Morgunblaðið - 17.10.2012, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2012
Sublimi nefnist nýstofnaður ís-
lenskur sviðslistahópur sem mun
þann 24. október nk. frumsýna
verkið Hyldýpi á sviðslistahátíðinni
Junge Hunde í Árósum. Hyldýpi er
fyrsta verk Sublimi en hópurinn
mun frumsýna annað verk í Borg-
arleikhúsinu í janúar á næsta ári,
Stundarbrot, sem fjallar um tím-
ann. Ragnheiður Harpa Leifsdóttir
samdi Hyldýpi og naut við það að-
stoðar Leifs Þórs Þorvaldssonar.
Hún kemur fram í verkinu með Al-
berti Finnbogasyni og Þórði Her-
mannssyni úr hljómsveitinni The
Heavy Experience, en Ragnheiður,
Leifur, Albert og Þórður skipa Sub-
limi.
Ragnheiður segir að hópurinn
muni fá til liðs við sig ýmsa lista-
menn í sýningum á Hyldýpi og því
verði engar tvær sýningar eins. Úti
í Árósum verði það erlendur söngv-
ari og óbóleikari. „Þessi sýning er í
rauninni hugleiðingar um hyldýpið,
svolítið eins og sjónrænt ljóð og að
mörgu leyti byggð upp eins og dag-
skrá,“ segir Ragnheiður. Hún hafi
sótt innblástur til ömmu sinnar,
Guðrúnar Ásmundsdóttur leik-
konu, í ljóðakvöld sem hún haldi
með vinum og vandamönnum. Á
þeim eru flutt ljóð, sögur sagðar og
tónlist leikin. „Þetta er voða mikið
túlkun á hyldýpinu; hyldýpinu sem
er þessi óvissa, þetta óræða, kaosið
og myrkrið en um leið sköpunar-
krafturinn. Svona svarthol í himin-
geimnum en á sama tíma dýpi sjáv-
ar,“ segir Ragnheiður.
Útskriftarverkefni hennar við
Fræði og framkvæmd árið 2011 var
verkið Dagskrá um eldingar og var
það sýnt á leiklistarhátíðinni Lókal.
Það vakti athygli erlendra hátíða-
haldara sem báðu hana að semja
nýtt verk og úr varð Hyldýpi. Í nóv-
ember verður verkið flutt á sviðs-
listahátíðinni Baltic Circle í Hels-
inki og hér á landi í desember, í
Gamla bíói, og í janúar á Akureyri.
helgisnaer@mbl.is
Breytilegt Úr verki Sublimi, Hyldýpi, sem frumflutt verður í Árósum.
Óvissa, óreiða,
myrkur og sköpun
Verkið Hyldýpi frumsýnt í Árósum
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
„Reykjavik Calling“ var yfirskrift
menningarhátíðar Iceland Naturally í
Seattle í liðinni viku. Reykjavík og
Seattle hafa verið systurborgir frá
árinu 1986 og jarðvegurinn er frjór,
því í Seattle er þriðja fjölmennasta Ís-
lendingasamfélagið í Bandaríkjunum.
Dansgólfið troðið
Hápunkturinn var tónleikar á
Neumos sem opnir voru almenningi.
Þar tróðu upp Ásgeir Trausti, Sudden
Weather Change og Apparat Organ
quartet. Mikil stemning var í húsinu
og dansgólfið troðið. Redwood Plan
flutti lag við texta rithöfundarins
Sjóns, en það liður í samstarfi syst-
urborganna var að stefna saman höf-
undum og hljómsveitum yfir hafið.
Rithöfundurinn Ryan Boudinot vann
texta fyrir Apparat Organ quartet,
sem fluttur var með tilþrifum af Herði
Bragasyni. Ryan stóð á jaðri sviðsins
og skrifaði á miða, sem Hörður las af
og át ýmist miðana eða kastaði þeim
eins og karamellum út í salinn.
Flestir vildu íslenskan mat
Verðlaunakokkurinn Hákon Már
Örvarsson var í samstarfi við Ethan
Stowell þrjú kvöld um íslenskan mat-
seðil á veitingastaðnum Staple &
Fancy í Ballard-hverfinu. Hráefnið
var frá Íslandi og ekki bar á öðru en
gestum félli bragðið, húsfyllir tvisvar á
kvöldi og pöntuðu um 80% gesta af ís-
lenska matseðlinum. Smáréttir, fiskur
og lambakjöt, ásamt kokteilnum
Smoking Bay, sem nefndur er eftir
systurborginni Reykjavík.
Þá var opnuð sýningin „Frá Íslend-
ingasögum til skáldsagna“ í Northern
Heritage Museum, þar sem rithöf-
undar lýsa því hvert þeir sækja inn-
blástur í íslenskan sagnaarf í víðustu
merkingu þess orðs. Kristinn Ingvars-
son tók portrett af höfundunum og
undirritaður vann textann úr viðtölum
við 23 íslenska höfunda.
Hörður gæddi sér á
lagatexta frá Seattle
Tónleikar, matseðill og bókmenntir í systurborginni Seattle
Morgunblaðið/Pétur Blöndal
Apparat Stemningin var þétt í salnum þegar Apparat tróð upp.
Rokkarar Meðlimir Sudden Weather Change baksviðs eftir tónleikana.
-S.G, FRÉTTABLAÐIÐ
Með íslensku tali
Liam Neeson er
mættur aftur!
Tvöfalt meiri
spenna!
Stórkostleg!
Besta löggumynd í mörg ár
Newsweek
Ein besta mynd ársins!
- Boxoffice Magazine
100/100
„Besta mynd
Jake Gyllenhaal
á ferlinum.“
-R.Ebert Chicago Sun-Times
16 16
L
16 1616
END OF WATCH KL. 5:40 - 8 - 10:20 2D
TAKEN 2 KL. 5:50 - 8 - 10:10 2D
LOOPER KL. 5:30 - 8 - 10:30 2D
LAWLESS KL. 8 2D
SAVAGES KL. 10:30 2D
BRAVE M/ísl. tali KL. 5:40 2D
END OF WATCH KL. 5:40 - 8 - 10:20 2D
END OF WATCH LUXUS VIP KL. 5:40 - 8 - 10:20 2D
LOOPER KL. 5:30 - 8 - 10:30 2D
SAVAGES KL. 8 - 10:40 2D
LAWLESS KL. 10 2D
THE CAMPAIGN KL. 6 - 8 2D
THE BOURNE LEGACY KL. 8 - 10:40 2D
STEP UP REVOLUTION KL. 5:50 2D
BRAVE M/ísl. tali KL. 5:50 2D
END OF WATCH KL. 10 2D
TAKEN 2 KL. 8 2D
STEP UP REVOLUTION KL. 8 2D
THE RAVEN KL. 10:10 2D END OF WATCH KL. 8 2D
LOOPER KL. 10:20 2D
FROST KL. 8 2D
THE BABYMAKERS KL. 10:20 2D
END OF WATCH KL. 5:40 - 8:20 - 10:40 2D
LOOPER KL. 8 - 10:30 2D
LAWLESS KL. 8 - 10:30 2D
LEITIN AÐ NEMÓ M/ísl. tali KL. 5:50 3D
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
ÁLFABAKKA EGILSHÖLL
7
16
VIP
16
12
16
7
16
16
L
12
16
16
L
16
16
14
16
16
16
16
16
L
16
16
16
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
12
Tveir dagar eftir
í Egilshöll
L’Elisir d’Amore (Ástardrykkurinn) Ópera í beinni KL. 18