Morgunblaðið - 03.08.2012, Side 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2012
Geturðu lýst þér í fimm orðum?
Síbreytilegur, tóngleyminn, leitandi, of-
samaður, sveitó, nettur … var þetta of
mikið?
Scottie Pippen eða Diet Pepsi?
(spyr síðasti aðalsmaður, Snorri
Helgason)
Óblandað Pepsi Max.
Ertu innipúki?
Já frekar mikill. Verð til dæmis
aldrei brúnn því ég er alltaf í prjóna-
peysu.
Er þér illa við útihátíðir?
Þegar farið verður að hljóðeinangra
útilegutjöld skal ég gefa þessu annan
séns.
Hvað þýðir skakkamanage?
Skallablettagel?
Hvernig ber maður það fram?
Skunk-da-monkey.
Hvað ertu í mörgum hljómsveitum?
Fjórum. Létt á bárunni, Skakkamanage,
Prinspóló og Rúnk.
Er töff að vera í mörgum hljóm-
sveitum?
Já dálítið. Samt ekki eins
töff og joggingbuxur.
Hvernig finnst þér Prince
Polo?
Bara svona lala. Ég
kann betur að meta
kókosbollur en það er
ekkert sérstakt auka-
sjálf.
Ertu veikur fyrir kónga-
fólki?
Nei. En mér finnst æs-
andi að heimsækja gamla kastala og mér finnst Ólafur og
Dorrit frekar flott.
Hvað fær þig til að skella upp úr?
Vandræðaleg augnablik.
Getur þú lýst dansstíl þínum á djamminu?
Kyrrstæður, nota hendurnar frekar mikið og beygi
hnén örlítið. Frekar vangefið en konan mín dýrkar
þetta.
Hvernig er lífið úti á landi?
Það er frekar tryllt.
Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn?
James Murphy, Bruce Springsteen og Georgia
Hubley ef ég má nefna þrjá snillinga.
Hvað færðu ekki staðist?
Ég á mjög erfitt með að heilsa ekki ketti úti
á götu.
Nú ertu grafískur hönnuður, skiptir útlit
meira máli en innihald?
Innihaldslýsingin skiptir öllu máli.
Hvert væri listamannsnafn þitt ef þú værir
heimsfrægur rappari?
Skunk-Da-Monkey.
Áttu þér leyndan hæfileika og ef svo er þá
hvern?
Ég get búið til flautu með lóf-
unum og spilað Bítlalög. Ringo
Starr kenndi mér þetta þeg-
ar hann var flokksstjóri í
Vatnaskógi í lok níunda
áratugarins.
Hvers viltu spyrja
næsta að-
alsmann?
Hvernig var
á Innipúk-
anum?
Innihaldslýsingin skiptir öllu máli
Aðalsmaður vikunnar er Svavar Pétur Eysteinsson; tónlistarmaður, hönnuður og einn
skipuleggjenda tónlistarhátíðarinnar Innipúkans sem fram fer nú um helgina í Iðnó
Morgunblaðið/Ernir
Prinsinn Svavar
Pétur Eysteins-
son/Prins Póló.
armillibili allt frá árinu 1952 og
hefur kvikmynd Orsons Welles,
Citizen Kane, verið á toppnum allt
frá árinu 1962, þ.e. í hálfa öld.
Vertigo hefur því velt þeirri
margfrægu og -lofuðu kvikmynd
úr hásæti sínu.
Kvikmynd Alfreds Hitchcocks,
Vertigo, frá árinu 1958, er sú
allra besta sem gerð hefur verið,
samkvæmt nýrri könnun Bresku
kvikmyndastofnunarinnar, British
Film Institution (BFI). Slík könnun
hefur verið gerð með áratug-
Vertigo best samkvæmt könnun BFI
Meistarinn Alfred Hitchcock leikstýrði kvikmyndinni Vertigo.
Íransk-franska leikstýran og höf-
undurinn Marjane Satrapi verður
gestur Alþjóðlegrar kvikmynda-
hátíðar í Reykjavík, RIFF, í haust og
verða þær tvær kvikmyndir sem hún
hefur gert sýndar á hátíðinni. Þá
mun Satrapi halda masterklassa fyr-
ir almenning og miðla þar af reynslu
sinni.
Satrapi er höfundur myndasög-
unnar Persepolis sem vinsæl teikni-
mynd var unnin eftir og frumsýnd
árið 2007. Í Persepolis byggir Sat-
rapi á eigin lífsreynslu, segir í henni
sögu stúlkunnar Marjane sem elst
upp í Teheran, fyrir og eftir írönsku
byltinguna árið 1979. Persepolis
hlaut mikið lof á sínum tíma og verð-
laun, hlaut m.a. dómnefnd-
arverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í
Cannes og var m.a. tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna, Golden Globe- og Cés-
ar-verðlaunanna. Önnur mynd Sat-
rapi, Chicken with Plums, er frá því
í fyrra og byggð á myndasögu eftir
hana. Í henni segir af síðustu dög-
unum í lífi fiðluleikarans Nassers Al-
is Khans. RIFF verður haldin 27.
september til 7. október.
Marjane Satrapi gestur RIFF
Hátíðargestur Marjane Satrap.
ævintýrum þrumu-
guðsins Þórs, eins
og hann birtist í of-
urhetjusögum
Marvel. Eccleston
mun fara með
hlutverk Malekith
the Accursed, skv.
frétt á vef MTV,
leiðtoga svartálfa.
Chris Hemsworth
leikur á ný Þór.
Enski leikarinn
Christopher
Eccleston mun
fara með hlutverk
illmennisins í
framhaldi kvik-
myndarinnar
Thor sem mun
bera titilinn Thor:
The Dark World.
Líkt og í fyrstu
myndinni segir af
Eccleston leikur illmennið í Thor 2
Christopher
Eccleston
Chris
Hemsworth
KILLER JOE Sýnd kl. 8 - 10:20
THE DARK KNIGHT RISES Sýnd kl. 3:50 - 7 - 10:20
ÍSÖLD4HEIMSHÁLFUHOPP3D Sýnd kl. 4 - 6
INTOUCHABLES Sýnd kl. 3:50 - 6 - 8 - 10:20
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
KOLSVÖRT SPENNUMYND
FRÁ LEIKSTJÓRA THE EXORCIST
OG THE FRENCH CONNECTION
40.000 MANNS!
VINSÆLASTA MYND SUMARSINS!
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
ÍSL TEXTI
ÍSL TAL
12
16
12
L
TRYGGÐU
ÞÉR MIÐA
Á
40.000 MANNS!
KOLSVÖRT SPENNUMYND FRÁ
LEIKSTJÓRA THE EXORCIST OG
THE FRENCH CONNECTION
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
KILLER JOE KL. 6 - 8 - 10.10 16
ÍSÖLD 3D KL. 6 L
TED KL. 10.10 12
INTOUCHABLES KL. 8 12
- TV, KVIKMYNDIR.IS - VJV, SVARTHÖFÐI
DARK KNIGHT RISES KL. 4.30 - 5.30 - 8 - 9 - 11.30
DARK KNIGHT RISES LÚXUS KL. 4.30 - 8 - 11.30 10
ÍSÖLD 4 3D ÍSL.TAL KL.3.20 - 6 L
ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 3.20 L
TED KL. 8 - 10.20 12
SPIDER-MAN 3D KL. 5 - 8 - 10.50 10
KILLER JOE KL. 8 - 10.20 16
ÍSÖLD 4 3D ÍSL.TAL KL.5.50 L
SPIDER-MAN 3D KL. 6 - 9 10
INTOUCHABLES KL. 5.30 - 6.30 - 8 - 9 - 10.30 12