Morgunblaðið - 03.08.2012, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2012
HÁDEGISMATUR
Í FYRIRTÆKI OG
STOFNANIR
VINSÆLT - HEILSUBAKKAR
Heilsubakkar eru réttir sem samanstanda af léttu fæði
Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar 555-1810, 565-1810 · Fax: 565-2367 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Fjölbreyttur matseðill
og valréttir alla daga
Við sendum hádegismat
í bökkum og kantínum
til fyrirtækja og stofnana
alla daga ársins.
Boðið er upp á sjö valrétti á virkum dögum:
Tvo aðalrétti, þrjá aukarétti, heilsurétt og ávaxtabakka.
Aðalréttirnir eru breytilegir frá degi til dags.
Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er engu líkara en tækifærin
raðist upp sérstaklega fyrir þig. Hver er
sinnar gæfu smiður og því skalt þú grípa til
þinna ráða.
20. apríl - 20. maí
Naut Reyndu að forðast erfiðar samræður
við fólk með völd í dag. Mundu að neyðin
kennir naktri konu að spinna og hikaðu
ekki við að gera alvöru úr hugmyndumm
þínum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú færð góð tækifæri til að bæta
atvinnustöðu þína og heilsu í dag. Tilfinn-
ingalegur ruglingur dregur úr þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú getur treyst reglum sem þú set-
ur þér sjálfur. Og mundu að það er sælla
að gefa en þiggja. Maður þarf ekki endilega
að samþykkja lífsmáta annarra, en líka al-
veg óþarfi að vera á móti.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Eiginleiki þinn til ímyndunar er ein-
stakur í dag. En gættu þess að hverfa ekki
svo á vit þíns innri manns að þú forsómir
umhverfi þitt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert elskulegur. Hlustaðu á það
sem aðrir hafa fram að færa. Nú sérðu
hvort gjörðir þínar færa þér árangur eður
ei.
23. sept. - 22. okt.
Vog Varaðu þig á fjárfestingum í dag því þú
gætir ofmetið heppni þína. Eftir hádegi
finnurðu sköpunarkraftinn á ný.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Áberandi vöntun á stundvísi er
á meðal fjölmargra mannkosta þinna nán-
ustu. Láttu mistök þér að kenningu verða
og hugsaðu næsta leik vel.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú er rétti tíminn til þess að
huga að viðfangsefnum sem útheimta ein-
beitingu og gáfur. Allir mega gera mistök,
og þín eru ekki jafnmikil og þú ímyndar þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það kann ekki góðri lukku að
stýra að láta fjármálin reka á reiðanum. Af-
staða þín mun þó gefa þér færi á að hugsa
ýmsilegt til enda.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér finnst þú þurfa að vanda um
við barn eða ungling. Hættu að greina og
gefðu ímyndunaraflinu lausan tauminn.
Gefðu þér góðan tíma en settu svo á fullt
þegar þú veist hvað þú vilt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft að fá málin á hreint gagn-
vart félaga eða nánum vini. Styrkur þinn
mun leiða þig áfram og ryðja öllum hindr-
unum úr vegi.
Það er notalegt að fletta gömlumpappírum og rekast óvænt á
hálfgleymdar limrur eftir Kristján
Karlsson:
Ef öðling ég óvart græti
hans óvinir dansa af kæti.
(Það er aldrei að vita
hvort óvinir sitja
ef enginn býður þeim sæti).
Ég gat ekki stillt mig um að
spyrja Kristján, hvort honum hefði
ekki þótt freistandi eða limrulegt
að nota latmælið „sita“ í staðinn
fyrir „sitja“ rímsins vegna og hann
svaraði að bragði: „Nei, mér finnst
„sita“ leiðindaambaga og ekki
ganga upp!“
Og svo þessi í sama bunka:
Ennþá er sumar í sveitum.
Samt væri gaman að breyt́um.
Ekki til neins,
síst öðrum til meins.
En af ólund og leiðinlegheitum.
Árni Bergmann sendi mér tölvu-
póst og spurði, hvort ég gæti gert
eitthvað við þessa tíðaranda-
lýsingu:
Úthýsa vill nú álfum bæði og tröllum
íslensk þjóð sem kyrjar kreppusöng.
Við brunum fram úr öðrum bílum öllum
það borgar einhver Vaðlaheiðargöng.
Hann Núbó gistir Grímsstaði á Fjöllum
golfkylfu sveiflar vettrarkvöldin löng.
Guttormur J. Guttormsson er
meðal þeirra skálda sem mér þykir
hvað vænst um. Gaman og alvara
kom út 1930 og þar standa á fyrstu
síðu (nema rétt sé að segja framan
við ljóðin) þessar tvær stökur án
fyrirsagnar:
Miklum vanda er ég í
orðinn fjandi mæðinn –
get ei andað út af því
að í mér standa kvæðin.
Andans brotnu fleyin fá
frið í drottni sínum,
sokknir þrotna söngvar á
sálarbotni mínum.
Og þar sem hér að ofan var getið
um Grímsstaði á Fjöllum er rétt að
halda sig fyrir norðan og loka horn-
inu með þessari vísu Guttorms:
Ég átti ekki stélfrakka í eigu til
en aðeins þelstakk og hettu
að etja við helblakkan hríðarbyl
á heimsins Melrakkasléttu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Á heimsins
Melrakkasléttu
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
il
e
g
i
Fe
rd
in
a
n
d
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
DUGLEGUR
STRÁKUR.
GRETTIR, ÉG KEMST EKKI
ÚR ÞESSU HENGIRÚMI! OG ÉG
ELSKA
ÞAÐ!
ÞETTA ER
SKRÍTIÐ!
ÞAÐ VIRÐIST EKKI VERA
NEINN UNGI Í ÞVÍ!
HAMLET, EF ÞÚ VÆRIR SKIPREIKA
Á EYÐIEYJU, HVORT MYNDIR ÞÚ
VILJA HAFA MIG MEÐ ÞÉR, EÐA
BÓK AÐ LESA?
HMMM... ÆTLI
ÞAÐ FARI EKKI
EFTIR ÞVÍ HVAÐA
BÓK ÞAÐ VÆRI?
ÞETTA VAR SENNILEGA
EKKI RÉTT SVAR.
OKKUR ERU
AÐ BERAST
KVARTANIR
VEGNA
GRÍMS-LEAKS.
EN ÞAÐ
ER ALLT
SATT SEM
STENDUR
ÞAR!
ER ÞAÐ SEMSAGT
SATT AÐ DÓRA
KÖNNUÐUR ÞURFI
GPS-TÆKI TIL
AÐ RATA UM SITT
EIGIÐ HÚS?
ÞAÐ ER REYNDAR
SKÁLDAÐ, EN
HVER ER LÍKA
NÓGU VITLAUS
TIL AÐ ÞURFA
ÞESS?
NEI GPS, ÞETTA ER
EKKI BAÐHERBERGIÐ
MITT!
ENDURREIKNA.
Faðir Víkverja er annálaður knatt-spyrnuáhugamaður. Áhuga hans
fylgir þó sá böggull skammrifi að
hjátrúin er gjarnan skammt undan,
og gildir þá litlu hvort gengi liðsins
hefur verið gott eða slakt. Staðsetn-
ingin á vellinum skiptir öllu máli,
hverjir aðrir mæta á völlinn, hvort
það sé sól eða rigning. Stundum
keyrir um þverbak eins og í fyrra
þegar faðir Víkverja kaus að fórna
sér fyrir liðið og mætti varla á leik,
þar sem allt gekk svo vel án nærveru
hans.
x x x
Víkverja dettur þó ekki í hug aðgagnrýna föður sinn og hjátrú
hans, því að ekki verður á móti ár-
angrinum mælt síðustu misserin.
Tvöfaldir meistarar í fyrra og gengið
vel í báðum innanlandskeppnunum í
ár. Það þykir Víkverja nú ekkert
slor. Það sem verra er er sú stað-
reynd að Víkverji er nú farinn að
feta hægt og bítandi í fótspor föður
síns, enda virðist sem þau séu á ein-
hvern ótrúlegan hátt að virka.
x x x
Víkverji stendur nú til dæmis allt-af á sömu svæðum á vellinum,
og ræðst staðsetningin af því á hvort
markið liðin spila. Þá keyrir hann
alltaf sömu leiðina á völlinn. Þá vill
nefnilega svo til að lið þeirra feðga
er nú taplaust í þeim leikjum þegar
Víkverji hefur brugðið sér í kvik-
myndahús. Stefnir því ósjálfrátt í
það að sumarið 2012 verði bíó-
sumarið mikla hjá Víkverja. Reynd-
ar gerðu þeir jafntefli einu sinni þeg-
ar bíóleiðin var valin, en þá er
hugsanlegt að það hafi verið vegna
þess að gæði myndarinnar voru ekki
alveg nógu góð. Víkverji hefur því
vandað valið aðeins betur síðan þá.
x x x
Það er því vandlifað hjá Víkverjaþessa dagana, því að þegar búið
er að sjá allar helstu stórmyndir
sumarsins, er ekkert annað í stöð-
unni en að mæta á leikina. Og hver
veit hvernig þeir leikir fara nú allir
saman, því þó að vel hafi gengið að
undanförnu eru knattspyrnuguð-
irnir hverfulir mjög. Á endanum
mun Víkverji hvorki geta farið á
völlinn né í bíó. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Ég segi við Drottin: „Þú
ert Drottinn minn, ég á engin gæði
nema þig.“
(Sálm. 16, 2.)