Morgunblaðið - 17.10.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.10.2012, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 291. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Nafn mannsins sem fannst látinn 2. Rukkað fyrir þjónustu hraðbanka 3. Leigja pláss í Kringlunni 4. Nauðganir í Herjólfsdal upplýstar »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tvö lög eftir Áskel Másson, „Haust- ljóð“ og „Encore“, verða frumflutt á hádegistónleikum í dag í kapellunni á annarri hæð aðalbyggingar Háskóla Íslands. Katie Elizabeth Buckley leik- ur á hörpu og Kristinn Árnason á gít- ar. Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 og er aðgangur ókeypis. Lög eftir Áskel frum- flutt í kapellu HÍ  Sigurður Hall- dórsson sellóleik- ari og Liwen Hu- ang píanóleikari leika hluta sónötu Rachmaninoffs fyrir selló og pí- anó og sónötu fyrir selló og pí- anó eftir Debussy á hádegistónleikum í Sölvhóli, sal tónlistardeildar Listaháskólans við Sölvhólsgötu, í dag kl. 12.15. Sig- urður mun einnig leika brot úr verki Hafliða Hallgrímssonar, Solitaire. Rachmaninoff, Debussy og Hafliði  Uppistandshópurinn Mið-Ísland verður með uppistand á Stóra sviði Þjóðleikhússins í kvöld. Uppistands- hópinn skipa þau Ari Eldjárn, Bergur Ebbi Benediktsson, Dóri DNA (Halldór Halldórsson), Jó- hann Alfreð Krist- insson, Björn Bragi Arnarsson og Anna Svava Knútsdóttir. Grínið hefst kl. 20. Mið-Ísland með uppi- stand í Þjóðleikhúsi Á fimmtudag Norðaustan 3-8 m/s, en norðan 5-10 með A- ströndinni. Lítilsháttar él NA-til en léttskýjað S- og V-lands. Hiti kringum frostmark, en 1 til 5 stig yfir daginn á S-verðu landinu. VEÐUR „Ég veit ekki hvaða skala á að nota en ef það er einn til tíu, þá er það tíu,“ sagði landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck, spurður hversu svekktur hann væri, á blaðamannafundi á Laug- ardalsvelli í gærkvöldi þar sem Sviss sigraði Ísland 2:0 í undankeppni HM. Svíinn sagði ennfremur að miðað við marktækifærin hefðu Ís- lendingar átt skilið að ná jafntefli. »1 Lagerbäck afar svekktur „Svo fremi sem ég verð valinn þá gef ég áfram kost á mér í íslenska lands- liðið. Ég fékk gott frí eftir Ólympíu- leikana og því vel hvíldur og ferskur hvað handboltann varðar. Ég vonast til þess að verða klár í slaginn með landsliðinu verði ég val- inn. Það eru spennandi verkefni framundan hjá liðinu,“ segir hand- knattleiksmaðurinn Snorri Steinn Guð- jónsson, sem er á ný genginn til liðs við GOG á Fjóni eftir þriggja ára fjar- veru. »4 Fékk gott frí eftir Ólympíuleikana „Þetta er algjörlega grátlegt. Við vörðumst vel í 70 mínútur en fáum svo á okkur klaufalegt mark,“ sagði Kári Árnason, miðvörður íslenska landsliðsins, eftir 2:0 tapið gegn Sviss á Laugardalsvellinum. Hann sagði það hafa verið svekkjandi að fá á sig fyrra markið þar sem íslensku leikmennirnir hefðu fengið tækifæri til að koma boltanum burt. »3 Algjörlega grátlegt tap að mati Kára ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Börn með þroskahömlun eru af- skaplega næm fyrir takti og tón- um og dansinn veitir þeim ómælda gleði,“ segir Agnes Lára Magn- úsdóttir. Hún er liðveitandi sjö ára stúlku í Hafnarfirði, Kristjönu Lífar Albertsdóttur. Saman fara þær í sund, leikhús, á kaffihús og fleira slíkt eins og fjöldinn gerir sér til dægrastyttingar. Og nú er dansinn kominn á dagskrá þeirra stallna. Fylgst að í fimm ár Agnes Lára og Kristjana Líf hafa fylgst að sl. fimm ár. Fyrst tók Agnes skjólstæðing sinn í fóst- ur eina helgi í mánuði auk þess að vera með í dægradvöl eða liðveislu fjórtán tíma í mánuði. „Við höfum síðustu misserin far- ið saman á æfingar hjá Sundfélag- inu Firði sem er með aðstöðu í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Svo skynjaði ég áhuga hennar á dansi, hafði þá samband við alla dans- skólana og spurði eftir nám- skeiðum fyrir krakka með sérþarf- ir. Við komumst í tíma í samkvæmisdönsum hjá Dansskóla Reykjavíkur sem var ofsalega skemmtilegt. Þar var hún þó ekki með krökkum jafnsettum í þroska og dansaði því bara við mig,“ segir Agnes Lára sem fékk góðar und- irtektir hjá stjórnendum Kram- hússins þegar hún leitaði eftir því að þar yrði sett á dagskrá nám- skeið fyrir krakka sem eru á sama reki og Kristjana. Dansinn er frábær útrás „Námskeiðið sem verður í Kramhúsinu hefst að óbreyttu á fimmtudaginn og Eva Rós Guð- mundsdóttir ætlar að leiða. Við þurfum að lágmarki sex krakka og Dansinn er þeim ómæld gleði  Sjö ára með þroskahömlun og elskar dans Morgunblaðið/Ómar Vinátta Þær Agnes Lára Magnúsdóttir og Kristjana Líf Albertsdóttir hafa lengi fylgst að. Kristjönu finnst gaman að dansa og nú stendur til, að frumkvæði liðveitandans, að halda námskeið fyrir krakka á svipuðu reki. fyllum það leikandi, myndi ég halda. Hins vegar væri gaman að fá enn fleiri. Það er svo mikilvægt að gefa öllum tækifæri og í dans- inum felst líka svo frábær útrás,“ útskýrir Agnes Lára sem segir liðveislu ákaflega gefandi starf. Einlægni barnanna sé smitandi og eðlilega myndist sterk tilfinn- ingaleg bönd milli fólks. „Börnin eru glaðvær, gefa mikið af sér og í návist þeirra finnast mér satt að segja öll vandamál heimsins nánast hverfa,“ segir Agnes Lára. Liðveislan er að vissu leyti hug- sjónastarf, þótt launað sé. Krökk- unum er þetta mikilvægt, en möguleikar þeirra til tómstunda- starfs eru ekki mjög margir,“ segir Agnes Lára. Hún bendir í því sam- bandi á að dansnám fyrir fötluð börn hafi hvergi verið í boði. Kram- húsið hafi hins vegar svarað kalli og nú eigi börnin kost á diskó- dansi. Námskeiðið hefst á morgun og sér Agnes um skráningu í síma 692-7170 og á netfanginu abloma- ros@internet.is. Krökkunum er þetta mikilvægt FÁIR TÓMSTUNDAMÖGULEIKAR FATLAÐRA BARNA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 5-13 m/s. Víða léttskýjað, en skýjað að mestu á NA- og A-landi og með N-ströndinni og lítilsháttar skúr- ir eða él. Hiti 1 til 7 stig að deginum, mildast syðst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.