Morgunblaðið - 25.09.2012, Síða 27

Morgunblaðið - 25.09.2012, Síða 27
hliða hagnýtri jarðhitaleit vann Axel að umfangsmiklum eldfjallarann- sóknum á Kröflusvæðinu, mælingum á eiginleikum og gerð jarðskorp- unnar undir Íslandi og var stunda- kennari við HÍ um nokkurra ára skeið. Prófessor við HA á Akureyri Axel var framkvæmdastjóri Vís- indaráðs 1991-95, sem var ráðgjafi stjórnvalda um vísindarannsóknir og sá um rekstur Vísindasjóðs. Hann vann um skeið að eldfjallarann- sóknum á Norrænu eldfjalla- stofnuninni og var ráðinn prófessor í jarðvísindum og umhverfisfræðum við HA árið 2000, fyrst við kenn- aradeild en síðar við raunvís- indadeild þegar raungreinanám var að mestu fellt út úr kennaranáminu. Axel og Hrefna, eiginkona hans, höfðu faglega umsjón með og kenndu við jarðhitadeild alþjóðlegs skóla, RES-orkuskóla, sem var rekinn í þrjú ár á Akureyri í tengslum við HA og HÍ. Þetta var metnaðarfullt nám á meistarastigi og útskrifuðu þau 40 nemendur með meistaragráðu í jarð- hitafræðum. Þessir nemendur eru flestir í dokt- orsnámi eða í vinnu hjá jarðhitafyr- irtækjum víða um heim og mikil- vægir tengiliðir fyrir íslensk fyrirtæki sem eru að hasla sér völl í ráðgjafarstörfum erlendis Axel var í mörg ár gestafyrirlesari við alþjóðlegan jarðhitaskóla í Písa á Ítalíu, fór sem jarðhitaráðgjafi SÞ og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í nokkrar ferðir, m.a. til Kenía, Kína og Grænhöfðaeyja. Hann hefur setið í ritstjórn nokkurra erlendra fag- tímarita, verið formaður Jarðfræða- félags Íslands, setið í ráðgjafarnefnd Almannavarna ríkisins um náttúruvá og setið í Vísindaráði. Hann hefur verið fulltrúi Íslands í nokkrum nefndum og ráðum á vegum Nor- rænu ráðherranefndarinnar og á vegum Evrópubandalagsins. Hann var forseti Vísindafélags Íslendinga. Axel hefur skrifað tugi fræðigreina í erlend og innlend fagtímarit um jarð- hita og eldfjallafræði. Hann hefur samið kennsluefni og alþýðlegar greinar um jarðvísindi og haldið fyr- irlestra um rannsóknir sínar. Axel segist aldrei hafa haft meira að gera en einmitt nú er hann er að láta af störfum sem prófessor: „Nú þarfa að fara í lagfæringar á húsinu okkar úti á Nesi og huga að viðhaldi á sumarhúsinu í Húsafelli. Ég kem auk þess til með að fylgj- ast áfram með jarðhitarannsóknum og veita jafnvel einhverja ráðgjöf en í þessum efnum þarf ég sjálfur að koma ýmsu á framfæri. Ég hef þess vegna meira en nóg að gera.“ Fjölskylda Axel kvæntist 17.10. 1964 Ástu Vigbergsdóttur, f. 12.1. 1942, kenn- ara. Foreldrar hennar voru Vigberg Ágúst Einarsson og Elínborg Þórð- ardóttir. Axel og Ásta skildu 1992. Börn Axels og Ástu eru Björn Ax- elsson, f. 16.3. 1967, landslags- arkitekt hjá Reykjavíkurborg. Kona hans er Helga Laxdal, fram- kvæmdastjóri borgarstjórnar. Börn hans eru Sólrún Ásta, f. 1997, og Steinar, f. 2000; Egill Axelsson, f. 3.11. 1971, jarðfræðingur hjá Veður- stofu Íslands. Kona hans er Halla Sverrisdóttir bókmenntafræðingur og eru börn þeirra Silja, f. 2004, og Styrmir, f. 2007. Seinni kona Axels er Hrefna Krist- mannsdóttir, f. 20.5. 1944, prófessor emeritus í jarðhitafræðum við HA, dóttir Kristmanns Guðmundssonar skálds og k.h. Svanhildar Steinþórs- dóttur húsfreyju. Börn Hrefnu eru Svanhildur, f. 5.1. 1971; Björn, f. 18.9. 1974, og Ásdís, f. 5.1. 1982. Systir Axels er Aðalheiður Björns- dóttir, f. 12.1. 1944, gift Poul Jensen, félagsráðgjafa í Esbjerg í Dan- mörku, og eiga þau tvö börn. Foreldrar Axels eru Björn Krist- jánsson, f. á Hjöllum í Ögurhreppi 19.8. 1920, d. 1.12. 2010, fyrrverandi lögregluvarðstjóri og síðar starfs- maður endurskoðunar Reykjavíkur- borgar, og k.h. Auður Axelsdóttir, f. 15.4. 1920, d. 4.8. 2009, frá Ási í Kelduhverfi, húsfreyja. Úr frændgarði Axels Björnssonar Axel Björnsson Hólmfríður Stefánsdóttir frá Halldórsstöðum (systir Kristínar) Jóhannes Friðriksson b. á Sveinsströnd við Mývatn Sigríður S. Jóhannesdóttir húsfr. á Ási Axel Jónsson kennari á Ási Auður Axelsdótti húsfr. í Rvík Kristín Stefánsdóttir frá Halldórsstöðum í Reykjadal Jón Egilsson b. á Sultum í Kelduhverfi Guðmundína Magnúsdóttir frá Arnardal Guðmundur Kristjánsson sjómaður í Arnardal Kristjana Guðmundsdóttir húsfr. á Hjöllum Kristján Einarsson b. á Hjöllum í Skötuf. við Djúp Björn Kristjánsson lögregluvarðstj. í Rvík Einar Bjarnason snikkari á Ísafirði Kristjana Guðmundsdóttir ekkja Jonathans Motzfeflds Guðmundur Kristjánsson Kristján Arason handboltaþjálfari Ari Kristjánsson, skipstjóri og kaupm. í Hafnarf. Ævar Kjartansson, útvarpsmaður á RÚV Áslaug Axelsdóttir húsfr. í Rvík ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2012 Inga Sif Ólafsdóttir lungnalæknir varði doktorsritgerð í læknisfræði hinn 25. nóvember 2011 við Uppsala- háskóla í Svíþjóð. Ritgerðin ber heit- ið: Tengsl bólguþátta við lungna- sjúkdóma, lungnastarfsemi og kyn, „Inflammatory Markers, Respira- tory Diseases, Lung Function and Associated Gender Differences.“ Meginmarkmiðið var að rannsaka bólguþætti í blóði og tengsl þeirra við lungnastarfsemi. Efniviðurinn byggist á niðurstöðum frá þremur ólíkum rannsóknarþýðum: 1. Evr- ópukönnuninni Lungu og heilsa þar sem stórum hópi fólks hefur verið fylgt eftir með m.a. mælingum á lungnastarfsemi. Notaðar voru nið- urstöður Evrópukönnunarinnar frá Reykjavík, Uppsala og Tartu í Eist- landi; 2. PIVUS-rannsókninni á sjö- tugum Uppsalabúum og 3. Reykja- víkur rannsókn Hjartaverndar. Meginniðurstöður ritgerðarinnar eru að samband er á milli almennrar bólgusvörunar í líkamanum og astma (án undirliggjandi ofnæmis). Astminn er þannig ekki eingöngu lungnasjúkdómur og er vonast til þess að aukinn skilningur á þeim bólguferlum sem valda því að sumir tapa öndunargetu sinni hraðar en aðrir muni opna fleiri meðferðar- möguleika. Jafnframt kom fram í niðurstöðum kynjamunur, þar sem aukin bólgusvörun í blóði hjá karl- mönnum tengdist meiri skerðingu á lungnastarfsemi en hjá konum. Þessi kynjamunur var til staðar í öll- um þremur rannsóknarþýðunum en orsakir þessa kynjamunar eru ekki ljósar og þarfnast frekari rann- sókna.  Inga Sif Ólafsdóttir fæddist 1973 í Kaupmannahöfn. Hún lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands 2001, hlaut almennt lækningarleyfi 2002, öðlaðist sérfræðiviðurkenn- ingu í almennum lyflækningum 2007 og í lungnalækningum 2010. Eigin- maður Ingu Sifjar er Gunnar Már Zoëga augnlæknir og eiga þau þrjú börn. Foreldrar hennar eru Gerða S. Jónsdóttir og Ólafur Gíslason verkfræðingur. Doktor Doktor í læknisfræði 85 ára Jónína Þórðardóttir Sigurlína Kristjánsdóttir 80 ára Áslaug Sigursteinsdóttir Hreinn Bjarnason Hörður Hjaltason Sigríður Guðmundsdóttir Sigríður Valdimarsdóttir 75 ára Einar Karlsson Halldór V. Þorsteinsson Rósa Lárusdóttir Vilborg Halldórsdóttir Þráinn Skarphéðinsson 70 ára Birna Björns Guðni Nikulásson Halldór Hartmannsson Hulda Scheving Þorgeir Baldursson Þórhildur Jónasdóttir Þórólfur Jóhannsson 60 ára Borghildur Brynjarsdóttir Gerður Elín Hjálmarsdóttir Heiðrún Alda Hansdóttir Ingunn G. Björnsdóttir Ingvar Árni Sverrisson Karl H.K. Norðdahl Kristín Gísladóttir Reynir Carl Þorleifsson Sigríður Jónsdóttir Sigurbjörg K. Róbertsdóttir Sigurjóna Sverrisdóttir Þorvaldur S.K. Norðdahl 50 ára Andrés Bragason Auðunn Sigurbjörn Blöndal Ásdís Árnadóttir Bylgja Sigurjónsdóttir Herdís Jóhannsdóttir Ingibjörg María Karlsdóttir Jóhanna Kristín Rafnsdóttir Kristín Ólafsdóttir Málfríður Jódís Guðlaugsdóttir Pálína Björk Jóhannesdóttir Ragnheiður Jónsdóttir Sigrún Traustadóttir Sigurrós Kristinsdóttir Sólveig Óladóttir Susan Sigurbjarnarson Svavar Garðar Svavarsson 40 ára Álfheiður Karlsdóttir Ármann Einar Lund Benný Hulda Benediktsdóttir Bjarki Borgdal Magnússon Guðlaug Þorvaldsdóttir Hjalti Ólafsson Hlíf Georgsdóttir Kolbrún Berglind Grétarsdóttir Lilja Margrét Bergmann Sigvarður Örn Einarsson 30 ára Adolf Þorberg Andersen Barbara Duda Birna Sólveig Björnsdóttir Damian Tadeusz Mielke Einar Örn Gissurarson Eygló Birgisdóttir Gissur Breiðdal Smárason Helga Ragnheiður Jósepsdóttir Marcin Nogala Monica Thadeus Kimaro Pawel Zawadzki Til hamingju með daginn 30 ára Sigurbjörg lauk stúdentsprófi frá VMA og er skólaliði á Akureyri. Maki: Halldór Örn Krist- jánsson, f. 1974, starfs- maður Samherja. Dætur: Fanney Ósk, f. 2004, Kolbrún Anna, f. 2007, og Hugrún Harpa, f. 2008. Foreldrar: Svanhildur Stefánsdóttir, f. 1943, húsfreyja, og Jón Vigfús- son, f. 1929, d. 2011, bóndi á Hólmum. Sigurbjörg Ósk Jónsdóttir 30 ára Einar starfar hjá rafverktakafyrirtækinu Raftvisti í Reykjahlíð. Hálfsystkini: Jón Ísfjörð Aðalsteinsson, f. 1971, sjómaður; Bjargþór Ingi Aðalsteinsson, f. 1972, vinnur á Grundartanga, og Ljósbjörg Ósk Að- alsteinsdóttir, f. 1975, verslunarmaður. Foreldrar: Aðalberg S. Árnason, f. 1954, rafvirki, og Jóhanna S. Sverr- isdóttir, f. 1950, húsfr. Einar Finnur Snorrason 30 ára Hildur lauk BA- prófi í grafískri hönnun og er í fæðingarorlofi. Maki: Óskar Ragnarsson, f. 1981, bátasmiður. Börn: Viktor Logi Guð- mundss., f. 2002; Selma Líf Óskarsd., f. 2006 (stjúpd.); Berglind Ylfa Óskarsd., f. 2009, og Þór- hallur Óskarss. f. 2012. Foreldrar: Þorsteinn Frið- riksson, f. 1955, vélsm., og Svanhildur Skúladóttir, f. 1955, lífeindafr.. Hildur Björk Þorsteinsdóttir F Y R I R Þ I G O G Þ Á S E M Þ É R Þ Y K I R V Æ N S T U M ! KRINGLUNNISími: 5513200 ERUM AÐ TAKA UPP NÝJAR VÖRUR FYRIR DÖMUR!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.