Morgunblaðið - 25.09.2012, Side 28

Morgunblaðið - 25.09.2012, Side 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Eitthvað sem áður virtist á gráu svæði er núna spurning um rétt eða rangt. Ef ágreiningur rís meðal fjölskyldumeðlima þarf að komast að málamiðlun. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú munt njóta þess að kaupa inn fyrir heimilið eða fjölskyldumeðlimi í dag. Ein- beittu þér að framhaldinu þannig að allt tak- ist sem best má verða. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Vertu ekki að streða við hlutina einn í þínu horni því nú er það hópstarfið sem gild- ir. Gakktu hægt um gleðinnar dyr og reyndu að vinna heima ef þú mögulega getur. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að gefa þér tíma þessa dag- ana. Svarið verður ábyggilega neikvætt. Ein- hver minnimáttarkennd lætur á sér kræla. Hunsaðu hana. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þér finnst óþolandi þegar aðrir grípa inn í starf þitt og reyna að beina þér á aðrar brautir en þú vilt. Hrósaðu þér fyrir allt sem þú gerir á einum degi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Breytingar liggja í loftinu og (furðulegt nokk) þér líkar það ekki. Ef vinir og ættingjar leyfa þér ekki að vera í friði þegar þú vilt verðurðu að tala alvarlega við þá þangað til þeir skilja þig. 23. sept. - 22. okt.  Vog Dagurinn er hentugur til daðurs. Sláðu ekki af kröfunum. Þú gætir dottið í lukkupott- inn fljótlega. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er hið besta mál að vera ánægður með sig ef hrokinn er ekki með í för. Efldu trúarlíf þitt og leitaðu svara við spurn- ingum þínum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er aldrei að vita hvenær gamlir vinir birtast á ný og engin ástæða til þess að láta það slá sig út af laginu. Farðu í huganum upp á fjallstindinn og horfðu niður á líf þitt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Allir verða að hafa einhverja kjöl- festu í lífinu. Hver er þín? Hugsaðu málið og lagfærðu hlutina ef þér líkar ekki svarið. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú reynir að halda huganum opn- um, en getur samt ekki neytt þig til að sam- þykkja allt sem þú verður vitni að. Reyndu ekki að ganga lengra en þú getur því það hefnir sín alltaf. 19. feb. - 20. mars Fiskar Samstarfsmenn þínir vilja endurgjalda þér greiða. Erfiðast er að bíða – notaðu tím- ann og gerðu eitthvað fyrir sjálfa/n þig. Helgi Seljan sendi Vísnahorninulínu „eftir að hafa hlustað á formann slitastjórnar“ á föstudag: Slitastjórnin fær sér flott af feitu bitunum, en fetar veg með feimnisvott í felulitunum. Kerlingin á Skólavörðuholtinu er einn af góðkunningjum Vísna- hornsins og ávallt aufúsugestur. En það virðist sitthvað ganga á aftur- fótunum hjá henni þessa dagana: Ég hætt er á veröld að vona, ég væti ekki þurran góm. Ég bitur er bölvandi kona og bokkan mín alveg tóm. Helgi Zimsen sendi henni upp- örvandi kveðjur á fésbókinni: Vertu æ við veröld dús, vonir skaltu grilla. Alltaf má fá aðra krús og einhvern til að fylla. Ekki áraði betur hjá kerlingunni í illviðrinu fyrr í mánuðinum. Þá hefur gustað á Skólavörðustígnum: Vindur áfram villtur rennur, vont er ástand hér, svo feikn er hvasst að fjórar tennur fuku út úr mér. Gunnar Kr. Sigurjónsson kastar fram limru á Boðnarmiði: Vinur minn, Vilhjálmur Jósafat veitingamaður, hjá Rósa sat: „Paprikupasta, já punktur og basta, ég dýrka – og allskonar dósamat.“ Kristján Eiríksson yrkir „eina væmna silkihlínarvísu“: Þegar birta dagsins dvín draumalandið við mér skín sæt þar bíður silkihlín, sólskinsbjarta stúlkan mín. Hreinn Guðvarðarson skrifar: „Þegar eg var strákur áttum við bók með öfugmælavísum eftir ýmsa höfunda að mig minnir. Hún er nú löngu upp lesin en eg er að reyna að rifja einhverjar upp. Fiskurinn hefur fögur hljóð finnst hann oft á heiðum. Ærnar renna eina slóð eftir sjónum breiðum. Gott er að hafa gler í skó þá gengið er í kletta. Í eld er best að ausa sjó eykst hans log við þetta. Séð hef eg köttinn syngja á bók selinn spinna hör á rokk skötuna elta skinn í brók skúminn prjóna ullarsokk.“ Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af kerlingunni, tönnum og öfugmælavísum Í klípu MAMMA HANS GERÐI HANN BRJÁLAÐAN, EN HÚN KOM AÐ MINNSTA KOSTI Í HEIMSÓKN. eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ...að kyssast eins og eskimóar. SNIGLAR HAFA LÍKA TILFINNINGAR ÞAÐ ER NÚ BARA MJÚKT OG NOTALEGT HÉRNA. ÞAÐ ER ÞITT VANDAMÁL, VINUR - LÍF ÞITT HEFUR VERIÐ ALLTOF FJANDI NOTALEGT. LE GRONDER VEITINGASTAÐUR AF HVERJU ERU ÞEIR AÐ SLÁST? ÞEIR VILJA BÁÐIR TAKA PÖNTUNINA MÍNA ... ... ÞEGAR ÉG KEM ÚR RÁNS- FERÐUM HÆTTIR MÉR TIL AÐ GEFA OF MIKIÐ ÞJÓRFÉ. AF HVERJU ERTU Í FÝLU? MÉR DETTUR EITTHVAÐ Í HUG ...Merkilegt hvað við fjölmiðlamennþurfum oft að flækja hlutina. Á dögunum hermdu fjölmiðlar af ís- lenskum ofurhugum sem ætla að róa einhverja afbrigðilega vegalengd á einhverjum afbrigðilega löngum tíma til að ná einhverjum afbrigði- legum markmiðum. Ekkert nema gott um það að segja. Nema hvað, í fréttum sjónvarpsstöðvanna var við- mælandinn úr hópi ofurhuganna ýmist kallaður „róðrarmaður“ eða „róðrarkappi“. Sannarlega gild ís- lensk orð en hvers vegna nota menn ekki styttra og þjálla orð sem við eigum, „ræðari“? Þarf nauðsynlega að skjóta „maður“ eða „kappi“ aftan við öll möguleg heiti? Það á sem betur fer ekki alltaf við. Stundum eigum við auðvelt með að einfalda mál okkar, eins og þegar við segjum „kennari“ en ekki „kennslumaður“ og „málari“ en ekki „málningarmaður“. Fyrst Víkverji er farinn út í þessa sálma má hann til með að taka fleiri dæmi. Það fer til að mynda alltaf jafnmikið í taugarnar á honum þeg- ar talað er um að einhver sé góður „skotmaður“ í kappleikjum, þegar við blasir að nota orðið „skytta“. Þá hljómar „sæðari“ alltaf betur en „sáðmaður“. Svona mætti lengi telja. x x x Bandaríski spennuþátturinnHomeland rakaði til sín verð- launum á hinni árlegu Emmy-hátíð, Óskarsverðlaunum sjónvarpsins, um helgina. Þetta kemur ekki á óvart, Homeland er, alltént fram til þessa, afskaplega velheppnaður spennu- þáttur, lipurlega skrifaður og stút- fullur af áhugaverðum persónum. Þar eru fremst meðal jafningja leyniþjónustukonan Carrie Mathi- son og stríðshetjan dularfulla Nicholas Brody. Þau eru leikin af Claire Danes og Damian Lewis sem bæði fóru með sigur af hólmi í flokk- um aðalleikara í spennuþáttum. Modern Family þótti besti gam- anþátturinn sem kemur ekki á óvart. Prýðileg afþreying þar á ferð. Þá gladdi það gamalt hjarta Vík- verja að Jon Cryer skyldi hljóta verðlaun fyrir stórbrotna túlkun á hinum mislukkaða Alan Harper í spéþættinum Two and a Half Men. víkverji@mbl.is Víkverji Verið miskunnsöm eins og faðir yðar er miskunnsamur. (Lúk. 6:36) Hvern ætlar þú að gleðja í dag?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.