Morgunblaðið - 31.12.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012
Evrópuvaktin telur yfirgnæf-andi líkur á að forysta
VG ætli sér að halda
óbreyttri stefnu í að-
ildarmálum að ESB
fram yfir kosningar.
Þetta er svo sérkennileg
lending af hálfu þessa
flokks að vaktin reynir að finna
skýringu:
Meginástæðan hlýtur að vera sú,að forystumenn VG vilji ekki
rugga bátnum sem þeir eru í með
Samfylkingunni og geri sér vonir
um að núverandi ríkisstjórn sitji
áfram eftir kosningar með aðstoð
þriðja aðila.
Að einhverju leyti fer ekki á millimála, að hluti af forystusveit
VG er einfaldlega orðinn aðildar-
sinnaður og athyglisvert að þar eru
fremstir í flokki pólitískir erfingjar
gömlu kommúnistanna í Sósíalista-
flokknum en það er önnur saga.
Ætla má að þetta fólk hugsi semsvo að sá fórnarkostnaður
sem VG verði að taka á sig til að
tryggja áframhaldandi aðild að rík-
isstjórn sé sá, að missa töluverðan
kjósendahóp ekki sízt af lands-
byggðinni yfir til Framsóknar-
flokksins.
En þá er spurningin þessi, semætla mætti að forysta VG verði
að svara á flokksráðsfundi snemma í
janúar:
En hvað ef svo skyldi fara vegnamargvíslegra duttlunga á hinu
pólitíska sviði, að VG eigi ekki kost á
aðild að ríkisstjórn eftir kosningar?
Hefur þá ekki miklu verið fórnaðfyrir ekki neitt?“
Og því miður fyrir VG virðistsvarið liggja í augum uppi.
Eitruð fórn?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 30.12., kl. 18.00
Reykjavík -3 skýjað
Bolungarvík -5 snjókoma
Akureyri -3 snjókoma
Kirkjubæjarkl. -1 léttskýjað
Vestmannaeyjar -1 skýjað
Nuuk -11 heiðskírt
Þórshöfn 2 léttskýjað
Ósló 2 skúrir
Kaupmannahöfn 3 skúrir
Stokkhólmur 2 alskýjað
Helsinki 1 skýjað
Lúxemborg 6 skýjað
Brussel 7 léttskýjað
Dublin 7 skýjað
Glasgow 5 skýjað
London 10 léttskýjað
París 10 skýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 5 skúrir
Berlín 6 skýjað
Vín 2 skúrir
Moskva -7 alskýjað
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 3 skýjað
Barcelona 12 heiðskírt
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 11 heiðskírt
Aþena 11 skýjað
Winnipeg -11 alskýjað
Montreal -12 skafrenningur
New York 0 léttskýjað
Chicago -5 léttskýjað
Orlando 7 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
31. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:20 15:43
ÍSAFJÖRÐUR 12:04 15:09
SIGLUFJÖRÐUR 11:48 14:51
DJÚPIVOGUR 10:59 15:03
Gleðileg jól
og farsælt
komandi ár
Takk fyrir viðskiptin á liðnum árum
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
FACEBOOK.COM/GLERAUGNAMIDSTOÐIN
Arnór K. Hannibals-
son, prófessor emeritus
í heimspeki við Háskóla
Íslands, andaðist að
heimili sínu, Hregg-
nasa í Kjós, föstudag-
inn 28. desember, 78
ára að aldri.
Hann fæddist að
Strandseljum Í Ögur-
hreppi 24. mars 1934,
sonur hjónanna Hanni-
bals Valdimarssonar,
verkalýðsleiðtoga,
þingmanns og ráð-
herra, og Sólveigar
Ólafsdóttur.
Arnór var kvæntur Nínu Sæunni
Sveinsdóttur (f. 1935), viðskipta-
fræðingi og framhaldsskólakennara.
Börn þeirra eru Ari, Kjartan, Auð-
unn, Hrafn og Þóra. Þau skildu árið
1995.
Arnór lauk meistaraprófi í heim-
speki og sálfræði frá Moskvuháskóla
1959 og lagði síðan
stund á framhaldsnám
í heimspeki við há-
skólana í Kraká og
Varsjá í Póllandi.
Næstu árin stundaði
Arnór ýmis störf á Ís-
landi, m.a. sem rithöf-
undur, ritstjóri og for-
stöðumaður Listasafns
ASÍ. Árið 1969 hélt
Arnór til Fribourg í
Sviss og stundaði
rannsóknir við háskól-
ann þar og 1970 hóf
hann doktorsnám í
heimspeki við háskólann í Edinborg
og lauk þaðan doktorsprófi 1973.
Hann var skipaður lektor í heim-
speki við Háskóla Íslands árið 1976,
dósent árið 1983 og prófessor 1989.
Hann lét af störfum við Háskóla Ís-
lands á sjötugsafmælisárinu 2004.
Eftir hann liggja nokkrar bækur.
Má þar nefna Valdið og þjóðin - safn
greina um Sovétríkin, Moskvulín-
una, Heimspeki félagsvísinda og
Rökfræðilega aðferðafræði.
Arnór beitti sér fyrir sjálfstæði
Eistlands, Litháens, Króatíu og ann-
arra smáríkja sem liðið höfðu undir
oki kommúnismans.
Hann var ræðismaður Litháens á
Íslandi og veittu litháísk stjórnvöld
honum heiðursorðu fyrir framlag
hans til samskipta ríkjanna í heim-
sókn Daliu Grybauskaite, forseta
Litháens, til Íslands.
Arnór var afkastamikill fræðimað-
ur og eftir hann liggur fjöldi bóka og
fræðigreina um ýmis fræði. Þá þýddi
hann nokkur verka Platóns og
Dostojevskís. Arnór sinnti fræða-
störfum til dauðadags og vann m.a.
að bók um sögu Póllands og útgáfu
kennslurita í heimspeki, en Arnór
var lengi eini löggilti skjalaþýðand-
inn og dómtúlkurinn úr pólsku hér á
landi og lagði hann sig fram um að
efla tengsl Íslands og Póllands.
Andlát
Arnór K. HannibalssonEinungis þrjú skip voru til sjós í
gærkvöldi samkvæmt vaktmanni á
Vaktstöð siglinga. Til samanburðar
voru rúm 1.100 skip á sjó í sumar
þegar best lét. Um er að ræða einn
togara, einn línubát og eitt skip
sem var á siglingu. Að sögn vakt-
manns gerir slæmt tíðarfar það að
verkum að menn sitji heima. Enn er
nokkur undiralda og býst hann ekki
við því að skipum muni fjölga mikið
á sjó um áramótin. vidar@mbl.is
Einungis þrjú skip
á sjó í gærkvöldi
Um 400 lítrum af olíu var stolið úr
þremur bifreiðum Slysavarna-
félagsins Landsbjargar sem stað-
settar voru við Granda í fyrrinótt.
Tjónið er tæpar 100 þúsund krónur.
„Það sem er alvarlegast í þessu
er að mannslíf eru í húfi og þá geta
mínútur skipt miklu máli,“ segir
Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upp-
lýsingarfulltrúi Landsbjargar.
Stálu 400 lítrum af
olíu frá Landsbjörg