Morgunblaðið - 17.10.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
„Þetta var í fyrsta sinn og vonandi
það síðasta sem íslensk þjóð og lög-
regla þurfa að standa frammi fyrir
svona aðgerðum. Ég undirstrika
það að sem fyrr-
verandi lög-
reglumaður er
þetta það erf-
iðasta sem ég hef
tekið þátt í og
áhrifin sem þetta
hafði á lög-
reglumenn hafa
kannski ekki
ennþá verið gerð
upp,“ sagði Geir
Jón Þórisson, fv. yfirlögregluþjónn,
í erindi sem hann hélt um mótmæl-
in í kjölfar efnahagshrunsins vet-
urinn 2008-2009 í Valhöll í gær.
Í erindi sínu rifjaði Geir Jón upp
atburðarásina í búsáhaldabylting-
unni og lýsti sinni upplifun af
henni. Að hans mati var innrás lítils
hóps mótmælenda í Alþingishúsið
þann 8. desember einn alvarlegasti
atburður mótmælanna þó að hún
hafi verið „léttvæg fundin af sum-
um“. Hefðu mótmælendur komist
inn í þingsalinn sagði Geir Jón að
þeir hefðu tekið yfir Alþingi.
Þá ræddi hann um mótmælin
dagana 20.-22. janúar þegar
ákveðnir þingmenn í núverandi
stjórnarflokkum hafa verið sakaðir
um að hafa reynt að hafa áhrif á
mótmælendur frá þinghúsinu. Auð-
séð hafi verið að mótmælendur hafi
ætlað að brjóta sér leið inn í þing-
húsið. Fjöldi þingmanna og starfs-
menn þingsins hafi borið að
ákveðnir þingmenn hafi haft sam-
band við ákveðna mótmælendur
sem hafi haft áhrif á hópinn og
skapað óróa. Sömu þingmenn hafi
hreytt ónotum í lögreglumenn í
þinghúsinu.
„Þarna urðu straumhvörf og
mótmælin urðu harkalegri,“ sagði
hann. „Það slösuðust ekki margir
lögreglumenn en þetta reyndi mjög
á. Menn skildu það sem svo að bylt-
ingin gengi nú harðar fram og ekki
yrði staðar numið fyrr en hún yrði
framin.“
Hann vildi ekki nafngreina þing-
mennina sem áttu að hafa beitt sér
gegn lögreglu og með mótmæl-
endum en sagði að öll vitneskja um
það sem gerðist væri í Alþingishús-
inu. „Það var fullt af starfsmönnum
þingsins og þingmenn sem heyrðu
hvernig ákveðnir þingmenn töluðu
við lögreglumenn. Og þeir stjórna
landinu enn,“ sagði Geir Jón.
Hann ítrekaði að mótmælend-
urnir hefðu skipst í marga hópa
sem hefðu ekki lotið neinni sér-
stakri stjórn. Stærsti hópurinn
hefði verið almennir borgarar á öll-
um aldri sem vildu koma sjón-
armiðum sínum á framfæri og tóku
ekki þátt í ofbeldi.
Morgunblaðið/Júlíus
Fundur Fjölmenni var saman komið í Valhöll til að hlýða þar á erindi Geirs Jóns Þórissonar, fv. yfirlögregluþjóns.
Innrás lítils hóps mótmælenda
Geir Jón Þórisson, fv. yfirlögregluþjónn, ræddi mótmælin við Alþingishúsið
Segir ákveðna þingmenn hafa verið í sambandi við mótmælendur fyrir utan
Geir Jón Þórisson
Geir Jón sagði það koma fram í
fundargerð forsætisnefndar Al-
þingis frá 22. janúar 2009
hvaða þingmenn hefðu verið í
sambandi við mótmælendur
fyrir utan þinghúsið. Skv. fund-
argerðinni, sem Morgunblaðið
hefur afrit af, taldi Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir þing-
forseti það „alvarlegt“ að Grét-
ar Mar Jónsson, þáv. þingmaður
frjálslyndra, hefði í viðtali í DV
greint frá neðanjarðargöngum
úr þinghúsinu yfir í Kristjáns-
og Blöndahlshús. Þá sagðist
Kjartan Ólafsson, þáv. þingm.
Sjálfstæðisflokks, hafa séð Álf-
heiði Ingadóttur, þingmann VG,
í sambandi við fólk utan húss-
ins og hefði hún virst vera að
veita því upplýsingar um við-
búnað lögreglu. Sagði Ásta „að
margir hefðu nefnt svipað í sín
eyru“.
Þingmenn
gagnrýndir
RÆTT Í FORSÆTISNEFND
Grétar Mar
Jónsson
Álfheiður
Ingadóttir
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Kostnaður við Hellisheiðarvirkjun
fram á mitt ár 2012 nemur um 80
milljörðum króna, samkvæmt upp-
lýsingum frá Orkuveitu Reykjavík-
ur.
Þegar ráðist var í virkjunina árið
2002 kom fram að kostnaður yrði um
20 milljarðar en sú upphæð átti að
duga til að reisa virkjun sem gat
framleitt 100 MW af varmaorku og
40 MW af raforku, skv. upplýsingum
frá Orkuveitunni.
Síðan breyttust áætlanir og virkj-
unin stækkaði.
Í samtali við Morgunblaðið í októ-
ber 2006 sagði Guðmundur Þórodds-
son að fjárfesting í Hellisheiðarvirkj-
un fram til ársins 2009 myndi nema
50 milljörðum. Þá var gert ráð fyrir
að hún myndi framleiða um 130 MW
af heitu vatni og um 303 MW af raf-
magni. Lokaáföngum við rafmagns-
framleiðslu yrði náð 2010-2012.
73 milljarðar í OR-skýrslunni
Í skýrslu úttektarnefndar Orku-
veitunnar kom fram að í árslok 2010
nam bókfærður kostnaður, á verð-
lagi hvers árs, um 73 milljörðum. Að
sögn Eiríks Hjálmarssonar, upplýs-
ingafulltrúa Orkuveitunnar, nemur
útlagður kostnaður við virkjunina nú
um 80 milljörðum króna. Gengisfallið
skýri hluta af auknum kostnaði. Á
móti vegi raunar að vegna gengis-
fallsins hækki greiðslur til Orkuveit-
unnar sem tengdar eru álverði, í ís-
lenskum krónum talið.
Eiríkur segir að virkjuninni sé
reyndar ekki að fullu lokið, m.a. eigi
eftir að finna lausn á því hvernig
binda eigi brennisteinsvetni sem
komi upp með jarðhitavökvanum.
Morgunblaðið/RAX
Hellisheiðarvirkjun Áform um virkjunina á Hellisheiði hafa breyst gegnum árin, og áætlaður kostnaður einnig.
Kostnaður kominn upp
í 80 milljarða króna
Hellisheiðarvirkjun átti í fyrstu að kosta 20 milljarða
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
„Þetta eru náttúrlega ótrúlega háar
tölur og dýr pólitísk réttarhöld á
kostnað almennings,“ segir Ragn-
heiður Elín Árnadóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, en í svari innan-
ríkisráðherra við fyrirspurn Ragn-
heiðar kemur fram að kostnaður ís-
lenska ríkisins við landsdómsmála-
ferlin gegn Geir H. Haarde,
fyrrverandi forsætisráðherra, þegar
frá er talinn kostnaður við embætti
saksóknara Alþingis, hafi numið
117.589.232 krónum.
Í svari ráðherra kemur fram að
kostnaður við landsdóm sjálfan nam
rúmum 12,8 milljónum króna árið
2011 og 79,5 milljónum króna árið
2012. Þar af námu laun dómenda alls
26,6 milljónum króna og laun ann-
arra starfsmanna 54,8 milljónum
króna. Málsvarnarlaun og annar
kostnaður verjanda, sem landsdóm-
ur dæmdi ríkið til að greiða, nam
25,2 milljónum króna.
Ekki undir 150 milljónum
Inn í heildartöluna yfir kostnað
ríkisins vegna landsdómsmálsins
vantar kostnað við embætti saksókn-
ara Alþingis en ráðuneytið benti
Ragnheiði á að þær upplýsingar
væri að finna hjá Alþingi.
„Ég hef sent skrifstofustjóra Al-
þingis fyrirspurn um það atriði og
vona að svar berist á næstu dögum,“
segir Ragnheiður.
Ragnheiður segist leyfa sér að
giska á að beinn kostnaður við rétt-
arhöldin sé ekki undir 150 milljónum
en þá sé ótalinn annar afleiddur
kostnaður.
„Við getum deilt um það hver
kostnaðurinn er vegna tíma þings-
ins, sem hefði verið betur nýttur til
mikilvægari starfa; við úrlausn mála
fyrir almenning og fyrirtækin í land-
inu. Þetta var að mínu mati dýr
sneypuför,“ segir Ragnheiður.
Hún segist ánægð með að þessar
upplýsingar séu komnar fram. „Ég
held að þegar sagan verður gerð upp
þá sé mjög mikilvægt að þetta atriði,
kostnaður fólksins í landinu, sé inni í
þeirri sögu,“ segir hún.
Ríkið greiddi
117 milljónir
Landsdómsmálið „dýr sneypuför“
Morgunblaðið/Kristinn
Dómstóll Beðið er svara um kostn-
að við saksóknara Alþingis.
Kostnaður
» Ferða- og dvalarkostnaður
landsdóms nam tæpum 2,4
milljónum króna.
» Kostnaðarliðurinn „Sími,
póstur og prentun“ hljóðaði
upp á rúma 3,1 milljón króna.
» Þá nam húsnæðiskostnaður
tæpum 2,8 milljónum króna og
kostnaður vegna óskilgreindra
rekstrarvara 955 þúsund krón-
um.
Guðmundur Þóroddsson, fyrr-
verandi forstjóri OR, segir í yf-
irlýsingu að bornir séu saman
tveir gjörólíkir hlutir þegar
rætt sé um kostnaðaráætlun
Hellisheiðarvirkjunar upp á 20
milljarða og endanlegan kostn-
að upp á meira en 70 millj-
arða.
Upphaflega talan byggist á
40 MW raforkuframleiðslu og
100 MW hitaframleiðslu. Virkj-
unin í dag framleiði 303 MW
af rafmagni og 133 MW í hita.
Gjörólíkir
hlutir
FYRRV. FORSTJÓRI OR