Morgunblaðið - 17.10.2012, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2012
FYRIR
ALVÖRU
KARLMENN
Fæst á
hársnyrtistofum
STUTTAR FRÉTTIR
● Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum
septembermánuði, metinn á föstu
verði, var 10,7% meiri en í september
2011. Það sem af er árinu hefur aflinn
aukist um 15,3% miðað við sama tíma-
bil 2011, sé hann metinn á föstu verði.
Þetta kom fram á vef Hagstofu Íslands í
gær. Aflinn nam alls 108.453 tonnum í
september 2012 samanborið við
105.765 tonn í september 2011.
Aflaverðmæti eykst
● Bandaríska samkeppniseftirlitið hef-
ur samþykkt yfirtöku bandaríska lyfja-
fyrirtækisins Watson Pharmaceuticals
á lyfjafyrirtækinu Actavis. Er samruninn
samþykktur með skilyrðum. Fyrirtækin
þurfa að selja rétt á átján lyfjum til
Sandoz International og Par Pharma-
ceuticals, samkvæmt frétt Reuters.
Heimila yfirtöku á Act-
avis með skilyrðum
ingur þeirrar upphæðar – 230
milljónir – verið til þess að mæta
útgjöldum vegna aukins kostnaðar
við aðkeypta sérfræðiþjónustu
vegna málefna sparisjóðanna. „Það
lítur því út fyrir það,“ bendir Guð-
laugur á, að ráðuneytið hafi þurft
að greiða þeim utanaðkomandi
sérfræðingum sem störfuðu með
vinnuhópnum „hundruð milljóna
króna“.
Fram kemur í minnisblaði fjár-
mála- og efnahagsráðuneytisins að
ekki hafi verið gefið út erindisbréf
fyrir „hinn óformlega vinnuhóp“.
Hlutverk hans var að vera „þátt-
takandi í viðræðum milli kröfuhafa
Byrs sparisjóðs og Sparisjóðsins í
Keflavík, um fjárhagslega endur-
skipulagningu þessara sparisjóða“.
Fjármálaráðuneytið stýrði vinnu
hópsins og greiddi þóknun til
þeirra utanaðkomandi sérfræðinga
sem leitað var til. Hins vegar segir
ráðuneytið að ekki hafi verið hald-
ið sérstaklega utan um greiðslur
til sérfræðinga í tengslum við
vinnu þeirra um málefni Byrs og
Sparisjóðsins í Keflavík og vísað
til þess að „umræddir sérfræðing-
ar unnu á sama tíma að fleiri verk-
efnum fyrir ráðuneytið“.
„Ekki að fara að lögum“
Guðlaugur Þór furðar sig á
þessum vinnubrögðum og spyr
hvort það sé svo að „einhverjir að-
ilar séu á slíkum samningi hjá
stjórnvöldum að þeir geti bara
sent inn reikninga fyrir vinnu sína
án þess að það sé sundurliðað fyrir
hvað það er. Miðað við svör ráðu-
neytisins er ekki hægt að komast
að neinni annarri niðurstöðu“.
Hann vekur athygli á því í þessu
samhengi að í lögum um bókhald
er kveðið á um að „sérhver færsla
í bókhaldi skal byggð á áreiðanleg-
um og fullnægjandi gögnum sem
rekja má til viðskiptanna“.
Guðlaugur segir það einnig
vekja athygli, sem fram kemur í
minnisblaði ráðuneytisins, að það
séu engin gögn frá vinnuhópnum í
skjalavistunarkerfi fjármála- og
efnahagsráðuneytisins. „Ef það er
rétt, sem við verðum að ætla, þá
eru stjórnvöld ekki að fara að lög-
um,“ segir hann og bætir því við
að það sé „ótrúlegt“, þegar um er
að ræða fjárhagslega hagsmuni
fyrir ríkissjóð upp á tugi milljarða
króna, „að það sé ekki til staf-
krókur um það í ráðuneytinu. Mið-
að við yfirlýsingar núverandi ráða-
manna ríkisstjórnarinnar um
meint slæleg vinnubrögð í fortíð-
inni hlýtur þetta að vera mjög
áhugavert“.
Skilaði engum gögnum
til fjármálaráðuneytisins
Vinnuhópur vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar Byrs og SpKef
Gögn Ekki var haldið utan um greiðslur til sérfræðinga.
Morgunblaðið/Kristinn
Vísitala neysluverðs mun hækka um
0,4% í október, en 12 mánaða verð-
bólga mun við það haldast óbreytt í
4,3%. Jafnframt mun lítil breyting
verða á verðbólgu næstu mánuðina,
að því er fram kemur í Morgunkorni
greiningardeildar Íslandsbanka. Það
sem mun hafa áhrif á vísitöluna að
mati bankans er veiking krónunnar,
en á móti kemur aukin samkeppni á
matvörumarkaði. Hækkun verður
því lítil á því sviði, en gert er ráð fyr-
ir að ferða- og flutningsliður vísitöl-
unnar muni hækka um 0,8% vegna
árstíðabundinna hækkana á flugfar-
gjöldum, hjólbörðum og ýmsu öðru.
Verðbólgan
helst í 4,3%
Hækkun 0,4%
!"# $% " &'( )* '$*
+,,-./
+01-,
+,/-2/
,+-321
,+-.2.
+4-/21
+3+-41
+-..3,
+44-0,
+.0-/+
+,,-43
+01-24
+,.
,+-/3
,+-2,4
+4-.,+
+3,-,/
+-..11
+40-/4
+.0-42
,,5-+1,/
+,3-+,
+04-+2
+,.-32
,+-/03
,+-20+
+4-.1.
+3,-2+
+-.2,,
+05-5/
+25-3+
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Íslensk stjórnvöld stofnuðu
hlutafélagið Byr og sparisjóðinn
SpKef, í kjölfar yfirtöku Fjár-
málaeftirlitsins í apríl 2010,
sem síðan keyptu eignir gömlu
félaganna og tóku yfir hluta af
skuldum þeirra – einkum inn-
stæðuskuldir. Eldri félögin voru
hins vegar sett í slitameðferð.
Ríkissjóður lagði í upphafi
Byr og SpKef til 900 milljónir
króna í hlutafjárframlag.
Kostnaður ríkissjóðs vegna
yfirtökunnar á Sparisjóði Kefla-
víkur átti þó eftir að margfald-
ast. Í mars 2011 var fallið frá
áformum um að endurreisa
hann og samið við nýja Lands-
bankann um yfirtöku.
Eftir að tekið hefur verið tillit
til fjármögnunarkostnaðar rík-
isins þá munu skattgreiðendur
á endanum þurfa að leggja til
25 milljarða vegna SpKef.
25 milljarða
kostnaður
SORGARSAGA SPKEF
● Alþjóðlega mats-
fyrirtækið Standard
& Poor’s lækkaði í
gær lánshæfis-
einkunn sjö
spænskra banka og
þar á meðal tveggja
stærstu banka
Spánar, Santander
og BBVA, og eru
horfur fyrir þá nei-
kvæðar.
Lækkunin kemur í kjölfar þess að
fyrirtækið lækkaði lánshæfi spænska rík-
isins 10. október síðastliðinn um tvo
flokka en einkunn landsins er nú aðeins
einum flokki fyrir ofan svokallaðan rusl-
flokk.
Lækkar einkunn
spænskra banka
Spánn í flokki fyr-
ir ofan ruslflokk.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Ekki var haldið sérstaklega utan
um þær greiðslur sem þáverandi
fjármálaráðuneyti reiddi af hendi
til sérfræðinga sem störfuðu með
vinnuhópi ráðuneytisins í tengslum
við yfirtöku ríkisins á Sparisjóði
Keflavíkur og Byr sparisjóði árið
2010. Flest bendir til að sú upp-
hæð hafi skipt tugum ef ekki
hundruðum milljóna króna.
Sami vinnuhópur skilaði enn-
fremur ekki neinum minnisblöðum
eða öðrum gögnum til fjármála-
ráðuneytisins vegna vinnu sinnar,
heldur eru þau aðeins í fórum
þeirra sem störfuðu í vinnuhópn-
um, þrátt fyrir að kveðið sé á um
það í upplýsingalögum að stjórn-
völdum sé „skylt að skrá mál, sem
koma til meðferðar hjá þeim, á
kerfisbundinn hátt og varðveita
málsgögn þannig að þau séu að-
gengileg“.
Þessar upplýsingar koma fram í
minnisblaði fjármála- og efnahags-
ráðuneytisins sem var sent í lok
síðasta mánaðar til Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar, þingmanns Sjálf-
stæðisflokksins, vegna fyrirspurna
hans til ráðherra varðandi málefni
SpKef sparisjóðs og Byrs hf.
Í svarbréfi frá ráðuneytinu í
desember á síðasta ári segir að
þrír starfsmenn ráðuneytisins hafi
skipað vinnuhópinn, en með hópn-
um störfuðu breska ráðgjafarfyr-
irtækið Hawkpoint Partners og
Jóhannes Bjarni Björnsson, lög-
maður hjá Landslögum. Hawkpo-
int hefur einnig starfað fyrir ís-
lensk stjórnvöld við endurreisn
viðskiptabankanna og Icesave-deil-
una.
Í fjáraukalögum fyrir árið 2010
var fjármálaráðuneytinu veitt fjár-
veiting upp á 460 milljónir í
tengslum við sérfræðikostnað
vegna aðgerða í kjölfar hruns fjár-
málakerfisins. Í samtali við Morg-
unblaðið segir Guðlaugur Þór að
samkvæmt gögnum sem hann hafi
sótt annars staðar frá hafi helm-
mbl.is
alltaf - allstaðar