Morgunblaðið - 03.08.2012, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2012
Tri ehf.
Suðurlandsbraut 32
104 Reykjavík www.tri.is
Verslunin er opin:
Alla virka daga kl. 09:00-18:00
Laugardaga kl. 10:00-16:00
CUBE REACTION GTC PRO
Stell: 16, 18, 20, 22”, Carbonstell.Fox Evolu-
tion 32 Float RL 100mm. Shimano XT 30 gíra.
Vökvadiskabremsur. Þyngd 11,1 kg.
Listaverð: 399.990 kr.
Tilboð:
299.990 kr.
CARBON
Listaverð: 455.990 kr.
Tilboð:
341.990 kr.
CARBON
CUBE REACTION GTC RACE
Stell: 16, 18, 20, 22”, Carbonstell. Rock shox
Reba RL 100mm. Sram XO 30 gíra.
Vökvadiskabremsur. Þyngd 10,4 kg.
Listaverð: 525.990 kr.
Tilboð:
394.990 kr.
CARBON
CUBE REACTION GTC SL
Stell: 16, 18, 20, 22”, Carbonstell. Rock Shox
SID RL 100mm. Shimano XT 30 gíra.
Vökvadiskabremsur. Þyngd 10,3 kg.
Fjallahjóladagar
-25%
Meðan birgðir endast. Tri áskilur sér rétt til allra breytinga á verði.
150 ára afmæli
Akureyrarbæjar
verður fagnað á
Græna hatt-
inum, Hafn-
arstræti 96 þar í
bæ, í ágústmán-
uði með nær
daglegu tón-
leikahaldi. Nú
um helgina,
verslunar-
mannahelgina, verður mikið stuð
á staðnum þar sem Dúndurfréttir
spila í kvöld og annað kvöld
hljómsveitin Hjálmar. Sunnudag-
inn 5. ágúst leika Bravó-bítlarnir,
9. ágúst South River Band, 10.
ágúst The Saints og Boogie
Street, 11. ágúst Hundur í óskil-
um, 15. ágúst 1860, 16. ágúst
Tríó Sunnu Gunnlaugs og þannig
mætti áfram telja. Græni hatt-
urinn er með facebooksíðu þar
sem nálgast má upplýsingar um
tónleikahald.
Dúndurfréttir,
Hjálmar o.fl. á
Græna hattinum
Kiddi í Hjálmum
Steven Lamb er tólf ára oghelsta iðja hans í tóm-stundum er að fara upp áeyðilega heiði með skóflu
í hendi og grafa. Þar leitar hann
að líki Billys, móðurbróður síns,
sem barnungur var numinn á
brott af illræmdum barnaníðingi
sem hefur líf fjölda barna á sam-
viskunni og er nú á bak við lás og
slá.
Steven býr í litlu þorpi með
móður sinni, bróður og ömmu,
sem enn situr úti í glugga og bíð-
ur þess að
Billy komi
heim. Þegar
Billy hvarf og
dó, þá dó
nefnilega svo
margt annað.
Tilveran al-
gjörlega í mol-
um, vanræksla
bæði andleg
og líkamleg
einkennir líf Stevens og hann er
viss um að allt muni breytast til
betri vegar ef hann finnur lík Bil-
lys.
Hann hefur því samband við
eina manninn sem getur sagt hon-
um hvar lík Billys er að finna;
manninn sem myrti hann. Það er
raðmorðinginn alræmdi Arnold
Avery. Steven sendir Avery bréf,
við það fer óhugnanleg atburðarás
í gang, því bréfið hristir heldur
betur upp í dauflegri tilveru Ave-
rys, sem sér litla von til þess að
sleppa nokkurn tímann úr haldi og
var nánast búinn að sætta sig við
það. Allt þar til bréf Stevens
berst. Og þá hefst leikur þar sem
þrautreyndur kúgari og ofbeld-
ismaður tekst á við tólf ára dreng,
sem þekkir fátt annað en von-
brigði og vonleysi.
Svörtulönd er fyrsta bók Bel-
indu Bauer, hún kom fyrst út í
Bretlandi árið 2010 og fékk
glæpasagnaverðlaunin Gullna rýt-
inginn, CWA Gold Dagger, sem
besta glæpasagan það árið. Ekki
slæmt að byrja ferilinn þannig, en
Bauer er síður en svo einnar bók-
ar höfundur, því eftir hana hafa
síðan komið út tvær glæpasögur
til viðbótar sem einnig hafa hlotið
prýðisviðtökur í Bretlandi.
Glæpirnir sem um ræðir í þess-
ari bók eru einir þeir skelfilegustu
sem fyrirfinnast. Innsýn í hugar-
heim og andstyggilega hugaróra
Averys er nauðsynlegt innlegg í
framvindu sögunnar, ekki sérlega
hugguleg lesning, en þarna er vel
farið með efnið og lesandanum
ekki ofboðið, eins og svo oft vill
verða. Stundum finnst manni
nefnilega að það eina sem vaki
fyrir höfundum glæpasagna sé að
ganga fram af lesandanum með
öllum tiltækum meðulum, en
Bauer er ekki á þeim buxunum.
Bókin er nefnilega um svo margt
annað, til hliðar við glæpasöguna
er hlý, sorgleg og bráðfyndin
saga.
Fyrir utan það hversu vel Bauer
heldur á spöðunum við uppbygg-
ingu spennu og hryllings tekst
henni vel upp við að draga upp
raunsæja mynd af tilveru tólf ára
drengs, vonum hans, vonbrigðum
og væntingum. Laskaðri fjöl-
skyldu, þar sem skuggi voðaverks
er alltumlykjandi og í hverjum
krók og kima, er lýst á raunsæjan,
stundum gráglettinn en umfram
allt mannlegan hátt. Urmull
ágætra glæpasagna hefur komið
út að undanförnu og þessi er án
efa ein af þeim betri.
Höfundurinn Belinda Bauer.
Bráðspennandi
og bresk
Skáldsaga
Svörtulönd Eftir: Belindu Bauer. Draumsýn, 2012,
362 blaðsíður.
ANNA LILJA
ÞÓRISDÓTTIR
BÆKUR
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Inniskórinn nefnist tónlistarhátíð
sem hófst í gærkvöldi á Þýska
barnum, Tryggvagötu 22, en á
henni er raf- og danstónlist í önd-
vegi, raftónlistarmenn og skífu-
þeytarar í bland. Einn af skipu-
leggjendum hátíðarinnar er
Arnviður Snorrason, betur þekkt-
ur í tónlistarheimum sem Addi
Exos eða einfaldlega Exos. Inni-
skórinn er haldinn í fyrsta sinn í
ár og dagskráin er þétt þá fjóra
daga sem hátíðin stendur yfir, þ.e.
frá fimmtudegi til sunnudags.
„Ég myndi segja að þetta væri
mikil hátíð, við ætlum að hafa
þetta árlegan viðburð og fjögurra
daga festival með dans- og raf-
tónlistarmönnum og plötusnúðum.
Það koma fram hátt í þrjátíu art-
istar og plötusnúðar,“ segir Addi.
Listamennirnir eru allir innlendir
á hátíðinni en Addi segir stefnt að
því að hafa erlenda með á næsta
ári.
Bassi og „klúbbasánd“
Hvert kvöld er skipulagt af að-
ilum innan raf- og danstónlist-
arsenunnar. Í kvöld er boðið upp á
dagskrá Kviksyndis og Breakbeat-
.is, tónlist flutt af Lafontaine, By-
pass, Nonnimal, Captain Fufanu,
Gunna Ewok og Árna Skeng sem
fór með sigur af hólmi í plötusnúð-
akeppni Djkeppni.is. Annað kvöld
eru það svo Elements og Ufo
Warehouse sem kynna til leiks
EXOS, GHOZT, AJ, ATL og f.o.s.
Á sunnudagskvöldi er svo boðið
upp á dagskrá Party Zone og Kan-
ils og um flutning sjá Kanilsnælda,
Jon Edvald, Rix, Bensol og Grétar
G aka Sean Danke. Um gær-
kvöldið sáu Extreme chill & Möller
Records og tróðu þá upp Techsoul,
Bistro Boy, Jafet Melge, Skurken,
Murya, Steve Sampling og Fut-
uregrapher.
„Fimmtudagurinn er meira
svona raftónlist, electronic, og
föstudagurinn er kannski svolítið
meiri bassi en vanalega af því
Breakbeat og Kviksyndi „pre-
senta“ bassann. Á laugardaginn er
klúbbasánd og Party Zone er nátt-
úrlega með sinn stíl,“ segir Addi
um dagskrána.
Raf- og danstónlist í
öndvegi á Inniskónum
Einbeittur Futuregrapher kom fram í gær á hátíðinni Inniskónum en ekki
fylgir sögunni hvort hann var á inniskóm við tónlistarflutninginn.
Tónlistarhátíðin
Inniskórinn haldin
á Þýska barnum
Leikarinn Björn Hlynur Haraldsson
mun fara með hlutverk ítalsks leigu-
morðingja í þriðju þáttaröð banda-
rísku sjónvarpsþáttanna The Borgi-
as sem leikarinn Jeremy Irons fer
með aðalhlutverk í. Björn Hlynur er
nú staddur í Búdapest í Ungverja-
landi þar sem tökur þáttanna fara
fram í gríðarstóru kvikmyndaveri.
Björn Hlynur sagði í samtali við
blaðamann í gær að hann myndi
hitta Irons í dag og að hlutverk hans
í þáttunum liti út fyrir að vera nokkuð veigamikið. Við-
tal við Björn Hlyn verður birt í blaðinu á morgun.
Björn Hlynur leikur með
Jeremy Irons í The Borgias
Björn Hlynur
Haraldsson
Nýjasta kvikmynd danska kvik-
myndaleikstjórans Susanne Bier,
Love Is All You Need, verður í að-
alkeppni alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðarinnar í Feneyjum í ár og er
það í fyrsta sinn í 22 ár sem dönsk
mynd hlýtur þann heiður. Árið 1990
var dönsk kvikmynd í aðalkeppn-
inni, Sirup eftir Helle Ryslinge.
Kvikmynd Bier verður jafnframt
heimsfrumsýnd á hátíðinni í Fen-
eyjum en hún er gamanmynd með Pierce Brosnan og
Trine Dyrholm í aðalhlutverkum. Hátíðin hefst 29.
ágúst og lýkur 8. september.
Kvikmynd Bier í aðalkeppni
Feneyjahátíðarinnar
Susanne Bier