Morgunblaðið - 25.09.2012, Side 7

Morgunblaðið - 25.09.2012, Side 7
Ný ávöxtunarleið með stighækkandi vöxtum Sparnaður: Vaxtaþrep 30 dagar Vaxtaþrep 30 dagar er nýr bundinn óverðtryggður innlánsreikningur og hækka vextirnir í þrepum eftir fjárhæð innistæðunnar. Þú getur stofnað Vaxtaþrep 30 dagar í Netbankanum eða í næsta útibúi Íslandsbanka. Nánari upplýsingar á islandsbanki.is Ársvextir skv. vaxtatöflu 22.09.12: Vextir eru stighækkandi eftir innstæðu. g ns. Ný sparnaðarleið Úttektir af reikningnum þarf að til- kynna með 30 daga fyrirvara en á móti eru vextirnir hærri en á almennum óbundnum innlánsreikningum og eru þeir greiddir út mánaðarlega inn á ráðstöfunarreikning að eigin vali. Vaxtaþrep 30 dagar hentar því þeim sem vilja örugga og háa ávöxtun en jafnframt að innistæðan sé laus með skömmum fyrirvara. 0–5 m.kr. 5–20 m.kr. 20–75 m.kr. +75 m.kr. 3,8% 4,1% 4,4% 4,7% 5,0% 4,5% 4,0% 3,5% 3,0% FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2012 BAKSVIÐ Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is „Ég hitti reglulega mismunandi hópa sjúklinga. Með því vil ég byggja upp traust og tala um það sem er í gangi. Þannig má finna nýjar leiðir til að betrumbæta,“ sagði Tor Åm, fram- kvæmdastjóri heilbrigðisráðs Nor- egs, sem í gær hélt erindi á ráðstefnu á Grand hóteli um nýja heildræna heilbrigðisstefnu sem Norðmenn inn- leiddu um síðustu áramót. Åm var í forsvari endurskipulagningarinnar, en með henni hafa Norðmenn innleitt notendamiðaða heilbrigðisþjónustu. Blaðamaður hitti hann í miðborginni í gær og ræddi nýjar áherslur Norð- manna. Brugðust við breyttu samfélagi Árið 2004 var sett af stað vinna við að fara ofan í norska heilbrigðiskerf- ið. „Í ljós kom að það voru ekki ein- ungis annmarkar á heilbrigðiskerfinu sjálfu heldur sáum við að samfélags- gerðin var að breytast. Fólk var að eldast og hlutfallið á vinnumarkaði að minnka samhliða. Okkur þótti ljóst að heilbrigðiskerfið yrði að taka mið af þessu,“ segir Åm. Árið 2008 setti þá- verandi heilbrigðisráðherra Noregs í gang vinnu með það að markmiði að endurbæta kerfið út frá fyrri skoðun og gera það notendamiðaðra. Í Noregi er grunnheilbrigðisþjón- ustan á hendi sveitarfélaganna, sem eru 429 að tölu, en sérfræðiþjónusta og rekstur sjúkrahúsa er á hendi rík- isins. Åm segir að grunnþjónustan fái helming opinberra framlaga og að restin fari til reksturs sjúkrahúsa og til annarrar sérfræðiþjónustu. Hann segir að markmiðin í nýrri stefnu séu að fyrirbyggja að fólk þurfi að leita sér spítalavistar og sér- fræðiþjónustu og að sem flestir geti fengið lausn sinna mála í grunnþjón- ustunni. Einnig að sérfræðingarnir geti sérhæft sig meira, en að sam- hliða sé tryggt að þeir sem þurfi margháttaða þjónustu fái hana. Åm segir mikilvægt að þegar fólk leiti fyrst til heilbrigðiskerfisins taki strax við því sérhæft heilbrigðis- starfsfólk sem geti greint það betur og hjálpað því rétta leið. Hann segir að samtal eigi sér orðið stað á milli þessara tveggja kerfa og að komnir séu samningar á milli grunnþjónust- unnar og sérfræðiþjónustunnar sem miði að bættri þjónustu og betri nýt- ingu fjármuna. Hann segir það tryggja aukna skilvirkni, meiri gæði og meiri sjálfbærni. „Það er dýrara að fá sjúklinga á sjúkrahús en að geta leyst vanda þeirra í héraði með fyrirbyggjandi hætti. En það þarf að breyta fleiru en heilbrigðiskerfinu. Skólakerfið, menningin og tæknin þarf einnig að laga sig að því,“ segir Åm. Hann segir að almenna viðhorfið hjá heilbrigðisstarfsmönnum í Nor- egi sé jákvætt gagnvart nýrri stefnu en að heimilislæknar séu sumir óhressir, enda sé verið að færa aukið vægi yfir á grunnheilbrigðisþjón- ustuna. Það skapi ákveðið óöryggi hjá þeim. Sveitarfélögin séu hinsveg- ar almennt mjög sátt við að takast á við stærra hlutverk þó að áhyggjur af fjármögnun séu sígildar. Åm segir að í norska Stórþinginu hafi þingmenn almennt verið sam- mála um markmiðin í kerfinu, þó að deilt hafi verið um efnahagslega þýð- ingu breytinganna og um einstakar leiðir. En að vegna samstöðunnar í þinginu óttist hann ekki að þegar ný stjórnvöld taki við einhvern tíma í framtíðinni verði gerð bylting á kerf- inu og það sé jákvætt fyrir heilbrigð- iskerfið og notendur þess. „Stjórn- völd vita að þetta er til langs tíma,“ sagði Åm. Spurður um álit sitt á ís- lenska heilbrigðiskerfinu segist hann ekki vilja tjá sig um það. Hann sé hér einungis til að kynna norska kerfið. Þjónusta miðist við þarfir sjúklinga  Notendamiðað heilbrigðiskerfi innleitt í Noregi  Áhersla er nú lögð á að fyrirbyggja sjúkrahúsvist  Grunnþjónusta var efld og samráð milli kerfa aukið  Notendur hafa meira að segja um þjónustuna Morgunblaðið/Styrmir Kári Notendavæn þjónusta Tor Åm, heimilislæknir og framkvæmdastjóri heilbrigðisráðs Noregs, á Grand hóteli í gær. „Markmið okkar í dag er að koma í veg fyrir sjúkdóma hjá fólki og að heilsugæslan sinni stærri hluta heilbrigðisþjónust- unnar en áður,“ segir Tor Åm, heimilislæknir og framkvæmda- stjóri heilbrigðisráðs Noregs. Hann segir að sjúkrahúsum í Noregi sé nú skylt að ráðfæra sig við sveitarfélögin og not- endur þjónustunnar um þjón- ustu sem veitt er. „Þau geta ekki lengur sett sér sjálf stefnu. Þau eiga að laga sig að þörfum samfélagsins,“ sagði Åm. Þurfa nú að ráðfæra sig BREYTT STEFNA Í NOREGI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.