Morgunblaðið - 11.12.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Tryggvi P. Friðriksson uppboðshaldari hjá Gall-
eríi Fold slær hæstbjóðanda hér hið stóra mál-
verk Gunnlaugs Scheving, Á síld, á átta milljónir
króna í gærkvöldi. Við verðið leggjast uppboðs-
gjöld, rúmlega tuttugu prósent, og er söluverð
verksins því nálægt tíu milljónum kr. Alls voru
68 verk úr þrotabúi SPRON seld á uppboðinu,
fyrir rúmlega 25 milljónir. Tekist var á um sum
þeirra og fékkst til að mynda tvöfalt matsverð
fyrir verk eftir Sigurbjörn Jónsson, Karólínu
Lárusdóttur og Magnús Tómasson og seldust
þau á 940.000 til 1,4 milljónir, auk gjalda.
Gott verð fékkst fyrir myndverk úr þrotabúi SPRON
Morgunblaðið/Ómar
Síldarbáturinn sleginn hæstbjóðanda á átta milljónir
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Það er engin spurning að þessi um-
ræða um skattahækkanir hefur haft
áhrif á ráðstefnuhaldara, ekki síst
óvissan sem ríkir um hver skatturinn
verður. Við höfum misst ráðstefnur
úr landi og orðið nú þegar af miklum
tekjum,“ segir Þorsteinn Örn Guð-
mundsson hjá Ráðstefnuborginni
Reykjavík, Meet in Reykjavik, en
fram kom í umfjöllun sunnudagblaðs
Morgunblaðsins að stórar ráðstefnur,
sem til stóð að halda hér á landi, voru
fluttar annað. Voru þær ákvarðanir
teknar að miklu leyti vegna þeirrar
óvissu sem er í ferðaþjónustunni hér á
landi út af áformum stjórnvalda um
að hækka virðisaukaskatt á gistingu.
Kom þetta skýrt fram á fundi fjár-
laganefndar með fulltrúum ferða-
þjónustunnar í síðustu viku, að sögn
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þing-
manns.
Fyrst stóð til að hækka vsk-hlut-
fallið úr 7% í 25,5% en samkvæmt
bandorminum, sem er til umræðu á
Alþingi, á að hækka skattinn í 14%.
Þorsteinn segist vita um 800-1.000
manna ráðstefnu sem átti að halda
hér á landi á næsta ári en var flutt til
Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum. Í tölvupósti frá ráð-
stefnuhaldara hafi m.a. verið minnst á
óvissuna á Íslandi sem skýringu á
ákvörðuninni.
„Þeir sem eru að taka ákvarðanir
um svona stórar ráðstefnur eru með
hnút í maganum yfir óvissunni, því
gistiskatturinn er það mikill kostnað-
arauki. Þegar verið er að skipuleggja
þúsund manna ráðstefnu getur svona
hækkun skipt miklu máli. Þetta sáir
líka fræjum óöryggis. Menn sýna Ís-
landi mikinn áhuga sem hvataferða-
og ráðstefnulandi en hafa jafnframt
áhyggjur af innviðunum. Þetta smitar
út frá sér,“ segir Þorsteinn Örn.
Ísland sett á bið
Kristófer Oliversson, fram-
kvæmdastjóri Center-hótelanna, var
búinn að gera tilboð í að fá hingað til
lands um 1.000 manna ráðstefnu á
næsta ári. Þegar til átti að taka ákvað
ráðstefnuhaldarinn að taka Barcelona
fram yfir Reykjavík.
„Við erum með fimm hótel í gangi
og finnum verulega fyrir þeirri óvissu
sem er uppi. Við fórum strax að missa
viðskipti þegar þessi áform voru boð-
uð. Margar ferðaskrifstofur settu Ís-
land strax á bið, sumar hverjar hafa
skipt við okkur árum saman. Menn
gefast bara upp á okkur og okkar bar-
átta gengur út á að minnka skaðann,“
segir Kristófer.
Ráðstefnuhaldarar flýja Ísland
Óvissa í skattlagningu á ferðaþjónustu hefur haft mikil áhrif „Höfum misst ráðstefnur úr landi og
orðið nú þegar af miklum tekjum“ Ráðstefnuhaldarar hafa áhyggjur af innviðum ferðaþjónustunnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ráðstefnur Hver gestur er dýr-
mætur og eyðir miklu hér á landi.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Valgerður Bjarnadóttir, formaður
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
Alþingis, fer á fund Feneyjanefndar
Evrópuráðsins á föstudag. Þar mun
hún leggja fram þýðingu á frumvarpi
til stjórnskipunarlaga og ágrip af
greinargerð. Eins mun hún svara
spurningum sem fyrir hana verða
lagðar. Valgerður sagði að sér hefði
verið tjáð að nefndin mundi skipa
starfshóp og væri von á honum hing-
að í byrjun janúar. Hún vonast til að
Feneyjanefndin skili umsögn sinni í
lok janúar.
Valgerður sagði að frestur þing-
nefnda til að skila umsögnum um
stjórnskipunarlög hefði staðið þar til
í gær. „En þeim var sagt að ef þær
þyrftu lengri tíma þá gætu þær tekið
sér hann. Við gerum ráð fyrir að þær
skili eins fljótt og þær geta,“ sagði
Valgerður. Hún kvaðst vona að
nefndirnar skiluðu umsögnum fyrir
jólaleyfi. Fundað verður með for-
mönnum þingnefndanna í dag vegna
málsins. Valgerður sagði sama gilda
um aðra sem veita umsagnir. Geti
þeir ekki skilað innan tilskilins frests
sé gert ráð fyrir að þeir skili eins
fljótt og þeim er auðið.
„Það er mikill gangur í þessu núna
en um leið ákveðin ringulreið,“ sagði
Birgir Ármannsson, fulltrúi sjálf-
stæðismanna í stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd, um stjórnarskrármál-
ið. „Gestir koma fyrir þingnefndir og
gefa álit, flestir með þeim fyrirvara
að þeim hafi ekki gefist nægur tími
til að skoða þetta. Sumir fræðimenn
hafa vikið sér undan því að koma á
fund nefndarinnar vegna þess að
tímafrestir sem eru gefnir séu óvið-
unandi,“ sagði Birgir. Hann taldi
framhald málsins vera mjög óljóst og
benti á að svo virtist sem stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefnd ætti að vinna
úr fjölda umsagna um málið áður en
þing kemur saman eftir jólaleyfi.
Valgerður Bjarnadóttir á
fund Feneyjanefndarinnar
Kvartað yfir tímaleysi til að skoða stjórnarskrárfrumvarp
Öldruð kona, sem varð fyrir stræt-
isvagni á Nýbýlavegi í Kópavogi á
föstudagsmorgun, lést á gjör-
gæsludeild Landspítalans síðdegis
sama dag samkvæmt upplýsingum
mbl.is.
Slysið varð rétt fyrir klukkan
9.00 á föstudagsmorguninn en
strætisvagninum var ekið austur
Nýbýlaveg á milli Túnbrekku og
Þverbrekku.
Ekki er hægt að greina frá
nafni hinnar látnu að svo stöddu.
Öldruð kona lést af
völdum bílslyss í
Kópavogi
Samhjálp reiknar með að gefa um
þúsund máltíðir um jólin og ára-
mótin. Karl Matthíasson, fram-
kvæmdastjóri, segir félagið ekki
geta veitt þessa aðstoð án öflugs
stuðnings frá fyrirtækjum og ein-
staklingum.
Samhjálp hefur fengið stuðning
frá Reykjavíkurborg og fær líka
styrk frá ríkinu. Karl segir að starf-
semin væri hins vegar ekki nema
svipur hjá sjón ef ekki kæmi til öfl-
ugur stuðningur fyrirtækja.
Karl segir að öll aðstoð sé vel
þegin. Hann bendir á að oft hafi
fyrirtæki sem standa fyrir árshátíð-
um eða jólahlaðborðum gefið Sam-
hjálp þann mat sem af gengur.
Birgjar hafi einnig oft verið rausn-
arlegir við Samhjálp. egol@mbl.is
Gefa þúsund mál-
tíðir um hátíðirnar
Talið er að um 25 þúsund ferða-
menn hafi sótt ráðstefnur, fundi
og svonefndar hvataferðir hér á
landi árlega hin síðari ár. Um
ágiskun er að ræða, að sögn
Þorsteins Arnar, en þessi mark-
aður hefur ekki verið kortlagður
nákvæmlega. Hver ráð-
stefnugestur skilar allt að þre-
falt meiri tekjum en venjulegur
ferðamaður.
25 þúsund
ferðamenn
RÁÐSTEFNUHALD
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Miele þvottavélar og þurrkarar