Morgunblaðið - 17.10.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2012
Einn af þekktustu sveitarstjórnar-
mönnum Verkamannaflokksins í
Noregi, Rune Øygard, neitaði í gær
að segja af sér
sem oddviti
sveitarfélagsins
Vågå þótt for-
ystumenn flokks-
ins hefðu hvatt
hann til að láta af
störfum. Øygard
er sakaður um
kynferðisbrot
gegn stúlku í tvö
ár þegar hún var
13-15 ára að aldri.
Øygard neitar sakargiftunum en í
réttarhöldum í máli hans hafa komið
fram upplýsingar sem urðu til þess
að forystumenn flokksins sneru baki
við oddvitanum. Hann hefur m.a.
viðurkennt að hafa klæmst við stúlk-
una á netinu. Forystumenn flokks-
ins segja að jafnvel þótt svo kunni að
fara að Øygard verði sýknaður af
ákærunni sé ljóst að hann hafi gerst
sekur um alvarlegan dómgreindar-
brest.
„Lærifaðir“ Stoltenbergs
„Rune Øygard hefur ekki lengur
það traust sem oddviti þarf að hafa.
Þess vegna þarf hann að láta af
störfum,“ sagði Jens Stoltenberg,
forsætisráðherra Noregs.
Málið hefur aukið á vandræði
Verkamannaflokksins, sem hefur átt
undir högg að sækja að undanförnu
og tapað fylgi ef marka má skoð-
anakannanir.
Øygard hefur verið oddviti Verka-
mannaflokksins í Vågå frá árinu
1995. Stoltenberg lýsti honum sem
pólitískum læriföður sínum og fyrir-
mynd í ræðu sem hann flutti árið
2007. bogi@mbl.is
Stoltenberg snýst gegn oddvita
sem sakaður er um barnaníð
Ekki hægt að reka hann
» Verkamannaflokkurinn get-
ur ekki vikið Øygard frá sem
oddvita í Vågå, að sögn Aften-
posten. Skv. norskum lögum
geta flokkar ekki skipt um odd-
vita fyrr en kjörtímabilinu lýkur
nema hann vilji það sjálfur.
» Nokkrir stjórnmálaskýr-
endur segja að forystumenn
Verkamannaflokksins hafi
gerst sekir um dómgreindar-
brest með því að hafa ekki
brugðist fyrr við málinu. Stúlk-
an hafi oft komið fram opin-
berlega með Øygard, jafnvel
verið í veislum með hátt sett-
um embættismönnum.
Rune Øygard
Kambódíumenn fylgjast með verkamönnum setja upp
málverk af Norodom Sihanouk, fyrrverandi konungi
Kambódíu, við konungshöllina í Phnom Penh í gær.
Margir Kambódíumenn söfnuðust þar saman til að
minnast konungsins sem lést í Peking á mánudag, 89
ára að aldri. Lík hans verður flutt til Kambódíu í dag.
AFP
Fyrrverandi konungur syrgður
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Radovan Karadzic, fyrrverandi leið-
togi Bosníu-Serba, hóf málsvörn sína
fyrir stríðsglæpadómstól Sameinuðu
þjóðanna í Haag í gær og kvaðst
vera saklaus af ásökunum um að
hann bæri ábyrgð á þjóðarmorði,
stríðsglæpum og glæpum gegn
mannkyni í Bosníustríðinu á árunum
1992-95.
„Ég ætti að fá verðlaun fyrir allt
það góða sem ég hef gert vegna þess
að ég gerði allt sem í mannlegu valdi
stóð til að afstýra stríði og draga úr
þjáningum manna,“ sagði Karadzic
fyrir réttinum. „Hvorki ég né nokk-
ur annar sem ég þekki taldi að fram-
ið yrði þjóðarmorð í Bosníu.“
Karadzic er sakaður um að hafa
stjórnað þjóðernishreinsunum sem
kostuðu yfir 100.000 manns lífið, auk
þess sem 2,2 milljónir manna voru
hraktar frá heimilum sínum í Bosníu.
Talið er að grimmdarverkin hafi ver-
ið framin í nafni draumsins um
„Stór-Serbíu“ eftir að Júgóslavía
leystist upp árið 1991. Karadzic er
m.a. sakaður um að hafa fyrirskipað
morð á um 8.000 manns, múslímsk-
um karlmönnum og drengjum, í
bænum Srebrenica í Bosníu 1995.
Hann er einnig talinn bera ábyrgð á
44 mánaða umsátri um Sarajevo en
það kostaði um 12.000 manns lífið.
Þá er hann sagður hafa lagt á ráðin
um að hermenn Bosníu-Serba tækju
eftirlitsmenn og friðargæsluliða
Sameinuðu þjóðanna í gíslingu og
notuðu þá sem skildi til að hindra
loftárásir Atlantshafsbandalagsins í
maí og júní 1995.
Leiðir fram 300 vitni
Saksóknarar stríðsglæpadóm-
stólsins luku málflutningi sínum í
maí sl. Karadzic hyggst leiða fram
300 vitni fyrir réttinn, m.a. Carolos
Papoulias, forseta Grikklands, sem
var utanríkisráðherra landsins þeg-
ar Bosníustríðið geisaði. Karadzic
segir vitnisburð Papoulias geta
sannað að hann hafi ekki fyrirskipað
árás á útimarkað í Sarajevo sem
kostaði 67 manns lífið í febrúar 1994.
Radko Mladic, fyrrverandi hers-
höfðingi sem stjórnaði hersveitum
Bosníu-Serba, hefur einnig verið
ákærður fyrir að bera ábyrgð á
grimmdarverkunum í Bosníu en
stríðsglæpadómstóllinn frestaði
réttarhöldum yfir honum fyrr á
árinu eftir að í ljós kom að veigamikl-
um sönnunargögnum hafði ekki ver-
ið komið í hendur verjenda eins og
lög réttarins gera ráð fyrir.
Stríðsglæpadómstóllinn ákærði
einnig Slobodan Milosevic, fyrrver-
andi forseta Júgóslavíu, fyrir stríðs-
glæpi í Bosníu en hann lést í mars
2006 áður en réttarhöldunum í máli
hans lauk.
„Ég ætti að
fá verðlaun“
Karadzic neitar ásökunum um stríðs-
glæpi og þjóðernishreinsanir í Bosníu
„Það var mjög auðmýkjandi fyr-
ir okkur að hlýða á þessa
ræðu,“ sagði Fikret Alic, bosn-
ískur múslími sem haldið var í
fangabúðum Bosníu-Serba árið
1992. Á meðal áhorfendanna í
réttarsalnum í gær voru fórnar-
lömb þjóðernishreinsana
Bosníu-Serba. Þau hlógu
hæðnislega og hrópuðu þegar
hann kvaðst eiga skilið að fá
verðlaun fyrir að reyna að af-
stýra Bosníustríðinu.
„Auðmýkjandi“
Málsvörn Karadzic fyrir réttinum.
UPPSKAR HÆÐNISHLÁTUR
Sjö meistaraverkum, meðal annars
málverkum eftir Picasso, Matisse,
Monet og Gauguin, var stolið úr
listasafni í Rotterdam, Kunsthal, í
gærmorgun. Þjófavarnakerfi fór í
gang en þegar lögreglumenn komu
á staðinn voru þjófarnir á bak og
burt með þýfið. Lögreglan hóf
strax viðamikla rannsókn á þjófn-
aðinum, yfirheyrði vitni og skoðaði
upptökur eftirlitsmyndavéla. „Við
erum að rannsaka hvernig þeir
komust inn í bygginguna, hvenær
þetta gerðist og hverjir voru að
verki,“ sagði talsmaður lögregl-
unnar í Rotterdam.
Á meðal verkanna eru „Tete
d’Arlequin“
eftir Pablo
Picasso, „La
Liseuse en
Blanc et
Jaune“ eftir
Henri Mat-
isse og
„Waterloo
Bridge,
London“ eft-
ir Claude
Monet. Þetta
er mesti málverkastuldur í Hollandi
frá 1991 þegar 20 málverkum var
stolið úr Van Gogh-safninu í
Amsterdam. bogi@mbl.is
HOLLAND
Sjö meistaraverkum stolið úr listasafni
Málverk Henri Matisse.
Kaþólskur prest-
ur í Króatíu hef-
ur stungið af
með andvirði
tæpra 160 millj-
óna króna eftir
að hafa selt eina
af landareignum
kirkjunnar án
leyfis. Fjölmiðlar
í Króatíu segja
að klerkurinn hafi flúið með giftri
konu.
Erkibiskup í Króatíu sagði í yfir-
lýsingu í gær að Sime Nimac, 34
ára prestur, hefði selt króatísku
fyrirtæki landareignina án skrif-
legs leyfis kirkjunnar fyrr á árinu.
Hann hefði síðan tekið rúmar 157
milljónir króna út af bankareikn-
ingi safnaðar síns. Kirkjan hefur
höfðað mál til að krefjast þess að
sölusamningurinn verði dæmdur
ógildur.
Fjölmiðlar í Króatíu segja að
klerkurinn hafi verið þekktur fyrir
að berast mikið á. Hann hafi flúið
land með giftri konu sem hafi starf-
að í banka þar sem söfnuðurinn var
með reikninginn. bogi@mbl.is
KRÓATÍA
Klerkur stakk af með 160 milljónir
Sime Nimac
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Golfhermir
DOUBLE EAGLE 2000
Frábær aðstaða til að spila golf.
Þú getur valið um 9 golfvelli,
St. Andrew´s, Coeurd Alene,
Firestone, Pebble Beach,
Druids Glen,
Doral Resort,
Emirates.
Óþarfi að týna
sveiflunni í vetur
Hægt er að bóka
fasta tíma í vetur