Morgunblaðið - 17.10.2012, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2012
DREIFARAR • SNJÓTENNUR • SNJÓBLÁSARAR • SLITBLÖÐ
A. Wendel ehf | Tangarhöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 551 5464 | wendel.is
Tæki til
vetrarþjónustu
Stofnað 1957
Annars væri ég dauð,“ sagði Hugrún hlæjandi aðspurð hvorthún væri ánægð með tugina fimm sem hún fyllir í dag. „Égætla að njóta þess að vera til, ef einhver kemur í heimsókn
verð ég að minnsta kosti heima. Kannski gerir maður sér einhvern
dagamun næsta sumar.“
Hugrún Kristinsdóttir býr á bænum Ytri-Veðrará í Önundarfirði
ásamt manni sínum Gunnari Gauki Magnússyni, yngsta syninum,
Agli Ara, sem eftir er í kotinu, og nokkrum hestum. Henni líkar vel í
Önundarfirðinum. „Okkur vantaði hesthúspláss. Við fréttum af
þessu húsi og slógum til. Hestamennskan er okkar áhugamál.“
Hún starfar við bókhald í rækjuvinnslunni Kampa á Ísafirði. Það
er stutt að fara á milli, göngin stytta þá vegalengd.
Hjónin eru einnig með aukabúgrein, ilmvatnsframleiðslu undir
merkjum True Viking. Hönnunin er íslensk, glösin eru í formi horns
sem eru hugsuð út frá drykkjarhorni. „Við töppum ilmvatninu á og
pökkum inn hér. Jólin eru mesti annatíminn.“ Ilmvötnin fást í versl-
unum víða um land.
Nýjasta viðbótin er skógrækt. Þau hafa þegar plantað um 16 þús-
und trjám af ýmsum tegundum. Skógurinn er hugsaður sem skjól-
skógur en þó verður eitthvað notað til nytja. „Hvenær svo sem það
verður eiginlega,“ segir Hugrún kát. thorunn@mbl.is
Hugrún Kristinsdóttir í Önundarfirði 50 ára
Afmælisbarn Hugrúnu Kristinsdóttur þykir betra að vera fyrir aft-
an myndavélina, hér er hún í dýrindis sushiveislu.
Vellyktandi og
hestamennska
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Reykjavík Guðmundur Egill fæddist
14. júlí kl. 9.21. Hann vó 3.425 g og var
50 cm langur. Foreldrar hans eru Re-
bekka Guðmundsdóttir og Ómar Óm-
arsson.
Nýir borgarar
Reyðarfjörður Eron Gauti fæddist 20.
apríl kl. 19.08. Hann vó 3.860 g og var
52 cm langur. Foreldrar hans eru Alma
Sigurbjörnsdóttir og Arnar Már Ei-
ríksson.
B
roddi fæddist í Reykja-
vík 19.10. 1952, ólst
fyrst upp á Marargötu
7 en flutti síðan með
fjölskyldunni í Sporða-
grunn þar til hann hleypti heimdrag-
anum.
Broddi var sjö ára í Laugarnes-
skóla, síðan í Laugalækjarskóla,
lauk landsprófi í Vonarstrætinu,
lauk stúdentsprófi frá MH 1972,
lauk BA-prófi í sagnfræði frá HÍ og
stundaði þar framhaldsnám í sagn-
fræði og lauk prófum til MA-prófs.
Var hjá hernum og skar hvali
Broddi var í sveit hjá frændfóli
sínu á Silfrastöðum í Skagafirði frá
sex ára aldri og fram yfir fermingu.
Hann starfaði síðan nokkur sumur
hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur í
Fossvogi, var síðan handlangari í
byggingarvinnu og kom þá að bygg-
Broddi Broddason, aðstoðarfréttastjóri á RÚV – 60 ára
Rósir og blómarósir Broddi með dætrum sínum, Laufeyju og Hallveigu.
Skýr og skemmtilegur
Í sveppatínslu Broddi tínir furusveppi með dóttursyninum, Magnúsi.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is