Morgunblaðið - 17.10.2012, Qupperneq 23
Val. Síðar áttu báðir eftir að vera
formenn ÍBR samtals í 31 ár.
Í dag kveðjum við Gísla Hall-
dórsson arkitekt sem 98 ára gam-
all á að baki einstaka og óviðjafn-
anlega forystu í íslenskri
íþróttahreyfingu í hálfa öld. Hann
var á stofnfundi Íþróttabandalags
Reykjavíkur 31.8. 1944 kosinn í
stjórn þess sem gjaldkeri og á
fyrstu vikum bandalagsins barðist
hann með formanninum, Gunnari
Þorsteinssyni hrl., fyrir því að hið
auralausa bandalag fengi keypt
íþróttahús bandaríska hersins við
Hálogaland í samkeppni við stór-
veldin Ármann, ÍR og KR. Það
tókst með liðsinni borgarsjóðs og
íþróttanefndar ríkisins. Sem
skipulagsfræðingur stóð hann
1948 fyrir tillögu bandalagsins um
dreifingu starfssvæða stóru
íþróttafélaganna um borgarlandið.
Komnir voru 2 útgangspunktar
með kaupum KR á landi við
Kaplaskjólsveg og Vals á jörðinni
Hlíðarenda við Öskjuhlíð. Það
leiddi síðan til þess að hin félögin
fengu starfssvæði víðsvegar um
borgarlandið og voru þannig færð
til borgaranna en ekki öfugt.
Þegar hvorki gekk né rak hjá
undirbúningsnefnd fimmtíu ára
afmælis ÍSÍ 1962 fékk nefndin
Gísla eftir 14 ára formennsku hans
hjá ÍBR til að taka að sér for-
mennsku nefndarinnar og leiddi
það til mjög veglegrar og glæsi-
legrar hátíðar. Íþróttaforysta
landsbyggðarinnar var svo heilluð
að skorað var á Gísla að taka að
sér forsetaembætti ÍSÍ og var
hann kosinn í það á ÍSÍ þingi um
haustið, embætti sem hann gegndi
í 18 ár ásamt formennsku Ólymp-
íunefndar.
Gísli Halldórsson var maður
eigi einhamur eins og sjá má á því
hve víða hann lagði hönd á plóg svo
að um munaði. Látum við nægja
að minna á stóru íþróttamannvirk-
in og íþróttamiðstöðina í Laugar-
dalnum.
Íþróttabandalag Reykjavíkur
þakkar sterka forystu og árang-
ursríkt samstarf í hálfa öld og
vottar fjölskyldu Gísla samúð.
Fyrir hönd Íþróttabandalags
Reykjavíkur,
Sigurgeir Guðmannsson.
Góður vinur okkar hjóna og ná-
inn samstarfsmaður í mörg ár er
fallinn frá í hárri elli. Þegar ég var
kosinn í borgarstjórn Reykjavíkur
og borgarráð 26 ára gamall árið
l962 var þar fyrir margt ágætra
manna. Einn þeirra var Gísli Hall-
dórsson. Hann settist í borgarráð
um leið og ég og var mjög öflugur í
ýmsum nefndum borgarinnar,
einkum á sviði skipulags- og
íþróttamála.
Fyrsta aðalskipulag Reykjavík-
ur var þá í undirbúningi undir for-
ystu Geirs Hallgrímssonar. Marg-
ir komu að undirbúningi þess
frumkvöðlastarfs, en óhætt er að
fullyrða að enginn kjörinn fulltrúi
lagði sig meira fram um að ljúka
því farsællega en Gísli Halldórs-
son. Þar komu mjög í ljós góðir
hæfileikar Gísla. Hann átti auðvelt
með að laða menn til samstarfs,
var ljúfur í daglegri umgengni en
fylginn sér og ákveðinn þegar á
þurfti að halda. Þessir eiginleikar
nýttust vel í þeim margvíslegu
störfum sem hann sinnti í borg-
arstjórn, en lengst verður minnst
þess stórhugar sem einnkennt
hefur skipulag og mannvirkjagerð
í Laugardalnum. Þar var Gísli í
forystu og komandi kynslóðir
munu njóta starfa hans þar.
Fyrstu tvö árin sem ég gegndi
starfi borgarstjóra var Gísli Hall-
dórsson forseti borgarstjórnar.
Ég minnist þess samstarfs með
einstakri ánægju og var það vissu-
lega mikill styrkur fyrir mig að
hafa Gísla í þeirri stöðu.
Þótt aldursmunur okkar Gísla
væri mikill tókst með okkur mikil
og góð vinátta sem náði langt út
fyrir skyldustörfin hjá borginni.
Margrét kona Gísla varð einnig
góður vinur okkar Sonju og oft
eyddu Margrét og Sonja löngum
stundum saman með börnum okk-
ar þegar við Gísli vorum í ein-
hverju stússi. Við Sonja minnumst
einnig með gleði margra ferðalaga
sem við fórum innanlands og utan.
Allar þær ljúfu minningar sækja
að manni nú þegar Gísli er allur.
Við Sonja sendum Leifi og allri
fjölskyldunni okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Birgir Ísl. Gunnarsson.
Gísli Halldórsson er sá maður
sem einna mest áhrif hefur haft á
uppbyggingu og þróun íþrótta-
mála í Reykjavík. Ungum voru
honum falin trúnaðarstörf á veg-
um íþróttahreyfingarinnar og síð-
ar í þágu borgarbúa, sem hann
sinnti af alúð og framsýni. Sem
formaður Íþróttabandalags
Reykjavíkur 1949-1962 og Íþrótta-
sambands Íslands 1962-1980 skil-
aði hann miklu og óeigingjörnu
verki í þágu íþrótta og lýðheilsu.
Óhætt er að segja að hann hafi
verið ötull talsmaður þessara við-
horfa sem borgarfulltrúi 1958-
1974 og formaður Íþróttaráðs
Reykjavíkur.
Gísli var svo sannarlega maður
uppbyggingar og sá nauðsyn þess
að í ört vaxandi höfuðborg risu
íþróttamannvirki, sem stæðust al-
þjóðlegar keppniskröfur og gætu
rúmað landsleiki svo vel færi.
Hann átti stóran þátt í að móta
mannvirki eins og Laugardalsvöll-
inn, Laugardalshöllina og Íþrótta-
miðstöðina í Laugardal.
Gísli vildi líka tryggja öflugt
grasrótarstarf íþróttafélaganna
og átti drjúgan þátt í að koma á því
hverfaskipulagi íþróttamála, sem
enn er byggt á í Reykjavík. Í fróð-
legri sögu Íþróttabandalags
Reykjavíkur eftir Sigurð Á. Frið-
þjófsson segir Gísli að hugmyndin
á bak við hverfaskiptinguna hafi
verið sú að börn og unglingar
gætu gengið til íþróttaiðkunar í
sínu hverfi en þyrftu ekki að fara
langa leið í strætisvögnum á æf-
ingar. Á grundvelli þessarar hug-
myndar var leitast við að tryggja
félögunum afnotarétt af góðum
svæðum til framtíðar.
Almennt er viðurkennt að
íþróttastarf og aðgangur að því
vegur þungt þegar lífsgæði í ein-
stökum hverfum eða borgum eru
metin. Helsta áherslumál Gísla á
árunum 1946-1951 var að vinna að
því að það yrði samþykkt í bæj-
arstjórn að íþróttafélögin fengju
varanlega velli sem féllu inn í
skipulagið. Síðan segir Gísli í áð-
urnefndri bók: „Sannleikurinn var
sá að skipulagsmenn bæjarins
voru alltaf á móti því að íþrótta-
félögin fengju fast, varanlegt
svæði. Þeim óx í augum það rými
sem setja þurfti undir þessa
íþróttavelli. Í staðinn var alltaf
verið að tala um bráðabirgða-
svæði.“
Gísli var ávallt trúr hugsjónum
sínum og átti stóran þátt í að
tryggja reykvískum íþróttafélög-
um svæði til framtíðar. Fyrir það
geta Reykvíkingar verið þakklátir.
Er nú raunar svo komið að í sum-
um hverfum eru íþróttafélög jafn-
vel lent í landþrengslum vegna
mikillar fjölgunar iðkenda í barna-
og unglingastarfi.
Fyrir nokkrum árum átti ég
gott spjall við Gísla um borgarmál-
in þar sem víða var komið við.
Kom þá vel fram áhugi hans á
skipulagsmálum og þróun borgar-
innar til framtíðar. Einnig velvilji í
garð íþróttahreyfingarinnar, sem
hann taldi að borgaryfirvöld ættu
ekki að þrengja að heldur veita
frekara svigrúm til athafna.
Hið fjölbreytta og myndarlega
mannræktarstarf í þágu barna og
ungmenna, sem nú fer fram á at-
hafnasvæðum íþróttafélaganna í
Reykjavík, er óbrotgjarn minnis-
varði um Gísla og aðra frum-
kvöðla, sem höfðu framsýni og
vilja til að skapa slíku starfi að-
stæður. Minningu um góðan
dreng mun ég halda í heiðri á með-
an mér endast dagar.
Kjartan Magnússon.
Fleiri minningargreinar
um Gísla Halldórsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2012
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
HALLDÓRA KRISTÍN FINNBJÖRNSDÓTTIR,
Hamraborg 26,
Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn 12. október.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 19. október
kl. 11.00.
Gunnar E. Hübner, Erna Elíasdóttir,
Herdís M. Hübner, Hrafn M. Norðdahl,
Tryggvi J. Hübner, Bryndís Ploder,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Útför sambýliskonu minnar,
HALLFRÍÐAR BÁRU HARALDSDÓTTUR,
Öldustíg 6,
Sauðárkróki,
fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn
20. október kl. 14.00.
Herbert K. Andersen.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma,
systir og frænka,
MAGNEA GUÐNADÓTTIR EDVARDSSON
frá Hólmum,
Vänersborg,
Svíþjóð,
lést á heimili sínu laugardaginn 6. október.
Jarðarförin fer fram í Vänersborg
þriðjudaginn 23. október.
Rosita Kitching, Bernard Kitching,
Sarah, Tom og Alice,
Gerður S. Elimarsdóttir, Kristján Ágústsson,
systkinabörn og fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, tengdadóttir og amma,
SÓLEY ÓLAFSDÓTTIR,
Garðavegi 24,
Hvammstanga
lést á sjúkrahúsinu á Hvammstanga
þriðjudaginn 9. október.
Útförin fer fram frá Hvammstangakirkju
föstudaginn 19. október kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar-
innar á Hvammstanga eða Krabbameinsfélag Hvammstanga-
læknishéraðs.
Guðmundur Sigurðsson,
Guðmundur Valur Guðmundss., Guðný Bergþóra Tryggvad.,
Sigurður Þór Guðmundsson, Hildur Stefánsdóttir,
Sigríður Ása Guðmundsdóttir, Gunnar Reynisson,
Ása Guðmundsdóttir,
Hanna Sóley, Eyrún Huld, Guðmundur Bragi,
Stefán Pétur, Ólafur Ingvi, Ása Margrét,
Jóhann Ingvi og Vilborg Anna.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
STEFANÍA ÓSK JÚLÍUSDÓTTIR,
Sólvallagötu 18,
Reykjavík,
áður til heimilis
á Eiðum á Fljótsdalshéraði,
sem lést á öldrunardeild Landspítalans
í Fossvogi laugardaginn 6. október, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni föstudaginn 19. október kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Blindrafélagið.
Sveinn Þórarinsson, Ólöf Birna Blöndal,
Sigurjón Þórarinsson,
Alfreð Dan Þórarinsson, Sesselja Eiríksdóttir,
Sigríður Þórarinsdóttir, Magnús Sæmundsson,
Guðrún Þórarinsdóttir, Örn Þorbergsson,
Anna Þórarinsdóttir, Knut Lage Bö,
Ólöf Þórarinsdóttir, Örn Óskarsson,
Björg Þórarinsdóttir, Örn Arnþórsson,
Hallgrímur Þórarinsson, Ingunn Thorarensen,
Magnús Þórarinsson, Bryndís Skúladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BIRGIR VILHJÁLMSSON,
Melahvarfi 1,
Kópavogi,
lést föstudaginn 12. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 18. október kl. 15.00.
Kristín Birgisdóttir, Erik Ingemann Jansen,
Helgi Pétur Birgisson, Gitte Dolberg,
Birgir, Stine, Björg, Katrine og Celine.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐRÚN SVEINBJÖRNSDÓTTIR
frá Laugaborg,
sem lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlíð
á Akureyri aðfaranótt sunnudagsins 7. októ-
ber, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 19. október kl. 13.30.
Brynjar Fransson, Ásta Pálsdóttir,
Ragnhildur Franzdóttir, Gísli Kristinn Lórenzson,
Sigrún Bernharðsdóttir, Valur Baldvinsson,
Aðalsteinn Bernharðsson, Ragna Ágústsdóttir,
Sigríður Bernharðsdóttir, Valgeir Anton Þórisson
og aðrir afkomendur hinnar látnu.
✝
Okkar ástkæra
INGIBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR,
Árskógum 4,
áður Reynimel 72,
lést mánudaginn 15. október.
Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 23. október kl. 11.00.
Arnar Birgisson, Sigrún Þorsteinsdóttir,
Birgir Hrafnsson, Oddný Indíana Jónsdóttir,
Finnur Lárusson, Merrilyn Lárusson,
Hafliði Kristján Lárusson, Catherine Alaguiry,
Katrín María Birgisdóttir, Jóhann Birkir Guðmundsson
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
AUÐUR EINARSDÓTTIR
kaupmaður,
Jökulgrunni 27,
lést á bráðadeild Landspítalans aðfaranótt
15. október.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtu-
daginn 18. október kl. 15:00.
Hulda Halldórsdóttir, Eiríkur Þorsteinsson,
Lilja Halldórsdóttir Veigele, Hartmut Veigele,
Hafliði Halldórsson, Guðfinna Hauksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐNÝ STEFÁNSDÓTTIR,
andaðist að Sólvangi í Hafnarfirði
föstudaginn 5. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Jón Eiríksson, Erla Guðríður Jónsdóttir,
Helga Eiríksdóttir, Sigurður Smári Einarsson,
Stefán Eiríksson, Ragnheiður Torfadóttir.
✝
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og sonur,
HANNES SVEINBERGSSON,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
laugardaginn 13. október.
Útför hans fer fram frá Dalvíkurkirkju
föstudaginn 19. október kl. 14.00
Wongnapha Singuto,
Sævar Berg Hannesson, Tinna Sigurgeirsdóttir,
Birgir Már Hannesson,
Guðrún Inga Hannesdóttir,
Jóhanna Fönn Hannesdóttir,
Brimar Sandi Hannesson,
Sveinberg Hannesson.