Morgunblaðið - 17.10.2012, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2012
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is
-VOTTUN ER OKKAR GÆÐAMERKI
Sérfræðingar í gleri
… og okkur er nánast ekkert ómögulegt
Opið: 08:00 - 17:00alla virka daga
• Hert gler
- Í sturtuklefa
- Í handrið
- Í rennihurðir
- Í milliveggi
• Speglar
- Á baðið
- Á ganginn
- Á skápinn
- Í eldhúsið
- Í barnaherbergið
- Í svefnherbergiðSENDUM UM ALLT LAND
www.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra.
Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
10 ára afmælisráðstefna
Dagskrá:
13:30 Ráðstefnusetning
Gísli Páll Pálsson, formaður SFV
13:45 Öryggismál á stofnunum og hlutverk lögreglu
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
14:05 Skelin rofin – aðgangur á opnum heimilum
Eyþór Víðisson, öryggisfræðingur VSI
14:25 Birtingarmyndir ógnana, vanrækslu og valdníðslu
á hjúkrunarheimilum
Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunarforstjóri Sóltúni
14.45 Grunur um brot, ábyrgð allra
Hrönn Ljótsdóttir, forstöðumaður Hrafnistu Kópavogi
15.05 Pallborðsumræður framsögumanna
15.35 Ráðstefnulok
Ráðstefnustjóri: María Sigrún Hilmarsdóttir, fréttamaður
ÖRYGGISMÁL HJÚKRUNARHEIMILA
Fimmtudagurinn 18. október 2012
Kl. 13:30-16:00 - Grand hótel
Allir velkomnir – aðgangur ókeypis
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu
Ráðstefnan Norrænir Afríkudagar
verður haldin í Reykajvík dagana
18. og 19. október næstkomandi en
þar munu um 120 fræðimenn kynna
rannsóknir tengdar Afríku í sam-
tals átján málstofum. Ráðstefnan
sem haldin er af hálfu Norrænu
Afríkustofnunarinnar verður sett
klukkan 9:00 morgun í hátíðarsal
Háskóla Íslands en málstofurnar
fara síðan fram á Hótel Sögu.
„Á þessu ári er Norræna Afr-
íkustofnunin 50 ára svo við fáum að
halda þessa daga á hátíðarári fyrir
stofnunina,“ segir dr. Jónína Ein-
arsdóttir, prófessor í mannfræði
við Háskóla Íslansds og einn skipu-
leggjenda ráðstefnunnar. Að sögn
Jónínu verður fjallað um ýmis mis-
munandi málefni á ráðstefnuninni,
þ. á m. heilbrigðismál, nýtingu nátt-
úruauðlinda, listir og aðstæður
barna. „Flestir fræðimennirnir sem
eru hérna koma frá Norðurlönd-
unum eða frá Afríku,“ segir Jónína
og bendir á að ráðstefnan sé opin
öllum að kostnaðarlausu.
Ráðstefnan sett á morgun
Aðalræðumenn ráðstefnunnar
verða þau Ousseina Alidou, fram-
kvæmdastjóri Miðstöðvar um afr-
ískar rannsóknir við Rutgers-
háskólann í Bandaríkjunum, og
Tony Addison, aðalhagfræðingur
og aðstoðarframkvæmdastjóri Há-
skóla Sameinuðu þjóðanna í Hels-
inki í Finnlandi. Að sögn Jónínu
mun Einar Gunnarsson, ráðuneyt-
isstjóri utanríkisráðuneytisins,
setja ráðstefnuna á morgun en upp-
haflega stóð til að Össur Skarphéð-
insson utanríkisráðherra myndi
setja hana. skulih@mbl.is
Morgunblaðið/Þorkell
Afríkudagar Ráðstefnan Norrænir Afríkudagar fer fram á Hótel Sögu
fimmtudaginn 18. október og föstudaginn 19. október næstkomandi.
Opin ráðstefna
um málefni Afríku
Um 120 fræðimenn flytja erindi á
ráðstefnunni Fjölbreytt málefni
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það tókst ekki að setja saman
stjórn. Það kom upp tillaga að breyt-
ingum á samþykktum Samtaka
sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
Þær hefðu þýtt að það hefði þurft að
koma karl og kona úr Skagafirði og
Austur-Húnavatnssýslu. Vestur-
Húnvetningar voru í hópi þeirra sem
voru áfjáðir í að flytja tillöguna en
þeir áttu að vera undanþegnir þessu
sjónarmiði,“ segir Sigurjón Þórðar-
son, varaformaður SSNV.
Tilefnið er ágreiningur sem kom
upp á þingi samtakanna síðustu helgi
eftir að kjörnefnd vildi breyta stjórn
og fara þannig að sjónarmiðum um
jöfn kynjahlutföll í stjórnum.
Fimm karlar eru nú í stjórn SSNV
og áttu tveir að fara út fyrir tvær
konur. Valið var í stjórnina eftir
sveitarstjórnarkosningarnar 2010.
Álitið talsverð inngrip
„Fulltrúar Skagfirðinga eru kosn-
ir til fjögurra ára. Við erum með
samþykkt í sveitarstjórn fyrir því
hverjir eru fulltrúar SSNV og okkur
hefði fundist það talsverð inngrip inn
í þá samþykkt ef kjörnefnd ætlaði að
hlutast til um það hverjir sitja í
stjórn sambandsins. Þannig leit
þetta út. Á tíma-
bili ætlaði kjör-
nefndin að skipa
fjarstatt fólk sem
nú eru varamenn
í sveitarstjórn án
þess að hafa rætt
við viðkomandi,
eingöngu til að
uppfylla kynja-
kvóta.
Mér fannst til-
lagan um að skipa fólk í stjórn að því
forspurðu ákveðið virðingarleysi
gagnvart samtökunum. Því féllst ég
á að þinginu yrði frestað þannig að
menn gætu farið yfir málin,“ segir
Sigurjón og víkur að jafnréttisráði.
Kynjahalli hjá jafnréttisráði
Þar halli frekar á karla enda sitji
aðeins fjórir karlar í ellefu manna
stjórn jafnréttisráðs.
„Ef það á að breyta um fulltrúa
hjá Skagfirðingum finnst mér liggja
beinast við að Vinsti-grænir stígi
fram enda hafa þeir boðið fram undir
merkjum kvenfrelsis og femínisma,“
segir Sigurjón en Bjarni Jónsson,
Vinstri-grænum, situr í stjórn SSNV
fyrir Skagafjörð.
Telur Sigurjón því rétt að fresta
breytingum á stjórn þar til eftir
sveitarstjórnarkosningarnar 2014.
Skorar á VG að
mæta kynjakvóta
Titringur á Skagaströnd út af fundi
Sigurjón
Þórðarson
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/