Morgunblaðið - 27.08.2012, Síða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2012
Viðskiptavinir Kjaran
eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og
prentsmiðjur sem eiga
það sameiginlegt að
gera kröfur um gæði
og góða þjónustu.
bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki
bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum.
Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem
prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit.
Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft
ekki annað tæki en bizhub C35.
Verð: 379.900 kr.
Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir
hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Eftir að Ferðaskrifstofa stúdenta
lagði upp laupana myndaðist tóma-
rúm á ákveðnum hluta markaðarins
og bæði námsmenn og ungt fólk átti
ekki lengur hægt um vik með að
nálgast fargjöld og ferðir á hagstæð-
um ungmenna- og námsmannakjör-
um.
Nú getur æskulýðurinn hins veg-
ar byrjað að pakka ofan í töskurnar
og dustað rykið af vegabréfinu því
alþjóðlega ferðaskrifstofan Kilroy er
komin til Íslands og búin að opna
útibú á Skólavörðustíg. Hulda Stef-
ánsdóttir ræður þar ríkjum en árið
2009 stofnaði hún fyrirtæki Náms-
ferðir sem nú hefur runnið saman
við Kilroy.
„Við bjóðum allan pakkann, ef svo
má segja. Kilroy sérhæfir sig í öllu
frá sölu ævintýralegra ferða til fjar-
lægra heimshluta, yfir í málaskóla-
pakka og aðstoð við að koma fólki í
fullt háskólanám erlendis. Við opn-
uðum núna í sumar og af viðtökun-
um er greinilegt að mikil vöntun var
á þjónustu af þessu tagi hér á landi.“
Stórfyrirtæki í íslenskri eigu
Kilroy á Íslandi er dótturfyrirtæki
Kilroy International A/S. Er um að
ræða stóra keðju sem varð til í Dan-
mörku árið 1991 en á rætur sínar að
rekja allt aftur til ársins 1946. Rekur
Kilroy 18 skrifstofur í sex löndum og
hefur yfir 300 starfsmenn á sínum
snærum.
Stutt er síðan Kilroy komst að
meirihluta í eign íslenska fjárfest-
ingafyrirtækisins Íslensk fjárfesting
ehf. sem svo er í eigu Arnars Þór-
issonar og Þóris Kristjánssonar. Ís-
lensk fjárfesting hefur einkum látið
að sér kveða í ferðaþjónustu og heil-
brigðisgeira.
Hulda segir ljóst að markaðsum-
hverfið fyrir ferðaskrifstofu eins og
Kilroy hefur mikið breyst undanfar-
in ár. „Styrkleiki Kilroy liggur með-
al annars í ferðum á fjarlægari staði.
Ef leiðin liggur t.d. til Asíu eða Suð-
ur-Ameríku er hægara sagt en gert
að bóka hagstæð og hentug fargjöld
sem og að skipuleggja gistingu og
flug áfram á aðra áfangastaði.“
Kilroy hefur einnig aðgang að
mjög sveigjanlegum námsmannafar-
gjöldum. „Flugmiðarnir sem við
seljum bjóða t.d. iðulega upp á þann
möguleika að breyta dagsetningum
á einfaldari hátt og fjölga stoppum.
Ef leiðin liggur t.d. til Asíu gegnum
London eða Amsterdam er hægt að
taka stutt stopp á leiðinni, auka
þannig við ævintýrið og skoða fleiri
borgir en ella. Ef það svo reynist
vera afskaplega gaman í Bangkok
eða Balí er auðsótt að lengja dvöl-
ina.“
Loks segir Hulda að skipulagning
á löngu ferðalagi með mörgum við-
komustöðum geti verið flóknari en
margan grunar, og huga þurfi að
fleiri smáatriðum en í stuttum
skreppitúr til Evrópu. „Í sumum
löndum getur fólk t.d. lent í vand-
ræðum á landamærunum ef það get-
ur ekki framvísað miða með flugi
áfram úr landinu. Í öðrum tilvikum
hemur reynsla og sérþekking starfs-
fólks Kilroy að miklu gagni við að
finna réttu gistinguna eða velja réttu
viðkomustaðina. Ferðaráðgjafar
okkar eru sjálfir ferðalangar, hafa
oft verið á þeim slóðum sem við-
skiptavinirnir hafa áhuga á og geta
miðlað af persónulegri reynslu
sinni.“
Breyttir tímar kalla á
breyttar áherslur
En hversu sterkur er markaður-
inn? Efnahagsástandið er ekki með
besta móti í samfélaginu og unga
fólkið verður fyrir barðinu á at-
vinnuleysi og samdrætti eins og aðr-
ir. „En ég sé hins vegar merki um
breytingu á áherslum unga fólksins.
Þegar ég var sjálf að ljúka mínu
námi voru jafnaldrarnir oft að kaupa
sér sína fyrstu íbúð og bíl samhliða
náminu og takast á hendur stórar
langtímaskuldbindingar. Í dag velja
fleiri leiðir eins og að leigja, lifa bíl-
laust, og hafa þannig betri tök á að
láta t.d. eftir sér ógleymanlega æv-
intýraför.“
Val á áfangastöðum er einnig að
breytast og hægt að laga ferðaáætl-
anirnar til þannig að verðminni
kreppukrónur dugi langt. „Unga
fólkið er greinilega að sækja meira
en áður í framandi áfangastaði,
ferðast um lengri veg þangað sem
uppihaldið er mjög viðráðanlegt.“
Fara á staði þar sem
krónurnar endast
Unga fólkið fer á fjarlægari slóðir þar sem uppihaldið kostar minna
Breyttar áherslur í fjárhag ungmenna skapar svigrúm til að ferðast þrátt fyrir
niðursveiflu Íslenskir fjárfestar eiga meirihlutann í ferðarisanum Kilroy A/S
Svigrúm Hulda segir breyttar áherslur unga fóksins skapa tækifæri til að
leggjast í ferðalög. „Í dag velja fleiri leiðir eins og að leigja, lifa bíllaust, og
hafa þannig betri tök á að láta t.d. eftir sér ógleymanlega ævintýraför.“
Banaríski leikjaframleiðandinn
Zynga á í erfiðleikum með að
halda í stjórnendur. Það sem af er
ágústmánuði hafa fjórir yfirmenn
hjá fyrirtækinu haldið á brott.
Fréttaveita Bloomberg segir
helstu ástæðuna vera að hlutabréf
fyrirtækisins hafi lækkað mjög í
verði síðan Zynga fór fyrst á
markað í desember. Lækkunin
nemur um 68% sem aftur þýðir að
bónusar og árangurstengdar
greiðslur af ýmsum toga lækka
töluvert.
Zynga framleiðir m.a. leiki sem
spilaðir eru yfir samskiptavefinn
Facebook og einnig snjallsíma-
leiki. Starfsmenn eru samtals um
3.000 talsins og hafa framleitt
smelli á borð við FarmVille, Mafia
Wars og CityVille.
ai@mbl.is
Fíkn Zynga sló í gegn á sínum tíma með Fésbókarleiknum FarmVille. Rekst-
urinn hefur lítið vaxið undanfarið og virði nýskráðra hlutabréfa dalað.
Stjórnendur flýja fram-
leiðanda FarmVille
Lækkandi verð hlutabréfa rýrir bónusa
Risabankinn HSBC hefur tekið frá
700 milljónir dollara vegna mögu-
legra sekta í kjölfar rannsóknar
Bandaríkjaþings á viðskiptaháttum
bankans. Er HSCB sakað um að
hafa gert bæði eiturlyfjahringum
og hryðjuverkasamtökum kleift að
tengjast bandaríska bankakerfinu.
Fréttaveita Bloomberg hefur eftir
Stuart Gulliver, framkvæmdastjóra
bankan, að sektarupphæðin kunni
að vera hærri en þau hundruð
milljóna sem þegar hafa verið lögð
til hliðar.
Mikill slagur stendur yfir í
Bandaríkjunum um þessar mundur
þar sem stjórnvöld hafa getað sótt
gríðarstórar fjárhæðir til ýmissa
banka vegna brota á viðskipta-
banni og peningaþvættislögum.
Nýlega bættust við framvinduna
ásakanir saksóknara á Manhattan
sem vænir Standard Chartered-
banka um að hafa þvegið um 250
milljarða dala fyrir Íran.
Mögulegar sektargreiðslur
HSBC gætu slegið fyrra met hol-
lenska bankans ING sem í júní
féllst á að greiða stjórnvöldum
vestanhafs 619 milljónir dala.
ai@mbl.is
AFP
Deilur Mótmælandi fyrir utan útibú
HSBC í Mexíkóborg.
HSBC leitar
sátta vegna
peninga-
þvættis
Bandarísk
stjórnvöld þjarma
að bönkunum