Morgunblaðið - 17.10.2012, Side 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2012
Með frumburði sínum,Ekvilibríum frá 2009,smellti Valgeir Sig-urðsson sér óforvandis
í framlínu íslenskra tónlistarmanna
sem flétta saman sígilda tónlist og
klassík. Platan var og með helstu
skífum ársins
hérlendis. Fram-
hald var á því á
tónlistinni sem
hann samdi fyrir
heimildarmynd-
ina Drauma-
landið og sömu-
leiðis á nýjustu skífu hans,
Architecture Of Loss.
Tónlistin á plötunni er samin fyrir
samnefnt ballettverk eftir Stephen
Petronio og auðvelt er að sjá fyrir
sér dramatíska líkamstjáningu
dansara þegar hlýtt er á plötuna.
Tengingin skiptir þó ekki stórmáli
því músíkin er ákaflega falleg og
stendur fyllilega undir sér án utan-
aðkomandi skírskotana.
Ólíkt áðurnefndum plötum inni-
heldur Architecture of Loss engar
söngraddir og heldur engan áslátt;
laglínurnar samanstanda mestan-
partinn af strengjasveimi, bættum
torkennilegu hliðarþruski og öðrum
stemningshljóðum. Hér er ekki að
finna jafnmörg grípandi lög og á
Ekvilibríum, og tónlistin er í það
heila talsvert tilraunakenndari.
Engu að síður gleymir platan mörg
lög sem ljúkast upp fyrir hlustand-
anum svo gott sem þegar í stað. Má í
því sambandi nefna „The Crumb-
ling“, „Between Monuments“ og
„Plainsong“. Þegar upp er staðið
virkar platan eiginlega betur sem
ein heild heldur en stök lög. Kon-
septið er það sterkt og framvindan
eftir því.
Valgeir nýtur aðstoðar félaga
sinna hjá Bedroom Community á
skífunni og afrakstur eftir því enda
kunnáttamenn miklir í öllum stöð-
um. Architecture of Loss er skotheld
viðbót fyrir þá sem hafa fylgt Val-
geiri eftir hingað til og eins þá sem
sækja í nýklassíska músík.
Heild Þegar upp er staðið virkar
platan betur sem ein heild heldur en
stök lög, að mati gagnrýnanda.
Dramatískt og
draumkennt
Valgeir Sigurðsson - Architecture
Of Loss bbbmn
Þriðja breiðskífa Valgeirs Sigurðssonar.
Auk Valgeirs leikur Nico Muhly á hjóm-
borð, Nadia Sirota á fiðlu auk Shahzad
Ismaily sem leggur hönd á margan plóg.
Bedroom Community gefur út. 2012.
JÓN AGNAR ÓLASON
TÓNLIST
Bandarísku gamanleikkonurnar
Tina Fey og Amy Poehler verða
kynnar á verðlaunahátíð Golden
Globe á næsta ári. Breski grínistinn
og leikarinn Ricky Gervais hefur
verið kynnir á síðustu þremur há-
tíðum og farið mikinn í gríni sínu á
kostnað frægðarmenna í Holly-
wood. Hátíðin á næsta ári verður sú
sjötugasta í röðinni, haldin 13. jan-
úar. Fey og Poehler hafa leikið
saman í gamanþáttunum Saturday
Night Live um árabil og átt góðu
gengi að fagna bæði í sjónvarpi og
kvikmyndum hin síðustu ár.
Fey og Poehler
taka við af Gervais
Tina Fey Amy Poehler
Tónleikaröð jazzklúbbsins Múlans
hefst að nýju í Norræna húsinu í
kvöld með tónleikum Tríós Sunnu
Gunnlaugs og hefjast þeir kl. 20.30.
Auk Sunnu, sem leikur á píanó,
skipa tríóið þeir Þorgrímur Jóns-
son á kontrabassa og Scott McLe-
more á trommur. Tríóið mun flytja
gamlar og nýjar tónsmíðar eftir
meðlimi þess, tónlist sem einkennist
af sterkum, norrænum keim þar
sem friðsæld og lýrík sveima yfir
vötnum, eins og því er lýst í dag-
skrá Múlans sem er fjölbreytt að
vanda. Á næstu vikum mun koma
fram Tríó Agnars Más Magn-
ússonar með franska bassaleik-
aranum Nicolas Moreaux, Björn
Thoroddsen gítarleikari, Scott
McLemore og hljómsveit, Kvartett
Sigurðar Flosasonar, Ragnheiður
Gröndal og hljómsveit, Kvartett
Jóns Páls Bjarnasonar, Jónsson &
More tríó og Edda Borg og hljóm-
sveit. Nánar á mulinn.is.
Djassveislan hefst í kvöld
Tríó Sunnu Gunn-
laugs á fyrstu haust-
tónleikum Múlans
Ferðalög Tríó Sunnu Gunnlaugs hefur farið víða á árinu og meðal annars
komið fram á hátíðum í Þýskalandi, Bandaríkjunum og Noregi.
- Þ.Þ., FRÉTTATÍMINN
- J.I., EYJAFRÉTTIR
-H.G., RÁS 2 - K.G., DV
- H.S.S., MORGUNBLAÐIÐ- H.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ
TRYGGÐU Þ
ÉR MIÐA Á
“LJÚFSÁR OG BRÁÐSKEMMTILEG.”
- FRÉTTABLAÐIÐ
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
AÐEINS SÝND MIÐVIKUDAG OG
FIMMTUD KL. 8
LOVE IS ALL YOU NEED KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
LOVE IS ALL YOU NEED LÚXUS KL. 5.30 - 8 L
FUGLABORGIN 3D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 6 L
TAKEN 2 KL. 5.40 - 8 - 10.10 16
TAKEN 2 LÚXUS KL. 10.30 16
DJÚPIÐ KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 10
DREDD 3D ÓTEXTUÐ KL. 10.20 16
ÁVAXTAKARFAN KL. 3.30 L
THE EXPENDABLES 2 KL. 8 16
ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 L
SEVEN PSYCHOPATHS KL. 8 - 10.10 16
BLÓÐHEFND KL. 6 16
DJÚPIÐ KL. 6 - 8 10
TAKEN 2 KL. 10 16
LED ZEPPELIN KL. 8 L
LOVE IS ALL YOU NEED KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
BLÓÐHEFND KL. 8 - 10.10 16
DJÚPIÐ KL. 5.50 - 8 - 10.15 10
THE DEEP ENSKUR TEXTI KL. 5.50 10
INTOUCHABLES KL. 5.30 - 10.30 L
NÁNAR Á MIÐI.IS
SEVEN PSYCHOPATHS Sýnd kl. 5:45 - 8 - 10:20
TAKEN 2 Sýnd kl. 8 - 10
FUGLABORGIN 3D Sýnd kl. 6
DJÚPIÐ Sýnd kl. 6 - 8 - 10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
HHHH
-Þ.Þ., Fréttatíminn
HHHHH
- J.I., Eyjafréttir.is
HHHHH
- H.H., Rás 2
HHHHH
- H.S.S., Morgunblaðið
HHHH
- H.V.A., Fréttablaðið
HHHH
- K.G., DV
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
10
16
16
L
www.gilbert.is