstaðir á Fjöllum Hart er tekist á um áform Huangs Nubo á Íslandi.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2012
Þönglabakka 1 (inní Nettó búðinni) » 109 Reykjavík » Sími 587 4900
Allt fyrir farsíma, smartsíma og fistölvur
Allar GSM rafhlöður
2.990.-
SanDisk minniskort og minnislyklar í miklu úrvali -
Micro-SD - SDHC - Compact Flash - Memory Stick
Gerið verðsamanburð!
iPad borðstandur - Festing fyrir
sætisbak fylgir 5.990.-
Landsins mesta úrval af GSM aukahlutum!
Nettir en öflugir ferðahátalarar fyrir iPod/iPhone/iPad
og aðra spilara eða síma.
Innbyggð rafhlaða. 4.990
Allt fyrir IPod og Ipad
Ipad bílhleðslutæki
1.490.-
Öll GSM bílhleðslutæki
990.-
12V tvídeilir 1490.-
Flott úrval 12V fjöltengja
í bílinn, húsbílinn eða fellihýsið.
12V þrídeilir með Micro-USB
útgangi og viðvörunarljósi ef raf-
geymirinn í bílnum er að tæmast
2.990.-
Vefútgáfa People’s Daily, alþýðu-
blaðs kínverska kommúnistaflokks-
ins, hafði í gær eftir starfsmanni kín-
verska sendiráðsins á Íslandi að
fjárfestingaráform Huang Nubo
hefðu enga tengingu við stjórnmál
og væru aðeins viðskiptalegs eðlis.
Starfsmaðurinn ræddi við dag-
blaðið Global Times, systurblað mál-
gagnsins People’s Daily, með því
skilyrði að nafn hans kæmi hvergi
fram, og kemst svo að orði:
„Huang er kínverskur frum-
kvöðull. Umsvif hans tengjast aðeins
hans eigin viðskiptum; engin stjórn-
málaleg tenging er á bak við samn-
inginn, hvað þá svonefnd norður-
slóðastefna,“ sagði embættis-
maðurinn og greip til enska
hugtaksins „Arctic Ambition“, sem
lýsir áhuga margra ríkja á að koma
sér fyrir í norðrinu vegna mikilla
auðlinda og opnunar siglingaleiða.
Hafði Global Times jafnframt eft-
ir embættismanninum að ef fjárfest-
ing Huangs kæmi báðum ríkjum til
góða ætti að greiða götu hennar.
Kappakstur á Grímsstöðum?
Í frétt Global Times, sem People’s
Daily vekur athygli á, er áformunum
lýst með þeim orðum að „Huang,
kínverskur auðjöfur með umsvif í
fasteignaviðskiptum, ætli sér að
breyta 300 ferkílómetrum lands í
sumardvalarstað af dýrari gerðinni
þar sem boðið verði upp á hótel, golf-
völl og kappakstursbraut í fjárfest-
ingu upp á 200 milljónir Bandaríkja-
dala“. Nemur upphæðin um 24,2
milljörðum króna og er því hærri en
þeir 16-20 milljarðar sem Halldór
Jóhannsson, talsmaður Huangs,
sagði verkefnið mundu kosta í sam-
tali við Morgunblaðið þegar um það
var spurt í júlí sl.
Þá hefur ekki áður komið fram að
til standi að byggja upp aðstöðu til
kappaksturs en tekið skal fram að
Global Times notaði enska orðið
„racecourse“ sem útleggst einnig
sem skeiðvöllur, veðhlaupabraut eða
hlaupabraut á íslensku.
Segja engin tengsl
við norðurslóðir
Viðbrögð kínverska sendiráðsins
Stórhýsi Sendiráð Kína á Íslandi.
Morgunblaðið/Golli
Eins og vikið er að hér fyrir ofan
ræðir China Daily við Wei Xiaoan,
sérfræðing hjá hugveitu á vegum
kínverska kommúnistaflokksins í
rannsóknum á ferðaþjónustu, sem
lýkur lofsorði á eiginleika Huangs.
Fram kemur á vef hugveitunnar,
sem á ensku nefnist China Tourism
Academy, að hún veiti ráðgjöf við
þróun verkefna sem tengjast ferða-
þjónustu. Þá greiði hugveitan fyrir
alþjóðlegum samskiptum.
Verkefni hugveitunnar ættu að
vera ærin því Ferðamálastofnun
Sameinuðu þjóðanna spáir því að
árið 2020 muni hundrað milljónir
Kínverja ferðast utan landsteinanna.
Hugveita Kínastjórnar
KOMMÚNISTAFLOKKURINN OG FERÐAÞJÓNUSTA
Skoða Ferðamenn við Kínamúrinn.
AFP