Morgunblaðið - 31.12.2012, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012
LINNETSSTÍG 2 | SÍMI: 565-4854
Mánudag - Föstudag 11:00 - 18:00 | Laugardagur 11:00 - 14:00
w w w . s i g g a o g t i m o . i s
Handsmíðað í Hafnarfirði síðan 1993
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Icelandair réð nýlega 18 flugmenn
til starfa og Norlandair áformar að
ráða 3-4 flugmenn, að því er kom
fram í nýju fréttabréfi Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna (FÍA).
Nýliðarnir hjá Icelandair hefja
þjálfun í byrjun ársins 2013 og hefja
störf í vor þegar hópur flugmanna
sem nú er í uppsögn verður aftur
kominn til starfa. Þeir koma m.a.
frá öðrum íslenskum flugfélögum
sem þurfa að ráða nýja flugmenn í
stað þeirra sem fara til Icelandair.
Kjartan Jónsson, framkvæmda-
stjóri FÍA, sagði þessar ráðningar
vera mjög jákvæðar fyrir flug-
mannastéttina. „Það sem er jákvæð-
ast er að þetta er vöxtur innan frá
en byggist ekki á leiguflugi eða flugi
fyrir aðra eins og einkenndi vöxtinn
fyrir hrun,“ sagði Kjartan. „Við er-
um fullir bjartsýni. Það eru mjög já-
kvæðar horfur í fluggeiranum ef
þær verða ekki eyðilagðar með
skattlagningu.“
Icelandair auglýsti í fyrra eftir
flugmönnum og barst þá vel á annað
hundrað umsókna, að sögn Guðjóns
Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa
félagsins. Icelandair réði þá tíu nýja
flugmenn til starfa og nú átján til
viðbótar úr hópi umsækjenda frá
því í fyrra. Félagið stefnir að því að
bæta tveimur flugvélum inn í leiða-
kerfi sitt og stækka það um ein
15%.
Nýlega kom fram að Icelandair
hyggist ráða um 60 nýjar flug-
freyjur og flugþjóna og sóttu um
1.400 manns um störfin. Næsta
sumar munu um 700 flugfreyjur og
flugþjónar starfa hjá Icelandair.
Áætlun til Constable Point
Flugfélagið Norlandair á Akur-
eyri hyggst hefja áætlunarflug til
Constable Point (Ittoqqortoormiit) í
Grænlandi í mars 2013. Það er aðal-
ástæða þess að félagið ætlar að
bæta við 3-4 flugmönnum, að sögn
Friðriks Adolfssonar fram-
kvæmdastjóra. Áætlunin verður í
samvinnu við Flugfélag Íslands og
verður hún Reykjavík - Akureyri -
Constable Point og farmiðar seldir í
gegnum sölukerfi Flugfélags Ís-
lands.
Undanfarin ár hefur Norlandair
rekið King Air 200 flugvél í sam-
vinnu við Mýflug. Norlandair ætlar
að taka hana yfir á sitt flugrekstr-
arleyfi. King Air flugvélin og Twin
Otter flugvélar verða notaðar í
áætlunarflugið auk leiguflugvélar
frá Flugfélagi Íslands yfir háanna-
tímann.
Um 90% af flugi Norlandair er á
Grænlandi. Félagið flýgur þar m.a.
fyrir danskar ríkisstofnanir, danska
herinn, vísindamenn og námafélög.
Hjá Norlandair starfa nú 18 starfs-
menn. Tveir flugmenn sem sagt var
upp eru að koma aftur og því stefnir
í að starfsmönnum fjölgi um 5-6 alls.
Fleiri störf fyrir flugmenn
Icelandair réð nýlega 18 flugmenn og Norlandair ætlar að bæta við 3-4 flugmönnum
Mjög jákvæðar horfur í fluggeiranum, að sögn framkvæmdastjóra FÍA
Morgunblaðið/Ernir
Fleiri flugmenn Icelandair er í sókn og réð nýlega 18 flugmenn. Til stendur að ráða 3-4 í viðbót.
„Við erum að bíða eftir því að niður-
staða komi í kærumálinu áður en við
göngum frá samningi við verktakann,“
segir Hreinn Haraldsson vega-
málastjóri um lagningu nýs Álftanes-
vegar.
Íbúar í Prýðishverfi í Garðabæ
sendu í nóvember stjórnsýslukæru til
Úrskurðarnefndar umhverfis- og
skipulagsmála á þeirri forsendu að
framkvæmdaleyfi væru fallin úr gildi.
Áður hafði meirihluti bæjarráðs
Garðabæjar hafnað því að fram-
kvæmdaleyfin, sem gefin voru út árið
2009, væru fallin úr gildi.
Fáist grænt ljós fyrir fram-
kvæmdum verður, að sögn Hreins,
samið við Íslenska aðalverktaka
(ÍAV).
Tvær kærur hafa komið upp í að-
draganda að lagningu vegarins. Ís-
lenskir aðalverktakar kærðu útboð á
nýjum Álftanesvegi. Loftorka átti
lægsta tilboðið í útboðinu en ÍAV það
næstlægsta. Úr varð að tilboð Loft-
orku var dæmt ógilt. Að sögn Hreins
var munurinn á boðunum 80-90 millj-
ónir.
Í framkvæmdafréttum frá árinu
2012 segir að búist sé við framlagi frá
Garðabæ upp á 550 milljónir til verks-
ins og að framkvæmdum ljúki árið
2014. Nokkrar tafir hafa orðið á fyrir-
ætlunum vegna kæranna tveggja.
Mun áður ósnortið hraun raskast við
gerð vegarins. vidar@mbl.is
Bíða niður-
stöðu stjórn-
sýslukæru
„Þetta er með því hressilegra sem
við höfum gert, það verður mikil
sveifla á okkur,“ segir Stefán R.
Gíslason, söngstjóri Karlakórsins
Heimis í Skagafirði, en nk. laugar-
dagskvöld, 5. janúar, efnir kórinn
til árlegrar þrettándahátíðar í
menningarhúsinu Miðgarði. Kór-
inn stendur á tímamótum en 28.
desember sl. voru 85 ár liðin síðan
Heimir var stofnaður. Er hann
með elstu karlakórum landsins.
„Svífðu með“ er yfirskrift þrett-
ándahátíðar að þessu sinni. Ræðu-
maður kvöldsins verður Einar K.
Guðfinnsson þingmaður. Fyrir hlé
verða sungin nokkur sígild karla-
kórslög, sem hafa verið í mestu
uppáhaldi Heimismanna. Einsöng
syngja Óskar Pétursson og Ari
Jóhann Sigurðsson. Eftir hlé
verður tekin léttari og suð-
rænni sveifla með nokkr-
um innlendum og erlend-
um slögurum í flutningi
kórsins og söngvaranna
Guðrúnar Gunnarsdóttur
og Óskars. Sjö manna hljómsveit
leikur undir, skipuð Stefáni,
nokkrum félögum í kórnum og
blástursleikurunum Sveini Sig-
urbjörnssyni og Guðbrandi Guð-
brandssyni. Á dansleik að tón-
leikum loknum leika Grétar
Örvarsson og Vilhjálmur Guð-
jónsson og með syngja Guðrún og
Óskar nokkur lög.
Heimismenn ætla síðan að fara
með þessa dagskrá víðar um land
á nýju ári, m.a. í Hofi á Akureyri
17. febrúar og sunnan heiða fyrstu
dagana í mars. Stefán útilokar
ekki enn fleiri tónleika. bjb@mbl.is
Stefán R. Gíslason tók við Heimi að nýju í haust eftir ársleyfi. Hann hefur
verið söngstjóri nær óslitið síðan 1985, eða í bráðum 30 ár. Lengst hef-
ur Jón Björnsson frá Hafsteinsstöðum stjórnað kórnum samfellt, eða
nærri 40 ár. Spurður hvort hann ætli að stjórna Heimi næstu 15 árin,
til aldarafmælis kórsins, hlær Stefán og bætir við: „Þá verð ég nú
bara 73 ára, þannig að það er aldrei að vita.“ Stefán segir góðan anda
vera í kórnum, hann hafi fengið sjö unga söngfélaga í haust og
nokkra „gamla“ sem sneru aftur, eins og þá Álftagerð-
isbræður. Meðalaldurinn hefur samt sem áður lækkað tölu-
vert. Elsti kórfélaginn, Árna Bjarnason á Uppsölum, er 81 árs
og yngstur er Guðjón Ólafur Guðjónsson, 18 ára.
Ungir og aldnir komnir inn
STEFÁN R. GÍSLASON TEKINN VIÐ KÓRNUM AÐ NÝJU
Stefán R.
Gíslason
Ljósmyndir/Hjalti Árnason
Karlakór Heimismenn standa fyrir árlegri þrettándahátíð í Miðgarði 5. janúar nk., nýlega orðnir 85 ára.
Sveifla og sígild lög á
þrettándahátíð Heimis
Karlakórinn Heimir 85 ára Tónleikarnir víðar um land