Morgunblaðið - 03.08.2012, Qupperneq 44
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 216. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Börnin fundin
2. Þórunn Erna Clausen selur húsið
3. Talar aldrei aftur illa um Facebook
4. Leit að börnum í Brynjudal
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Draggkeppni Íslands verður haldin
í 15. sinn hinn 8. ágúst næstkomandi
og er miðasala á hana hafin. Keppnin
verður haldin í Eldborgarsal Hörpu.
Kynnir keppninnar verður Ágústa Eva
Erlendsdóttir, leikkona og söngkona
með meiru.
Morgunblaðið/Golli
Draggkeppni Íslands
haldin í Eldborg
Blásið verður til
útihátíðar á
skemmtistaðnum
SPOT í Kópavogi
um helgina. Í
kvöld leikur
Stuðlabandið og
annað kvöld
hljómsveitin
Greifarnir og
plötusnúðurinn Siggi Hlö. Á sunnu-
dagskvöld verður svo brekkusöngur.
Útihátíð þessi er nú haldin þriðja
sinni um verslunarmannahelgi.
Útihátíð haldin um
helgina á SPOT
Sveiflukóngurinn Geirmundur Val-
týsson kemur fram ásamt hljómsveit
sinni á Gamla Gauknum, Tryggvagötu
20 í Reykjavík, annað
kvöld. Húsið verður
opnað kl. 21 og
skagfirska sveiflan
tekur við nokkru
síðar og þá vænt-
anlega með tilheyr-
andi dans-
gleði og
sveiflu-
stuði.
Skagfirsk sveifla
á Gamla Gauknum
Á laugardag Hæg breytileg átt eða hafgola, skýjað með köflum
eða léttskýjað, en sums staðar líkur á þoku við ströndina. Hiti 8 til
20 stig, svalast í þokunni en hlýjast SV-lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg vestlæg átt vestantil á landinu. Skýjað
með köflum eða léttskýjað, en sums staðar þokuloft við sjávarsíð-
una. Hiti víða 13 til 20 stig að deginum, en svalara í þokuloftinu.
VEÐUR
Gary Martin var sleginn út
af KR í bikarkeppninni fyrr í
sumar, sem leikmaður Ak-
urnesinga. Hann varð hins
vegar hetja KR í gærkvöld
þegar hann kom Vesturbæj-
arliðinu í bikarúrslitin gegn
Stjörnunni með því að skora
sigurmarkið gegn Grinda-
vík, 1:0. Hann er hissa á
að hafa fengið að
spila með KR í
keppninni. »4
Martin kom KR í
bikarúrslitin
Bjarni Þór Viðarsson samdi í gær-
kvöld við danska knattspyrnuliðið
Silkeborg til fjögurra ára en hann
hefur leikið með Mechelen í Belgíu
undanfarin tvö ár. „Ég er gífurlega
ánægður með að þetta skuli vera í
höfn og ég sé laus frá Mechelen
eftir tvö erfið og leiðinleg ár.
Nú fæ ég tækifæri til
að koma ferlinum í
gang á ný og ætla
mér að nýta
það,“ sagði
Bjarni. »1
Bjarni með fjögurra ára
samning við Silkeborg
Þormóður Árni Jónsson júdókappi,
Óðinn Björn Þorsteinsson kúluvarp-
ari og Eva Hannesdóttir sundkona
verða öll í sviðsljósinu á Ólympíu-
leikunum í London snemma í dag.
Þormóður á fyrir höndum erfitt verk-
efni gegn einum besta júdókappa
heims og þarf að vinna hann til að
halda áfram keppni, en er hvergi
banginn. »1-3
Þormóður ætlar að
vinna einn þann besta
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Geir Magnússon er mikill ævintýra-
maður. Hann hefur slegist í för með
Ítalanum Ciancarlo Gianazza, dul-
málssérfræðingi
og verkfræðingi,
sem hefur leitað
ákaft síðustu ár á
Íslandi að æva-
gömlum hand-
ritum frá frum-
kristni. Gianazza
hefur legið yfir
kvæðabálki
Dante, Guðdóm-
lega gleðileiknum og leyndardómum
málaranna Botticelli, Rafael og
Leonardo da Vinci. Hann telur sig
hafa náð að ráða í þetta flókna dul-
mál og heldur því fram að Dante hafi
komið til Íslands og skilið eftir dýr-
mætt handrit. Gersemarnar munu
víst liggja í Kerlingarfjöllum, nánar
tiltekið við ána Jökulfall.
Hringurinn þrengist
„Við erum búin að þrengja hring-
inn en við höfum enn ekki haft erindi
sem erfiði,“ segir Geir sem hefur
tekið þátt í nokkrum leiðöngrum og
finnst fátt skemmtilegra. Sá viða-
mesti var árið 2008 þegar Bjarni
Einarsson fornleifafræðingur, Uggi
Ævarsson fornminjavörður, Þór-
arinn Þórarinsson arkitekt auk
fjölda annarra voru með í för, að
ógleymdum Gianazza. Búnaðurinn
innihélt m.a. loftpressu og jarðsjá.
„Árni Kópsson var einnig með í
för, sá frægi ævintýramaður, sem
gerir allt sem þarf karlmennsku til.
Hann kom með tvo stóra rússneska
herbíla með loftpressu og tæki fyrir
vatnsboranir. Við boruðum sjö holur
tuttugu metra djúpar niður í bergið
en fundum ekkert. Þá fór Gianazza
heim og reiknaði þá um veturinn
aftur og áttaði sig á því að við áttum
að vera í gilinu en ekki ofan á gil-
brúninni. Við höfum verið þar síðan.
Þessir nýju útreikningar byggja á
samanburði á kvæðinu og málverk-
unum og nýju punktarnir vísa m.a. í
hásæti Beatrice sem Dante minnist
á. Í klettaveggnum í gilinu er steinn
sem stingur í stúf við annað grjót
svo við erum ekki í nokkrum vafa um
að það sé hásætið sjálft,“ segir Geir.
Hann er á áttræðisaldri og mjög
ern. „Ég gerði mig strax mjög nauð-
synlegan í ferðunum, hoppaði ofan í
holu með jarðsjána og var þar með
orðinn aðstoðarjarðsjármaður.“
Leiðangrarnir eru kostnaðarsamir
og hefur heldur dalað í gullkistum
Ítalans en þeir láta engan bilbug á
sér finna. „Þetta er ekki spurning
um hvort, heldur hvenær við finnum
gersemina.“
MDante heimsótti Ísland »14
Heilagur kaleikur á Íslandi?
Dulmálssér-
fræðingur telur
forn handrit falin
í Kerlingarfjöllum
Geir Magnússon
Kerlingarfjöll Her manns að leita að hugsanlegum gersemum sem musterisriddarar földu hér á Íslandi á miðöldum.
Ljósmynd/Gísli Ólafur Pétursson
Ævintýramaður Giancarlo Gianazza, dulmálssérfræðingur og verkfræð-
ingur, hefur lesið í náttúru Íslands og reiknað út staðsetningu gersema.