Morgunblaðið - 17.10.2012, Blaðsíða 14
SVIÐSLJÓS
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Efnisvinnslu í námu í Seljadal, aust-
an við Hafravatn, var haldið áfram í
sumar og í haust með samþykki
Mosfellsbæjar, þrátt fyrir að þá hafi
bæjaryfirvöld verið búin að átta sig á
að þau höfðu ekki gefið út fram-
kvæmdaleyfi vegna námunnar líkt
og áskilið er í lögum. Með réttu hefði
framkvæmdaleyfi átt að vera gefið
út 1. júlí 2008 og í allra síðasta lagi 1.
júlí í sumar. Án framkvæmdaleyfis
frá sveitarfélagi er efnistaka óheimil,
samkvæmt náttúruverndarlögum.
Á fundi skipulagsnefndar Mos-
fellsbæjar í gærmorgun var ákveðið
að stöðva malarnámið.
Rangfærsla í aðalskipulagi
Malarnámið er á vegum Malbik-
unarstöðvarinnar Höfða sem er í
eigu borgarsjóðs Reykjavíkur og
Aflvaka og er skv. samningi við Mos-
fellsbæ, sem landeiganda, og er
greitt fyrir hvert tonn. Samningur-
inn er frá 1985 og gildir til 2015.
Í námunni er tekið efni sem unnið
er til malbiksgerðar.
Með breytingum sem gerðar voru
á lögum um náttúruvernd árið 2006
voru reglur um efnisnámur hertar
en töluverður frestur var veittur til
að uppfylla nýjar kröfur. Í lögunum
segir að frá og með 1. júlí 2012 þurfi
allar námur að hafa framkvæmda-
leyfi. Ef þær færu á hinn bóginn yfir
tiltekna stærð, m.a. ef til stæði að
taka meira efni en sem nemur 50.000
m³, þurfti að gefa út framkvæmda-
leyfi fyrir 1. júlí 2008. Samkvæmt
upplýsingum frá Mosfellsbæ hafa að
meðaltali verið teknir 12.000 m³ á ári
og nema 50.000 m³ því um fjögurra
ára vinnslu. Með réttu hefði því
framkvæmdaleyfi átt að liggja fyrir
1. júlí 2008.
Finnur Birgisson, skipulags-
fulltrúi Mosfellsbæjar, segir að hjá
bænum hafi sá misskilningur verið í
gangi, alveg fram á mitt þetta ár, að
náman hefði framkvæmdaleyfi.
Í gildandi aðalskipulagi Mosfells-
bæjar frá 2002 stendur það raunar
skýrum stöfum að náman hafi fram-
kvæmdaleyfi en það skipulag var
reyndar sett áður en breytingarnar
voru gerðar á náttúruverndarlögum.
Finnur segir að þegar líða hafi far-
ið að dagsetningunni 1. júlí 2012 hafi
menn farið nákvæmlega yfir málið
og þá hafi komið í ljós að fram-
kvæmdaleyfi hafi aldrei verið gefið
út heldur hafi vinnslan farið fram á
grundvelli starfsleyfis frá Heilbrigð-
iseftirliti Kjósarsvæðis og samnings-
ins frá 1985. Starfsleyfið frá heil-
brigðiseftirlitinu var runnið út í
byrjun október.
Þó var ákveðið að stöðva ekki
vinnsluna. „Við vildum gefa Malbik-
unarstöðinni svigrúm,“ segir Finnur.
Það hafi ekki komið í ljós fyrr en rétt
fyrir 1. júlí að framkvæmdaleyfi lá
ekki fyrir og hann hafi ekki talið rétt
að stöðva vinnslu með svo skömmum
fyrirvara, m.a. með tilliti til meðal-
hófsreglu. Finnur bætti við að allar
líkur væru á að efnisnámi yrði haldið
áfram á þessum stað, þegar leyfi
lægju fyrir, enda væri náman á að-
alskipulagi.
Byrja að vinna umhverfismat
Halldór Torfason, framkvæmda-
stjóri Malbikunarstöðvarinnar
Höfða, segir að hjá fyrirtækinu hafi
menn ekki áttað sig á að námuvinnsl-
an þyrfti framkvæmdaleyfi fyrr en í
sumar. Nú væri komið í ljós að nám-
an þyrfti að fara í umhverfismat og
byrjað yrði á því í þessari viku.
Hann segir að ef efnisnámið hefði
verið stöðvað í sumar hefði væntan-
lega þurft að flytja inn efni frá Nor-
egi. Aðrar námur væru t.d. í Hval-
firði og á Suðurlandi en flutningur á
landi væri óhemju dýr og sömuleiðis
mengandi.
Aðspurður segir Halldór að
vinnsla hafi iðulega legið niðri að
vetrarlagi. Fyrirtækið hefði líklega
ekki haldið vinnslu áfram mikið leng-
ur nú í haust, hvað sem liði ákvörðun
Mosfellsbæjar um að stöðva námið.
Vegagerðin heldur skrá yfir allar
námur á Íslandi. Í sumar sendi
Vegagerðin bréf til allra sveitarfé-
laga í landinu og spurði um námur
sem getið væri á skipulagi og hvaða
námur hefðu fengið framkvæmda-
leyfi. Gunnar Bjarnason, forstöðu-
maður jarðfræðideildar Vegagerðar-
innar, segir að afar fá svör hafi borist
og líklega lægju þessar upplýsingar
ekki fyrir fyrr en í vetur. Vegagerð-
inni bæri þó ekki skylda til að afla
þessara upplýsinga.
Opinbert en óleyfilegt malarnám
Morgunblaðið/RAX
Sterkt Náman er í Seljadal, austan við Hafravatn. Efnið er sérstaklega gott í malbik sem þarf að þola nagladekk. Samkvæmt samningi borgarinnar og þá-
verandi Mosfellshrepps frá 1985 kemur fram að námuvinnsla sé ekki heimil frá 15. nóvember til 1. apríl, nema samkomulag sé gert um annað.
Framkvæmdaleyfi hefði átt að gefa út fyrir fjórum árum Áttuðu sig á málinu í sumar en héldu
áfram efnistöku þar til um helgina Líklega þurft að flytja inn efni í malbik ef vinnsla hefði stöðvast
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2012
Miðvikudagskvöldið 17. október kl.
18-20 heldur dr. Sigríður Guðmars-
dóttir námskeið í Seljakirkju um
tjáningarfrelsi og trúariðkun í ljósi
pönkbænar rússnesku
kvennasveitarinnar Pussy Riot.
Hljómsveitin vakti heimsathygli
þegar hún laumaði sér inn í kirkju í
Moskvuborg. Þar flutti sveitin
frumsamda pönkbæn til Maríu
guðsmóður og gegn Pútín Rúss-
landsforseta. Sigríður hefur þýtt
pönkbæn Pussy Riot yfir á íslensku.
Pussy Riot frá guð-
fræðilegu sjónarmiði
Hrafnaþing hefjast að nýju eftir
sumardvala. Fyrsta erindi haust-
misseris verður haldið miðvikudag-
inn 17. október kl. 15.15. Þá mun
Ester Rut Unnsteinsdóttir, dokt-
orsnemi í líffræði, flytja erindi sitt
„Lítil mús á köldum klaka: þættir úr
stofnvistfræði hagamúsa á Suðvest-
urlandi“. Hrafnaþing er haldið í
húsakynnum Náttúrufræðistofn-
unar að Urriðaholtsstræti 6-8 í
Garðabæ, í Krummasölum á 3. hæð.
Fjallað um hagamýs
Á fundi skipulagsnefndar Mos-
fellsbæjar í gærmorgun var lagt
fram bréf frá 12 íbúum í nágrenni
námunnar sem mótmæla mal-
arflutningum um Þormóðsdal og
Hafravatnsveg vegna ónæðis,
mengunar og hættu sem af þeim
stafi. Bréfið barst 8. október sl.
Nefndin ákvað samhljóða að öll
frekari námuvinnsla í Seljadal væri
„þegar í stað óheimil á meðan ekki
hefur verið veitt fyrir henni fram-
kvæmdaleyfi“.
Í bréfinu segir m.a. að mal-
arflutningabílar af stærstu gerð
fari nánast um hlaðið á einum
bænum. Líklega hafi aksturinn í
sumar slegið öll met.
Vilhjálmur Ólafsson, íbúi við
Hafravatnsveg, segir að mal-
arflutningabílar fari yfir 60 ferðir
vegna námuvinnslunnar á dag.
Þeir þurfi að fara um Hafravatnveg
sem sé malarvegur og þeir aki
fram og til baka um 1,5-2 km lang-
an spotta sem sé ekki með bundnu
slitlagi, með tilheyrandi rykmynd-
un.
„Við erum ekkert að fara fram á
bundið slitlag á þennan veg. En við
viljum losna við þessa miklu um-
ferð. Ef það er ekki hægt þá þarf
að leggja bundið slitlag og það
kostar að leggja þarf reiðveg við
hliðina á veginum,“ segir hann.
Íbúar hafi kvartað yfir þessu
munnlega í sumar. Líklega hafi fyr-
irtækið hætt vinnslu á mánudag.
Mengun, ónæði og hætta
SKIPULAGSNEFND STÖÐVAR EFNISVINNSLU