Morgunblaðið - 29.11.2012, Síða 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2012
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta var auðvitað tryllt hugmynd
og mikil bjartsýni af okkar hálfu. Við
fundum það þegar við vorum komnir
af stað, því við lentum í hverju óveðr-
inu á fætur öðru. Við náðum samt
alltaf að brjóta okkur leið og komast
á leiðarenda,“ segir Jónas Sigurðs-
son um nýaflokna tónleikaferð sem
hann fór í um landið ásamt Ómari
Guðjónssyni, en þeir félagar keyrðu
hringinn á húsbíl með góðan aðstoð-
armann sér til halds og trausts.
Að sögn Jónasar léku þeir félagar
fjórtán tónleika á jafnmörgum dög-
um þar sem þeir kynntu nýútkomnar
breiðskífur sínar, annars vegar Út í
geim sem Ómar sendi frá sér og Þar
sem himin ber við haf sem Jónas
sendi frá sér. „Þetta var svolítið eins
og að vera á sjónum, því það var ekki
tími til neins nema keyra, bera inn
græjur, spila, bera út græjur og sofa.
Það var rosalega gaman að fara á
alla þessa litlu staði. Fólk mætti á
tónleikana þrátt fyrir vond veður og
mikinn snjó,“ segir Jónas og tekur
fram að það hafi vakið athygli hans
að mætingin jókst meðal bæjarbúa
eftir því sem staðirnir minnkuðu.
Á plötunni Þar sem himin ber við
haf eru ellefu frumsamin lög eftir
Jónas og fleiri höfunda, en lögin flyt-
ur Jónas ásamt Lúðrasveit Þorláks-
hafnar auk þess sem Tónar og trix,
tónlistarhópur eldri borgara í Þor-
lákshöfn, syngur með. Í seinasta
mánuði hélt Jónas þrenna útgáfu-
tónleika í reiðhöll Þorlákshafnar fyr-
ir fullu húsi og voru flytjendur á svið-
inu um sjötíu manns. Spurður hvort
ekki hafi verið áskorun að koma tón-
listinni til skila í mun einfaldari bún-
ingi í nýafstaðinni tónleikaferð svar-
ar Jónas því játandi. „Þetta er auð-
vitað allt annað konsept og maður
nálgast það sem slíkt,“ segir Jónas
og tekur fram að það sé vel inni í
myndinni að halda fleiri tónleika með
lúðrasveitinni til að fylgja plötunni
eftir. „Mér finnst platan alveg eiga
það inni. Þetta var svo fallegt verk-
efni og viðbrögð tónleikagesta svo
sterk. Tónlist er svo sterkt hreyfiafl
og þegar spilagleðin er jafnmikil og
þarna var er auðvelt að hrífa áheyr-
endur með sér,“ segir Jónas og bætir
við að hann reyni ávallt á tónleikum
sínum að búa til aðstæður þar sem
myndast getur sterk samkennd milli
flytjenda og tónleikagesta.
Vildi komast að kjarnanum
Aðspurður segist Jónas hafa verið
innblásinn af hafinu og náttúrunni
þegar hann samdi nýju plötuna sína.
„Umhverfi okkar Íslendinga er mjög
harðgert og ég spyr mig oft að því
hvernig fólk gat byggt þetta land á
öldum áður,“ segir Jónas og bætir
við: „Platan er spiritúalísk. Það er
ekki beint hægt að lesa út úr henni
sögur heldur frekar stemningu.“
Spurður hvernig hann semji tónlist
sína segir Jónas hana koma í gusum.
„Á þessari plötu ákvað ég að setja til
hliðar predikunarelementið sem ver-
ið hefur sterkt hjá mér, þótt það hafi
ekki tekist að öllu leyti. Þegar ég
sem lög sem eru meira predikandi þá
er takturinn allsráðandi. En á þess-
ari plötu var ég að vinna út frá
ákveðnum tilfinningum og leyfði öllu
að flæða,“ segir Jónas og tekur fram
að hvert lag fari í gegnum margar sí-
ur og mikla endurskoðun. „Ég gef
lögunum góðan tíma til að malla, líkt
og með góðan mat.“
Jónas hlaut sem kunnugt er Ís-
lensku tónlistarverðlaunin 2010 fyrir
lag sitt „Hamingjan er hér“ af plöt-
unni Allt er eitthvað auk þess sem
hann var tilnefndur í fleiri verð-
launaflokkum. Spurður hvort erfitt
hafi verið að fylgja þeirri velgengni
eftir svarar Jónas því neitandi.
„Mesta pressan kom innan frá og
sneri að því hvort mér tækist að
segja það sem mig langaði að segja.
Ef ég ætlaði að uppfylla væntingar
annarra gæti ég alveg eins hætt, því
þá deyr tónlistin. Á fyrri plötunum
mínum hef ég verið í orðaleikjum og
talað undir rós, en markmiðið núna
var að tala skýrar og komast að
kjarnanum. Einnig var það markmið
mitt að allir flytjendur plötunnar
kæmu vel út og fengju að njóta sín.
Mig langaði að vaxa sem bæði texta-
og lagasmiður. Og ég held að það
hafi tekist, því ég er ansi ánægður
með útkomuna.“
Predikun „Á þessari plötu ákvað ég að setja til hliðar predikunarelementið sem verið hefur sterkt hjá mér, þótt það
hafi ekki tekist að öllu leyti,“ segir Jónas Sigurðsson sem hér sést í miklum ham á útgáfutónleikum í Þorlákshöfn.
„Tryllt hugmynd“
Þar sem himininn ber við haf er þriðja breiðskífa Jónasar
Sigurðssonar Langaði að vaxa sem laga- og textasmiður
Söngkonan Jussanam da Silva gaf
fyrir skömmu út aðra breiðskífu
sína, Rio/Reykjavík og mun hún
ásamt hljómsveit sinni halda útgafu-
tónleika í Fríkirkjunni annað kvöld
kl. 21. Í hljómsveitinni eru Ásgeir
Ásgeirsson, Birgir Bragason, Agnar
Már Magnússon, Haukur Gröndal
og Matthías Hemstock. Auk þeirra
kemur fram slagverksleikarinn
Cheick Bangoura. Platan hefur m.a.
að geyma lög samin sérstaklega fyr-
ir Jussanam, eftir Ingva Þór Kor-
máksson, Svíann Harald Erici og
Bandaríkjamanninn Manny Cepeda.
Einnig eru á plötunni brasilísk
bossanovalög eftir Tom Jobim, lög
eftir Jón Múla Árnason og „Þú
komst við hjartað í mér“, sungið á
portúgölsku.
Jussanam og hljómsveit
fagna diski í Fríkirkjunni
Hæstánægð Jussanam með nýja diskinn, Rio/Reykjavík.
Þór Elís Pálsson,
myndlistar- og
kvikmyndagerð-
armaður, og
Ólafur Gíslason
listheimspek-
ingur taka þátt í
opnum samræð-
um um þá heim-
speki sem liggur
að baki verkum
myndlistar-
mannsins Jóhanns Eyfells, á sunnu-
daginn kl. 15 í Listasafni Reykja-
víkur, Hafnarhúsi. Spjallið er
haldið í tengslum við sýninguna
Hreyfing augnabliksins sem nú
stendur yfir í húsinu. „Eins og heiti
sýningarinnar felur í sér er henni
ætlað að kanna umbreytingarafl
tímans en sýningin hverfist um
Tausamfellu Jóhanns sem bylgjast
eftir endilöngum salnum. Öll lista-
verkin tengjast framvindu og
breytingum og endanleg ásýnd
listaverkanna er ófyrirsegjanleg,“
segir m.a. um sýninguna í tilkynn-
ingu. Frekari upplýsingar má finna
á listasafnreykjavikur.is.
Heimspekin
og Jóhann
Jóhann Eyfells
þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335
caruso.is · caruso@caruso.is
við Erum líka á facebook
Fjölbreyttur matseðill þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi
veitingastaðurinn
caruso kynnir
kósýkvöld með eyfa
4. árið í röð bjóðum við nú upp á hin geysivin-
sælu „Kósýkvöld með Eyfa“, þar sem hinn ástsæli
tónlistarmaður Eyjólfur Kristjánsson leikur og
syngur íslenskar og erlendar dægurperlur, meðan
matargestir njóta þriggja rétta ljúffengrar máltíðar
á hinni rómantísku og notalegu 3. hæð okkar.
Fimmtudagskvöldin 8., 15., 22. og 29. nóvember
Fimmtudagskvöldin 6., 13. og 20. desember
–– Meira fyrir lesendur
Í blaðinu verður fjallað um
þá fjölbreyttu flóru
sem í boði er fyrir þá
sem stefna á frekara nám
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Fyrir kl. 12, miðvikudaginn
19. desember
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Skólar & námskeið
Þann 4. janúar
kemur út glæsilegt
sérblað um skóla
og námskeið sem
mun fylgja
Morgunblaðinu
þann dag
SÉRBLAÐ