Morgunblaðið - 31.12.2012, Side 12

Morgunblaðið - 31.12.2012, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012 Parki býður upp á fjölbreyttar lausnir í loftakerfum Mono hjóðísogsloftin frá Rockfon eru án allra sýnilegra samskeyta og gefa rýminu stílhreint yfirbragð. Einnig býður Parki upp á hefðbundin kerfisloft af ýmsum gerðum. Loftin eru ofnæmisprófuð með 15 ára ábyrgð. Láttu drauminn rætast hjá okkur. Dalvegi 10-14 ▪ 201 Kópavogur ▪ Sími: 595 0570 ▪ parki.is Eldur kom upp í langferðabifreið í gærmorgun þegar hún var á ferð um Reykjanesbraut til móts við Ás- velli á leið til Keflavíkurflugvallar. Að sögn vaktmanns slökkviliðsins logaði talsverður eldur og stóðu eldtungur aftan úr bifreiðinni þegar ökumaður hennar varð eldsins var. Í bifreiðinni voru á milli 50 og 60 farþegar að sögn framkvæmda- stjóra Kynnisferða, eiganda bif- reiðarinnar. Að sögn Friðjóns Daníelssonar, varðstjóra slökkviliðsins, komust farþegar fljótt út úr rútunni og stafaði þeim ekki mikil hætta af eldinum. „Þetta er dísilbíll og það var lítil hætta á sprengingu. Auð- vitað er alltaf einhver hætta þegar eldur kemur upp en hún var til- tölulega lítil í þessu tilfelli,“ segir Friðjón. Agnar Daníelsson, framkvæmda- stjóri Kynnisferða, segir að ekki liggi fyrir hversu mikið tjón hlaust af eldinum. „Við vitum þó að það eru engar eld- eða reykskemmdir í farþegarými rútunnar. Vélarrúmið er hins vegar meira og minna ónýtt,“ segir Agnar. Farþegar urðu fyrir minniháttar óþægindum og voru fluttir stuttu síðar með annarri langferðabifreið á Keflavíkurflugvöll. Að sögn Agnars reyndi öku- maðurinn sjálfur að slökkva eldinn, en eftir að tvö slökkvitæki voru tæmd var ekki um annað að ræða en að fá liðsinni slökkviliðsins. Slökkvistarf gekk greiðlega eftir að slökkvilið kom á staðinn. vidar@mbl.is Eldur kviknaði í rútu Í logum Mikill eldur logaði í bifreið- inni í gærmorgun.  Allir farþegarnir í bifreiðinni sluppu ómeiddir Ljósmynd/Þorsteinn Vilborg Arna Gissurardóttir hefur nú lokið 42 af áætlaðri 50 daga göngu sinni á suðurpólinn. Að óbreyttu er útlit fyrir að áætlun hennar muni standast. Í gærmorgun var hún stödd í um 2.050 metra hæð. Þá var enn eftir 700 metra hækkun upp að hæsta punkti. Gerði hún í upphafi ráð fyrir því að ferðast um 22 kílómetra á dag en þegar hún lýkur ferðinni mun hún hafa ferðast 1.140 kílómetra frá Hercules Inlet þar sem ferðin hófst. Í færslu á bloggi sínu frá því á laugardag segir hún frá því að loka- hækkunin sé framundan. Veður hafi verið kalt og hún sé lúin. Hún minnir á áheitasöfnun fyrir LÍF, styrktar- félag kvennadeildar Landspítalans. vidar@mbl.is Vilborg nálgast loka- takmarkið Vilborg Arna Gissurardóttir VIÐTAL Guðrún Sóley Gestsdóttir gudrunsoley@mbl.is „Maður tekur stundum eitt skref áfram og síðan tvö skref aftur á bak, það er lítið við því að gera,“ segir Þor- geir Ingólfsson sem lenti í alvarlegu slysi 19. október í fyrra. Keyrt var á Þorgeir þar sem hann hjólaði framhjá Sorpu við Dalveg með þeim afleiðingum að fjarlægja þurfti vinstri fótlegg hans, ofan við mitt læri. Þorgeir hlaut þar að auki marg- falt beinbrot, þar á meðal brotna mjaðmagrind. Aðdragandi slyssins var sá að gámabíl var ekið gegn einstefnu- merki á Þorgeir þar sem hann kom hjólandi niður göngustíg samsíða Dalvegi. Þorgeir sá bifreiðina og gerði ráð fyrir að einstefna yrði virt. Bíllinn ók á Þorgeir og hann lenti undir bifreiðinni með fyrrgreindum afleiðingum. Hjól Þorgeirs lenti yfir honum og hlutar þess gengu inn í lík- ama hans, þannig að klippa varð hjól- ið utan af honum þegar sjúkraliðar komu á vettvang. Þorgeir hélt með- vitund allan tímann. Bataferli í bylgjum Eftir slysið gekkst hann undir fjölda aðgerða, meðal annars var gerð tilraun til að lagfæra mjaðma- grindina og rétta hana af. 2-3 dögum eftir að slysið átti sér stað varð ljóst að fjarlægja varð fótlegginn fyrir of- an mitt læri. Í kjölfarið tók við stíf endurhæfing og hefur batinn verið mjög góður. „Ég útskrifaðist af Grensás í lok júlí og síðan hef ég farið þangað einu sinni til þrisvar í viku, en stundum eru verkirnir of slæmir til að ég geti mætt í endurhæfingu,“ segir Þorgeir. „Bataferlið kemur í bylgjum og því er hvergi nærri lokið,“ segir Þorgeir. „Suma daga getur maður ótrúlega mikið og fer þá stundum fram úr sér sem aftur kallar á nokkur skref til baka. Þetta er bara eðlilegur gangur mála,“ segir Þorgeir. Hann er smám saman að komast upp á lag með að ganga með gervifót. „Það er tímafrekt ferli. Þegar að- stæður eru erfiðar, eins og núna þeg- ar mikið slabb og snjór er á götunum, er ómögulegt að fara út með fótinn. Ég þarf að nota staf, en án hans verð ég haltur og reyni mikið á mjöðmina, en hún er illa brotin,“ segir hann. Endurhæfingin heldur áfram næstu misseri. Hann hefur litla tilfinningu í kring- um nárann og niður í stúfinn, en doð- inn í taugunum getur framlengt verk- ina. „Ég finn ekki verkina fyrr en þeir eru komnir út í heilbrigðu vefina. Þá er ég lengi að jafna mig því það tekur boðin langan tíma að berast og ég finn ekki sársaukann fyrr en svo seint,“ segir Þorgeir. Aðspurður segir hann brotin al- mennt hafa gróið vel en mjöðmin sé engu að síður skökk. ,,Skekkjan gerir það að verkum að ég verð alltaf halt- ur en læknarnir segja mér að of áhættusamt sé að brjóta hana upp á nýjan leik. Ekki er víst að nokkuð batni með slíkri aðgerð,“ segir Þor- geir. Hann fær enn verki í brotin, þá sérstaklega þegar mikill raki er í lofti. Þorgeir æfði hlaup til margra ára, lyfti og hjólaði og segist hafa búið að þeirri líkamlegu hreysti þegar kom að endurhæfingunni. „Það hefur hjálpað mikið til, ég hef ekki trú á að bataferlið hefði gengið jafn vel og raun ber vitni ef ég hefði ekki haft grunninn í hreyfingunni sem ég stundaði fyrir slysið,“ segir hann. Þorgeir hefur endurheimt fullan styrk í höndum og nýtir sér þann bata. „Ég fer og kaupi í matinn og sinni daglegum verkum og það verð- ur sífellt auðveldara. Ég bý að vísu á þriðju hæð og þarf að fara upp 42 tröppur, og það er mikil æfing í að fara upp og niður þann stiga,“ segir Þorgeir. ,,Ég finn mikinn dagamun á styrk og magni verkja, og tröppu- ferðirnar eru góður mælikvarði á dagsformið,“ segir hann. Aðspurður segir hann andlegt ástand líka sveiflast milli daga. „Mað- ur tekur bara einn dag í einu. Ég fékk gríðarlega hjálp í upphafi og henni hefur verið viðhaldið. Ég get því tek- ist á við andlegu áskorunina sem þessu fylgir og hef náð að tækla hana nokkuð vel,“ segir Þorgeir. „Verk- irnir stýra þessu svolítið. Ég komst til að mynda eitt sinn ekki út í tvo daga vegna slæmra verkja. Óneit- anlega verður maður daufari í svo- leiðis ástandi og það tekur tíma að rífa sig upp úr því,“ segir Þorgeir. Bílstjórinn ber einn ábyrgð „Maður þarf að gæta þess að ein- angrast ekki, mér finnst nauðsynlegt að fara reglulega út,“ segir Þorgeir. Hann hefur fyrir reglu að fara dag- lega út úr húsi. „Það er andleg nær- ing í því. Ég fer einu sinni í viku í vinnuna og hef gert það alveg frá því að ég útskrifaðist af Borgarspít- alanum. Ég fer þá og heilsa upp á vinnufélagana, en er ekki enn orðinn vinnufær,“ segir Þorgeir en hann starfaði hjá Ölgerðinni fyrir slysið. Bílstjóri gámabílsins tók eins og fyrr segir ólöglega beygju, gegn ein- stefnumerki, þegar hann ók yfir Þor- geir. Lögreglan rannsakaði slysið í kjölfarið en enn hefur ekki fengist niðurstaða í málið. Aðalmeðferð þess er lokið en dómur hefur enn ekki fall- ið. Farið er fram á 2 ára fangelsi yfir ökumanninum. Ábyrgð Sorpu í mál- inu er því engin. „Mér finnst skrýtið að bílstjórinn sé einn látinn bera alla ábyrgð í þessu máli,“ segir Þorgeir. Í málsmeðferðinni kom fram að Ís- lenska gámafélagið hefði haft fyrir vinnureglu að aka gegn einstefnunni á þessu svæði, að sögn til að draga úr hættu á slysum inni á stöðinni. Eftir slysið var fallið frá þessu samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Áður en slysið átti sér stað, árið 2010, voru gerðar breytingar á umferðareyju við innkeyrsluna, þannig að auðveldara var að taka þessa ólöglegu beygju. Kantar voru lækkaðir svo ökumenn finna lítið fyrir því þegar þeir aka upp á eyjuna. Engar aðvaranir eða merk- ingar voru settar upp í kjölfarið. Því fyrirkomulagi hefur ekki verið breytt til fyrra horfs eftir slysið. „Það finnst mér verst, því að ef merkingar hefðu verið til staðar hefði slysið ekki átt sér stað. Eins og staðan er í dag er ekkert því til fyrirstöðu að þetta ger- ist aftur,“ segir Þorgeir. Mælir batann í tröppum  Þorgeir Ingólfsson er á góðum batavegi eftir alvarlegt hjólreiðaslys  Vinstri fótleggur fjarlægður  Aðalmeðferð lokið en niðurstaða liggur ekki fyrir Morgunblaðið/Árni Sæberg Þolinmæði „Maður tekur bara einn dag í einu. Ég fékk gríðarlega hjálp í upphafi og henni hefur verið viðhaldið. Ég get því tekist á við andlegu áskorunina sem þessu fylgir og hef náð að tækla hana nokkuð vel,“ segir Þorgeir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.