Morgunblaðið - 29.11.2012, Síða 15

Morgunblaðið - 29.11.2012, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2012 Jákvæð þróun hefur orðið í miðborg Reykjavíkur frá árinu 2007 hvað varðar glæpatíðni. Þannig hefur inn- brotum á svæðinu fækkað um 41%, ofbeldisbrotum um 18% og eigna- spjöllum í miðborginni hefur einnig fækkað um 18%. Lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu segir þó enn hægt að gera betur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur undanfarið staðið fyrir funda- herferð með fulltrúum af öllum svæðum umdæmisins og sl. þriðju- dag var komið að því að ræða mál- efni miðborgarinnar. Miðborgin hefur þá sérstöðu að þangað sækja þúsundir manna í tengslum við skemmtanalífið um helgar. Gestirnir eru ekki alltaf til fyrirmyndar og hefur það áhrif á af- brotatölfræðina, að því er lögreglan bendir á. Á fundinum var farið ítarlega yfir þróun brota á miðborgarsvæðinu undanfarin ár, auk þess sem birtar voru niðurstöður úr netkönnun sem gerð var á reynslu íbúa svæðisins af lögreglu, öryggi og afbrotum. Í niðurstöðum könnunarinnar sést m.a. að 76% íbúa á miðborg- arsvæðinu eru ánægð með störf lög- reglunnar. Þrátt fyrir fækkun brota á svæðinu telur lögregla að ýmislegt megi betur fara. Á fundinum var m.a. nefnt ónæði sem fylgir nætur- lífinu. Færri innbrot í miðborginni  Ofbeldisbrotum og eignaspjöllum í miðborginni hefur fækkað um 18% frá 2007 samkvæmt nýju yfirliti lögreglunnar Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt 47 ára karlmann í fimm mán- aða fangelsi fyrir að flytja inn 120 grömm af kókaíni til landsins. Úr því hefði mátt framleiða 414 grömm miðað við hefðbundinn styrk- leika. Maðurinn kom hingað til lands frá Kaupmannahöfn í nóvember á sein- asta ári. Hann játaði brot sitt ský- laust en kvaðst ekki hafa vitað hverr- ar tegundar efnið var sem hann var að flytja inn. Í dómnum segir að það hafi ekki haft áhrif við ákvörðun refsingar. Ekki þótti ástæða til að skil- orðsbinda refs- inguna en gæslu- varðhald frá 14. til 18. nóvember var dregið frá. Þá var manninum gert að greiða rúmar 300 þúsund krónur í sakar- kostnað. Fimm mánuðir fyrir innflutning kókaíns Össur Skarphéðinsson utanríkis- ráðherra hefur ákveðið að Ísland verði meðflutningsríki ályktunar um að Palestína fái stöðu áheyrnarríkis hjá Sameinuðu þjóðunum. Haft er eftir ráðherranum í til- kynningu að með því sé lögð áhersla á þá stefnu sem mörkuð hafi verið af ríkisstjórninni um að Ísland verði í fararbroddi þeirra ríkja sem styðji baráttu Palestínumanna fyrir sjálf- stæði. Ákvörðunin sé rökrétt fram- hald af viðurkenningu Alþingis á fullveldi Palestínu fyrir tæpu ári. „Við styðjum ályktunina af fullum þunga en teljum jafnframt að Pal- estína eigi að fá sæti við borðið sem fullgilt aðildarríki að Sameinuðu þjóðunum,“ segir Össur. Ályktunin verður lögð fram til atkvæðagreiðslu á allsherjarþingi SÞ í dag. AFP Abbas Leiðtogi palestínsku heima- stjórnarinnar á allsherjarþinginu. Styður ályktun um Palestínu  Fái stöðu áheyrn- arríkis hjá SÞ Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær 26 ára síbrotamann í eins mán- aðar fangelsi fyrir að aka undir áhrifum vímuefna og vera með vímuefni í fórum sínum. Þetta var átjándi dómur mannsins frá árinu 2004, þar af eru átta vegna vímu- efna. Af afbrotaferli mannsins má nefna að hann hlaut tvo dóma hjá sama dómstól 27. júní síðast liðinn, annars vegar fyrir þjófnað og hins vegar fyrir nytjastuld og að aka án ökuréttinda. Þá var hann dæmdur 10. júlí í tíu mánaða fangelsi fyrir þjófnað og gripdeild, auk umferðarlagabrota. Verjandi mannsins fór fram á það að hluti sakarkostnaðar félli á rík- issjóð þar sem hann hefði verið í af- plánun við þingfestingu málsins og ekki verið færður fyrir dóminn af hálfu ákæruvaldsins. Dómurinn segir að ábyrgð á að maðurinn kom ekki fyrir dóminn við þingfestingu sé lögð á hann sjálfan, en honum var birt fyrirkall þann 19. október sl., og var honum því í lófa lagið að óska eftir flutningi í dóminn á þingfestingardegi. Hefur fengið 17 dóma frá árinu 2004

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.