Morgunblaðið - 25.09.2012, Page 2

Morgunblaðið - 25.09.2012, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Kristinn Haukur Skarphéðinsson, dýravistfræð- ingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, sótti særðan örn við sunnanvert Þingvallavatn á laug- ardaginn. Örninn var óvenjuspakur að sögn Krist- ins en hann var ófleygur og særður þegar komið var að honum. „Hann gat ekkert flogið þegar ég nálgaðist og hann hrökklaðist undan mér í fyrstu. Þegar ég náði honum var hann allur grútugur og blautur. Þá var hann líka nokkuð léttari en hann ætti að vera.“ Kári Ingólfsson, sem á bústað í nágrenninu, fann örninn og lét vita af honum. Farið var með fuglinn í Húsdýragarðinn og segir Kristinn hann hafa braggast nokkuð síðan. „Ég leit á hann í gær og þá var hann farinn að braggast. Dýralæknir mun síðan skoða hann í vikunni en þangað til er erfitt að segja til um það hvernig hann fékk sárið sem hann er með á gogginum.“ Íslenski örninn hefur verið friðaður í að verða 100 ár eða frá árinu 1913. Öll veiði og röskun á arnarhreiðrum er því stranglega bönnuð. Kristinn vill ekki fullyrða að skotið hafi verið á örninn sem fannst á laugardaginn enda engin bein ummerki um það. Enn er ekki búið að taka ákvörðun um það hver örlög arnarins verða en það kemur í ljós eftir nánari skoðun í vikunni. Íslenski arnarstofninn stækkar „Íslenski arnarstofninn hefur verið að taka við sér en hann náði lágmarki í kringum 1920. Á síð- ustu 30 til 40 árum hefur hann hins vegar þrefald- ast og núna erum við að telja 69 pör og getum því áætlað að hér á landi séu um 300 ernir,“ segir Kristinn. Vel hafi tekist til við að byggja upp arnarstofna á Norðurlöndum og víðar í Evrópu. Þrátt fyrir að örninn hafi verið friðaður í að verða 100 ár er alltaf eitthvað um það að fólk skjóti á fuglinn. „Við sjáum oft ummerki um það, t.d. þegar fólk kemur með særða fugla til okkar eða það kemur með hræ af þeim, eins og t.d. fálk- anum sem fannst á Snæfellsnesi í sumar.“ Særður með skarð í kónganefi  Var ófleygur þegar komið var að honum  Með stærðarinnar sár á gogginum og nokkuð horaður Ljósmynd/Valur Ingólfsson Sár Kári Ingólfsson fann örninn særðan og blautan við Ölfusvatn rétt hjá Þingvöllum á laugardaginn en örninn er með töluvert stórt sár á gogginum. Ljósmynd/Valur Ingólfsson Grútarblautur Kristinn Haukur Skarphéðinsson með örninn blautan og þreyttan í fanginu. Sérstakur sak- sóknari hefur gefið út ákæru á hendur Lýði Guð- mundssyni, fyrr- verandi stjórn- arformanni Exista, og Bjarn- freði H. Ólafssyni lögfræðingi fyrir stórfellt brot á hlutafélagalög- um. Er þeim gefið að sök að hafa vís- vitandi gefið rangar og villandi upp- lýsingar um hækkun hlutafjár til þess að tryggja yfirráð Lýðs og Ágústs bróður hans í Exista. Í ákærunni kemur fram að 3. des- ember 2008 hafi Nýi Kaupþing banki óskað eftir greiðslu inn á lán bankans eða frekari tryggingu frá Bakkabraedur holding B.V. sem átti 45% hlut í Exista. Að öðrum kosti myndi bankinn leysa til sín hlutabréf félagsins. Bakkabraedur holding B.V. var í eigu Lýðs og Ágústs bróð- ur hans. Lýður hafi þá skrifað undir kaup- samning þar sem greint var frá greiðslu hlutafjárins upp á 1 milljarð króna. Samkvæmt ákæru var féð greitt inn á vörslureikning hjá lög- fræðistofu og lá þar óhreyft fram á sumar 2009. Milljarðurinn hafi því aldrei runnið inn í rekstur Exista. Bjarnfreður hafi sama dag sent villandi tilkynningu til ríkisskatt- stjóra og Verðbréfaskráningar Ís- lands um að hlutafé í Exista hefði verið aukið um 50 milljarða fyrir til- stilli greiðslu sem aldrei barst. vidar@mbl.is Milljarður rann ekki í rekstur  Sérstakur sak- sóknari ákærir tvo Lýður Guðmundsson er gefið í pillum og er gert ráð fyrir að hinir kvefsmituðu taki fjórar töflur á sólarhring; tvær á daginn og tvær á kvöldin. Í töflunum eru virku efnin parasetamól (sem lasburða Íslend- ingar þekkja vel) og efnið phenyl- phrine hýdróklóríð sem vinnur gegn nefrennsli. Munurinn á dag- og næt- urtöflunum er sá að dagtöflurnar innihalda hið mildilega örvandi efni koffín en kvöldtöflurnar eru koff- ínfríar en þó ekki sljóvgandi. Lyfið Benylin Cold and flu, kvef og flensa, er svipað. Á Íslandi þyrfti 2-3 mis- munandi meðul til að fá sömu áhrif. Fimm virk efni í einni pillu Einnig er í Bretlandi hægt að fá öflugara kveflyf, Day and night nurse, dag- og næturhjúkku, sem inniheldur alls fimm virk efni (para- setamól, pseudoefedrín hýdróklóríð, pholcodine, dextromethorphan hýdróbrómíð og promethazine hydró- klóríð). Lyfið virkar á hausverk, nef- rennsli og fleira og pillan sem á að taka að kvöldi til er sljóvgandi og hjálpar fólki því að sofna. Ekkert af þessu fæst hérlendis. Vistor er með umboð fyrir Benylin Cold and flu hér á landi. Gunnur Helgadóttir, framkvæmdastjóri Vis- tor, segir að það sé markmið hjá fyr- irtækinu að stuðla að því að birgjar þess markaðssetji eins mörg lyf og hægt sé á Íslandi. „En við erum háð því að birgirinn sjái sér hag í því og vilji fara í samstarf um það. Og í þessu tilfelli er lyfið ekki markaðssett á Norðurlöndum,“ segir hún. Bretar geta gripið til öflugri meðala  Í Bretlandi fást fjölbreytt kveflyf sem ekki eru seld hér  Taka eina tegund af pillum að morgni en aðra að kvöldi BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Höfuðverkur, hálsbólga, nefrennsli, eyrnaverkur og almennur slappleiki. Þetta eru einkenni kvefpesta sem herja á marga, ekki síst á haustin. Engin lækning er til við kvefi en ýmis ráð eru til að slá á einkennin. Sumir drekka heita drykki í tíma og ótíma en aðrir leita á náðir lyfjaframleið- enda sem falbjóða vörur sínar í apó- tekum. Þeir pestargemlingar sem eru sæmilega sigldir í veröldinni vita vel að úrval kvefmeðala er töluvert minna í íslenskum apótekum en það er í breskum, hvað þá bandarískum. Í Bretlandi má til dæmis kaupa lyf- ið Night and day, nótt og dagur. Það Hjá Lyfjastofnun fengust þær upp- lýsingar að ekki hefði verið sótt um markaðsleyfi fyrir þessi lyf hér á landi og því gæti stofnunin ekki svarað því hvort slík lyf fengju markaðsleyfi. Rúnar Guðlaugsson, í upplýs- ingadeild Lyfjastofnunar, sagði þó að það væri óvíst að lyfið Day and night nurse fengi lausasölu- heimild, enda innihéldi það mörg virk efni sem væri m.a. að finna í lyfseðilsskyldum lyfjum. Bretland væri mun stærri og fjölmennari mark- aður og því eðlilegt að fram- boð af lyfjum í lausasölu væri meira en á Íslandi og annars stað- ar á Norðurlöndum. Sömu reglur giltu um hvaða skilyrði lyf þyrftu að uppfylla til þess að fá lausasöluheimild í Evr- ópulöndum. Á hinn bóginn væri ákveðið svigrúm fyrir mismunandi túlkanir og hefðir í Evrópulönd- unum. Í Bretlandi væri meiri hefð fyrir lyfjum með mörg innihalds- efni enda líklegt að Bretar bæru sinn markað saman við Bandaríkin þar sem rík hefð væri fyrir slíkum lyfjum. Ísland bæri sig hins vegar saman við hin norrænu ríkin þar sem lítil hefð er fyrir lyfjum með mörgum virkum innihaldsefnum. Fá virk efni vegna hefðar REGLUR UM LYF ÞÆR SÖMU EN TÚLKANIR ÓLÍKAR MILLI LANDA Björn Valur Gíslason, formaður fjár- laganefndar, hefur boðað fulltrúa Ríkisendurskoðunar á fund nefnd- arinnar í dag vegna fjárhags- og bókhaldskerfis sem keypt var af SKÝRR, nú Advania, árið 2001 og átti að kosta 160 milljónir en kostar í dag á fjórða milljarð. Fjallað var um málið í Kastljósi RÚV í gærkvöldi. Drög vegna úttektar sem óskað var um málið 2004 voru tilbúin 2009 en hafa enn ekki verið birt. Ríkis- endurskoðun gagnrýndi birtingu draganna í gærkvöldi. Kostnaður við tölvu- kerfið fjórfaldaðist

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.