Morgunblaðið - 25.09.2012, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 25.09.2012, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 269. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Lést á tökustað 2. Sven Hazel er látinn 3. Gylfi Þór fékk lægstu einkunn 4. 15 ára stakk af með kennaranum »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Leikstjórinn Baltasar Kormákur greindi frá því í útvarpsþættinum Sirrý á sunnudagsmorgnum í fyrra- dag að leikarinn Ingvar E. Sigurðsson kæmi sterklega til greina í hlutverk Bjarts í Sumarhúsum í kvikmynd sem hann hyggst gera eftir skáldsögu Halldórs Laxness, Sjálfstæðu fólki. Morgunblaðið/Ómar Mun Ingvar leika Bjart fyrir Baltasar?  Uppselt er á tvenna jóla- tónleika Bagga- lúts í Háskólabíói, 1. og 16. desem- ber nk. og hratt gengur á miða á tónleikana sem haldnir verða í Hofi á Akureyri 23. nóvember. Hefur Baggalútur því ákveðið að blása til aukajólatónleika í Háskólabíói 15. desember kl. 21 og er miðasala hafin á þá. Baggalútur bætir við jólatónleikum  Hljómsveitin Epic Rain sendir frá sér plötuna Elegy 8. október nk. og fagnar henni með tónleikaferð um Frakkland og Ítalíu. Fyrstu tónleik- arnir verða haldnir á hátíð- inni Marsatac í Mar- seilles 27. sept- ember. Epic Rain mun m.a. hita upp fyrir hljómsveitina góðkunnu De La Soul á einum tónleikanna. Epic Rain leikur í Frakklandi og á Ítalíu Á miðvikudag Fremur hæg vestlæg átt og dálítil rigning, en yf- irleitt þurrt á austanverðu landinu. Dálítil slydduél norðantil. Á fimmtudag Norðaustan 5-13 m/s, hvassast vestantil. Rigning víða um land. Hiti 4 til 10 stig. VEÐUR Bjarki Sigurðsson, þjálfari ÍR, var andstæðingur tveggja sona sinna þegar keppni í N1-deild karla í handbolta hófst í gær- kvöld. Í liði Aftureldingar voru þeir Örn Ingi og Krist- inn Bjarkasynir en þeir urðu að játa sig sigraða því nýliðar ÍR unnu leikinn í Mosfellsbæ, 28:25. Örn Ingi kvaðst ekki reikna með að fara heim í kaffi að leik loknum. »1 Pabbi hafði betur gegn strákunum Garðar Jóhannsson varð markakóng- ur Pepsi-deildarinnar í fyrra en í ár hefur hann verið meira og minna meiddur þar sem eitt hefur tekið við af öðru. Garðar hefur þó skorað þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum Stjörnunnar og 12 mörk alls í sumar en Garðabæjar- liðið á nú góða möguleika á að ná sínum besta ár- angri og tryggja sér sæti í Evrópukeppni í fyrsta skipti. »4 Meiðslasaga hjá marka- kóngi sem skorar samt Ragnar Jóhannsson og Björgvin Þór Hólmgeirsson hófu Íslandsmótið í handbolta með látum í gærkvöld. Ragnar skoraði 13 af 23 mörkum FH- inga þegar þeir gerðu jafntefli við Ak- ureyri norðan heiða og Björgvin skor- aði 12 mörk fyrir nýliða ÍR þegar þeir unnu Aftureldingu í Mosfellsbæ. HK og Haukar unnu örugga sigra á Val og Fram. »2-3 Ragnar og Björgvin voru báðir óstöðvandi ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Richard Scobie, sem margir þekkja frá árum áður sem söngvara Rik- shaw, vinnur nú að gerð kvikmyndar í fullri lengd sem verður tekin upp á Íslandi, í New York og á Írlandi á næsta ári. Richard skrifaði handritið að myndinni og mun leikstýra henni. Leikprufur hafa nú farið fram í London og meðal staðfestra leikara eru Stephen Rea sem lék í Crying Game og ungur og upprennandi írsk- ur leikari að nafni Martin McCann. Spænska leikkonan Claudia Bassols mun fara með aðalhlutverkið á móti Martin McCann. Þá mun Björn Hlynur Haraldsson fara með hlut- verk í myndinni. „Ég býð eftir svari frá þekktum erlendum leikara en í heildina eru þetta mikið upprennandi nöfn sem fara með hlutverkin,“ segir Richard sem vinnur nú að því að ljúka fjármögnun á myndinni. Framleiðslufyrirtæki Richards og unnustu hans, Kristínar Einars- dóttur, nefnist Big Sky Films. Ásamt því að vinna að sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd eru þau með sjónvarps- þætti í bígerð og heimildarmyndir í vinnslu. Þá verður stuttmynd sem þau framleiða frumsýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík sem hefst í vikunni. Komin á tvær erlendar hátíðir Richard kom að gerð nokkurra bíómynda þegar hann bjó í Holly- wood á sínum tíma og hann hefur leikstýrt auglýsingum og tónlistar- myndböndum hér heima. Kristín starfar við kvikmyndafyrirtækið og hefur komið að gerð nokkurra heimildarmynda. Stuttmyndin sem þau framleiddu saman og sýnd verð- ur á RIFF heitir Afhjúpunin og fjallar um fordóma. Richard skrifaði handritið að henni og leikstýrði henni. „Myndin var tekin upp í vor og við ákváðum að prófa að senda hana inn á RIFF og hún komst þar inn. Auk þess er hún komin inn á tvær kvikmyndahátíðir í Bandaríkjunum, Napa Valley Film Festival og Other Venice Film Festival, og verður sýnd þar í nóvember,“ segir Richard. Þau vinna einnig að því að koma henni á fleiri hátíðir erlendis. Heilmikil vinna er framundan hjá þeim en Richard var í Cannes í vor þar sem hann kynnti verkefni sín og fékk góð viðbrögð við þeim. „Ef hlut- irnir halda áfram að ganga eins og þeir hafa gert hingað til verður þetta allt framleitt.“ Hann kveðst þó ekki stefna á Hollywood. „Ég er hrifnari af evrópskri kvikmyndagerð. Við vilj- um bara fá að vinna að flottum verk- efnum og segja mannlegar sögur sem snerta fólk.“ Vilja segja mannlegar sögur  Richard Scobie vinnur að kvik- mynd á ensku Morgunblaðið/Árni Sæberg Allt á fullu Richard Scobie og Kristín Einarsdóttir eru með kvikmyndafyrirtækið Big Sky Films. Stuttmynd sem þau framleiddu verður frumsýnd á RIFF auk þess sem Richard vinnur að mynd í fullri lengd sem verður á ensku. Í stuttmyndinni Afhjúpunin segir frá kynþáttahatara sem blindast í alvarlegu bílslysi og óvíst er hvort hann fái sjónina aftur. Til að ná heilsu þarf hann að reiða sig al- gjörlega á hjúkrunarfólk, sem hef- ur ófyrirséðar afleiðingar í för með sér. Með aðalhlutverk fara Davíð Guðbrandsson, Sara Dögg Ás- geirsdóttir, Helgi Björnsson og Björn Hlynur Haraldsson. Richard Scobie skrifaði hand- ritið ásamt Sigurgeiri Þórðarsyni. Richard leikstýrir og framleiðir myndina ásamt Kristínu Einars- dóttur. Um kvikmyndatöku sá Bergsteinn Björgúlfsson. Afhjúpun er í flokknum Ísland í brennidepli á RIFF og verður frum- sýnd á föstudaginn, 28. sept- ember, kl. 17.30 í Bíó Paradís. Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, RIFF, hefst á fimmtu- daginn og stendur til 7. október. Kynþáttahatari sem blindast ALÞJÓÐLEGA KVIKMYNDAHÁTÍÐIN Í REYKJAVÍK SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg breytileg átt, víða léttskýjað en skýjað með köflum norðanlands. Snýst í suðvestan 5-10 m/s síðdegis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.