Morgunblaðið - 11.12.2012, Page 38
Menning
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2012
Tónleikaröðin
Ungklassík held-
ur áfram göngu
sinni í Tjarnarsal
Ráðhúss Reykja-
víkur í dag,
þriðjudag,
klukkan 17.30.
Hugmyndin með
tónleikunum er
að gefa mörgum
framúrskarandi nemendum tónlist-
arskólanna tækifæri til að koma
fram og gleðja gesti með klass-
ískum verkum gömlu meistaranna.
Á tónleikunum leika nemendurnir á
ýmis hljóðfæri, ýmist einir eða í
samspili, og þá mun söngur einnig
hljóma.
Tjarnarsal hefur verið breytt nú
á aðventu í sannkallað jólaland, að
sögn aðstandenda, og skapar hann
fallega umgjörð fyrir tónleika þess-
ara tónlistarmanna framtíðarinnar.
Tónleikaröðin Ung-
klassík í Tjarnarsal
Ráðhús Reykjavíkur
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Strengjasveitin Spiccato flytur verk-
ið L’Estro Armonico eftir barokk-
tónskáldið Antonio Vivaldi á tvenn-
um tónleikum í vetur. Sex fyrstu
konsertana flytur sveitin á tónleik-
unum í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar í kvöld, þriðjudagskvöld, og
hefjast þeir klukkan 19.30. Síðari
tónleikarnir verða í Neskirkju í apríl.
L’Estro Armonico hefur verið þýtt
sem Harmonískar hugljómanir og er
safn tólf konserta fyrir fiðlur sem Vi-
valdi samdi árið 1711 og settu hann á
stall meðal bestu tónskálda samtím-
ans. Konsertarnir hafa jafnvel verið
nefndir meðal áhrifamestu tónsmíða
18. aldarinnar. Þeir voru gefnir út í
Amsterdam árið 1711 og urðu strax
mjög vinsælir í Evrópu. J.S. Bach
umritaði sex þeirra fyrir aðra hljóð-
færaskipan, meðal annars sem kons-
ert fyrir orgel og sembal eða sem
einleiksverk.
„Eftir að við Martin Frewer vor-
um búin að vinna stíft við að hljóðrita
21. aldar fiðludúetta sem Duo Land-
on kom þessi þörf að leika allt annars
konar tónlist,“ segir Hlíf Sigurjóns-
dóttir fiðluleikari, einn félaga í Spic-
cato. Hún segir Martin lengi hafa
gengið með þann draum að flytja
þessa konserta Vivaldis og fá ein-
hverja með sér í það. „Mér leist vel á
hugmyndina og við leituðum að fólki
til að spila með okkur sem væri svip-
að þenkjandi, á sömu línu. Okkur
þykir vænt hverju um annað og milli
okkar allra ríkir gagnkvæm virðing
og traust. Enda hefur verið gaman
að æfa og það ríkir falleg vinnu-
stemning hjá okkur. Þetta er æð-
isleg tónlist.“
Hlíf segir þetta verk hafa komið
Vivaldi á kortið á sínum tíma. „Hann
samdi þetta árið 1711, ári síðar
samdi Bach sónötur sínar og partít-
ur fyrir einleiksfiðlu og fiðlan sem ég
leik á er kópía af fiðlu eftir Stradiv-
ari frá 1714,“ segir Hlíf, hlær, og
segir þetta tengjast en hún hefur
hljóðritað og gefið út fyrrnefnd verk
Bachs.
„Þetta eru tólf konsertar, hver
þrír eða fjórir kaflar,“ segir hún og
bætir við að þetta sé mikil aðventu-
tónlist. „Í henni er birta,
hlýja, jákvæðni, líka tregi en
aldrei of mikil tilfinn-
ingasemi, þetta er guð-
dómleg tónlist. Manni líður
vel við að hlusta á Vivaldi.“
Strengjasveitina Spiccato
skipa níu hljóðfæraleikarar,
þau Ágústa María Jóns-
dóttir, Gunnhildur Daðadótt-
ir, Martin Frewer, Hlíf Sig-
urjónsdóttir, Sarah Buckley,
Sesselja Halldórsdóttir, Ólöf
Sigursveinsdóttir, Ólafur
Sigurjónsson og Richard
Korn.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Spiccato Strengjasveitin á æfingu innan um listaverk Sigurjóns Ólafssonar í safninu í Laugarnesi í gær.
„Manni líður vel við
að hlusta á Vivaldi“
Þau Hlíf Sigurjónsdóttir og
Martin Frewer, sem leika með
strengjasveitinni Spiccato í
kvöld, mynda einnig dúettinn
Duo Landon sem var að senda
frá sér nýjan geisladisk, Ice-
landic Violin Duos. Á diskinum
eru fiðludúó eftir Elías Dav-
íðsson, Þorkel Sigurbjörnsson,
Finn Torfa Stefánsson, Hildi-
gunni Rúnarsdóttur, Jónas Tóm-
asson og Atla Heimi Sveinsson.
Þrjú tónskáldanna sömdu verk-
in sérstaklega fyrir Duo
Landon. Ekkert verkanna
hefur verið gefið út á
hljómdiski áður.
Þá hefur verið endur-
útgefinn geisladiskur
Duo Landon frá árinu
1995, með hinum 44
þekktu fiðludúóum Béla
Bartóks, en á honum
leikur Hjörleifur Valsson
ásamt Hlíf. Fékk disk-
urinn afar góða dóma á
sínum tíma, hér heima
og erlendis.
Íslensk
fiðludúó
NÝR DISKUR DUO LANDON
Munið að
slökkva á
kertunum
Kertakveikur á
ekki að vera lengri
en 1 cm. Klippið
af kveiknum svo
að ekki sé hætta á
að logandi kveikur
detti af og brenni
út frá sér
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
Hvað get ég vitað? – Hvað ber mér
að gera? – Hvað leyfist mér að vona?
„Þegar þú hefur lesið þessa bók
hefurðu stigið fyrsta skrefið í átt að
hamingjunni. … Þessi bók er hreint út
sagt ómissandi.“
Elke Heidenreich, ZDF
Richard David Precht
Hver er ég – og ef svo er,
hve margir?
Arthúr Björgvin Bollason þýddi
„Hún er er kunnáttusamleg og fyndin þessi bók eftir
heimspekinginn Richard David Precht …“
Síðdegisútvarpið, RÚV
Mesta metsölubók frá upphafi á lista
DER SPIEGEL í Þýskalandi