Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.11. 2012
HEIMURINN
SUÐUR-AFRÍKA
JÓHANNESARBORG suðurafríska
Biskupakirkjan skipaði Ellinuh Wamukoyu
frá Svasilandi biskup.Wamukoya er
fyrsta konan í Afríku til að verða biskup
í biskupakirkjunni. Enska biskupakirkjan
hafnaði í vikunni tillögu um að konur mættu
vígjast. Fyrsta konan var skipuð biskup í biskupakirkjunni árið
1989 og eru nú 37 konur biskupar í biskupakirkjunni.
BÚRMA
RANGOON Barack Obama
heimsótti Búrma fyrstur sitjandi
forseta Bandaríkjanna. Hann hitti
Aung San Suu Kyi, leiðtoga lýð-
ræðishreyfingarinnar í Búrma, sem
um árabil sat í stofufangelsi, og bar
lof á hana. Hann sagði að stjórn Búrma, sem hefur
opnað landið, hefði hafið sögulegt ferðalag.
GAZA
GAZABORG Ísraelsstjórn og palestínsku samtökin
Hamas, sem fara með völd á Gaza-svæðinu, féllust á
vopnahlé. Milligöngu um vopnahléð höfðu Egyptar með
stuðningi Bandaríkjamanna. Fimm Ísraelar og rúmlega
160 Palestínumenn féllu í átökum, sem stóðu í viku.
Hamas samþykkti að hætta að skjóta eldflaugum á
Ísrael og Ísraelar kváðust ætla að losa Gaza úr herkví.
KÓLUMBÍA
BOGOTA Kólumbísk stjórnvöld og forusta
skæruliðasamtakanna FARC settust að samninga-
borðinu í Havana. Eitt helsta baráttumál FARC frá
því að uppreisn samtakanna hófst fyrir um hálfri
öld var umbætur í jarðamálum. 52% býla eru á
landi í eigu 1,15% landeigenda. Einnig hafa bændur
hrakist af landi sínu vegna sóknar FARC. FARC
hefur sagst ætla að leggja niður vopn og á nú að
semja um landið.
Gullin dögun var stofnuð á ní-
unda áratug liðinnar aldar og
vakti fyrst athygli þegar deilan
um nafnið á Makedóníu kynti
undir þjóðernishyggju
Grikkja upp úr 1990. Flokk-
urinn gerði sér mat úr and-
stöðu við innflytjendur, sem
gróf um sig á Grikklandi þeg-
ar fólk fór að streyma þangað
frá Albaníu og Austur-Evrópu
eftir hrun járntjaldsins.
Málflutningur Gullinnar
dögunar fékk meiri hljóm-
grunn þegar misheppnuð
stefna Evrópusambands-
ins varð til þess að inn-
flytjendur frá Afríku,
Asíu og Mið-Aust-
urlöndum fóru að
safnast þar saman og
nýtur flokkurinn nú
rúmlega 10% fylgis.
Innflytjendur í Grikklandi eruuggandi. Þeir óttast ofbeldi ogútskúfun. Fulltrúar tuttugu
samfélaga innflytjenda frá Afríku
og Asíu sökuðu í vikunni íhalds-
stjórn Antonis Samaras um að
leiða hjá sér árásir á innflytjendur
sem hafa verið eignaðar nýnasista-
samtökunum Gullinni dögun.
Gullin dögun er vaxandi afl í
grískum stjórnmálum. Liðsmenn
samtakanna fara um einkennis-
klæddir, hóta innflytjendum og
ráðast á þá á götum úti og ryðjast
jafnvel inn á heimili. Er svo komið
að bandaríska utanríkisráðuneytið
hefur varað bandaríska ferðamenn
við því að fara til Grikklands ef
litaraft þeirra gæti orðið þess
valdandi að þeir yrðu teknir í mis-
gripum fyrir innflytjendur.
Öfgahreyfingin Gullin dögun er
rúmlega 20 ára, en hún hefur verið
bundin við jaðarinn þar til nú. Í
þingkosningunum árið 2009 fékk
flokkurinn 0,29% atkvæða. Sex ára
kreppa, þriggja ára árangurslaus
niðurskurður og aðhald og bruni
sparifjár ásamt viðvarandi atvinnu-
leysi – fjórði hver Grikki er at-
vinnulaus og rúmlega helmingur
ungs fólks – hefur hins vegar verið
vatn á myllu Gullinnar dögunar.
Flokkurinn fékk tæplega sjö pró-
senta fylgi í þingkosningunum í
sumar og 18 menn kjörna. Um
þessar mundir mælist flokkurinn
með helmingi meira fylgi í skoð-
anakönnunum.
Heilsaði með fasistakveðju
Stofnandi flokksins heitir Nikolaos
Mikhaloliakos. Hann sat í fangelsi
á áttunda áratugnum fyrir líkams-
árás og ólöglega eign skotvopna og
sprengiefnis. Í fangelsinu kynntist
hann liðsmönnum herforingja-
stjórnarinnar, sem var við völd á
Grikklandi frá 1967 til 1974. Þegar
hann var látinn laus hóf hann út-
gáfu tímarits þar sem hann lofsöng
Adolf Hitler og harmaði að Grikkir
skyldu ekki hafa veitt öxulveld-
unum lið í heimsstyrjöldinni síðari.
Þegar Mikhaloliakos náði kjöri í
borgarstjórnarkosningum í Aþenu
2010 heilsaði hann með fasista-
kveðju þegar hann kom til starfa.
Gullin dögun hefur haslað sér
völl þar sem tómarúm skapast í
kreppunni. Samtökin gefa mat –
aðeins Grikkjum. Liðsmenn þeirra
gefa einnig blóð – aðeins Grikkj-
um. Nú er komið nýtt slagorð: At-
vinna aðeins handa Grikkjum. Fé-
lagar í Gullinni dögun fara á milli
vinnustaða, telja útlendingana sem
vinna þar og birta niðurstöðuna.
Síðan hvetja þeir gríska atvinnu-
rekendur til að ráða Grikki í stað-
inn.
Fullyrt er að Gullin dögun hafi
umtalsverð ítök í grísku lögregl-
unni. Fram hefur komið að í hverf-
um Aþenu þar sem lögreglumenn
eru fjölmennir hafi Gullin dögun
fengið 19-24% atkvæða. Elias
Panagiotaros, þingmaður Gullinnar
dögunar, fullyrðir að 50-60% lög-
reglunnar séu á bandi hreyfing-
arinnar.
Samtökin sjá um „öryggisþjón-
ustu“ í samráði við stjórnvöld,
skjóta innflytjendum skelk í
bringu, vernda grískar verslanir og
sjá um nágrannavakt.
Gríska millistéttin hef-
ur flúið miðborg Aþenu
og innflytjendur hafa lagt
undir sig autt húsnæði.
Blaða- maðurinn
Maria
Marg-
aronis
segir í
grein, sem
birtist í The Gu-
ardian í október,
að altalað sé að leita eigi til Gull-
inar dögunar til að koma hús-
tökumönnum út úr íbúð. Engu
skili að leita til lögregla, en hún sé
vís með að gefa upp síma hreyf-
ingarinnar.
Samaris forsætisráðherra sagði í
kosningabaráttunni í vor að nú
stæði yfir „óvopnuð innrás“ í
Grikkland og átti við innflytjendur.
Hóf hann aðgerð til að rýma mið-
borgirnar. Slíkar yfirlýsingar og
aðgerðir hafa ekki aukið öryggis-
tilfinningu innflytjenda í landinu.
Nú gagnrýnir Samaris hins vegar
Gullna dögun. Í ræðu í september
líkti hann ástandinu í Grikklandi
við Weimar-lýðveldið í Þýskalandi
á fjórða áratug 20. aldar. Þá skap-
aðist ástand sem leiddi til valda-
töku Hitlers. Samaris sagði fyrir
mánuði að berjast yrði gegn „öfg-
um og lýðskrumi“ sem væru aðför
að stoðum þjóðfélagsins. „Engin
efnahagsáætlun getur tekist ef
samfélagið hrynur,“ sagði hann.
Öfgahreyf-
ingu vex
ásmegin
ÖFGAHREYFINGIN GULLIN DÖGUN HEFUR MEÐ ÁRÓÐRI
GEGN ÚTLENDINGUM VALDIÐ ÓLGU Í GRÍSKU SAMFÉLAGI.
FORSÆTISRÁÐHERRA GRIKKLANDS SEGIR ÁSTANDIÐ Í
LANDINU EINS OG Í ÞÝSKALANDI FYRIR 80 ÁRUM.
GULLIN DÖGUN
Nikolaos
Mikhaloliakos,
stofnandi Gull-
innar dögunar.
Félagar í Gullinni dögun afhenda mat gegn framvísun skilríkja til sönnunar því að viðtakandinn sé Grikki.
AFP
* Grikkland tilheyrir Grikkjum. Maður verður ekkiGrikki, heldur fæðist Grikki.Elias Panagiotaros, þingmaður Gullinnar dögunar.AlþjóðamálKARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is