Morgunblaðið - 17.10.2012, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2012
✝ Hallbera Ólafs-dóttir fæddist í
Bolungarvík 29.
maí 1936. Hún lést
á dvalarheimilinu
Seljahlíð 9. október
2012.
Foreldrar henn-
ar voru Ólafur
Tryggvi Gíslason
verkamaður og
Auður Sigríður
Hjálmarsdóttir
húsmóðir. Systkini Hallberu eru
Elsa, Gústaf og Gísli.
Hallbera ólst upp í Bolung-
arvík til 16 ára aldurs en þá
fluttist hún til Reykjavíkur og
hóf störf á Elliheimilinu Grund
þar sem hún starfaði í nokkur
ár. Fljótlega eftir að hún kom til
Reykjavíkur kynntist hún eig-
inmanni sínum, Hafsteini Þór
Stefánssyni, f. 26. janúar 1936,
d. 21. maí 2000. Hallbera og Haf-
steinn giftu sig 10. apríl 1960 og
skildu árið 1982. Þau eignuðust
þrjár dætur, 1) Kristínu Maríu,
f. 23. júlí 1955, d. 30. apríl 2005,
fyrrv. maki hennar er Halldór Þ.
Sigurðsson, barn þeirra er Að-
alheiður Björg, f. 1987. Að-
alheiður er í sambúð með Hin-
riki Geir Jónssyni, barn þeirra
er Halldór Ingi, f. 2010, 2) Auði
Aðalheiði, f. 10. júlí 1962, maki
hennar er Þorbjörn V. Gestsson,
börn þeirra eru Hildur Hafdís, f.
1997 og Davíð, f. 2000, og 3)
Stefaníu Ólöfu, f. 29. maí 1967,
fyrrv. maki hennar
er Pálmi Bernhar-
dsson Linn, barn
þeirra er Laufey, f.
1996.
Fyrstu hjúskap-
arár Hallberu og
Hafsteins voru á
heimili foreldra
Hafsteins í Reykja-
vík en þar bjuggu
þau á meðan Haf-
steinn var enn í
námi. Þaðan fluttu þau í Bú-
staðahverfið þar sem þau
bjuggu í u.þ.b. áratug. Á ár-
unum 1969-1972 bjó fjölskyldan
að Núpi í Dýrafirði þar sem Haf-
steinn kenndi við Héraðsskólann
en Hallbera sinnti heimili og
barnauppeldi. Þegar Hafsteinn
fékk skólastjórastöðu við Lind-
argötuskólann flutti fjölskyldan
aftur til Reykjavíkur og bjó í Ár-
bæjarhverfi til ársins 1982, en
þann tíma starfaði Hallbera við
ræstingar í Árbæjarskóla með
húsmóðurstarfinu. Eftir að þau
Hafsteinn skildu bjó Hallbera í
Hlíðunum í Reykjavík til ársins
2006 þegar hún fluttist í Selja-
hlíð. Hallbera var alla tíð mikil
húsmóðir og hannyrðakona og
eftir hana liggur mikil og falleg
handavinna sem prýðir heimili
margra ættingja hennar og
vina.
Útför Hallberu fer fram frá
Seljakirkju í dag, 17. október
2012, kl. 15.
Elsku mamma, það er svo
erfitt að þú sért farin frá okkur.
Svo mikið tómarúm. Þú varst
svo mikið veik en ert komin á
betri stað núna. Við vitum það.
En minningarnar eigum við
og þær verða aldrei frá okkur
teknar, það er svo margs að
minnast og get ég aðeins stiklað
á litlum hluta þeirra.
Við hringdumst á, næstum
því á hverjum einasta degi og
hittumst reglulega. Börnin köll-
uðu er síminn hringdi, þetta er
amma Halla, það sást á númera-
birtinum. Þau svöruðu með
glöðu geði og þú spjallaðir oft
við þau og Tobba, áður en þú
talaðir við mig.
Meira að segja þegar við
hjónin fórum í átta daga ferð til
Amsterdam, þá var hringt. En
núna eru engar hringingar til
eða frá ömmu Höllu. Fengum
smávegis aðlögun, því þú varst
of veikburða til að tala í símann
undir það síðasta. Mikill tóm-
leiki að vita til þess að við eigum
ekki eftir að heyrast né sjást
aftur, elsku mamma.
Við fórum í ferðalag saman
fyrir margt löngu á húsbílnum
sem við áttum þá. Tíu daga ferð
um Vestfirðina. Það var sól í
hjarta og sinni. Fórum á þínar
æskuslóðir í Bolungarvík. Hitt-
um þar vini þína og ættingja og
fórum auðvitað í kaffi til Elsu
stóru systur þinnar og fengum
frábærar móttökur hjá þeim
hjónum. Fórum svo á Núp í
Dýrafirði, en þar bjuggum við í
þrjú ár þegar ég var lítil. Ynd-
islegar minningar.
Þú varst mikill fagurkeri og
bjóst þér mjög fallegt heimili í
Barmahlíðinni. Við bjuggum
líka í Hlíðunum á tímabili og við
fórum svo oft í göngutúr saman
niður í bæ. Þá var ég með Hildi
Hafdísi mína litla í vagninum.
Það var svo gaman, við spjöll-
uðum um alla heima og geima
og stundum keyptum við okkur
eitthvað.
En svo þurftir þú að fara á
dvalarheimili. Í Seljahlíð gerðir
þú þér fallegt hreiður í litlu
stúdíóíbúðinni þinni þar.
Allar hannyrðirnar sem þú
hafðir gert um ævina. Klukku-
strengir, myndir, rókókóstól-
arnir… En þú varst með ein-
dæmum gjafmild og nutu
margir góðs af því. Þú hafðir
svo gaman af því að gefa öðrum
fallega hluti.
Þegar þú komst í mat til okk-
ar á heimili okkar í Hafnarfirði
pantaðir þú alltaf gellur. Þér
fannst svo gott að fá gellur, því
það var ekki á boðstólum í
Seljahlíð, þó þar væri góður
matur.
Það var vel hugsað um þig
þar og þökkum við öllu því góða
starfsfólki sem þar vinnur fyrir
góða umönnun. Þú varst líka
ánægð að vera þar.
Þegar eitthvert okkar fékk
einhverja pest, sýndir þú svo
mikla umhyggju. Alltaf að
hringa og athuga hvernig heils-
an væri hjá okkur og þú sem
varst svo lasin.
Þú varst oft svo skemmtileg.
Hnyttin í tilsvörum og komst
okkur oft til að hlæja.
Við söknum þín óendalega
mikið, elsku mamma. En nú ert
þú komin á góðan stað. Þökkum
þér allt það góða og fallega sem
þú gafst okkur. Kveðjum þig
með mjög miklum trega.
Guð geymi þig, elsku
mamma, tengdamamma og
amma.
Þín að eilífu,
Auður, Þorbjörn,
Hildur Hafdís og Davíð.
Elsku mamma, þú varst oft
búin að biðja mig að syrgja þig
ekki, en auðvitað er sorgin og
söknuðurinn alltaf mikill þegar
kveðjustundin rennur upp. Það
var svo gott að geta verið mikið
hjá þér síðustu ævidagana og
þegar þú svo kvaddir. Núna eru
kaflaskil í lífinu og það verður
allt öðruvísi án þín, en öllum
góðu minningunum um þig
verður haldið á lofti.
Sumir hverfa fljótt úr heimi hér
skrítið stundum hvernig lífið er,
eftir sitja margar minningar
þakklæti og trú.
Þó ég fái ekki að snerta þig
veit ég samt að þú ert hér,
og ég veit að þú munt elska mig
geyma mig og gæta hjá þér.
(Ingibjörg Gunnarsdóttir)
Guð geymi þig alltaf, elsku
mamma.
Þín dóttir,
Stefanía.
Í dag kveð ég ömmu mína
með sorg og söknuði. Amma
mín var yndisleg kona, hún var
alltaf vel tilhöfð og vildi ávallt
vera í „nýjustu tísku“ eins og
hún orðaði það. Hún átti mikið
af fallegum skartgripum og fal-
legum stórum höttum. Hún var
dugleg að hrósa en lét mann al-
veg vita ef eitthvað mætti betur
fara. Eitt sinn þegar ég kom í
heimsókn til hennar með nýju
gleraugun mín á nefinu sagði
amma: „Æ, elskan mín, þarftu
að vera með svona hryllilega
stór gleraugu? Þau gömlu voru
miklu betri.“ Þetta var amma,
hreinskilin en samt svo kurteis.
Elsku amma, ég á eftir að
sakna þín. Ég er svo ánægð að
Halldór Ingi skyldi kynnast þér.
Ég veit að mamma bíður þín,
viltu kyssa hana frá mér. Þú
kvaddir mig alltaf með sömu
orðunum og með þeim ætla ég
að kveðja þig.
Bless, elsku amma mín, guð
geymi þig.
Þín
Aðalheiður Björg
(Heiða).
Við fæðumst og hverfum.- Við horf-
um
í húmið í fáein ár.
En örlögin rista rúnir
í rökkrið – bros og tár.
En þegar mannssálir mætast,
- þótt myrkrið sé autt og kalt, –
þá ganga þó titrandi geislar
í gegnum rökkrið og allt.
(Guðmundur Ingi Kristjánsson)
Síðastliðinn þriðjudag lést
Halla mágkona mín eftir bar-
áttu við erfiðan sjúkdóm. Kynni
okkar Höllu hófust þegar ég
trúlofaðist Gísla bróður hennar,
þá bjuggu þau Hafsteinn með
Stínu litlu dóttur þeirra í Sól-
heimunum.
Ég minnist þessarar glæsi-
legu ungu konu með fallega
rauða hárið, glaðri og hressri og
lífsgleðin geislaði af henni.
Fleirum fannst hún glæsileg,
ljósmyndari í miðbæ Reykjavík-
ur stillti stórri mynd af henni út
í sýningargluggann. Halla var
myndarleg húsmóðir og naut
þess að hafa fallegt í kringum
sig alla tíð. Eftir að þau fluttu á
Bústaðaveginn vorum við Gísli
þar tíðir gestir, þá var oft glatt
á hjalla og gjarnan tekið í spil.
Halla var mikill veitandi en hún
kunni líka að þiggja, gladdist
t.d. yfir lítilli flík á dótturina og
hengdi hana út á snúru svo ná-
grannarnir sæju. Við heimsótt-
um þau líka vestur að Núpi þar
sem þau störfuðu við Héraðs-
skólann um skeið. Þegar við
komum spurði Halla hvað okkur
langaði helst í, Gísli nefndi
„beikon“ sem hann taldi hana
örugglega ekki eiga, en það var
stolt húsmóðir sem dró beikon
upp úr frystinum og skellti á
pönnuna.
Árin liðu, Halla varð fyrir
ófyrirséðum áföllum í lífinu,
þrátt fyrir það átti hún sínar
góðu stundir. Síðustu árin
dvaldi hún í Seljahlíð, ánægð
með stofuna sína og þakklát fyr-
ir þá góðu umönnun sem hún
naut þar. Í spjalli okkar Höllu
síðustu árin fann ég hve mikla
umhyggju hún bar fyrir dætrum
sínum og afkomendum, hana
langaði að sjá fram í tímann,
hvernig þeim muni vegna á lífs-
brautinni.
Ég votta dætrum Höllu og
fjölskyldum þeirra innilega
samúð mína.
Sigríður Þórarinsdóttir.
Óborganlegur húmor og smit-
andi hlátur er eitt af því sem var
einkennandi fyrir hana Höllu
frænku okkar, sem fallin er nú
frá eftir erfið veikindi. Hún
Halla gerði oft grín að eigin
mistökum og sat ekkert á skoð-
unum sínum, félagslynd og svo
lífleg þegar heilsan var góð.
Sem ung kona var hún með
fallegt rautt hár og hélt hún
alltaf svo mikið upp á Ólaf sem
var líka rauðhærður. Svo seinna
þegar Ýr gekk með frumburð-
inn sagðist hún biðja til guðs á
hverju kvöldi um að barnið yrði
rauðhært.
Þegar við eldri systkinin vor-
um að alast upp bjó Halla með
Hafsteini og dætrunum Stínu,
Auði og Stefaníu í Hraunbæn-
um. Þar var líf og fjör í stóru
íbúðinni og mikið af fólki og
krökkum. Þá eru sumarbústaða-
ferðirnar á Þingvelli mjög minn-
isstæðar.
Síðar flutti hún í Hlíðarnar og
fyrir barn var ævintýralegt að
koma í heimsókn til hennar í ris-
ið. Hún hafði gert svo fallegt í
kringum sig með skrautmunum
í stofunni sem og fallegu hús-
gögnunum, að ógleymdu rauða
baðherberginu og kaffistellinu.
Síðustu árin bjó hún í Selja-
hlíð og þar fannst henni gott að
búa. Hún vildi alltaf vera vel til
fara og að vekja athygli fannst
henni nú ekki leiðinlegt. Minn-
isstætt er þegar hún dressaði
sig upp á ósköp venjulegum
degi, setti upp fallegan hatt í stíl
við dressið og skartið og fylgdi
okkur gestunum fram til þess að
sjá hvort hún myndi nú ekki fá
einhver viðbrögð. Þessi einfaldi
leikur vakti mikla kátínu hjá
okkur. Halla tók okkur alltaf vel
og spurði um hagi okkar og
barnanna okkar.
Við þökkum henni Höllu
frænku samfylgdina og vottum
dætrum hennar og öllum ástvin-
um samúð okkar.
Ingibjörg, Ólafur og Ýr.
Elsku vinkona. Þá er barátt-
an búin. Fyrir u.þ.b. tveimur ár-
um vorum við í óðaönn að und-
irbúa jarðarförina þína, en sem
betur fer fengum við að hafa þig
lengur. Nú ertu komin til Stínu
þinnar sem þú misstir fyrir
nokkrum árum.
Við erum búnar að þekkjast í
u.þ.b. tuttugu ár. Fyrst komstu
til mín í klippingu og þá tókst
með okkur mikill vinskapur sem
hélst ætíð síðan. Oft var sagt við
mig: „Það er svo mikill aldurs-
munur á ykkur,“ en það skipti
engu máli, við gátum rætt um
allt milli himins og jarðar. Við
bættum hvor aðra upp. Höfðum
alltaf um nóg að spjalla.
Fyrst í Barmahlíð og síðan í
Seljahlíð þar sem þú varst búin
að koma þér vel fyrir með alla
flottu hlutina þína, þér leið svo
vel þar, allir svo góðir við þig.
Snyrtimennskan í fyrirrúmi,
aldrei rykkorn að sjá og krist-
allinn vel pússaður.
Minningarnar streyma fram,
matartímarnir okkar þegar ég
kom með Nings, svið sem þér
þóttu svo góð að ekki sé minnst
á hamborgara.
Þorrablótin sem við Einar
komum með þér á, þú varst svo
stolt af gestunum þínum, við
skemmtum okkur alltaf vel.
Þegar ég færði þér föt eða
skart var óborganlegt að sjá
svipinn á þér, svo ánægð með
allt, mátaðir strax. Við hengdum
þau upp á vegg svo þú gætir
sýnt stelpunum.
Þú gafst mér eitt sinn mokka-
kápu sem var sérsaumuð á þig
þegar þú varst ung og mikið er
ég búin að nota hana.
Það er ótal fleira sem ég gæti
minnst á en nú er komið að lok-
um.
Elsku besta vinkona, þú gafst
mér mikið og ég vonandi þér,
studdir mig í erfiðleikum mínum
og hvattir mig áfram. Ég á eftir
að sakna þess að koma í heim-
sókn og allra símtalanna. Þegar
ég kvaddi þig eftir heimsókn
sagðir þú ávallt: „Ég bið fyrir
þér, Pálína mín.“ Ég veit þú
heldur áfram að gera það. Mér
þykir afskaplega vænt um þig.
Megi minning þín lifa í hjört-
um þeirra sem nú kveðja þig og
fylgja þér síðasta spölinn.
Takk fyrir allt og allt.
Þín vinkona,
Pálína.
Hallbera
Ólafsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Sofðu vært hinn síðsta blund,
uns hinn dýri dagur ljómar,
Drottins lúður þegar hljómar
hina miklu morgunstund.
(V. Briem.)
Guð geymi og varðveiti
þig, elsku amma mín, og
takk fyrir allt.
Laufey Pálmadóttir.
Ljósbrá og Anna Þóra Íslandsmeist-
arar í tvímenningi kvenna
Íslandsmótið í tvímenningi kvenna var
haldið um helgina. Sigurvegarar eru þær
Ljósbrá Baldursdóttir og Anna Þóra Jóns-
dóttir og sigruðu þær með 59,4 % skor. Jó-
hanna Sigurjónsdóttir og Una Árnadóttir
urðu í öðru sæti með 58% skor og í 3. sæti
urðu Anna Ívarsdóttir og Guðrún Óskars-
dóttir með 56,4% skor. Alls tóku 20 pör þátt
að þessu sinni. Næsta stórmót er Íslands-
mótið í einmenningi sem spilað verður
föstudaginn 19. okt. og laugardaginn 20.
okt.
Ársþing BSÍ
Ársþing BSÍ verður haldið í húsnæði
Bridgesambands Íslands sunnudaginn
21.október og hefst klukkan 13. Félög innan
hreyfingarinnar hafa setu- og atkvæðisrétt
á þinginu samkvæmt kvótaútreikningi
skilagreina en áheyrnarfulltrúar eru vel-
komnir að sitja þingið. Formenn eru beðnir
um að senda útfyllt kjörbréf í faxi 587 9361
og einnig er hægt að senda á bridge@brid-
ge.is Ef einhver hefur hug á að sitja þingið
án þess að vera fulltrúi félags, sendi við-
komandi inn umsókn með tölvupósti.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Bækur
Guðmundur
frá Miðdal
Til sölu fálki, sjómaður með lúðu,
rjúpupar og rjúpa með unga.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Gisting
Sveitasetrin
Kjós og Grímsá
Hópefli - hvatarferðir,
fundir - veislur.
Hentugt fyrir stóra
sem smáa hópa
með og án þjónustu
Nánari upplýsingar
Júlíus
s. 892-9263
www.hreggnasi.is
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Saumavélar- saumavélaviðgerðir
Nýjar og notaðar saumavélar í úrvali.
Viðgerðir á flestum gerðum sauma-
véla. Skoðaðu úrvalið á saumavelar.is
eða hringdu í s. 892 3567 eftir
hádegi alla daga.
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897 9809.
Ökukennsla
Kenni á BMW 116i
Snorri Bjarnason,
sími 892 1451.
Bilaskoli.is
Húsviðhald
Laga ryðbletti á þökum,
hreinsa þakrennur og tek
að mér ýmis smærri verk-
efni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Byssur
GÆSASKOT 42 gr MAGNUM
Frábær gæði, hóflegt verð. Byssu-
smiðja Agnars, s. 891-8113.
Dreifing: Sportvörugerðin,
s. 660-8383. www.sportveidi.is
✝
Móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR SMITH,
áður til heimilis á
Bergstaðastræti 52,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 18. október kl. 11.00.
Katla Smith Henje, Jan Henje,
Hekla Smith, Björn Sigurðsson,
Hrefna Smith,
Birna Smith, Guðmundur Lárusson.