Morgunblaðið - 31.12.2012, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012
Fjölskylduhjálp Íslands
ENGINN ÁN MATAR
Á ÍSLANDI
Söfnunarreikningur
Fjölskylduhjálpar Íslands
101 - 26 - 66090, kt 660903-2590.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á
ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA
ÚTSALAN HEFST 4. JANÚAR
www.rita.is Ríta tískuverslun
Gleðilegt ár
Opið í Bæjarlind
kl. 10-12 í dag
Rán var framið í tölvuleikjasal við
Frakkastíg um miðjan dag í gær.
Ógnaði ræninginn starfsmanni með
slökkvitæki og náði lítilræði af pen-
ingum úr sjóðskassa.
Kristján Helgi Magnússon er
starfsmaður í tölvuleikjasalnum
Ground Zero þar sem ránið var
framið. Greip hann til axar til þess
að verjast ræningjanum. „Ég greip í
öxi og sagði honum að hypja sig.
Hann tók þá til fótanna og hljóp héð-
an út með slökkvitækið með sér,“
sagði Kristján í samtali við mbl.is.
Samkvæmt lýsingu sem lögreglu
var gefin var ræninginn rúmlega
tvítugur karlmaður. Telur lögreglan
sig vita hver maðurinn er. Sá grun-
aði er síbrotamaður og er talinn
hættulegur.
gudrunsoley@mbl.is
Greip til axar gegn
manni sem ógnaði
með slökkvitæki
Aukablað
alla þriðjudaga
Hundrað þrjátíu og fjögurra ára sögu
Álftaness sem sérstaks sveitarfélags
lýkur á morgun þegar það sameinast
Garðabæ. Það varð til árið 1878 þegar
Álftaneshreppi hinum forna var skipt
upp í Garðahrepp
og Bessa-
staðahrepp.
Snorri Finn-
laugsson, síðasti
sveitarstjóri
Álftaness, segir
að íbúar eigi strax
eftir að finna fyrir
bættum hag. Ein
afleiðingin af fjár-
hagsvanda Álfta-
ness hafi verið sú
að útsvar og ýmis gjöld hafi hækkað.
Þau muni lækka nú þegar með sam-
einingunni.
„Það er augljóslega bjartari tíð
framundan. Íbúarnir sýndu að þetta
var það sem þeir vildu. Það voru um
88% sem greiddu atkvæði með sam-
einingunni. Við erum mjög ánægð
með það,“ segir Snorri.
Það var haustið 2009 sem sveitar-
stjórn Álftaness óskaði eftir aðstoð
vegna fjárhagsörðugleika sveitarfé-
lagsins. Í febrúar 2010 var fjárhalds-
stjórn sett yfir sveitarfélagið til þess
að leysa vandann. Á fimmtudag lauk
svo fjárhagslegri endurskipulagningu
með uppgjöri við lánardrottna. Tókst
að lækka skuldir Álftaness um fjóra
milljarða. Þær eru nú 3,2 milljarðar
króna í stað 7,2 milljarða áður.
„Menn hafa náð markmiðum sínum
í þágu íbúanna. Við erum mjög
ánægð að tekist hafi að koma skikki á
fjármálin, bæði skuldirnar og
reksturinn. Það má segja að það hafi
verið afrek að takast það miðað við þá
stöðu sem sveitarfélagið var komið í,“
segir Snorri.
Staða sveitarstjóra Álftaness verð-
ur ekki lengur til eftir daginn í dag en
sjálfur ætlar Snorri að snúa aftur í
starf sitt sem fjármálastjóri Steypu-
stöðvarinnar þaðan sem hann hefur
verið í launalausu leyfi undanfarið.
Hann útilokar þó ekki að starfa frek-
ar á vettvangi sveitarstjórnarmála í
framtíðinni. kjartan@mbl.is
Síðasti
dagur
Álftaness
Snorri
Finnlaugsson