Morgunblaðið - 03.08.2012, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2012
Það verður nú bara rólegt. Ég verð uppi í sumarbústað í huggu-legheitum með vinum og fjölskyldu,“ segir Eyjólfur Sverris-son, landsliðsþjálfari U21 árs liðs karla í fótbolta og fyrrver-
andi atvinnumaður í knattspyrnu, en hann er nú staddur í bústað
fyrir norðan.
„Það er nú ekki alveg liðin tíð,“ segir Eyjólfur spurður hvort hann
eigi von á einhverjum skemmtilegum pökkum í tilefni afmælisins og
bætir við: „Þetta hefur nú að vísu aðeins breyst upp á síðkastið.
Maður fær núorðið aðallega grínpakka.“ Segja má að fleira hafi
breyst með árunum en gjafir til afmælisbarnsins því Eyjólfur minn-
ist þess að á hans yngri árum voru veislurnar oft heldur fjörugar og
fjölmennar. „Það er svolítið sérstakt að eiga alltaf afmæli um versl-
unarmannahelgi. Þegar ég var yngri þá var maður oft á útihátíðum
og þá var slegið upp afmæli á miðju hátíðarsvæði svo þær voru
stundum fjölmennar og maður þekkti ekki nema brot af þeim sem
voru í veislunni,“ segir Eyjólfur og bætir við að sá tími sé liðinn.
Í sumar hefur Eyjólfur verið iðinn við að ferðast innanlands með
fjölskyldu sinni og m.a. notið þess að renna fyrir fisk. „Maður er bú-
inn að fá þá nokkra og þeir eru örugglega stærri en þú heldur,“ seg-
ir hann og bætir við að þeir stækki meira að segja með tímanum.
Að sögn Eyjólfs hefur hann sett sér þau markmið að einbeita sér
vel að þjálfun landsliðsins og að vera betri maður. khj@mbl.is
Eyjólfur Sverrisson er 44 ára
Ljósmynd/Kjartan
Þjálfarinn Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari og afmælisbarn, er
uppi í sumarbústað í faðmi fjölskyldu og vina.
Útihátíð breyttist
oft í afmælisveislu
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Í tilefni 80 ára afmælis Theo-
dórs Steinars Marinóssonar
og 75 ára afmælis Magdalenu
Sigríðar Elíasdóttur verður
opið hús fyrir vini og ættingja í
safnaðarheimili Neskirkju
þriðjudaginn 7. ágúst milli kl.
17 og 19.
Árnað heilla
80 og 75 ára
Akureyri Fannar Helgi Kristinsson
fæddist 9. janúar kl. 15.44. Hann vó
4176 g og var 56 cm langur. Foreldrar
hans eru Ásdís Elva Kristinsdóttir og
Kristinn Elvar Gunnarsson.
Nýir borgarar
Ó
lafur fæddist á Akureyri
en ólst upp í Reykjavík,
lauk stúdentsprófi frá
MH 1972, embættis-
prófi í læknisfræði frá
HÍ 1978, hlaut almennt lækningaleyfi
á Íslandi 1980 og í Svíþjóð 1982 og
sérfræðiviðurkenningu í heim-
ilislækningum í Svíþjóð 1984 og á Ís-
landi 1985.
Heimilislæknir frá 1984
Ólafur var aðstoðarlæknir á Borg-
arspítala, Landspítala og Landakots-
spítala 1978-81, héraðslæknir á
Hvammstanga 1979 og Dalvík 1980,
stundaði læknastörf á sjúkrahúsum í
Svíþjóð með sérnámi, var heilsu-
gæslu- og sjúkrahúslæknir á Blöndu-
ósi 1984-86 og hefur verið sjálfstætt
starfandi heimilislæknir í Reykjavík
frá 1986.
Ólafur var formaður Félags sjálf-
stætt starfandi heimilislækna 1989-
2008, sat í stjórn Læknafélags
Reykjavíkur 1990-94, í samn-
inganefnd heimilislækna utan heilsu-
gæslustöðva 1987-2008, og formaður
hennar frá 1991.
Ólafur sat í stjórnum ýmissa
hverfafélaga Sjálfstæðisflokksins og
ýmissa nefnda flokksins um skeið, sat
í flokksráði frá 1995, var varaborgar-
fulltrúi í Reykjavík 1990-98, borg-
arfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn
1998-2001, skrifari borgarstjórnar
1998-2001, sat í stjórn Heilsuvernd-
arstöðvar Reykjavíkur 1990-94, í
Ólafur F. Magnússon, læknir og fyrrv. borgarstjóri, 60 ára
Morgunblaðið/Sverrir
Kosningasigur 2002 Ólafur, ásamt börnum sínum, Kjartani Friðrik og Önnu Sigríði, og öðrum stuðningsmönnum.
„Stóð ávallt vörð um
mín kosningaloforð“
Morgunblaðið/Sverrir
Baráttufundur 2003 Vigdís Finnbogadóttir, Ólafur F. Magnússon og Árni
Þór Sigurðsson á fjölmennum borgarafundi gegn Kárahnjúkavirkjun.
Ólafur Benedikts-
son, Óli Ben., fyrr-
verandi handbolta-
kappi, er sextugur í
dag. Í tilefni dags-
ins mun hann hafa
það náðugt austur
í Grímsnesi með börnum, barnabörn-
um, nánustu fjölskyldu og ekki má
gleyma hundinum Jökli Ólafssyni.
Árnað heilla
60 ára
Bíldshöfði 14 » 110 Reykjavík » Sími 567 6744 » gsvarahlutir.is
Triscan gormar, bremsu- og stýrishlutir
Pöntum á fimmtudögum, varan komin á mánudegi
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is