Morgunblaðið - 27.08.2012, Qupperneq 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2012
skrýtið. Almennt breytast raddir
með aldrinum og dökkna aðeins og
svo öðlast maður meiri reynslu.
Ég hef prófað margt og komið við
í hinum ýmsu músíkstílum. Allt
safnast þetta saman í reynslu-
banka sem ég nýti mér.“
Frá sellói til söngs
Andrea hóf tónlistarferil sinn
með því að læra á selló í Tónlist-
arskóla Akraness, Tónlistarskóla
Reykjavíkur, Tónlistarskóla
Garðabæjar og hún var einnig í
einkatímum. „Foreldrum mínum
fannst ég vera músíkalskt barn og
sendu mig í tónlistarskóla þar sem
ég lærði á hljóðfæri og svo varð
sellóið aðalhljóðfærið mitt. En ég
átti aldrei það hljóðfæri heldur
var með það í láni og svo kom að
því að ég þurfti að skila því. Ég
átti rétt fyrir salti í grautinn og
það að kaupa hljóðfæri var óyf-
irstíganlegt. Fyrir nokkrum árum
fékk ég reyndar selló í afmæl-
isgjöf frá manninum mínum sem
var mjög gleðilegt. Það er erfitt
að taka upp þráðinn nítján árum
seinna en ég fæ mikið út úr því að
spila á sellóið fyrir sjálfa mig.
Grunnurinn að söngferli mínum
var lagður þegar ég hitti fyrir til-
viljun Guðmundu Elíasdóttur en
ég hafði verið í kór hjá henni þeg-
ar ég var krakki og hún dreif mig
í söngtíma.“
Andrea stundaði söngnám í
Söngskóla Reykjavíkur á árunum
1985 til 1987 og tók þaðan burtfar-
arpróf árið 1987. Það ár fór hún
að koma fram með Grafík og
hljómsveitirnar sem hún hefur
komið fram með eru ansi margar
og auk Grafíkur má þar nefna Vini
Dóra, Blúsmenn Andreu, Borg-
ardætur, Todmobile, Tweety og
ýmsar djasshljómsveitir. Þess má
geta að Borgardætur koma fram
sem Andrews-systur á tónleik-
unum Gullöld Glenn Miller í
Eldborgarsalnum föstudaginn 31.
ágúst. Andrea er afkastamikill
textahöfundur og hefur tvívegis
hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin
sem textahöfundur ársins. Fyrr á
þessu ári var hún kjörin söngkona
ársins á Íslensku tónlistarverð-
laununum eftir að hafa verið til-
nefnd ótal oft áður.
Þarf alltaf að vera á tánum
Andrea er mjög fjölhæf söng-
kona, syngur gamla dægurlaga-
tónlist, popp, blús og djass. Hún
er spurð hvort það sé einhver ein
tegund tónlistar sem henni finnist
skemmtilegri en önnur?
„Nei, það er sennilega ástæðan
fyrir því að ég hef verið út um allt
Sá sem
syngur er
sögumaður
Andrea Gylfadóttir fagnar fimm-
tugsafmæli með tónleikum í Hörpu
Andrea Gylfadóttir Ég legg mikið
upp úr því að fólk skilji textann
sem ég syng og lifi sig helst inn í
það sem ég er að segja því.
VIÐTAL
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Söngkonan fjölhæfa Andrea Gylfa-
dóttir fagnar fimmtugsafmæli sínu
með stórtónleikum í Eldborgarsal
Hörpu laugardagskvöldið 15. sept-
ember. Afmælisdagurinn sjálfur er
tveimur dögum fyrr, 13. septem-
ber. Á tónleikunum koma fram
auk Andreu hljómsveitirnar
Todmobile, Grafík, Tweety, Borg-
ardætur, Blúsmenn Andreu og
Bíóbandið. Kynnir og gestgjafi
verður Pálmi Sigurhjartarson.
„Þetta er fínn aldur, eins og
flestur aldur,“ segir Andrea, að-
spurð hvernig henni lítist á að
verða fimmtug. Hún bætir við:
„Ég held bara áfram á minni
braut, það er erfitt að bakka út úr
þessu núna.“
Hún segist hafa verið hvött til
þess að halda tónleika í tilefni af-
mælisins. „Af hverju ekki að gera
það eins og eitthvað annað? Ég
hef verið 25 ár í þessum bransa
þannig að það er ágætt að halda
upp á það í leiðinni.“
Í tilefni tímamótanna kemur út
tvöfaldur diskur með úrvali af því
sem Andrea hefur verið að gera
síðustu tuttugu og fimm árin. „Það
var ekki auðvelt að velja lög á
diskinn. Þegar ég hlustaði á allt
það efni sem ég hafði úr að velja
áttaði ég mig á því hvað ég hef
breyst sem listamaður – og auðvit-
að hef ég breyst, annað væri
» Almennt breytast raddir með aldrinum ogdökkna aðeins og svo öðlast maður meiri
reynslu. Ég hef prófað margt og komið við í hinum
ýmsu músíkstílum. Allt safnast þetta saman í
reynslubanka sem ég nýti mér.
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 & Strandgata 25 • Akureyri • sími 456 1185 • www.tonastodin.is
Tónastöðin
býður upp á mikið úrval
hljóðfæra og nótnabóka
fyrir allar tegundir tónlistar
og leggur áherslu á góða
og persónulega þjónustu.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.
Kvikmyndaleikarinn og -leikstjór-
inn Ben Stiller flakkar um Ísland og
undirbýr tökur fyrir kvikmynd
sína, The Secret Life of Walter
Mitty. Stiller er iðinn við tístið á
Twitter og greindi frá því síðdegis í
gær að hann hefði kafað í Silfru á
Þingvöllum, í tærasta vatni heims
og væri dofinn í vörunum eftir það.
Því til sönnunar birtir Stiller In-
stagram-ljósmynd af Silfru. Í eldri
færslu, frá laugardegi, segist Still-
er vera á leið með þyrlu til Stykkis-
hólms og birtir mynd af stjórntækj-
um þyrlunnar á vef Instagram.
Víðförull Íslandsvinur hann Stiller.
Tilfinningalaus
í vörunum
AFP
Flakk Ben Stiller kemur víða við á Íslandi.
Millennium-þríleikur sænska rithöfundarins Stiegs
Larssons varð að þremur sænskum kvikmyndum og
var sú fyrsta, The Girl With the Dragon Tattoo, eða
Karlar sem hata konur í íslenskri þýðingu, endur-
gerð í Hollywood af leikstjóranum David Fincher
og frumsýnd í fyrra. Til stóð að frumsýna næstu
Hollywood-mynd þríleikjsins, The Girl Who Played
With Fire, eða Stúlkan sem lék sér að eldinum, á
næsta ári en henni hefur nú verið frestað, ef marka
má frétt á vefnum Entertainment Weekly. Þar segir
að enn sé verið að vinna í handriti myndarinnar og
því hafi myndinni verið seinkað. Handritshöfundur
er sá sami og síðast, Steven Zaillian.
Í kvikmynd Finchers fór Daniel Craig með hlut-
verk blaðamannsins Mikaels Blomqvists og Rooney
Mara með hlutverk tölvusnillingsins Lisbeth Sal-
ander. Þau munu endurtaka leikinn í næstu mynd en ekki hefur verið stað-
fest hver muni leikstýra henni.
Tafir á öðrum hluta þríleiksins
Rooney Mara