Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Page 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Page 28
M ér hefur alltaf fundist matur rosalega góður og mismunandi og ólíkt bragð hefur vakið áhuga minn frá því ég var lítil. Seinna hef ég svo nýtt tækifærið þegar ég er að ferðast og próf- að nýja hluti. Ég laðast líka að ákveðinni menningu þar sem maturinn er sterkari og litríkari en við eigum að venj- ast og það tengist því örugglega að ég er ættleidd. Ég sótti miklu frekar í framandi, bragðmikinn og sterkan mat en sænska matinn þegar ég var ung,“ segir Yesmine þegar hún er spurð út í hvaðan áhuginn á eldamennsku komi. Yesmine deilir með lesendum sinni útgáfu af indverskum smjörkjúklingi sem hún eldar án þess að nota smjör. „Ég reyni að elda léttari rétti og sleppi því smjörinu, nota minni rjóma eða gríska jógúrt í staðinn og döðlur í stað sykurs. Það er snjallræði ef fólk vill fríska upp á mat- argerðina,“ segir Yesmine. Að nota ferskt hráefni er ekki aðeins eitthvað sem Yesmine leggur mikla áherslu á heldur er það líka mikið áhugamál hjá henni. „Það er svo mikill munur að kaupa tilbúna krukku og gera sósur frá grunni sjálfur. Það fer auðvitað mikill tími í þetta og næsta verk- efni hjá mér núna er að einfalda uppskriftirnar mínar mun meira.“ Smjörkjúklinginn er einfalt að elda og skiptir það Yesm- ine miklu máli að fólk hafi gaman af og geti eldað eftir uppskriftum hennar. „Mér finnst mjög gaman þegar fólk er að fylgjast með mér elda í sjónvarpi en ég hef meira gaman af því þegar fólk þorir að prófa sig áfram og elda uppskriftirnar mínar.“ Það er mikið um að vera hjá Yesmine þessa dagana. Þriðja þáttaröðin af Framandi og freistandi fer í loftið í desember, fyrir jólin verður hægt að kaupa hjá henni gjafabréf á námskeið í indverskri matargerð, hún er að sjálfsögðu alltaf dansandi líka og nú um helgina opnar hún vefinn yesmine.is. FERSKT HRÁEFNI ER ÁHUGAMÁLIÐ Gerir sósurnar frá grunni YESMINE OLSSON ER FLESTUM LANDSMÖNNUM KUNN FYRIR AÐ GALDRA FRAM GIRNILEGA RÉTTI Í SJÓNVARPSÞÁTTUNUM FRAMANDI OG FREISTANDI. Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is Yesmine Olsson hefur frá barnsaldri sótt í bragðmikinn mat. Hér er hún í eldhúsinu heima hjá sér ásamt dóttur sinni Ronju. *Matur og drykkir Spánverjar ráða ríkjum í Laxdalshúsi á Akureyri og reiða fram dýrindis saltfisk og aðrar krásir »32 500 g beinlaus kjúklingalæri 1½ msk kókosolía eða Isio-4 1 stór laukur 3-4 hvítlauksgeirar 2 cm engiferrót 4-5 mjúkar döðlur, fínsaxaðar og steinhreinsaðar 1 heill rauður chili, fínsaxaður 1 dós hakkaðir tómatar (400 g) 1 msk tómatmauk (tómatpuré) 2 lárviðarlauf 3 grænir kardimommubelgir 3 negulnaglar ½ tsk túrmerik ½ tsk Amchur-mangóduft eða safi úr ½ límónu ½ tsk chiliduft, eða eftir smekk ½ tsk kanill safi úr ½ límónu 1 dl rjómi eða grísk jógúrt ½ tsk svartur pipar ½-1 tsk salt eða eftir smekk ½ tsk garam masala 1 tsk grikkjasmáralauf, kasori meti, einnig kölluð fenugreek. Einnig má nota fínsaxað kóríander í staðinn (grikkjasmáralaufin og mangóduftið fást í asískum verslunum) Saxaðu lauk, döðlur og chili fínt. Settu hvítlauk og engi- fer í matvinnsluvél og blandaðu í mjúkt mauk eða saxaðu eins smátt og þú getur. Steiktu laukinn í olíu þar til hann mýkist og bættu þá við hvítlauks- og engifermauki, rauð- um chili, lárviðarlaufum, negulnöglum og kardimommum. Hrærðu andartak og bættu kjúklingnum saman við, brún- aðu á öllum hliðum. Hrærðu saman við hökkuðum tóm- ötum, tómatmauki, túrmeriki, chilidufti, Amchur- mangódufti, kanil og límónusafa. Hrærðu reglulega í og láttu krauma þar til kjúklingurinn er að verða tilbúinn. Bættu þá rjómanum eða grísku jógúrtinni saman við og láttu malla við mjög lágan hita í 10 mínútur til viðbótar. Gættu þess að kjúklingurinn verði ekki þurr, heldur bara gegneldaður. Stráðu grikkjasmáralaufunum yfir ásamt svörtum pipar, salti og garam masala og berðu svo fram. Gott með basmati-grjónum, naan-brauði og salati. Indverskur smjörkjúklingur án smjörs Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.