Morgunblaðið - 20.12.2012, Qupperneq 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2012
Það er svo leiðinlegt
að geta blöskrað
hvernig fjölmiðlamenn
fara með viðkvæm mál
eins og í Fréttablaðinu
í gær þar sem var
fjallað um þennan
hörmulega atburð,
fjöldamorðin í Con-
necticut. Þar er sagt að
ungi maðurinn sem
framdi þetta hroða-
verk, Adam Lanza, hafi
hugsanlega verið með Asperger-
heilkenni, sem ekki hefur fengist stað-
fest. Auk þess hafi hann frá barnsaldri
verið í sérstakri umsjá því hann fann
ekki fyrir neinum sársauka varðandi
hnífa og bruna. Segir það ekki meira
um uppeldi hans og af hverju móðirin
sem hann myrti keypti vopnin? Þetta
hefur ekkert með Asperger að gera.
Ég á 15 ára son sem var greindur
með Asperger sex ára gamall og hef
farið á námskeið og lesið
mér til árum saman og
ef eitthvað er þá er fólk
með Asperger við-
kvæmara og blíðara en
fólk almennt. Við kom-
um meira að segja fram
í viðtali hjá RÚV þar
sem sonur minn sagði að
enginn ætti að skamm-
ast sín fyrir að vera með
Asperger, sem er væg-
asta einhverfan, og lýsir
sér í stuttu máli þannig
að fólk á erfitt með fé-
lagsleg samskipti og breytingar, en
hefur ótrúlega hæfileika á ákveðnum
sviðum. Til dæmis er talið að Albert
Einstein og H.C. Andersen hafi verið
með Asperger og það hefur verið
framleidd bíómynd um dr. Temple
Grandin sem er mjög áhugaverð. En
eitt er ljóst; fólk með Asperger finnur
fyrir sársauka eins og annað fólk, það
hef ég reynt með minn son og hann er
ekkert öðruvísi en aðrir, nema
kannski klárari á mörgum sviðum!
Ábyrgð fjölmiðla
Eftir Hönnu Láru
Steinsson
Hanna Lára
Steinsson
» Þetta ódæði hefur
ekkert með Asperg-
er að gera.
Höfundur er uppeldisfræðingur
og félagsráðgjafi, MA og MS.
Steingrímur J. Sig-
fússon og Gylfi Arn-
björnsson voru í Kast-
ljósi 13. desember.
Tilefnið var heilsíðu-
auglýsing Alþýðu-
sambandsins um að
ríkisstjórnin hefði ekki
staðið við gefin loforð
við gerð kjarasamn-
inganna í maí 2011.
Steingrímur var
spurður hver væru við-
brögð hans við þessu útspili ASÍ og
fyrstu orð ráðherrans voru þessi:
„Þau eru mjög einföld, þetta er
með endemum ósvífin, órökstudd og
ósönn auglýsing, sem er Alþýðu-
sambandsforystunni og Gylfa Arn-
björnssyni til lítils sóma.“
Þetta eru hörð orð, en ég vildi
ekki trúa því að Gylfi færi með
rangt mál svo að ég bar auglýs-
inguna um hin sviknu loforð saman
við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Og ég sé ekki betur en auglýsingin
sé rétt í öllum greinum. En ráðherr-
anum var illa brugðið eins og enn
sýnir sig í þessu frammíkalli hans:
„Það þarf ekki að þvæla svona.
Svaraðu þessu! Brot á hverju er
þetta með gengið og verðbólguna?“
Hér vísar ráðherrann til þess að í
auglýsingunni sé dregið fram, að
ríkisstjórnin hafi hvorki efnt fyr-
irheitið um að halda verðbólgunni í
skefjum né að styrkja gengi krón-
unnar. Um þetta urðu nokkur orða-
skipti og var það aðallega ráð-
herrann sem talaði og gaf viðmæl-
anda sínum lítið svigrúm til and-
svara svo að úr varð stagl þeirra
þriggja, Steingríms, þáttastjórn-
andans og Gylfa. Mér þótti rétt að
fletta upp í yfirlýsingunni til að
nálgast sannleikann. Þar gumar
ríkisstjórnin af því að fjár-
málakerfið hafi verið endurreist, að
vextir hafi lækkað umtalsvert og að
jafnvægi hafi komist á gengi krón-
unnar. Síðan er tíundað með hvaða
hætti eigi að viðhalda þessum ár-
angri. Þetta tók forysta Alþýðu-
sambandsins sem fyrirheit og lái
henni hver sem vill. Nú er öllum
ljóst, að dæmið gekk ekki upp.
Verðbólgan er hálfu meiri en stefnt
var að og krónan á hallanda fæti en
kjarasamningar í upp-
námi. Niðurstaðan er
sú, að ríkisstjórnin
hefur brugðist. En
voru það brigð eða
getuleysi nema hvort
tveggja sé?
Steingrímur tók sér-
staklega fram, að það
væri rangt, að rík-
isstjórnin hefði lofað
afgreiðslu á ramma-
áætlun um orkunýt-
ingu „á grundvelli til-
lögu
sérfræðinganefnd-
arinnar“. Þetta er mjög hæpið, nán-
ast orðhengilsháttur. Stjórnvöld
sögðust stefna að því að rammaá-
aætlun yrði afgreidd á haustþinginu
2011 og við það stendur.
Til frekari glöggvunar er fróðlegt
að grípa niður í yfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar: „Gangi öll virkjunar-
áform fyrir norðan eftir gæti þar
verið um að ræða fjárfestingu upp á
70-80 ma. kr., auk fjárfestinga orku-
kaupenda. Þess er fastlega vænst
að samningar takist fyrir lok þessa
árs um í það minnsta tvö umtals-
verð fjárfestingarverkefni sem ráð-
ist verði í, þar af annað á
Norðausturlandi, og að fram-
kvæmdir við þau geti hafist þegar á
næsta ári,“ þ.e. 2012, sem senn er á
enda runnið. Allt voru þetta hugar-
órar því að viljann vantaði til verks-
ins.
Ég hitti gamla vinkonu mína frá
Akureyri á Landakotsspítala í gær
og spurði tíðinda. Hún lét vel af
heilsu sinni, tók síðan í boðunginn á
kápunni og sagði: „Hún er heima-
saumuð.“ Það gaf mér tilefni til að
spyrja, hvernig hún kæmist af. „Ég
er með tvö hundruð þúsund á mán-
uði,“ sagði hún. „Mig langar til að
vinna, þótt ég sé orðin sjötug. En ég
má það ekki. Tryggingastofnun tek-
ur þá af mér hverja krónu svo að ég
á ekkert eftir.“ Ég vissi eiginlega
ekki hvað ég átti að segja, heldur
kyssti hana á kinnina með þessum
orðum: „Allir eiga að fá að bjarga
sér. Gleðileg jól og þetta batnar
vonandi með vorinu.“
Fyrstu ár mín á þingi kynntist ég
miklum kempum og leiðtogum, Ey-
steini Jónssyni, Gylfa Þ. Gíslasyni,
Jóhanni Hafstein, Lúðvík Jós-
efssyni og Ólafi Jóhannessyni. Allir
höfðu þeir verið harðir í horn að
taka, en eltust vel. Og þeir urðu um-
burðarlyndari og mýktust í skapi
með árunum. Aldrei hefði þeim
dottið í hug að hreyta í forseta ASÍ
eða tala niður til hans, enda er hann
fulltrúi annars hvers launamanns í
landinu. Slíkt hátterni hefði haft
skelfilegar afleiðingar og lýsir tíð-
arandanum. Ríkisstjórn á að leggja
það eitt fram til lausnar í kjaradeil-
um sem hún vill efna og hefur
ástæðu til að ætla að hún geti staðið
við.
Um þetta var ég að hugsa þegar
síðustu orðin í Kastljósþættinum
rifjuðust upp. Forseti Alþýðu-
sambandsins sagði, að þeir Stein-
grímur næðu ekki saman um grund-
vallaratriði, – og þá verðum við að
einbeita okkur að okkar viðsemj-
endum og semja um kaup og kjör,
sagði hann.
„Já þannig er staðan. Þannig er
staðan núna,“ skaut Sigmar Guð-
mundsson þáttastjórnandi inn í.
„Menn verða að kunna mannasiði
til að hægt sé að vinna saman,
Gylfi,“ sagði Steingrímur J. Sigfús-
son og þar með lauk Kastljósi.
Þetta batnar með vorinu
Eftir Halldór
Blöndal » „Það þarf ekki að
þvæla svona. Svar-
aðu þessu! Brot á hverju
er þetta með gengið og
verðbólguna“
Halldór
Blöndal
Höfundur var forseti Alþingis.
Hinn úrilli og
kjarnyrti skoski
spæjari Taggart er
ólíkindatól sem ekk-
ert er að skafa utan
af hlutunum þegar
hann ræður flókin
morðmál sem á borð
hans koma. Það gerði
Taggart samvisku-
samlega í Sjónvarp-
inu á dögunum þegar
hann tókst á við eitt
erfiðasta tabú skosks samfélags;
bulluna sem misnotar traust fé-
laga sinna: Abuse of trust nefndist
þátturinn.
Verkalýðsleiðtoginn Cam virtist
hafa góðan málstað að verja, ekki
síst eftir að besti félagi hans var
drepinn. Félagsmenn fylktu sér á
bak við hann í baráttu við hið
vonda auðvald. Cam var að verja
störf, málamiðlun kom ekki til
greina. Nei, nei, nei var orð dags-
ins undir steyttum hnefa leiðtog-
ans með alla réttu frasana.
Á daginn kemur að Cam er lýð-
skrumari, spunameistari og bulla
sem misnotar traust
félaga sinna sem
fylgja honum í blindri
meðvirkni. Cam er
ómerkilegur lygari
sem leiðir samfélag
sitt út í botnlausa
mýrina; bulla sem
kemst til áhrifa og
veldur stórskaða.
Taggart tekst
ótrauður á við mein-
semdir skosks sam-
félags sem niðurlæg-
ing aldanna hefur
markað djúpu öri. Gott hjá Tagg-
art að takast á við váfuglinn djúpt,
djúpt í myrkviðum mannlegrar
vitundar!
Er ekki ráð að fá Taggart í
heimsókn?
Taggart
ræður gátuna
Eftir Hall
Hallsson
Hallur
Hallsson
» Gott hjá Taggart að
takast á við váfugl-
inn djúpt, djúpt í
myrkviðum mannlegrar
vitundar!
Höfundur er rithöfundur.
mbl.is
alltaf - allstaðar
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
bolaprentun
gluggamerkingar
rúllustandar
Smiðjuvegur 42 Rauð gata 200 Kópavogur Sími:544 4545 www.signa.is signa@signa.is
signa.is
Inniljósaskilti
prentun
Inniljósaskilti 117x68cm
Einnig til í öðrum stærðum
29,950-
án vsk.
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
BOLTAR
FRÁ 1.990 kr.
HANDBOLTAR,
KÖRFUBOLTAR,
FÓTBOLTAR.