Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Page 38
Hvernig ertu búinn fyrir veturinn?
Ég er prýðilega vel undir veturinn búinn en karlatískan er
íhaldssöm í eðli sínu, það þarf ekki mikið til að fríska upp á það
sem fyrir er. En það má alltaf á sig blómum bæta.
Er eitthvað sérstakt á óskalistanum þetta haustið?
Gerðarlegur vaxborinn jakki, snyrtilegir ökklaháir leðurskór,
L.L.Bean-stígvél og leðurtaska undir tölvu og bækur að
ógleymdum hlaupaskóm - líftími þeirra er takmarkaður.
Hvar verslar þú helst?
Það skiptir ekki máli hvaðan gott kemur. Þegar ég fer utan
reyni ég að kaupa mér föt, helst í magnkaupum, en þá heimsæki
ég m.a. H&M, Suit, Cos og Uniqlo. Hér heima eru það stök föt
helst í Zöru, Geysi, GK og Kormáki og Skildi. Ég spreða í yf-
irhafnir og skó, en er nokk sama hvaðan aðrar flíkur koma.
Hvert liggja tískustraumarnir þetta haustið?
Tískan fer í hringi. Eftir sumarið eru seglskútuleg Kennedy-
klæði komin á herðatré. Haustið og veturinn taka við þar sem
háskólastúdentinn og -kennarinn frá 1965 hafa fengið yfirhaln-
ingu en einnig breskur veiði- og lordastíll. Uppáklæddir Ein-
steinar eða Laxnesar
fengju eflaust ágæt-
iseinkunn hjá tísku-
bloggurum. Það ligg-
ur við að þrír ættliðir
geti verslað saman. Flauelið hefur ver-
ið dregið fram úr skugganum en ann-
ars eru straumarnir á svipuðum slóð-
um og undanfarin tvö ár –
háskólajakkar, „peacoat“, vax og vat-
teraðir jakkar og duffel-yfirhafnir eru
vinsælar. Einnig tweed- og flauels-
blazerar, reffileg vesti sem innri eða
ytri klæði, ullarbuxur, flauels- og kakí-
buxur nú búrgúndí rauðar og galla-
buxur sem og aðrar með gulrótarsniði.
Ofangreint er kryddað með olnbogabótum, munstruðum peysum, rúllukragapeys-
um, galla-, flannel-, flauels- eða Oxford-bómullarskyrtum, slaufum og ofnum ull-
ar- og bómullarbindum.
Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl?
Ég reyni að vera snyrtilegur, er elskur að góðum peysum enda á ég nokkuð af
þeim og vel sniðnum buxum. Ég vil ekki vesen en get verið hrifinn af litum. Góð-
ar yfirhafnir og skór eru punkturinn yfir i-ið. Maður þróast – stíllinn er sígengur
endurframleiddur ferill sem hefur samt ákveðið stef.
Áttu þér eitthvert gott ráð eða mottó varðandi fatakaup?
Það er eins með fatakaup og matarinnkaup, maður á ekki að versla á fastandi
maga. Ég stekk ekki á hluti, er yfirleitt búinn að mynda mér skoðun á því sem
ég ætla að versla þegar ég fer í leiðangur.
Föt eiga að vera aðsniðin en ekki þröng. Buxur eiga ekki að vera fánar, þú átt
ekki að flagga í hverju skrefi.
Kjörorð eru að klæða sig eftir veðri, glugga í tímarit og heimasíður líkt og valet-
mag.com og asos.com til að sjá hvað þykir móðins – svo maður viti hvaða gömlu
lörfum eigi að dusta rykið af.
Föt og fylgihlutir *Flugfreyjur eru þekktar fyrir smekkvísi, enda er ekki kastað til höndum við hönnun flugbúninga»36VAXBORINN JAKKI Á ÓSKALISTANUMUppáklæddir
Einsteinar og
Laxnesar
ÁRNI GEORGSON MENNINGARFRÆÐINGUR ER ANNÁLAÐUR
ÁHUGAMAÐUR UM FATNAÐ OG MÓÐ HVERJU SINNI. HANN
DEILIR SINNI SÝN Á HERRATÍSKUNA FYRIR HAUSTIÐ
Gunnghildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
Árni G
Morgunblaðið/Kristinn
JAKKAR OG VESTI
Vörurnar frá Harris Tweed og
Barbour eru oftar en ekki lífstíð-
areign. Harris Tweed fæst m.a. hjá
Sævari Karli hér á landi.
BINDI
Ofin ullar- og
bómullarbindi
fást m.a. hjá
Kormáki og
Skildi.
FLAUELSSKYRTA
Skyrtur úr hinum ýmsustu
efnum eru móðins sem
stendur. Ganga galla-, flan-
nel-, flauel- eða Oxford
bómullarskyrtur allar.
L.L.BEAN SKÓR
Gerðarlegir ökklaháir vetrarskór á
borð við þessa, henta vel við ís-
lenskar aðstæður.
TÖLVUTASKA
Leður- eða rúskinnstaska
undir tölvu og bækur
klæðir herra sem dömur.
Þessir er frá Barbour.