Morgunblaðið - 13.08.2012, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2012
Hvað ertu að hlusta á um þessar
mundir?
Í augnablikinu hljóma Tender-
loin, Kiryama Family og gamalt eit-
ís stöff í i-poddinum mínum. Svo er
ég líka að hlusta á ný lög frá vinum
mínum sem eiga vonandi eftir að
rata inn á næstu sólóplötu mína.
Fullt af fínni músík þar á ferð.
Hvaða plata er sú besta sem
nokkurn tíma hefur verið gerð að
þínu mati?
Það er ekki hægt að svara þessu
en ég verð alltaf gátt-
aður á snilldinni sem
er Homogenic með
Björk.
Hver var fyrsta plat-
an sem þú keyptir og
hvar keyptir þú hana?
Ég keypti mér
UB40 í Karnabæ.
Þetta hefur verið ’80
eða ’81. Man ekki hvað
platan heitir en á þessum tíma voru
þeir mjög ferskir og með nýtt sánd.
Svo kom náttúrulega Bubbi og
Utangarðsmenn og maður hlustaði
á þá næstu mánuði og ár.
Hvaða íslensku plötu
þykir þér vænst um?
Úff, margar kallaðar.
Ég myndi segja Tívolí
Stuðmanna. Það er al-
gjör snilldargripur og
kemur mér alltaf í
gott skap.
Hvaða tónlist-
armaður værir þú
mest til í að vera?
Freddy Mercury.
Á lífi!
Hvað syngur þú í
sturtunni?
Ekkert. Hlífi fjölskyldunni.
Hvað fær að hljóma villt og galið
á föstudagskvöldum?
Scissor Sisters. Mér finnst New
York hommapoppið tilvalið til að
koma mér í stuð. „Filthy/Gorgeous“
er þar í fyrsta sæti.
En hvað yljar þér svo á sunnu-
dagsmorgnum?
Gamalt stöff frá Sting virkar
alltaf til að koma manni vel inn í
daginn. „Englishman in New
York“, „They Dance Alone“...
Svo er ég alltaf jafn hrifinn af
Paul Simon og Graceland.
Ótrúlegt að sú
plata sé orðin
25 ára!
Í mínum eyrum Felix Bergsson, söngvari og
dagskrárgerðarmaður
Fjölskyldunni hlíft
við sturtusöng
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/Ómar
Tony Bennett Á tónleikunum í Hörpu á föstudagskvöldið galdraði stór-
krúnerinn oft fram þá töfra sem sérhvern listamann dreymir um.
Eldborg í Hörpu
Tony Bennett bbbbm
Tony Bennett söng með kvartetti sín-
um: Lee Musiker píanó, Gray Sargent
gítar, Marshall Wood bassa og Harold
Jones trommur. Sérstakur gestur: Ant-
onia Bennett söngkona.
Föstudagskvöldið 10.8. 2012.
VERNHARÐUR
LINNET
TÓNLIST
Síðasti stórkrúnerinn
ful“. ,,For once in my life“ var einnig
sungin í ballöðustíl eins og Bennett-
slagari allra tíma: „I left my heart in
San Francisco“ og þar með gaf hann
honum nýjtt líf – aftur á móti getur
enginn mannlegur máttur bjargað
„The shadow of your smile“ nema
því sé snúið algjörlega á haus.
Tony Bennett lét sönginn tala á
þessum tónleikum, þó sagði hann frá
því er hann fékk bréf frá Charlie
Chaplin, sem hafði orðið að flýja
Bandaríkin til Sviss, þar sem hann
þakkaði honum fyrir að hafa komið
lagi sínu ,,Smile“ á kortið að nýju.
Svo söng Tony ,,Smile“ og Arms-
trong-tæknin var notuð glæsilega,
að breyta lengdargildum nótna
þannig að lagið varð að gullnum
djassi án þess að missa nokkuð af
upprunalegum töfrum.
Auðvitað lauk Tony tónleikunum
að venju með því að leggja frá sér
hljóðnemann og syngja „Fly me to
the moon“ og áheyrendur yfirgáfu
Hörpuna með gleði í hjarta.
Sveiflan var svo mjúk, en um leið
sterk að tíminn nam staðar og Benn-
ett teygði og beygði tónhending-
arnar svo lagið öðlaðist nýtt líf.
Þarna heyrði maður hve mikið hann
hefur lært af Louis Armstrong, eins
og allir ryþmískir stórsöngvarar frá
Bing Crosby til vorra daga.
Eftir að hafa sungið Gershwin
klassíkina „They all laughed“ var
komið að „Maby this time“ og þegar
hann söng ,,everybody loves a winn-
er so nobody loved me“ hrópaði
dama í salnum ,,I love you Tony“.
Honum hafði tekist að breyta tón-
leikahöllinni í klúbb og hélt nándinni
allan tímann.
Hér er ekki rými til að nefna öll
þau lög sem Tony söng, enda má
segja að hann hafi aðeins tæpt á
sumum meðan önnur fengu glans-
meðferð og hljóðfæraleikararnir
sólóa við hæfi.
Þó verður ekki skilið við þessa
tónleika án þess að geta glæsilegrar
túlkunar á ballöðunni „But beauti-
Þá hefur fyrsti stórkrúnerveraldar heimsótt Íslandog sungið fyrir þjóðina.Bing Crosby, heimsótti Ís-
land einnig en veiddi lax. Crosby var
ekta Ameríkani, en hinir þrír stór-
krúnerar tónlistarsögunnar allir am-
erískítalskir, Frank Sinatra,
Frankie Laine og Tony. Þremenn-
ingarnir erfðu bel canto-hefðina, en
uxu úr grasi með djassinn í eyr-
unum. Þó að allir væru þeir djass-
söngvarar á góðri stundu var Tony
Bennett það flestum stundum. Það
sannaði hann rækilega á tónleik-
unum í Hörpu með fínan djass-
kvartett þar sem gamli Basie-
trommarinn Harold Jones, kynti
undir sveifluvagninum.
Tónleikarnir hófust á því að dóttir
Tonys, Antonia, söng. Fraseringar
hennar voru dálítið stífar og sveiflan
ekki fljótandi. Best tókst henni upp í
Gershwin-dansinum ,,Embracable
you“ sem hún söng undurhægt og
byrjaði á versinu, sem söngvarar
sleppa of oft er þeir syngja söng-
dansa.
Svo rann stóra stundin upp er
meistari Bennett, áttatíu og sex ára,
sté á svið og söng „Watch what
happens“. Áður en yfir lauk urðu
lögin 25 og tónleikarnir nærri tveir
tímar án hlés. Ég heyrði Tony Benn-
ett síðast fyrir fjórtán árum á
djasshátíðinni í Kaupmannahöfn og
auðvitað eru fraseringarnar ekki
eins leikandi og sveiflan ívið þyngri
nú, en oft galdraði hann fram þá
töfra sem sérhvern listamann
dreymir um. Fimmta lagið á efnis-
skránni var „If I had you“ sem Björn
R, spilaði löngum og er ekki oft á
dagskrá Tonys. Þar gerðist undrið.
EGILSHÖLL
VIP
12
12
12
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
ÁLFABAKKA
12
12
12
12
12
AKUREYRI
KVIKMYNDIR.IS
HOLLYWOOD REPORTER
SÉÐ OG HEYRT
MBL
BRAVE ísl.Tali kl. 3:40 - 5:50 3D
BRAVE ísl.Tali kl. 3:40 - 5:50 2D
BRAVE ensku.Tali kl. 8 2D
SEEKING A FRIEND... kl. 5:50 - 8 - 10:20 2D
DARK KNIGHT RISES kl. 3 - 6:30 - 8 - 10 - 10:20 2D
DARK KNIGHT RISES VIP kl. 3 - 6:30 - 10 2D
MAGIC MIKE kl. 8 - 10:20 2D
MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 3:40 - 5:50 2D
UNDRALAND IBBA ísl.Tali kl. 3:40 2D KRINGLUNNI
L
L
12
12
BRAVE ísl.Tali kl. 5:50 3D
BRAVE ísl.Tali kl. 5 2D
SEEKING A FRIEND... kl. 5:50 - 8 - 10:20 2D
DARK KNIGHT RISES kl. 7 - 8 - 10:30 2D
DARK KNIGHT RISES
kl. 3 - 6:10 - 8 - 9:20 - 10 - 11:10 2D
TOTAL RECALL kl. 5:20 - 8 - 10:30 2D
TED kl. 7:30 2D
BRAVE ísl.Tali kl. 3 3D
BRAVE ísl.Tali kl. 3:20 - 5:40 2D
ÍSÖLD 4 ísl.Tali kl. 3 2D
MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 5 2D
SEEKING A FRIEND.. kl. 6 - 8 - 10:10 2D
BRAVE ísl.Tali kl. 6 3D
DARK KNIGHT RISES kl. 8 2D
Sýnd með íslensku og ensku tali – sýnd í 2D og 3D
Frá Framleiðendum Toy Story 3, Finding Nemo og Up.
- Miami Herald
- Rolling Stone
- Guardian - Time Entertainment
53.000 GESTIR
STÆRSTA MYND ÁRSINS
b.o. magazine
e.t. weekly
STEVE
CARELL
KEIRA
KNIGHTLEY
KEFLAVÍK
L
12TOTAL RECALL kl. 8 2D
THE DARK KNIGHT RISES kl. 10:30 2D
DREAMHOUSE kl. 8 - 10 2D 16
KYNNTU ÞÉR
VILDARKERFI SAMBÍÓA
Kolbrún Kristleifsdóttir
kennari
- Ég finn mig alltaf svo
velkomna hérna!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n