Morgunblaðið - 17.10.2012, Qupperneq 27
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2012
Ertu þreytt
á að vera
þreytt?
Nánar á heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum
ingu þriggja grunnskóla í borginni,
vann á Keflavíkurflugvelli um skeið
og var við hvalskurð í Hvalstöðinni í
Hvalfirði, ásamt Þorvaldi Friðriks-
syni fréttamanni, Ingvari Rögn-
valdssyni aðstoðarríkisskattstjóra
og fleiri góðum drengjum.
Broddi kenndi við Tækniskóla Ís-
lands í einn vetur að námi loknu,
kenndi um skeið við MH og við MR
1978-86. Hann stundaði þáttagerð
við ríkisútvarpið, var þar síðan við
sumarafleysingu sem þulur 1986 en
hóf störf við fréttastofu ríkis-
útvarpsins í ársbyrjun 1987 og hefur
starfað þar síðan.
Broddi sat í ritstjórn Benevent-
um, skólablaðs MH, sat í ritstjórn
Hasablaðsins, málgagns sögunema
við HÍ, sat í samninganefnd Félags
fréttamanna og var formaður þess
um skeið.
Rjúpur, sveppir, gæsir, ber
Spurður um áhugamál segist
Broddi aldrei hafa verið neinn dellu-
karl á neinu sviði: „Ég hef aldrei
verið heltekinn af einhverju tilteknu
sporti. Ég get hins vegar ekki neitað
því að ég hef átt byssu í fjörutíu ár
og fer á rjúpnaveiðar og gæsaveiðar.
Ég veiði alltaf rjúpur í jólamatinn og
verka þetta svo allt sjálfur, hamfletti
rjúpurnar og reyti gæsirnar.
Svo hef ég veitt svolítið á stöng en
aldrei af neinni áfergju. Ég er hins
vegar ekki maður sem sleppi fiski
eftir að ég hef veitt hann. Það er
svona svipað því og að tína tvo lítra
af bláberjum og skvetta síðan úr föt-
unni. Ó nei – ekki ég.
Reyndar á ég það til að tína ber,
ekki síst hrútaber. Þau eru ekki hvar
sem er en mikið lostæti og fín í sultu.
Svo hef ég stundum tínt sveppi,
svo þú sérð að ég lifi töluvert á land-
inu og hef gaman af.
Svo hafa náttúrlega barnabörnin
verið að koma í heiminn hvert á fæt-
ur öðru, en þau eru auðvitað aðal-
gleðigjafinn hjá afa gamla.
Fjölskylda
Eiginkona Brodda er Björg Ell-
ingsen, f. 16.4. 1953, stjórnarráðs-
fulltrúi í menntamálaráðuneytinu.
Hún er dóttir Óthars Ellingsen, for-
stjóra í Reykjavík, og Sigríðar Ell-
ingsen húsfreyju.
Dætur Brodda og Bjargar eru
Hallveig, f. 24.3. 1975, hjúkr-
unarfræðingur í Kanada. Maður
hennar er Daniel Drader verkfræð-
ingur og eiga þau tvo syni; Laufey, f.
19.6. 1982, kennari í Reykjavík.
Maður hennar er Ingvar Ari Ingv-
arsson flugmaður og eiga þau tvö
börn.
Systkini Brodda: Guðrún, f. 1941,
hjúkrunarfræðingur í Borgarnesi og
síðar í Kópavogi; Þorbjörn, f. 1943,
prófessor við HÍ; Þorsteinn, f. 1948,
d. 2009, kennari, lengst af á Kjal-
arnesi; Ingibjörg, f. 1950, sálfræð-
ingur og deildarsérfræðingur í vel-
ferðarráðuneytinu; Soffía Sverris-
dóttir, f. 1959, geislafræðingur á
Húsavík.
Foreldrar Brodda voru dr. Broddi
Jóhannesson, f. 21.4. 1916, d. 10.9.
1994, rektor Kennaraháskóla Ís-
lands, og Guðrún Þorbjarnardóttir,
f. 10.1. 1915, d. 5.6. 1959, húsfreyja.
Seinni og eftirlifandi kona dr.
Brodda er Friðrika Gestsdóttir, f.
13.7. 1927, BA og kennari.
Úr frændgarði Brodda Broddasonar
Broddi
Broddason
Árndís Pétursdóttir Eggerz
húsfr. í Vatnsfirði
Páll Ólafsson
alþm. og prófastur í Vatnsfirði
Guðrún Pálsdóttir
húsfr. á Bíldudal
Þorbjörn Þórðarson
héraðslæknir á Bíldudal
Guðrún Þorbjarnardóttir
húsfr. í Rvík
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfr. á Hálsi
Þórður Guðmundsson
hreppstj. og útvegsb. á Hálsi í Kjós
af Fremri-Hálsaætt þeirra Styrmis Gun-
narssonar, Össurar Skarphéðinssonar,
Marðar Árnasonar og Þráins Bertelssonar
Sæunn Dýrleif Árnadóttir
húsfr. í Goðdölum
Jóhann Lárus Jónsson
b. í Goðdölum
Ingibjörg Jóhannsd
kennari og húsfr. á Uppsölum
Jóhannes Þorsteinsson
kennari og b. á Uppsölum í Blönduhlíð
Broddi Jóhannesson
rektor KHÍ
Guðrún Jóhannesdóttir
húsfr. í Hvammkoti
Þorsteinn Lárusson
b. í Hvammkoti
Kristín
Þorbjarnard.
húsfr. í Rvík
Þórður Þorbjarnarson
forstjóri
Þórður Þ.
Þorbjarnarson
borgarverkfræðingur
Þórður Ingvi Guðmunds
sendiráðunautur
Sigurður Guðmunds
fyrrv. landlæknir
Dóttursynir Broddi með Magnúsi
Þór og Frey.
Frímann Bjarnason Arn-grímsson fæddist að Sörla-tungu i Hörgárdal 17.10.
1855, sonur Bjarna Arngrímssonar,
bónda á Vöglum á Þelamörk, og
Helgu Guðrúnar Jónsdóttur frá
Krakavöllum.
Frímann ólst upp í Fljótum, var
síðan hjá föður sínum að Vöglum en
fór vestur um haf 1874, lauk þar
kennaraprófum, tók háskólapróf í
tölvísi og náttúruvísindum við há-
skólann í Toronto 1884 og lauk prófi
í náttúruvísindum og stærðfræði við
Manitoba-háskóla 1885. Hann mun
vera fyrstur Íslendinga til að taka
háskólapróf í Kanada. Frímann
stofnaði og ritstýrði Heimskringlu,
hafði umsjón með íslenskum inn-
flytjendum i Kanada og stundaði
landkönnun fyrir Kanadastjórn.
Hann stundaði kennslu og verk-
fræðistörf hjá General Electric Co í
Bandaríkjunum 1888-94, hélt til
Kaupmannahafnar og þaðan til
Reykjavíkur 1894. Þar talaði hann
mjög fyrir rafvæðingu Reykjavíkur
og setti fram tilboð frá General
Electric í þeim efnum upp á 2500
gulldollara. Því var auðvitað hafnað
af bæjarstjórn. Hann fór þá til Ed-
inborgar en næsta ár kom hann með
tvö rafmagnstilboð frá breskum fyr-
irtækjum sem einnig var hafnað.
Hann dvaldi síðan í París til 1914 en
flutti þá til Akureyrar og átti þar
heima til dauðadags.
Frímann var nokkuð sérvitur en
ákaflega mælskur og vel gefinn
maður sem augljóslega barðist fyrir
rafvæðingu Reykjavíkur, mun frem-
ur af hugsjón en eigin ábatavon.
Hann lagði umtalsverða vinnu í að fá
Reykvíkinga til að hugsa um virkj-
anir og rafvæðingu og hafði án efa
mikil áhrif á hugsandi menn í þá
veru hér á landi og einkum í Reykja-
vík. Hann er því merkur brautryðj-
andi sem vakti fyrstur manna tíma-
bæra umræðu um virkjanir og
rafvæðingu hér á landi. Það á vissu-
lega við um Frímann sem Davíð
Stefánsson segir í kvæðinu um Kon-
una sem kyndir ofninn minn, að „Fá-
ir njóta eldanna, sem fyrstir kveikja
þá“. Frímann lést 6.11. 1936.
Merkir Íslendingar
Frímann B.
Arngrímsson
95 ára
Margrét Heiðdal
90 ára
Björn G. Jónsson
85 ára
Hulda Guðmundsdóttir
Ólafur Jóhannsson
80 ára
Jónína Helgadóttir
Sigvaldi Guðni Jónsson
75 ára
Barbara Jane
Sigurbjörnsson
Einar O. Valgeirsson
Helga Jónsdóttir
Inger Johanne Elíasson
Ingibjörg Einarsdóttir
María Kristín Einarsdóttir
Pétur Lárusson
70 ára
Elín Leósdóttir
Hákon Pétur Guðmundsson
Hildur H. Hereford
Davíðsdóttir
Ingibjörg G.
Benediktsdóttir
Sigurbjörg Lundholm
Þórarinn I. Ólafsson
60 ára
Eduardas Trainys
Elín Fanney
Guðmundsdóttir
Guðný Sveinbjörnsdóttir
Guðrún Vilhelmína B.
Jensdóttir
Hermann Guðjónsson
Ingólfur Jónsson
Ingþór Indriðason
Jóhanna Halldórsdóttir
Jóna Sigurrós Jónsdóttir
Karl Líndal Baldursson
Tryggvi Jóhannsson
Þorbjörg Kristín Jónsdóttir
50 ára
Dóra Ingunn Vilhjálmsdóttir
Guðbjörg Arnardóttir
Hermann B. Sigursteinsson
Hrönn Jakobsdóttir
Hugrún Kristinsdóttir
Ingveldur Rut
Arnmundsdóttir
Jónína Arnardóttir
Matthildur S. Leifsdóttir
Ragnheiður Hilmarsdóttir
Selma Hauksdóttir
Sigríður Kristinsdóttir
Sigrún Heiðdís Sigfúsdóttir
Þórdís Helgadóttir
40 ára
Bára Kristín Þorgeirsdóttir
Daníel Óskarsson
Guðmundur Bjarni
Björgvinsson
Hjördís Guðmundsdóttir
Ingvar Kristján Bæringsson
Jose Vicente Garcia Agullo
Ketnakhorn Khochaphan
Pétur Heiðar Þórðarson
Rakel Daðadóttir
Rosemarie Barriga Jónsson
30 ára
Anna Katrín
Guðmundsdóttir
Arnar Daníel Jónsson
Brynjar Þór Magnússon
Fabiana Martins De A. Silva
Gísli Eyjólfsson
Ruth Agatha Nambi
Shi Jin
Sigyn Blöndal Kristinsdóttir
Soffía Ósk Guðmundsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Ragnar lauk MSc.-
prófi í hugbúnaðarverk-
fræði frá HÍ og starfar hjá
Green Qloud.
Maki: Inga Þórey Ósk-
arsdóttir, f. 1983, lög-
fræðingur í ráðuneyti.
Börn: Unnur Efemía, f.
2008, og Gísli Hrafn, f.
2010.
Foreldrar: Efemía Gísla-
dóttir, f. 1953, kennari í
Noregi, og Skúli Ragn-
arsson, f. 1954, tölv-
unarfræðingur í Noregi.
Ragnar
Skúlason
40 ára Katrín ólst upp í
Reykjavík, lauk stúdents-
prófi frá FÁ og er flug-
freyja og ferðaráðgjafi.
Maki: Helgi B. Sigurðs-
son, f. 1973, deildarstjóri
hjá Prentmet.
Sonur: Sólon, f. 2005.
Stjúpbörn: Sölvi, f. 1991;
Helgi, f. 1994, og Lísbet, f.
1997.
Foreldrar: Gunnar Þórð-
arson, f. 1945, tónlist-
armaður, og Björg Þor-
berg, f. 1946, húsfreyja.
Katrín Perla
Gunnarsdóttir
30 ára Ingi Karl ólst upp í
Mosfellssveit, flutti til Ak-
ureyrar 1997, lauk námi í
húsasmíði og er nú við
nám við VMA.
Börn: Telma Líf, f. 2003;
Sigríður Karen, f. 2005 og
Guðgeir Rúnar, f. 2011.
Foreldrar: Hafþór Krist-
jánsson, f. 1956, mat-
rreiðslumaður, búsettur í
Hafnarfirði, og Sigríður
Síta Pétursdóttir, f. 1955,
uppeldisfræðingur í Asker
í Noregi.
Ingi Karl
Sigríðarson