Morgunblaðið - 29.11.2012, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2012
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við lítum ekki bara á þettasem barnabók heldursem listaverkabók sembæði fullorðnir og börn
geta notið að lesa saman. Við vild-
um hafa myndirnar öðruvísi en
þær sem krakkar eru vanir að sjá
í teiknimyndum. Við viljum með
myndunum auka áhuga þeirra á
listum og teikningu,“ segir Sigrún
Elsa Smáradóttir en hún og sonur
hennar Smári Rúnar Róbertsson
sendu nýlega frá sér bókina Sagan
af huldufólkinu á eldfjallaeyjunni.
Sigrún sá um að semja söguna en
Smári gerði teikningarnar. „Þegar
Smári var barn hafði hann ekkert
sérlega gaman af ofurkrúttlegum
barnabókum, þær höfðuðu ekki til
hans. Myndirnar í bókinni bera
þess merki, þær eru sumar dökk-
ar og kynngimagnaðar,“ segir Sig-
rún og bætir við að þau Smári hafi
verið nýfarin af stað með vinnuna
við bókina í fyrra þegar hann
flutti til Amsterdam þar sem hann
er nú á öðru ári í listnámi. „Við
vorum í Skype-sambandi í tölv-
unni eftir að hann fór út og skipt-
umst á hugmyndum og unnum
þetta þannig saman.“
Séð frá sjónarhorni
huldufólksins
Í lok bókar er varpað fram
spurningunni um það hvort menn
og huldufólk geti lifað í sátt og
samlyndi. „Sagan er sögð út frá
sjónarhorni huldufólksins og
hvernig það sér mennina með
gagnrýnum augum. Þessi saga er
líka um það hvernig við mennirnir
umgöngumst náttúruna en huldu-
fólkið er í nánum tengslum við
náttúruna, talar við fjöllin, býr í
klettum og hólum og fleira í þeim
dúr. Þessi bók gefur því börnum
og fullorðnum tækifæri á að
spjalla um þessi málefni og skoða
út frá mörgum hliðum og örva
þannig gagnrýna hugsun. Ég stilli
þessu samt ekki þannig upp í bók-
inni að huldufólkið hafi rétt fyrir
sér og mennirnir rangt fyrir sér.
Huldufólkið fer líka fram úr sér í
reiðinni, það fer til dæmis út í fá-
ránlegar aðgerðir sem virka ekki.
Þegar við gerum eitthvað í reiði
skilar það sjaldnast árangri. Það
er ekki fyrr en huldufólkið setur
sig í spor mannfólksins og finnur
Ástir eldfjalla
og huldufólk
Þau mæðginin Sigrún Elsa og Smári sendu nýlega frá sér bók um samskipti
huldufólks og manna. Sigrún skrifaði textann en Smári sá um að myndskreyta.
Þetta er saga um umgengni við náttúruna og hvernig hægt er að takast á við það
þegar ólíkir menningarheimar mætast.
Fjölskylda Sigrún Elsa, Smári Rúnar,Ragnheiður Gígja og Guðrún Gígja.
Yesmine Olsson hefur sent frá sér
tvær framandi matreiðslubækur og
matreitt freistandi rétti á sjónvarps-
skjánum. Nú nýlega opnaði hún vef-
inn yesmine.is þar sem áhugasamir
geta nálgast uppskriftir og upplýs-
ingar um matreiðslunámskeið.
En það eru ekki eingöngu girnileg-
ar uppskriftir og myndir sem vekja
forvitni bragðlaukanna á heimasíð-
unni heldur líka upplýsingar um
dansarann Yesmine Olsson. Hún hef-
ur kennt Bollywood-dans í World
class síðastliðin tvö ár og er að finna
margar skemmtilegar dansmyndir á
vefnum.
Það er spurning hvort aðdáendur
geti beðið um nýjan matreiðsluþátt
þar sem Yesmine kennir matgæð-
ingum að dansa á sama tíma og þeir
elda. Þá eru slegnar tvær flugur í
einu höggi, hollur matur og hreyfing.
Vefsíðan www.yesmine.is
Morgunblaðið/Golli
Uppskriftir Yesmine Olsson deilir uppskriftum á nýrri heimasíðu.
Dansandi matgæðingur
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Engu skiptir hvaða tungumál fólk
talar eða hvaðan það er þegar dans
er annars vegar. Dansinn getur sam-
einað kynslóðir og fólk af ólíku þjóð-
erni og einmitt þetta er hugmyndin
á bak við fjölmenningarlegan við-
burð í Viðey laugardaginn næstkom-
andi, 1. desember. Þar mun sýning-
arflokkur frá Listdansskóla
Hafnarfjarðar kynna þrjá ólíka dans-
stíla; ballett, diskó og nútímadans.
Að því loknu verður skemmtileg
danssmiðja þar sem þátttakendur
læra einfaldan dans tengdan gleði
og friði. Ef veður leyfir verður deg-
inum lokið með dansi við friðarsúlu
Yoko Ono en dagskráin er sam-
starfsverkefni Viðeyjar, Borg-
arbókasafnsins, Listasafns Reykja-
víkur, Listdansskóla Hafnarfjarðar
og Kramhússins og unnin út frá frið-
arsúlu Yoko Ono og orðunum HUGSA
SÉR FRIÐ sem áletruð eru á 24
tungumálum á súluna sjálfa.
Umsjón með danssmiðjunni hefur
Eva Rós Guðmundsdóttir, dansari og
skólastjóri Listdansskóla Hafn-
arfjarðar. Sjá nánar á www.videy.is.
Endilega …
Listform Eva Rós Guðmundsdóttir, dansari og skólastjóri Listdansskóla Hfj.
… sameinumst í friðardansi
Bræðurnir Ómar og Óskar Guðjóns-
synir halda tónleika í Landnámssetr-
inu mánudaginn 3. desember kl. 21.
Tónleikarnir eru tvískiptir, fyrir hlé
leikur og syngur brasilíski söngvar-
inn og gítarleikarinn Ife Tolentino
ásamt Óskari Guðjónssyni saxófón-
leikara en eftir hlé flytur Ómar söng-
lög af nýja diskinum sínum Út í Geim
ásamt hljómsveit.
Sveitina skipa auk Ómars, Andri
Ólafsson á bassa, Hannes Helgason á
hljómborð, Helgi Svavar Helgason á
trommur og Óskar Guðjónsson á
saxófón. Miðaverð er 2.000 krónur
og er miðasala við innganginn.
Tónelskir bræður og Tolentino í Landnámssetrinu
Ómar og Óskar
á tónleikum
Bræður Ómar og Óskar Guðjónssynir
Svarið við spurningu dagsins
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is
JÓLAHLAÐBORÐ
Fyrir heimili og vinnustaði
Makrílkæfa með ristuðum kókos, döðlum og greipaldin
Grafin rauðspretta með piparrótarrjóma
Reyktur lax á blinis
Síldartvenna
Hreindýrabollur með bláberjagljáa
Reykt andabringa með rauðbeðu- og mandarínusalati
Ostahleifur í hátíðarbúningi
Hvít súkkulaði lime terta
4.500 kr. á mann miðað við 8 manns eða fleiri.
Fylgifiskar veisluþjónusta 533-1300.
Við erum byrjuð að taka pantanir fyrir jólahlaðborð.
Jólahlaðborðin byrja síðustu vikuna í nóvember.