Morgunblaðið - 03.08.2012, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2012
Blásið verður til „ólympíuleika“ í
Árbæjarsafni um verslunarmanna-
helgina fyrir þá sem ætla að vera í
höfuðborginni um helgina.
Frá kl. 13, bæði sunnudaginn 5.
ágúst og mánudaginn 6. ágúst, geta
gestir keppt í pokahlaupi, skutlu-
kasti, rófuleik og reiptogi. Þá geta
gestir einnig reynt við þrístökk Vil-
hjálms Einarssonar, sem hlaut silf-
urverðlaun í þeirri grein á Ólymp-
íuleikunum í Melbourne árið 1956.
Öðrum íslenskum ólympíu-
verðlaunahöfum verða einnig gerð
góð skil.
Fram kemur í tilkynningu, að
einnig sé fjölbreytt úrval af úti-
leikföngum til staðar sem krökkum
bjóðist að nota að vild, svo sem
húla-hringir, snú-snú, kubb og
stultur. Þá verður hægt að grípa í
badmintonspaða á svæðinu.
Pokahlaup Keppt verður í nokkrum
óvenjulegum greinum í Árbæjarsafni.
Rófuleikur og poka-
hlaup í Árbæjarsafni
Vinnumálastofn-
un barst ein til-
kynning um hóp-
uppsögn í júlí.
Um er að ræða
líftæknifyr-
irtækið Roche
NimbleGen Ice-
land, en móð-
urfyrirtæki þess,
Roche Applied Science, hefur
ákveðið að gera skipulagsbreyt-
ingar sem fela í sér stefnubreytingu
í vöruþróun og markaðsmálum.
Alls var 68 sagt upp störfum.
Þeir starfsmenn, sem sagt hefur
verið upp, koma aðallega til með að
missa vinnuna í október til desem-
ber.
Ein hópuppsögn
tilkynnt í júlí
Í tilefni af frídegi verslunarmanna
hinn 6. ágúst nk. vill VR minna á að
hann er stórhátíðardagur sam-
kvæmt kjarasamningum VR og ber
að greiða fyrir vinnu þann dag sam-
kvæmt því.
Einnig vill VR benda á að á
stórhátíðum er ekki vinnuskylda,
nema um slíkt hafi verið samið sér-
staklega.
Frídagur verslunar-
manna er
stórhátíðardagur
STUTT
Birkir Fanndal
Mývatnssveit Baldursheimur er syðstur bæja í
Mývatnssveit og er einn af útvörðum byggðarinnar
gagnvart auðninni sem teygir sig norður frá
Ódáðahrauni. Búskapur þar hefur lengi krafið
bændur til stöðugrar glímu við uppblástur og land-
eyðingu og þeir kunna vel þau glímutök sem best
duga við náttúruöflin. En þeir Baldar kunna líka
flestum öðrum betur glímutök íslensku glímunnar,
en þaðan hafa komið nú um nokkurt árabil margir
okkar bestu glímumenn og enn er ekki þrotin sú
uppspretta.
Þeir eru stórtækir á þessu sumri Baldarnir, þeg-
ar kemur að dreifingu áburðar og fræs á blásna
mela og rofabörð. Þannig ætla þeir sér nú að dreifa
17,4 tonnum af áburði og nokkru af grasfræi í land-
areigninni. Þeir voru að hefjast handa í fyrri viku
með dráttarvélar sínar og dreifara, bræðurnir Ey-
þór og Böðvar Péturssynir, og Einar sonur Eyþórs.
Njóta kolefnisjöfnunar
„Nú í fyrsta sinn erum við að njóta kolefnisjöfn-
unar,“ segir Böðvar aðspurður hvernig svona stór
verkefni sé fjármagnað. Ferðaþjónustufyrirtæki í
sveitinni, „Geotravel“, hefur ákveðið að kolefn-
isjafna akstri fyrirtækisbíla sinna og fannst mönn-
um þar á bæ eðlilegt að láta þá verkefni inn-
ansveitar njóta, en slíkt mun vera nokkur nýjung.
Farið er eftir reikniformúlu Landgræðslunnar til
að finna hlutfall áburðarkaupa á móti olíunotkun,
segir Böðvar. Í öðru lagi eru þeir þátttakendur í
verkefninu „Bændur græða landið.“
Í þriðja lagi fengu þeir nú styrk úr Landbóta-
sjóði og í fjórða lagi koma síðan framlög frá ein-
staklingum.
Lúpínan ekki dafnað þrátt fyrir tilraunir
Þegar Eyþór er spurður hvers vegna þeir noti
ekki lúpínu í þetta verkefni, en lúpína sést hvergi á
svæðinu, þá svarar hann því til að lúpínan hafi ekki
dafnað þar hjá þeim, þrátt fyrir margar tilraunir.
Frostlyfting þar á melunum veldur þessu, álítur
Eyþór. Gengið er með Böðvari upp á grýttan mel-
koll þar sem Eyþór er kominn á fulla ferð á drátt-
arvélinni að dreifa áburði. Vélin lætur ekki vel á
þessu óslétta landi, enda hvergi slegið af. Enginn
er öfundsverður af að sitja á dráttarvél við þessar
aðstæður, en Eyþór lætur sig hafa það.
Böðvar bendir mér á beitarhólf þar skammt frá
og vekur athygli á hluta þess, þar sem borið var á
sl. sumar og annað stykki sem ekki hefur fengið
áburð. Á þessum tveim er augljós og mikill munur.
Böðvar segir að á öðru ári eftir áburðargjöf sé
jurtin farin að mynda fræ og svo fylgir þessu mosi
sem lokar yfirborðinu þannig að raki helst betur í
jörðinni – ekki veitir af í þessu langstæða þurrviðri.
Þannig er starf bóndans endalaus glíma við náttúr-
una og svo er glímuæfing hjá Einari um kvöldið.
Stöðug glímutök við upp-
blástur og landeyðingu
Bændurnir í Baldursheimi dreifa áburði og fræi á blásna
mela og rofabörð Njóta kolefnisjöfnunar í fyrsta sinn
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Glímumenn Feðgarnir Eyþór Pétursson og Einar
Eyþórsson eru glímumenn tveggja kynslóða.
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is
Skrúfupressur
Lofthreinsibúnaður - loftkútar
loftsíur - lofttengibúnaður
loftþurrkarar
Ýmsar stærðir
Hafið samband við sölumann
Opnunartímar: Mánudaga til föstudaga 9-18 og laugardaga 11-14
Smiðjuvegur 6 (rauð gata) // 200 Kópavogur // Sími 567 7777 // parketbudin.is
ÞAÐ DETTUR
ALLT Í DÚNALOGN
Heimsins besta parketundirlag
fæst nú á Íslandi
• Hentar bæði í fljótandi lögn og til
niðurlímingar
• Framúrskarandi kostur fyrir samlímt,
gegnheilt, eða harðparket
• 21db hljóðdempun milli hæða
• 33% dempun í rými
• Verndar og minnkar álag á allar
læsingar parkets eða harðparkets
• Mesta pressa sem um getur
eða 1/10 úr mm
• Dúkurinn er léttur, sterkur og
meðfærilegur í notkun
• Dúkurinn er einstaklega rakaþolinn
og þarf ekki rakaþolið plast undir
The FloorMufflertm er verkfræðilegt undur,
hannað til að mæta og fara fram úr kröfum
markaðarins um hljóðdempun og pressu.
KYNNINGARTILBOÐ Á FLOORMUFFLER
Tilboðsverð: 790 kr. pr. m2
Fullt verð: 1.313 kr. pr. m2
Meðan birgðir endast