Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Síða 46
skrifstofur Millenium voru, tímaritsins sem
Blomkvist vann fyrir.“
Fjórar stórmyndir á einu sumri
Oftast nær snýst kvikmyndatengd ferðaþjón-
usta um tökustaðina. „Ef við tökum Dettifoss
sem dæmi, þá var upphafsatriðið í Promet-
heus eftir Ridley Scott, sem er með alþekkt-
ari leikstjórum, tekið upp þar,“ segir Þór og
vísar til nýjasta innleggsins í Alien-myndaröð-
ina, en því er fleygt í netheimum að þetta
verði þríleikur. „Þessi upphafssena er sterkt
tákn í myndinni og Dettifoss kemur skýrt
fram, þó að þess sé ekki getið að þetta sé á
Íslandi. Þetta er framtíðarmynd. En það gæti
verið einn þáttur af mörgum hjá
M
ikil tækifæri felast í kvik-
myndatengdri ferðaþjón-
ustu, sem felst í að nýta
þær stórmyndir sem teknar
hafa verið hér á landi und-
anfarin ár, að sögn Þórs Kjartanssonar töku-
staðastjóra og eins af eigendum True North.
„Það er mismunandi hvernig lönd hafa nýtt
sér kvikmyndagerð í markaðssetningu,“ segir
hann. „Í Svíþjóð hafa menn lagt mikið upp úr
tökustöðum. Það er til dæmis hægt að fara í
gönguferðir í Stokkhólmi um hverfið þar sem
stór hluti þríleiksins eftir sögum Stiegs
Larssons var tekinn, svo sem um Göt-
gatan á Södermalm þar sem
Hér var það sem
geimskipið lenti
STÓRMYNDIRNAR SEM TEKNAR HAFA VERIÐ UPP HÉR Á LANDI UND-
ANFARIN MISSERI GETA NÝST FERÐAÞJÓNUSTUNNI, AÐ SÖGN ÞÓRS
KJARTANSSONAR HJÁ TRUE NORTH. HANN ER MEÐ ÝMSAR HUGMYNDIR
OG SEGIR MIKILVÆGT AÐ LÆRA AF ÖÐRUM ÞJÓÐUM Í ÞESSUM EFNUM.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Úttekt
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.11. 2012
Umfangsmiklar tökur
á Prometheus við
Dettifoss. Ljósm./Þór Kjartansson Truenorth
Morgunblaðið/Eggert
Þór Kjartansson segir tækifærin mörg fyrir kvikmyndatengda ferðaþjónustu.