Morgunblaðið - 20.12.2012, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2012
Þær eru víða, matarholur vel-ferðarstjórnarinnar. Nú er til
afgreiðslu á Alþingi frumvarp sem
virkar sakleysislegt og hefur á sér
yfirbragð umbóta.
Um er að ræðafrumvarp til
laga um breytingu á
lögum um
lækningatæki, en
þegar nánar er gáð
hefur frumvarpið
tvíþættan tilgang
og hvorugur snýr að lækn-
ingatækjum.
Annars vegar er með frumvarp-inu verið að bregðast við at-
hugasemdum frá Evrópusamband-
inu og frumvarpið er því hluti af
aðlöguninni sem gagnsæ ríkisstjórn
landsins heldur fram að eigi sér
ekki stað.
Hins vegar er með frumvarpinuverið að leggja á aukna
skatta, en í því er gert ráð fyrir að
lagt verði 0,75% gjald á allar vörur
í tilteknum vöruflokkum.
Vörurnar sem um ræðir eru afýmsum toga, svo sem gúmmí-
hanskar, dömubindi og verjur,
tannþræðir og tannkrem, plástrar
og sjúkrakassar, gervitennur, rönt-
gentæki, hjólastólar og barna-
bleiur.
Vafalítið er að allar þessar vörurhafa verið vanskattlagðar á
mælikvarða velferðarstjórnar og
án efa er það skref sem nú á að
stíga aðeins það fyrsta af mörgum
brýnum.
En hvers vegna mátti ekki viður-kenna að skattahækkun er
skattahækkun og aðlögun er aðlög-
un, í stað þess að leika svona blekk-
ingarleik?
Áformað er að
leggja ný gjöld á
bleiur.
Aðlögun og skatta-
hækkun í laumi
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 19.12., kl. 18.00
Reykjavík 6 rigning
Bolungarvík 4 alskýjað
Akureyri 4 skýjað
Kirkjubæjarkl. 5 rigning
Vestmannaeyjar 7 rigning
Nuuk -8 heiðskírt
Þórshöfn 7 skýjað
Ósló -6 léttskýjað
Kaupmannahöfn 1 skýjað
Stokkhólmur -1 alskýjað
Helsinki -6 skýjað
Lúxemborg 3 léttskýjað
Brussel 6 skýjað
Dublin 8 skýjað
Glasgow 6 skúrir
London 6 skúrir
París 7 skúrir
Amsterdam 6 skýjað
Hamborg 2 súld
Berlín 2 þoka
Vín 4 skúrir
Moskva -18 heiðskírt
Algarve 17 skýjað
Madríd 10 þoka
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 10 heiðskírt
Aþena 10 léttskýjað
Winnipeg -10 snjókoma
Montreal 1 súld
New York 6 skýjað
Chicago 2 alskýjað
Orlando 19 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
20. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:22 15:30
ÍSAFJÖRÐUR 12:09 14:53
SIGLUFJÖRÐUR 11:54 14:34
DJÚPIVOGUR 11:01 14:50
Baldur Berndsen Maríusson and-
aðist á Landspítalanum 15. desem-
ber síðastliðinn, 76 ár að aldri.
Baldur fæddist í Reykjavík 18.
apríl 1936, sonur hjónanna Sigríðar
Carlsdóttur Berndsen og Maríusar
Helgasonar. Hann útskrifaðist frá
Samvinnuskólanum í Reykjavík
1954 og í stjórnun og viðskiptafræði
frá New York Business School 1957.
Frá 1958 til 1960 vann Baldur ým-
is skrifstofustörf hjá Ísbirninum hf.
og Ingvari Vilhjálmssyni. Hann
starfaði hjá Loftleiðum og síðar
Flugleiðum sem yfirmaður farþega-
þjónustu og síðar rekstrarstjóri frá
1960 til 1990, hjá Pósti og síma og
síðar Íslandspósti 1991 til 2000 og
frá 2000 til 2008 hjá fasteignasölunni
Stóreign, en eftir það hjá JA Group
fram á mitt ár 2009.
Baldur sinnti knattspyrnumálum í
yfir 40 ár og vann m.a. við uppgjör
og bókhald hjá íþróttavöllum
Reykjavíkur með aðsetur á Mela-
velli frá 1958 fram á 8. áratug lið-
innar aldar. Hann var í stjórn knatt-
spyrnudeildar KR og formaður 1976
til 1977, sat fyrir hönd KR í Knatt-
spyrnuráði Reykjavíkur 1978-1996
og þar af sem formaður í 15 ár. Und-
anfarin ár hefur hann verið eftirlits-
dómari hjá KSÍ. Hann var sæmdur
heiðursmerki KSÍ, gullmerki KSÍ og
gullmerki KRR.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Inga Cleaver, fv. deildarstjóri í utan-
ríkisráðuneytinu, og eiga þau þrjú
börn. Útför Baldurs verður frá Nes-
kirkju og hefst athöfnin kl. 13 hinn
28. desember næstkomandi.
Andlát
Baldur B.
Maríusson