Morgunblaðið - 17.10.2012, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2012
Franski rithöfundurinn Mic-hel Houellebecq hefurverið svo umdeildur ogmikið á milli tannanna á
fólki, í senn fyrir efni fyrstu skáld-
sagna sinna og afstöðuna sem birt-
ist í yfirlýsingum hans um menn og
málefni, að það vill stundum gleym-
ast hvað hann er
snjall höfundur.
Fimmta skáld-
saga hans, Kortið
og landið, er
komin út í afar
vandaðri þýðingu
Friðriks Rafns-
sonar. Tök Hou-
ellebecqs á skáld-
söguforminu eru
slík í þessu verki að það kemur ekk-
ert á óvart að sagan hafi hlotið Con-
court-verðlaunin í Frakklandi árið
2010 og verið hlaðin lofi, og stjörn-
um.
Þetta er óvenjulegt og frumlegt
verk en þó afar aðgengilegt og
skemmtilegt. Sköpunarþörfin er
grunnþema í sögunni. Aðalpersón-
an, Jed Martin, verður einn kunn-
asti myndlistarmaður samtímans og
verk hans seljast fyrir svimandi
upphæðir. Ferli hans má skipta í
þrjú tímabil en í öllum tilvikum
vinnur Martin með einn miðil, fyrst
ljósmynd, þá málverk og loks mynd-
bandsverk. Í fyrri tveimur tilvik-
unum fær hann hugmynd sem hann
tæmir á stuttum tíma og snýr baki
við; fyrir vikið verða verkin enn
dýrmætari og eftirsóttari.
Martin er einfari og sama má
segja um aðra aðalpersónu sög-
unnar, rithöfund sem er alnafni höf-
undar bókarinnar, en Martin fær
Houellebecq til að skrifa formála í
sýningarskrá fyrir sig. Lýsing höf-
undarins á sjálfum sér er kostuleg í
alla staði, nöturleg og hlægileg í
senn, en í lýsingum á þessum tveim-
ur listamönnum birtist engu að síð-
ur athyglisverð greining á list-
sköpun í samtímanum, sem er svo
skörp og laus við kaldhæðni að það
vekur nánast furðu.
Í þriðja hlutanum breytist frá-
sögnin í glæpasögu, þegar frægur
rithöfundur er myrtur á grimmileg-
an hátt. Lögreglumenn eiga í vand-
ræðum með að leysa málið en Mart-
in kemur þeim til hjálpar.
Á sama tíma og aðalpersónurnar
fást við að skapa nýja heima og end-
urspegla veruleikann á metnaðar-
fullan hátt, lifa þær ófrjóu og ein-
manalegu lífi. Barn- og vinalausar,
og þeim persónum sem eru fullar af
lífskrafti, eins og rússnesk unnusta
myndlistarmannsins, er ýtt út af
sviðinu. Lýsingar á sambandi per-
sóna eru athyglisverðar, eins og
tengslum Martins við föður sinn,
einmana arkitekt sem í ljós kemur
að þráði að verða skapandi lista-
maður en endar líf sitt á kaldr-
analegan hátt á svissneskri sjálfs-
vígsstofnun.
Houellebecq kippir lesandanum
út úr glæpasögunni undir bókarlok
og lýkur henni á sinn hátt, eins og
hæfir betur verkinu; upplýsandi og
án tilfinningasemi. Morðinginn er
þó engu minni einfari en aðrir
„listamenn“ sögunnar.
Í frásögninni leikur höfundurinn
sér að því að lýsa yfirborði hlut-
anna, og lætur sögupersónur njóta
dýrra hönnunargripa, merkjavöru,
fágætra vína og gljáfægðra flug-
stöðva, en lífið sem þær lifa er
merkt einsemd og tilgangsleysi. Það
sýnir hann okkur á áhrifaríkan hátt.
Morgunblaðið/RAX
Höfundurinn Michel Houllebecq drakk kaffi á Mokka á dögunum. Í skáld-
sögunni Kortið og landið lýsir hann listheiminum á áhrifaríkan hátt.
Einsemdin er fylgifiskur
sköpunarinnar
Skáldsaga
Kortið og landið bbbbb
Eftir Michel Houellebecq.
Mál og menning, 2012. 365 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Dómari í Ísrael hefur úrskurðað að þúsundir skjala
Franz Kafka, m.a. handrit, bréf og óbirtar smásögur,
verði gerð aðgengileg almenningi. Einnig dagbækur
Max Brods, vinar Kafka, en hann flutti skjölin í ferða-
tösku frá Þýskalandi til Palestínu árið 1939.
Fyrir dauða sinn afhenti Kafka Brod öll handrit sín og
bað hann að brenna. Brod hlýddi ekki fyrirmælunum
heldur gaf út skáldsögur Kafka, Höllina, Réttarhöldin og Ameríku. Í nær
fjóra áratugi hefur verið tekist á um eignarhaldið á skjölunum. Lands-
bókasafn Ísraels mun nú skanna skjölin og verða þau aðgengileg á netinu.
Skjöl Kafka aðgengileg
Franz Kafka
Sérsmíðaðar baðlausnir
Speglar • Gler • Hert gler
Öryggisgler • Litað gler • Bílspeglar
Sandblástur • Álprófílar
Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Við leggjum metnað
okkar í að bjóða sérhæfðar
og vandaðar lausnir á
baðherbergi.
Við bjóðum upp á
sérsmíðaða spegla,
sturtuklefa og sturtu-skilrúm.
Þá erum við komnir með nýja
útgáfu af ljósaspeglunum
okkar vinsælu.
Á nýrri heimasíðu okkar
glerslipun.is er gott yfirlit yfir
það sem er í boði. Auk þess
bjóðum við alla velkomna
í Vatnagarða 12 þar sem
fagfólk veitir góða þjónustu
og allar þær upplýsingar sem
þarf.
Vatnagarðar 12 | Sími 588 5151 | Fax 588 5152 | glerslipun.isSTOFNAÐ 1922
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Lau 20/10 kl. 14:00 aukas Sun 11/11 kl. 14:00 19.sýn Sun 9/12 kl. 14:00
Lau 20/10 kl. 17:00 aukas Sun 11/11 kl. 17:00 20.sýn Sun 9/12 kl. 17:00
Sun 21/10 kl. 14:00 13.sýn Sun 18/11 kl. 14:00 21.sýn Lau 29/12 kl. 14:00
Sun 21/10 kl. 17:00 14.sýn Sun 18/11 kl. 17:00 22.sýn Lau 29/12 kl. 17:00
Sun 28/10 kl. 14:00 15.sýn Sun 25/11 kl. 14:00 Sun 30/12 kl. 14:00
Sun 28/10 kl. 17:00 16.sýn Sun 25/11 kl. 17:00 Sun 30/12 kl. 17:00
Sun 4/11 kl. 14:00 17.sýn Sun 2/12 kl. 14:00
Sun 4/11 kl. 17:00 18.sýn Sun 2/12 kl. 17:00
Sýningar í desember komnar í sölu. Tryggið ykkur sæti því miðarnir fljúga út!
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið)
Lau 20/10 kl. 20:30 16.sýn Sun 21/10 kl. 20:30 17.sýn Fim 25/10 kl. 20:30 18.sýn
Frábær skemmtun! Takmarkaður sýningafjöldi!
Tveggja þjónn (Stóra sviðið)
Fim 18/10 kl. 19:30 2.sýn Lau 3/11 kl. 19:30 8.sýn Lau 17/11 kl. 19:30 14.sýn
Fös 19/10 kl. 19:30 3.sýn Fim 8/11 kl. 19:30 9.sýn Fim 22/11 kl. 19:30 15.sýn
Fös 26/10 kl. 19:30 4.sýn Fös 9/11 kl. 19:30 10.sýn Fös 23/11 kl. 19:30 16.sýn
Lau 27/10 kl. 19:30 5.sýn Lau 10/11 kl. 19:30 11.sýn Lau 24/11 kl. 19:30 17.sýn
Fim 1/11 kl. 19:30 6.sýn Fim 15/11 kl. 19:30 12.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 18.sýn
Fös 2/11 kl. 19:30 7.sýn Fös 16/11 kl. 19:30 13.sýn Fös 30/11 kl. 19:30 19.sýn
Óborganlega skemmtilegur nýr gamanleikur!
Jónsmessunótt (Kassinn)
Fös 19/10 kl. 19:30 5.sýn Sun 28/10 kl. 19:30 9.sýn Fös 9/11 kl. 19:30 13.sýn
Lau 20/10 kl. 19:30 6.sýn Fös 2/11 kl. 19:30 10.sýn Lau 10/11 kl. 19:30 14.sýn
Sun 21/10 kl. 19:30 7.sýn Lau 3/11 kl. 19:30 11.sýn Fim 15/11 kl. 19:30 15.sýn
Lau 27/10 kl. 19:30 8.sýn Sun 4/11 kl. 19:30 12.sýn
Meinfyndið nýtt íslenskt verk, svört kómedía beint úr íslenskum samtíma.
Nýjustu fréttir (Kúlan )
Fim 18/10 kl. 20:00 Fim 25/10 kl. 20:00 Fim 1/11 kl. 18:00
Fös 19/10 kl. 22:00 Fös 26/10 kl. 20:00
Mið 24/10 kl. 20:00 Mið 31/10 kl. 18:00
Frumsýnt 18. október
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Bastarðar – forsalan hafin!
Bastarðar - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Lau 27/10 kl. 20:00 frums Fim 1/11 kl. 20:00 5.k Þri 6/11 kl. 20:00 9.k
Sun 28/10 kl. 20:00 2.k Fös 2/11 kl. 20:00 6.k Mið 7/11 kl. 20:00 10.k
Þri 30/10 kl. 20:00 3.k Lau 3/11 kl. 20:00 7.k Fim 8/11 kl. 20:00 11.k
Mið 31/10 kl. 20:00 4.k Sun 4/11 kl. 20:00 8.k
Ný stórsýning frá Vesturporti, loks á Íslandi. Aðeins sýnd í 3 vikur!
Á sama tíma að ári (Stóra sviðið og Hof)
Lau 20/10 kl. 19:00 8.k Lau 17/11 kl. 19:00 9.k Fös 30/11 kl. 20:00 aukas
Lau 20/10 kl. 22:00 aukas Lau 17/11 kl. 22:00 aukas Lau 1/12 kl. 19:00 11.k
Fim 1/11 kl. 20:00 í Hofi Fim 22/11 kl. 20:00 aukas Sun 2/12 kl. 20:00 aukas
Fös 2/11 kl. 20:00 í Hofi Fös 23/11 kl. 20:00 aukas
Lau 10/11 kl. 19:00 í Hofi Lau 24/11 kl. 19:00 10.k
Hjartnæmur og bráðfyndinn gamanleikur. Sýnt í Hofi 1, 2 og 10 nóvember
Gulleyjan (Stóra sviðið)
Lau 20/10 kl. 14:00 13.k Sun 18/11 kl. 14:00 15.k Sun 25/11 kl. 14:00 17.k
Sun 21/10 kl. 14:00 14.k Lau 24/11 kl. 14:00 16.k Sun 2/12 kl. 14:00
Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma
Rautt (Litla sviðið)
Fim 18/10 kl. 20:00 18.k Sun 21/10 kl. 20:00 21.k Fim 22/11 kl. 20:00
Fös 19/10 kl. 20:00 19.k Sun 18/11 kl. 20:00 22.k Sun 25/11 kl. 20:00
Lau 20/10 kl. 20:00 20.k Mið 21/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00
Margverðlaunað meistaraverk. Aukasýningar í nóvember.
Gullregn (Nýja sviðið)
Fim 1/11 kl. 20:00 frums Fim 15/11 kl. 20:00 8.k Lau 1/12 kl. 20:00 aukas
Fös 2/11 kl. 20:00 2.k Fös 16/11 kl. 20:00 aukas Fös 7/12 kl. 20:00 15.k
Lau 3/11 kl. 20:00 3.k Lau 17/11 kl. 20:00 9.k Lau 8/12 kl. 20:00 16.k
Sun 4/11 kl. 20:00 4.k Sun 18/11 kl. 20:00 10.k Fös 14/12 kl. 20:00 17.k
Fim 8/11 kl. 20:00 aukas Lau 24/11 kl. 20:00 11.k Lau 15/12 kl. 20:00 aukas
Fös 9/11 kl. 20:00 5.k Sun 25/11 kl. 20:00 12.k Sun 16/12 kl. 20:00 aukas
Lau 10/11 kl. 20:00 6.k Fim 29/11 kl. 20:00 13.k
Sun 11/11 kl. 20:00 7.k Fös 30/11 kl. 20:00 14.k
Mannlegt verk um íslenskt fólk og útlenskt tré
Saga Þjóðar (Litla sviðið)
Fös 26/10 kl. 20:00 1.k Lau 10/11 kl. 20:00 6.k Lau 24/11 kl. 20:00 11.k
Lau 27/10 kl. 20:00 2.k Sun 11/11 kl. 20:00 7.k Fim 29/11 kl. 20:00 12.k
Fös 2/11 kl. 20:00 3.k Fös 16/11 kl. 20:00 8.k Fös 30/11 kl. 20:00 13.k
Lau 3/11 kl. 20:00 4.k Lau 17/11 kl. 20:00 9.k Fim 6/12 kl. 20:00 14.k
Fös 9/11 kl. 20:00 5.k Fös 23/11 kl. 20:00 10.k Fös 7/12 kl. 20:00 15.k
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum.
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Sun 21/10 kl. 13:00 3.k Sun 21/10 kl. 15:30 aukas Sun 28/10 kl. 13:00 4.k
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
Íslenski Dansflokkurinn: Októberuppfærsla (Stóra sviðinu)
Sun 21/10 kl. 20:00 Sun 18/11 kl. 20:00 Sun 25/11 kl. 20:00
It is not a metaphor, Cameron Colbert og Hel haldi sínu, Jérôme Delbey