Morgunblaðið - 17.10.2012, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.10.2012, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2012 ✝ Gísli Hall-dórsson arki- tekt fæddist að Jörfa, Kjal- arneshreppi, Kjós 12. ágúst 1914. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Eir 8. október 2012. Foreldrar hans voru Halldór Hall- dórsson, f. 6.6. 1869, d. 26.5. 1943 og Guðlaug Jónsdóttir, f. 1.10. 1876, d. l9.2. 1954. Gísli var næst- yngstur 11 systkina, með honum eru þau öll fallin frá. Systkini hans voru: Elínborg, f. 30.4. 1987, d. 19.1. 1970, Marteinn f. 14.11. 1898, d. 18.6. 1963, Þor- geir, f. 10.10. 1900, d. 31.7.1921, Jónfríður Kristbjörg, f. 17.7. 1902, d. 12.12. 1986, Kristín Magnea, f. 23.8. 1905, d. 12.10. 1967, Ásta Gísla, f. 24.3. 1907, d. 5.7. 1997, Sigurður Jóhann, f. 25.3. 1907, d. 20.1. 1980, Björn, f. 27.3. 1911, d. 11.10. 1965, Ólafía Laufey, f. 19.8. 1912, d. 12.4. Sigvalda Thordarson arkitekt sem þeir starfræktu til 1948, rak hana síðan einn 1948-1957 en eft- ir það sem sameignarfélag með nokkrum starfsmönnum sínum. Hann sat sem varamaður í borg- arstjórn Reykjavíkur 1954-1958, var borgarfulltrúi 1958-1974, varaforseti borgarstjórnar 1958, forseti 1970-1974, í borgarráði 1962-1970, sat í bygginganefnd Reykjavíkur 1954-1958, skipu- lagsnefnd Reykjavíkur 1958- 1974 og umferðarnefnd 1962- 1966. Hann var formaður í stjórn íþróttavallanna 1958-1961, for- maður íþróttaráðs 1961-1974, í húsnefnd og síðar bygg- inganefnd KR 1934-1974, for- maður 1947-1974, í stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur frá stofnun 1944-1962, formaður 1949-1962. Hann var forseti Íþróttasambands Íslands 1962- 1980, í sambandsráði þess í 22 ár, í Ólympíunefnd Íslands 1951- 1994, varaformaður 1953-1957, formaður 1972-1994. Hann var formaður Lionsklúbbs Reykja- víkur 1974. Útför Gísla fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag, 17. október 2012, kl. 13. 2005, Kristbjörg, f. 25.3. 1919, d. 17.12. 2002. Gísli kvæntist Inger Margrete Er- ichsen, f. 25.12. 1908, d. 17.2. 1987. Sonur þeirra er Leifur Gíslason byggingafræð- ingur, f. 8.8. 1938, kona hans er Þórdís Jónsdóttir, f. 27.1. 1943. Börn þeirra eru Margét Leifsdóttir, f. 25.8. 1969, eig- inmaður hennar er Þorsteinn Stefánsson, f. 12.8. 1969. Börn þeirra Leifur, f. 28.1. l998, Svava, f. 3.12. 2001, Þórdís, f. 27.9. 2005, Gísli Leifsson, f. 20.7. 1971, Jón Páll Leifsson, f. 12.6. 1973, sam- býliskona hans er Guðrún Norð- fjörð, f. 14.5. 1974. Börn þeirra eru Hildur, f. 9.12. 2005, Kári, f. 24.11. 2008. Gísli lauk námi frá Det konge- lige Akademi for de skönne kunster l947. Hann setti á fót teiknistofu í Reykjavík ásamt Það eru forréttindi að hafa átt samleið með manni eins og tengdaföður mínum, Gísla. Alltaf ljúfur, alltaf góður. Lagði aldrei illt orð til nokkurs manns. Að ganga lífsgötuna með hans hugarfari og ljúfmennsku er ekki öllum gefið. Að ganga með golfsett fyrir hann var hans leið til að fá mig til að byrja í íþróttinni. Eitt af heilræðum Gísla var að hjón ættu að vera saman í golfi. Og fegurð golfvalla utanlands og innan er hluti af þeirri ánægju. Að kveðja er ekki auðvelt, en er hluti af lífinu. Að fá að halda reisn til loka vil ég þakka frábæru starfsfólki á Hjúkrunarheimilinu Eir. Að leiðarlokum. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þórdís Jónsdóttir. Í dag fór ég í Vesturbæjarlaug- ina ykkar ömmu Margrétar og rifjaði upp þegar ég fór með ykk- ur í laugina eftir næturgistingu. Eftir það fórum við heim og borð- uðum ristað franskbrauð og app- elsínusafa í morgunmat, það var veisla hjá mér því ég fékk sjaldan hvítt brauð heima. Á menntaskólaárunum kom ég oft á Tómasarhagann eftir skóla. Það var gott að leggja sig í sóf- anum hjá ykkur, það var svo mikil ró yfir öllu. Elsku afi, þú kenndir mér svo margt og varst og verður mér alltaf mikil fyrirmynd. Þú hafðir mikla trú á mér og það var mér svo mikilvægt. Þú studdir mig alltaf í því sem ég var að gera og þú kenndir mér að vera sáttfús og „diplómatísk“. Þú kenndir mér líka að vera æðrulaus, það lærði ég með því að fylgjast með þér spila golf. Þú hafðir mikið keppn- isskap og þið pabbi kepptuð stíft hvor við annan. Þú tókst stöðug- um framförum en þegar þú fórst að nálgast nírætt þá tókstu ekki lengur framförum. Ég gleymi aldrei æðruleysinu sem þú sýndir þegar púttin geiguðu því sjónin var farin að gefa sig. Þú spilaðir golf þar til þú varðst 94 ára og hafðir alltaf gaman af. Í eitt skipt- ið þegar ég var að byrja og við spiluðum saman, þá varst þú 91 árs og við vorum í golfbílnum þín- um. Þú keyrðir svo hratt að í einni beygjunni var ég næstum dottin út úr bílnum. Það næsta sem gerðist var að ég sló í svokallaða hliðarvatnstorfæru og þú sagðir að ég mætti ekki „grounda“ kylf- una. Þá hugsaði ég: „Nei nú er hann orðinn ruglaður maður enda orðinn 91, það er ekki séns að maður megi ekki snerta jörðina með kylfunni áður en maður slær!“ En auðvitað hafðir þú rétt fyrir þér eins og yfirleitt alltaf. Að fá að verða 98 ára og vera hress og vel með á nótunum nán- ast fram á síðasta dag eru forrétt- indi. Ég man þegar Leifur sonur okkar Steina fæddist árið 1998. Þú afi sast með hann í fanginu ný- fæddan og ég hugsaði: „Vonandi nær Leifur að muna eftir langafa sínum.“ Svava fæddist árið 2001 og við sömu aðstæður hugsaði ég líka: „Ég vona bara að hún eigi eftir að muna eftir langafa sínum þegar hún verður stór.“ Þegar Þórdís fæddist árið 2005, þá hugs- aði ég enn og aftur það sama en var ekki mjög vongóð. Nú er Þór- dís 7 ára og öll eiga þau frábærar minningar um hjartahlýjan, merkilegan og glæsilegan lang- afa. Það er mikil gæfa. Elsku afi, mér er efst í huga óendanlega mikið þakklæti fyrir að hafa átt þig að, þú fyllir mig stolti og verður mér alltaf mikil fyrirmynd í lífinu. Margrét. Ég kveð þig nú, afi, eftir marg- ar ómetanlegar stundir. Þær eru ansi margar, kvöldstundirnar sem við áttum saman tveir. Ég minnist þín fyrst og fremst sem eins af mínum bestu vinum því ekki get ég státað af miklum af- rekum á golfvellinum. Eftir að amma dó og þú varst einn hitt- umst við a.m.k. einu sinni í viku og borðuðum saman og alltaf var jafnnotalegt að koma til þín eftir langan vinnudag. Þú snertir ekki bara líf mitt heldur svo ótal margra annarra. Sennilega fáir Íslendingar sem hafa afrekað jafnmikið og þú á þinni löngu ævi. Ég vona bara að ég hafi erft lítið brot af þinni snilligáfu í mannlegum samskipt- um. Allavega náðum við alltaf mjög vel saman. Afrek mín á íþróttasviðinu munu víst aldrei komast í hálf- kvisti við þín en ég vona þó að það sem ég hef gert sé þér til sóma. Nafni þinn, Gísli. Ég var hjá afa mínum, Gísla Halldórssyni, þegar hann dó að kvöldi mánudagsins 8. október á dvalarheimilinu Eir. Þar lauk ævi eins merkilegasta manns sem ég hef kynnst og ég var svo heppinn að fá að kynnast honum vel. Ég áttaði mig ekki á því þegar ég var lítill strákur hversu mikinn mann hann hafði að geyma, um- fram það að vera góður og skemmtilegur við okkur. En eftir því sem ég kynntist eða hitti sam- ferðafólk hans og samstarfsmenn í gegnum tíðina gerði ég mér þó smátt og smátt grein fyrir því. Afi minn var nefnilega alltaf svo hóg- vær á eigin ágæti en óspar á að hrósa öðrum sem unnu með hon- um. Allt það sem hann áorkaði á sinni löngu ævi þakkaði hann allt- af ágætu samstarfsfólki eða skiln- ingsríku fólki sem tók vel í hug- myndir hans. Þessi maður, sem setti sjálfan sig aldrei í forgrunn, hafði óbilandi kraft til að vinna að hagsmunum annarra í öllum þeim ólaunuðu störfum sem hann tók sér fyrir hendur. Ekki spillti það heldur fyrir honum að vera sént- ilmaður af guðsnáð og gamla skól- anum því þannig hefur hann náð öllu því besta fram í fólki, hvort sem það var hjá samstarfs- og samferðafólki sínu, vinum, fjöl- skyldu, starfsfólkinu á dvalar- heimilinu Eir eða bara strákunum sem báru út blaðið til hans. Við Guðrún erum mjög þakklát fyrir að börnin okkar skuli líka hafa fengið að kynnast honum Gísla langafa sínum og eftir því sem þau öðlast þroska til verður betur hægt að útskýra fyrir þeim hvers konar langafa þau áttu. Þar er af nógu að taka. Takk fyrir að vera okkur svo góð fyrirmynd. Jón Páll Leifsson. Kveðja frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands Það er ávallt sárt þegar símtal með tilkynningu um andlát berst. Þótt Gísli Halldórsson hafi staðið nærri tíræðu þegar hann féll frá þá verður hans saknað af íslenskri íþróttahreyfingu. Hann var heið- ursforseti ÍSÍ, og hafði á sínum ferli gegnt stöðu forseta Íþrótta- sambands Íslands í 18 ár frá 1962- 1980, og formanns Ólympíunefnd- ar Íslands í 22 ár frá 1972-1994 eft- ir rúmlega fjögurra áratuga setu í nefndinni, auk ótal annarra trún- aðarstarfa hérlendis sem erlendis sem útilokað er að útlista í stuttri grein. Ævisaga Gísla Halldórsson- ar var samtvinnuð aldarsögu íþróttahreyfingarinnar á Íslandi, og ef til vill táknrænt að hann falli frá á 100 ára afmælisári samtak- anna sem hann unni svo mikið og þjónaði svo dyggilega. Þakklæti okkar til Gísla Halldórssonar verður vart með orðum lýst. Viðburðarík saga ÍSÍ í 100 ár hefur aðeins að geyma fimm fyrr- verandi forseta samtakanna. Það var því stór stund fyrir forystu íþróttahreyfingarinnar á Íslandi þegar tveir þeirra gátu mætt á af- mælisdegi samtakanna í Bárubúð í Ráðhúsi Reykjavíkur í janúar síð- astliðinn, og tekið þar þátt í athöfn við afhjúpun minnisskjaldar um stofnun ÍSÍ á þeim stað 100 árum áður, og setið í kjölfarið hátíðar- fund með framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Ís- lands og erlendum gestum frá Samtökum evrópskra Ólympíu- nefnda. Sá fundur verður öllum sem hann sátu ógleymanlegur fyr- ir hnyttna og leiftrandi ræðu Gísla Halldórssonar. Það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast Gísla Halldórs- syni persónulega, og líklega er öll- um sem á eftir koma hollt að fræð- ast um lífshlaup frumherja sem einkennst hefur af slíkum dugnaði og ósérhlífni. Hann var afkasta- mikill og farsæll í starfi sínu sem virtur arkitekt, og hannaði ýmsar þekktar byggingar hér á landi, þar á meðal þekktustu íþróttamann- virki landsins. Hann sinnti trún- aðarstörfum sem borgarfulltrúi og forseti borgarstjórnar í Reykja- vík. Eftir hann liggja jafnframt merkileg ritverk sem meðal ann- ars hafa átt ríkan þátt í að varð- veita sögu íþróttahreyfingarinnar á Íslandi. En ekki síst verður Gísla minnst fyrir ákaflega háttvísa framkomu og hversu auðveldlega honum tókst að leysa mál og sætta málsaðila í umfangsmiklum og krefjandi viðfangsefnum íþrótta- hreyfingarinnar. Hann var sannur leiðtogi og hafði ávallt heiðarlega hagsmuni íþróttahreyfingarinnar að leiðarljósi. Gísli naut ennfremur mikillar virðingar erlendis, og enn spyrja forystumenn íþróttamála erlendis um Gísla Halldórsson, þótt meira en þrír áratugir séu síð- an hann lét af embætti forseta ÍSÍ. Fyrir hönd stjórnar og starfs- fólks Íþrótta- og Ólympíusam- bands Íslands, og fyrir hönd allra félaga í íþróttahreyfingunni á Ís- landi, færi ég fjölskyldu og að- standendum Gísla Halldórssonar dýpstu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Gísla Hall- dórssonar. Ólafur E. Rafnsson, forseti ÍSÍ. Kveðja frá ÍBR Sumarið 1940 voru tveir ungir Íslendingar að ljúka starfsnámi í Kaupmannahöfn en heimsstyrj- öldin lokaði á möguleika á heimför. Úlfar Þórðarson augnlæknir gerð- ist matsveinn á þrjátíu tonna mót- orbát sem heimilað var að sigla síðsumars út til Íslands og ís- lenska ríkisstjórnin samdi við báða styrjaldaraðila um heimild fyrir heimflutning Íslendinga af Norð- urlöndum með strandferðaskipinu Esjunni um finnsku borgina Pet- samo. Með þeirri ferð tóku sér far Gísli Halldórsson og fjölskylda og má segja að þetta hafi verið happafengur íþróttahreyfingar- innar í Reykjavík að fá þá tvo heim fimm árum fyrr en annars hefði getað orðið. Þeir áttu eftir að marka sín spor innan íþróttafélag- anna í Reykjavík, annað hvort sameiginlega í borgarstjórn og vallarstjórn eða einir sér í KR eða Gísli Halldórsson MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Rvk • s. 587 1960 • www.mosaik.is Legsteinar og fylgihlutir Í tilefni af 60 ára starfsafmæli okkar bjóðum við fría uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu og fría pökkun á legsteinum sem fara út á land Mikið úrval - Vönduð vinna - Gott verð Marmari Granít Blágrýti Gabbró Líparít ✝ Okkar ástkæra HJÖRDÍS MAGNÚSDÓTTIR er látin. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Aðstandendur. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA JÓNSDÓTTIR frá Stærri-Bæ, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugar- daginn 20. október kl. 11.00. Jarðsett verður í Stóru-Borgar-kirkjugarði. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Gunnar Ágústsson, Þorkell Gunnarsson, Kristín K. Karlsdóttir, Sigríður Laufey Gunnarsdóttir, Brandur Matthíasson, Jón Rúnar Gunnarsson, Kristín P. Birgisdóttir, Ágúst Gunnarsson, Anna M. Sigurðardóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Árni B. Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR KAABER menntaskólakennari, lést að morgni þriðjudagsins 16. október. Svanhildur Kaaber, Lúðvík Kaaber. ✝ Móðir okkar og tengdamóðir, HELGA JÓNSDÓTTIR frá Reynistað á Akranesi, Sóltúni 2, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni föstudaginn 12. október. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 19. október kl. 13.00. Sigrún Stella Jónsdóttir, Jón Þorvaldsson, Þórarinn Jónsson, Sigríður Halla Sigurðardóttir, Magnús Þór Jónsson, Þórunn Þórisdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir, ÓFEIGUR GÚSTAFSSON, Dalsskógum 14, Egilsstöðum, er lést á Landspítalanum laugardaginn 6. október, verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju föstudaginn 19. október kl. 13.30. Þórunn Berglind Elíasdóttir, Andrea Rut Ófeigsdóttir, Ásdís Birta Ófeigsdóttir, Rannveig Haraldsdóttir, Gústaf Gústafsson, Gústaf Gústafsson, Sigrún, Haraldur Gústafsson, Lára og aðstandendur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SABÍNA UNNUR JÓHANNSDÓTTIR, áður á Nýlendugötu 17, lést á Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn 3. október. Að hennar ósk hefur útförin farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð. Innilegar þakkir til starfsfólks Hrafnistu, H-2, fyrir frábæra umönnun hennar. Jóhanna Magnúsdóttir, Örn Ingólfsson, Dóra Magnúsdóttir, Reynir Björnsson, Bjarni Ingi Gíslason, Jóhannes Bragi Gíslason, Ásta Sif Jóhannsdóttir, barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.